Morgunblaðið - 02.12.2010, Síða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2010
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á eign-
unum sjálfum þriðjudaginn 7. desember 2010 á eftirgreindum
tíma:
Teygingalækur/Hruni I, Skaftárhrepp, fnr. 225-5519, þingl.eig. Glæðir
ehf., gerðarbeiðendur eru Skaftárhreppur og Arion banki hf., kl. 13.30.
Klausturvegur 3-5, Skaftárhrepp, fnr. 219-0846, þingl. eig. Glæðir ehf.,
gerðarbeiðandi er Skaftárhreppur og Arion banki hf., kl. 13.00.
Sýslumaðurinn í Vík
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Freyjubrunnur 5, 230-8074, Reykjavík, þingl. eig.Teitur Ólafur
Marshall, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 6. desember
2010 kl. 10:30.
Freyjubrunnur 25-27, 230-5690, Reykjavík, þingl. eig. S33 ehf,
gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf ogTrygginga-
miðstöðin hf, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 13:30.
Freyjubrunnur 25-27, 230-5691, Reykjavík, þingl. eig. S33 ehf,
gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf ogTrygginga-
miðstöðin hf, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 13:45.
Freyjubrunnur 25-27, 230-5692, Reykjavík, þingl. eig. S33 ehf,
gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf ogTrygginga-
miðstöðin hf, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 14:00.
Freyjubrunnur 25-27, 230-5693, Reykjavík, þingl. eig. S33 ehf,
gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf ogTrygginga-
miðstöðin hf, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 14:15.
Freyjubrunnur 25-27, 230-5694, Reykjavík, þingl. eig. S33 ehf,
gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf ogTrygginga-
miðstöðin hf, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 14:30.
Freyjubrunnur 25-27, 230-5695, Reykjavík, þingl. eig. S33 ehf,
gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf ogTrygginga-
miðstöðin hf, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 14:45.
Freyjubrunnur 25-27, 230-5696, Reykjavík, þingl. eig. S33 ehf,
gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf ogTrygginga-
miðstöðin hf, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 15:00.
Freyjubrunnur 25-27, 230-5697, Reykjavík, þingl. eig. S33 ehf,
gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf ogTrygginga-
miðstöðin hf, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 15:15.
Marteinslaug 16, 226-7370, Reykjavík, þingl. eig. Snævar Már
Jónsson, gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf,
Íbúðalánasjóður og NBI hf, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 11:00.
Tröllateigur 23, 227-7149, Mosfellsbæ, þingl. eig. Ágústa Þ
Kristjánsdóttir og Birgir J Sigurðsson, gerðarbeiðandi Frjálsi
fjárfestingarbankinn hf, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
1. desember 2010.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Aðalstræti
92, Patreksfirði, sem hér segir, á eftirfarandi eignum:
Dalbraut 11, fastanr. 212-4828, Bíldudal, Vesturbyggð, þingl. eig. Björn
Magnús Magnússon, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn
6. desember 2010 kl. 14:00.
Gilsbakki 2-4, fastanr. 212-4884, Bíldudal, Vesturbyggð, þingl. eig.
Mjóni ehf, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður ogTryggingamiðstöðin
hf, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 14:00.
Gilsbakki 2-4, fastanr. 212-4879, Bíldudal, Vesturbyggð, þingl. eig.
Mjóni ehf, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður ogTryggingamiðstöðin
hf, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 14:00.
Gilsbakki 2-4, fastanr. 212-4880, Bíldudal, Vesturbyggð, þingl. eig.
Mjóni ehf, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður ogTryggingamiðstöðin
hf, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 14:00.
Gilsbakki 2-4, fastanr. 212-4881, Bíldudal, Vesturbyggð, þingl. eig.
Mjóni ehf, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður ogTryggingamiðstöðin
hf, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 14:00.
Gilsbakki 2-4, fastanr. 212-4882, Bíldudal, Vesturbyggð, þingl. eig.
