Morgunblaðið - 02.12.2010, Side 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2010
Elsku amma mín.
Um þetta leyti árs er
ég vön að setjast nið-
ur og skrifa bréf til
þín um hvað hefur
drifið á daga okkar í fjölskyldunni
yfir árið. Ég hef fengið fregnir af
því að þetta hafi glatt þig mikið, svo
að þetta er orðinn hluti af jólaund-
irbúningi hjá mér. Margar minning-
ar hafa verið að koma fram und-
anfarna daga, eftir að ég fékk þær
fréttir að þú hefðir kvatt þennan
heim. Fyrstu minningarnar tengjast
Bankastrætinu þegar þið afi bjugg-
uð þar og var ég oft hjá ykkur og
hafði alltaf gaman af. Þið voruð allt-
af svo dugleg að leika við mig og
spila en afi var mikið fyrir að spila á
spil og virtust þið alltaf hafa nægan
tíma. Einnig man ég vel eftir þegar
þú fórst með mér að heimsækja
systur þína, hana Hildi í Fljótshlíð-
inni, og vorum við í viku hjá henni.
Þetta var nú eina skiptið sem ég fór
í sveit svo það var nú ekki langur
tími en þetta var mikil upplifun hjá
mér. Ég hef sjálfsagt verið sjö ára
þá.Um 1970 fluttuð þið afi svo til
Danmerkur en ég held að Danmörk
hafi togað mikið í þig og skil ég það
vel þar sem þú varst alin upp þar.
Eftir að þið fluttuð út skrifuðumst
við alltaf á og svo komuð þið líka
stundum til Íslands.
Þegar ég var 14 ára eftir að ég
fermdist ákvað ég að fara til Dan-
merkur og vera hjá ykkur afa á
Møllevej í einn mánuð og var það
yndislegur tími og alltaf sól og blíða
í minningunni. Nokkrum árum síðar
eða þegar ég var 18 ára fór ég að
vinna ásamt Fjólu vinkonu minni á
SAS-hóteli í Kaupmannahöfn í
nokkra mánuði og það varst þú sem
útvegaðir okkur þá vinnu. Ég minn-
ist þess þegar við fórum að heim-
sækja þig og gistum hjá þér að
Fjóla átti ekki orð yfir hvað þú vær-
ir hress. Við fórum gangandi að
heimsækja afa á elliheimilið og lang-
ömmu mína, móður þína, sem þá var
orðin 100 ára. Og við höfðum varla í
við þig á göngunni.
Ég er mjög þakklát að hafa alltaf
getað haldið sambandi við þig þó að
við værum hvor í sínu landinu. Og
fékk fjölskyldan mín líka að kynnast
þér. Ég minnist 80 ára afmælisins
þíns en eftir matinn var slegið upp
balli og dansað og sungið og mikið
fjör. Einnig kom ég sumarið þegar
þú áttir 100 ára afmæli. Það var með
kór Landsvirkjunar sem pabbi
syngur líka í og gerir enn og sung-
um við fyrir þig.
Hressleiki, hreinskilni og lífsgleði
eru orð sem lýstu þér best og held
ég að það sé hluti af þínu langlífi en
ekki er langt síðan þú varst ennþá
að syngja í kór og spila á píanó. Þú
náðir að verða 103 og hálfs árs og
átt ennþá systur á lífi sem er 101 árs
og bróður sem verður 100 ára á
næsta ári. Já þetta er bara ótrúlegt.
Elsku amma, þetta er síðasta
bréfið sem ég skrifa til þín, ég veit
þú varst sátt þegar þú kvaddir og er
gott að hugsa til þess. Ég ætla að
taka þig til fyrirmyndar í ellinni ef
aldur og heilsa leyfa það.
Elsku besta amma mín,
nú komið er að kveðjustund.
Ávallt var kært milli mín og þín,
munum við gleðjast við endurfund.
Þín
Ágústa Guðný.
Fyrstu minningar mínar um Edel
langömmu eru úr áttræðisafmælinu
hennar en þá var ég lítil tæplega
fimm ára stelpuskotta. Þá var slegið
upp heljarinnar veislu þar sem var
sungið og dansað og langamma sjálf
tók þátt í öllu saman líkt og hún
Edel Einarsson
✝ Edel fæddist í Sla-gelse í Danmörku
13. júní 1907. Hún lést
í Skælskør í Dan-
mörku 18. nóvember
2010.