Mjóni ehf, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður ogTryggingamiðstöðin
hf, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 14:00.
Gilsbakki 2-4, fastanr. 212-4883, Bíldudal, Vesturbyggð, þingl. eig.
Mjóni ehf, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður ogTryggingamiðstöðin
hf, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 14:00.
Gilsbakki 2-4, fastanr. 212-4885, Bíldudal, Vesturbyggð, þingl. eig.
Mjóni ehf, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður ogTryggingamiðstöðin
hf, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 14:00.
Gilsbakki 2-4, fastanr. 212-4886, Bíldudal, Vesturbyggð, þingl. eig.
Mjóni ehf, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður ogTryggingamiðstöðin
hf, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 14:00.
Gilsbakki 2-4, fastanr. 212-4887, Bíldudal, Vesturbyggð, þingl. eig.
Mjóni ehf, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður ogTryggingamiðstöðin
hf, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 14:00.
Gilsbakki 2-4, fastanr. 212-4888, Bíldudal, Vesturbyggð, þingl. eig.
Mjóni ehf, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður ogTryggingamiðstöðin
hf, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 14:00.
Gilsbakki 2-4, fastanr. 212-4889, Bíldudal, Vesturbyggð, þingl. eig.
Mjóni ehf, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður ogTryggingamiðstöðin
hf, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 14:00.
Hólar 15, fastanr. 212-3912, Patreksfirði, Vesturbyggð (50%), þingl.
eig. Skúli Hjartarson, gerðarbeiðandi Suðurhraun 3 ehf, mánudaginn
6. desember 2010 kl. 14:00.
Höfrungur BA-60, skipaskrárnr. 1955, þingl. eig. Róður ehf, gerðar-
beiðendur Sýslumaðurinn á Patreksfirði ogTryggingamiðstöðin hf,
mánudaginn 6. desember 2010 kl. 14:00.
Langahlíð 12, fastanr. 212-4933, Bíldudal, Vesturbyggð, þingl. eig.
Elínborg A. Benediktsdóttir og Páll Ágústsson, gerðarbeiðandi
Íbúðalánasjóður, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 14:00.
Langahlíð 33, fastanr. 212-4953, Bíldudal, Vesturbyggð, þingl. eig.
Eiríkur Björnsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Blönduósi,
mánudaginn 6. desember 2010 kl. 14:00.
Þórsgata 4, fastanr. 212-4205, Patreksfirði, Vesturbyggð, þingl. eig.
Agnieszka Szczesna og Mariusz Januszewski, gerðarbeiðandiTrygg-
ingamiðstöðin hf, mánudaginn 6. desember 2010 kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Patreksfirði,
1. desember 2010,
Úlfar Lúðvíksson.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
...þú leitar og finnur
Einn af betri mönn-
um hefur nú kvatt.
Jón Aspar, sannur
heiðursmaður og
prúðmenni, lést þann
18. nóvember eftir
skyndileg veikindi.
Hann kvaddi þennan heim æðrulaus
og sáttur eins og hæfir þeim sem
hafa lifað góðu og fallegu lífi.
Jón ólst upp í nágrenni Hólma-
víkur, á svipuðum slóðum og eig-
inkona hans heitin, Margrét Odds-
dóttir sem lést á síðastliðnu ári. Þau
hjónin voru alla tíð afar samrýmd
og samstiga. Þau eignuðust tvö
börn, dótturina Sigríði sem hefur
verið foreldrum sínum stoð og
stytta og soninn Halldór sem er
fjölfatlaður. Þau Jón og Margrét
önnuðust Halldór af einstakri natni
og umhyggjusemi alla tíð.
Heimili Jóns og Möggu frænku,
var á vissan hátt miðpunktur í stór-
fjölskyldunni og það var fastur liður
að koma við í kaffi hjá þeim heið-
urshjónum. Þau voru einstaklega
gestrisin og það var unun að heim-
sækja þau á fallegt heimili þeirra.