Útför Edelar fór
fram frá Skælskør
kirke í Danmörku 27.
nóvember 2010.
væri unglingsstúlka
en ekki áttræð kona.
Við tókum lagið sam-
an og dönsuðum og ég
man hvað mér þótti
gaman að allri athygl-
inni sem ég fékk
þarna þó svo að hún
væri auðvitað aðal-
stjarnan. Þarna var
líka Bjarni bróðir
hennar, þá rúmlega
sjötugur en gat vel
staðið í kaðlarólu líkt
og 10 ára drengur.
Þetta hefur einhvern
veginn einkennt þau systkinin,
hreysti, orka og langlífi og þess
vegna er hálfskrýtið að hugsa til
þess að núna sé hún farin frá okkur.
En góðu og skemmtilegu minning-
arnar fá að lifa með okkur og mér er
minnisstætt þegar hún leyfði mér að
gramsa í alls kyns fötum og klæða
mig upp í kjóla af henni og setja
skemmtilega hatta á höfuðið. Ég
kom svo út úr herberginu í hverju
dressinu á fætur öðru.
Þar sem við bjuggum alltaf hvor í
sínu landinu gat ég ekki heimsótt
hana eins og oft og ég hefði viljað en
fór þó í nokkrar dansferðir til Kaup-
mannahafnar og að sjálfsögðu mætti
langamma að horfa á mig, þá rúm-
lega níræð. Ég fylltist alltaf stolti
þegar ég tilkynnti fólki að þessi
stórglæsilega kona væri langamma
mín og hversu gömul hún væri orðin
og að hún væri enn í kór. Hún sýndi
öllu sem ég tók mér fyrir hendur
mikinn áhuga og spurði út í flesta
hluti og krafðist hreinskilinna svara.
Hún var sérlega lífsreynd kona í
ótrúlega góðu jafnvægi alveg fram á
allra síðustu árin. Það er stórkost-
legt að vera orðin 100 ára eins og
hún varð og gott betur og enn með
öll ljós kveikt í kollinum. Mér fannst
líka gaman að fylgjast með því hvað
hún var stolt af honum afa mínum.
Sumarið 2005 dvaldi ég hjá honum í
níu daga en þá starfaði hann hjá fyr-
irtæki sem sá um hjólaferðir í Dan-
mörku. Við heimsóttum að sjálf-
sögðu langömmu og þá hafði hún
einmitt á orði að hann afi væri nú
svo unglegur að hann gæti bara ver-
ið bróðir minn. Ég leyfði þeim nú
bara báðum að halda þetta. Það er
síðan ómetanleg minning þegar ég
fór með dóttur mína hana Ágústu
Rut í heimsókn til hennar haustið
2007. Þá var Ágústa Rut nokkurra
mánaða gömul og langamma 100
ára. Að sjá manneskjur með 100 ára
aldursmun tengjast á einhvern hátt
var dásamlegt og mér þykir mjög
vænt um að langamma hafi náð að
hitta Ágústu Rut þó svo að það hafi
verið þetta eina skipti.
Þegar ég hugsa um langömmu
geri ég það með miklu stolti. Hún
var kjarnakona sem er auðveldlega
hægt að taka sér til fyrirmyndar,
hún lifði hófsömu og heilsusamlegu
lífi og var annt um fólkið sitt. Ég
fann líka hvað það gladdi mig þegar
samstarfsfólkið mitt sá mynd af
henni í blöðunum og sá svip með
okkur tveimur enda ekki leiðum að
líkjast. Mér finnst gott að vita af því
að hún hafi sagt rétt áður en hún dó
að nú væri hún tilbúin að fara til
guðs, það passar vel við þessa reglu-
sömu konu og ég kveð hana með
söknuði en eftir lifa allar þessar
góðu minningar sem ég mun með
stolti koma áfram til næstu kyn-
slóða.
Linda Heiðarsdóttir.
✝
Sendum innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
SOFFÍU SIGURÐARDÓTTUR.
Færum starfsfólki á deild 5 á Hrafnistu í Kópavogi
sérstakar þakkir fyrir góða umönnun.