Mikið var skrafað og skeggrætt í
eldhúskróknum og aldrei var komið
að tómum kofunum hjá Jóni en
hann var með skemmtilegri mönn-
um. Glettni og skarpskyggni hans
er okkur minnisstæð. Það var
spjallað um ferðalög, veiðimennsku
og hagi fjölskyldunnar, bæði í
gamni og alvöru. En nú verða
stundirnar í eldhúskróknum ekki
fleiri og mikill missir að.
Eitt helsta áhugamál Jóns í gegn-
um tíðina var laxveiði. Öll höfum við
átt góðar stundir með honum við ár-
bakkann. Hann á stóran þátt í þeim
veiðiáhuga sem við og börn okkar
höfum og nú á síðari árum hefur
hann endurnýjað tengslin við fornar
heimaslóðir við Víðidalsá í Stein-
grímsfirði og höfum við notið þess
með honum.
Jón E. Aspar
✝ Jón E. Asparfæddist á Ak-
ureyri 24. janúar
1925. Hann lést 18.
nóvember 2010.
Útför Jóns fór fram
frá Akureyrarkirkju
26. nóvember 2010.
En nú er góður
drengur sem tengdist
okkur sterkum fjöl-
skyldu- og vinabönd-
um, í blíðu og stríðu,
allur. Við kveðjum
hann með virðingu og
eftirsjá. Börnum
hans, Halldóri og Sig-
ríði svo og fjölskyldu
Sigríðar vottum við
okkar innilegustu
samúð.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Blessuð sé minning Jóns Aspar.
María, Sigríður,
Nicholas, Torfi, Alma,
Gylfi og Hulda.
Í dag er kvaddur vinur kær Jón
E. Aspar.
Ferjan hefur festar losað,
farþegi er einn um borð.
Mér er ljúft af mætti veikum
mæla nokkur kveðju orð.
þakka fyrir heilum huga,
handtak þétt og gleði brag,
þakka fyrir þúsund hlátra,
þakka fyrir liðinn dag.
(Oddný Jónsdóttir)
Við systur eigum dýrmætar
minningar um góðan vin í hjörtum
okkar, sem við munum varðveita um
ókomna tíð.
Gugga, Sigga, Ragga, Anna og
fjölskyldur þakka vináttu og tryggð.
Vottum Halldóri, Sjoddý og fjöl-
skyldu okkar dýpstu samúð.
Guðbjörg Inga Ragnarsdóttir.
Góður og skemmtilegur maður er
genginn, Nonni frændi kvaddi á
sinn einstaka og yfirvegaða hátt,
ljúfur og sáttur við líf sitt en eftir
sitja ástvinir með sorg í hjarta en
sáttir fyrir hans hönd. Minningar
mínar um Nonna móðurbróður
minn eru allar skemmtilegar, já-
kvæðar og fullar af kærleik og um-
hyggju sem hann sýndi mömmu,
systur sinni, og allri fjölskyldu
hennar.
Upp í hugann koma skemmtileg-
ar bernskuminningar um mig og
Höllu systur að leika okkur með
flott veski og svartar dúkkur sem
Nonni frændi hafði keypt í Amer-
íku. Stundum sendi hann „krökk-
unum hennar Önnu systur“ ótrú-
lega spennandi pakka með framandi
leikföngum og fötum þegar hann
var í siglingum sem loftskeytamað-
ur á togurum eftir seinna stríð.
Minningar frá skemmtilegum heim-
sóknum Nonna, Möggu og fjöl-
skyldu til Skagastrandar og glens-
inu á milli hans og pabba og Möggu.
Oftar en ekki voru heimsóknirnar í
tengslum við sameiginlegt áhuga-
mál hans og pabba, stangveiðina.