Sigþór Másson, Kristín Arnþórsdóttir,
Björk Hafliðadóttir, Magnús B. Óskarsson,
Sigdís Þóra Sigþórsdóttir, Ingvar Óskarsson,
Soffía Karen Magnúsdóttir,
Þórdís Björt Sigþórsdóttir,
Óskar Magnússon,
Arnþór Freyr Sigþórsson,
Einar Anton Birgisson.
✝
Eiginmaður minn, faðir, afi og tengdafaðir,
SIGURÐUR SIGURÐARSON
vígslubiskup, Skálholti,
verður jarðsunginn frá Skálholtsdómkirkju
laugardaginn 4. desember kl. 13.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Þorlákssjóð í Skálholti,
banki: 151 - 05 - 60468, kt. 610172-0169.
Arndís Jónsdóttir,
Stefanía Sigurðardóttir,
Sigurður Edgar, Dagbjört og Sigríður Pála,
Jón Magnús Sigurðarson, Sigurþóra Hauksdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður, faðir og tengdafaðir,
ERLINGUR Þ. JÓHANNSSON
sundþjálfari og fyrrverandi
íþróttafulltrúi Reykjavíkur,
Engjaseli 52,
Reykjavík,
sem lést laugardaginn 27. nóvember, verður
jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 6. des-
ember kl. 13.00.
Hrafnhildur Hámundardóttir,
Jóhann Erlingsson, Lise Tarkiainen.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systurdóttir,
mágkona og vinkona,
INGIBJÖRG R. GUÐMUNDSDÓTTIR
formaður LÍV,
Starhaga 14,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Neskirkju föstudaginn
3. desember kl. 13.00.
Bjarni Jónsson, Jenný N. Sigurðardóttir,
Andrés Jón Esrason,
Jón Eiríksson,
Timothy David Creighton, Ruth Barnett Creighton,
Irina S. Ogurtsova.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
SVEININNU ÁSTU BJARKADÓTTUR,
Hólagötu 47,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks göngudeildar
krabbameinssjúkra á Landspítalanum við Hringbraut og starfsfólks
Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja, fyrir einstaka umönnun og hlýtt
viðmót.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hjálmar Guðmundsson,
Hafsteinn Hjálmarsson,
Reynir Hjálmarsson, María Ásgeirsdóttir,
Bjarki Hjálmarsson, Birna Karen Björnsdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN GUÐMUNDUR BERGMANN
fyrrv. aðalgjaldkeri,
áður til heimilis að,
Ljósvallagötu 24,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 3. desember kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlegast bent
á líknarstofnanir.
Andreas Bergmann, Guðrún Gísladóttir Bergmann,
Ingibjörg Bergmann, Þorbergur Halldórsson,
Halldór Bergmann, Anna Lára Kolbeins,
Guðrún Bergmann, Gísli G. Sveinbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Faðir minn, tengdafaðir og afi,
JAKOB PÁLSSON
frá Upsum,
síðast til heimilis á Dalbæ,
Dalvík,
sem lést þriðjudaginn 23. nóvember, verður jarð-
sunginn frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 4. desem-
ber kl. 13.30.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeir sem vildu minnast hans, láti
Dvalarheimilið Dalbæ njóta þess. Jarðsett verður í Upsakirkjugarði.
Ari Snorrason Jakobsson, Dilla Guðjónsdóttir,
Páll Arason,
Pollý Aradóttir,
Kristján Arason.
✝
Elskuleg sambýliskona, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
ELÍSA RAKEL JAKOBSDÓTTIR,
Höfðagrund 18,
Akranesi,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut sunnu-
daginn 28. nóvember.
Útför hennar verður gerð frá Akraneskirkju föstu-
daginn 3. desember kl. 11.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Minningarsjóð um Jakob Rósinkar Elíasson,
reikningsnr. 1176-15-550655, kt. 680191-2479.
Þorkell Kristinsson,
Jakob Halldór Sverrir Ragnarsson, Elísabet María Pétursdóttir,
Sveinbjörn Kristinn Ragnarsson, Jensína Ólöf Sævarsdóttir,
Arnar Smári Ragnarsson, Daðey Steinunn Einarsdóttir,
Bjarni Karvel Ragnarsson, Árný Hulda Friðriksdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.