Eftir að ég stofnaði heimili var oft
hringt í mig og ég látin vita að nú
væri „Nonni bróðir“ kominn og að
hann langaði að hitta mig og mína
og þegar við hittumst var alltaf
sama viðkvæði: „Hvað segirðu,
frænka mín, hvað er að frétta af
telpunum og er nóg að gera hjá
Gumma?“
Nonni og Magga voru afar sam-
rýmd og elskuleg hjón og mér
fannst ótrúlegt hvað hann var já-
kvæður og duglegur eftir að hafa
misst Möggu sína. Síðast þegar
hann kom í heimsókn ítrekaði hann
að ég mætti ekki hætta að senda sér
árlegt jólabréf með fréttum af fjöl-
skyldu minni, hvað telpurnar væru
að læra og bjástra við í lífinu. Nú
verð ég að senda honum jólabréfið
með huglægum pósti á öldum ljós-
vakans og vona að hinn snjalla loft-
skeytamaður nái því í stöðina sína.
Að lokum vil ég þakka kærum
frænda fyrir virðingu og vinsemd-
ina sem hann sýndi mér og mínum í
gengum árin. Sendum innilegar
samúðarkveðjur til Halldórs,
Sjöddýjar og fjölskyldu. Einnig
vottum við Nunnu, Stínu og Baldri
og öðru frændfólki samúð vegna
fráfalls kærs bróðurs og frænda.
Allar stundir okkar hér
er mér ljúft að muna.
Fyllstu þakkir flyt ég þér
fyrir samveruna.
(Har. S. Mag.)
Þórunn, Guðmundur,
telpurnar og fjölskyldur.
Elsku amma og
langamma.
Við geymum allar
dýrmætu stundirnar
með þér í hjörtum okkar og langar
okkur að kveðja þig með þessari
bæn:
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Hvíldu í friði elsku amma Día og
takk fyrir allt.
María Una, Gabríel Darri,
Kristín Una og Jóel Torfi.
Móðursystir okkar Día á stórt
hlutverk í minningum okkar systr-
anna. Á æsku- og unglingsárum okk-
ar var mikill samgangur milli fjöl-
Hallfríður
Guðmundsdóttir
✝ Hallfríður Guð-mundsdóttir (Día)
fæddist í Reykjavík 3.
mars 1925. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Eir 22. nóvember
2010.
Hallfríður var jarð-
sungin frá Graf-
arvogskirkju 26. nóv-
ember 2010.
skyldna okkar og þó svo
að við tvær værum mik-
ið yngri en hinir
„krakkarnir“ þá þótti
okkur alltaf mjög gam-
an að þessum samveru-
stundum. Það var alltaf
tilhlökkun að fara á
Háaleitisbrautina í jóla-
boð eða að fá Díu og
Gunnar og börnin
þeirra í jólaboð í Álf-
heimana. Laufa-
brauðsgerð á Háaleitis-
brautinni ber líka hátt í
minningunni og ekki
borðum við laufabrauð án þess að
minnast þessara stunda með Díu og
Gunnari þar sem pabbi og Gunnar
flöttu út, við systurnar skárum og
mamma og Día steiktu. Día var mikil
listakona sem við litum alltaf upp til.
Hún var glæsileg kona sem sýndi
okkur alltaf áhuga og við vorum allt-
af stoltar af að hafa hana sem móð-
ursystur. Við erum svo heppnar að
geta minnst Díu daglega með því að
líta á málverkin hennar, þar sem hún
gefur okkur hluta af íslenskri nátt-
úru inn á heimili okkar erlendis.
Elsku Gunnar, Guðmundur, Auð-
unn og Kristín; blessuð sé minning
Díu.
Sigrún Huld í Danmörku og
Erla Björk í Frakklandi.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins.
Smellt á reitinn Senda inn efni á for-
síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður
valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að
senda lengri grein. Lengri greinar
eru eingöngu birtar á vefnum. .
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram
upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og
hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar
mega einnig koma fram upplýsingar
um foreldra, systkini, maka og börn.
Ætlast er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er feitletr-
aður, en ekki í minningargreinunum.
Minningargreinar