Morgunblaðið - 02.12.2010, Page 29
DAGBÓK 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2010
Orð dagsins: Hann stendur mér við
hlið til þess að veita mér lið og vernd.
(Daníel 11, 1.)
Það er undarlegt að þurfa að faratil Íslands til að komast í hlýrra
loftslag,“ sagði sænskur gestur Vík-
verja þar sem þeir stóðu úti í úðanum
í Reykjavík í gærmorgun. Úti var
fimm stiga hiti, en sá sænski kvaðst
vera að koma úr 20 stiga gaddi í
fyrradag. Víkverji kannaði veður á
nokkrum stöðum í gær og komst að
því að skráð hitastig í Stokkhólmi var
10 mínusgráður, 16 mínusgráður í
Ósló og við frostmark í London þar
sem allt var á kafi í snjó.
x x x
Auðvitað eru það engin ný sann-indi að vetur eru mildari á Ís-
landi en annars staðar í Norður-
Evrópu. Öfugt við meginland Evr-
ópu, þar sem geta ríkt miklar stillur
þegar frystir, er hins vegar yfirleitt
rok á Íslandi. Víkverji dvaldi um
skeið í Bandaríkjunum og þar gátu
veðurfréttamenn ávallt vindkælingar
þannig að áheyrendur þeirra gætu
áttað sig á því hversu kalt væri í raun
og veru. Og það gat munað ansi
miklu. Þetta gera íslenskir veð-
urfræðingar aldrei, en Víkverja grun-
ar að mörgum Íslendingum myndi
bregða í brún ef þeir vissu hvað kalt
er í raun þegar vindurinn næðir um á
frostköldum dögum. Kannski er
ástæðan fyrir því að vindkæling-
arinnar er látið ógetið að menn
myndu ekki hætta sér út fyrir hússins
dyr ef þeir bara vissu.
x x x
Þegar talað er um vindkælingu erátt við áhrif kuldans á húðina að
teknu tilliti til blásturs. Þar sem loft-
hiti er yfirleitt lægri en líkamshiti er
hiti miðað við vindkælingu yfirleitt
lægri en lofthiti. Vísindamenn virðast
reyndar ekki vera á eitt sáttir hvernig
eigi að mæla þessi áhrif og benda m.a.
á að einstaklingar séu misnæmir fyrir
kulda. Kannski búa slíkar efasemdir
að baki því að ekki er talað um vind-
kælingu í íslenskum veðurfréttum.
Víkverji er þess hins vegar fullviss að
almenningur hefði ekkert á móti því
að þessar upplýsingar fylgdu, þrátt
fyrir að vísindin kunni að vera óná-
kvæm. Veðurfræðingar hika ekki við
að birta veðurspár, þótt ekki standist
þær alltaf. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 slóttugur, 4
málms, 7 árnar, 8 snákur, 9
krot, 11 hreint, 13 slægju-
land, 14 ókyrrðin, 15 galdra-
tilraunir, 17 brúka, 20 fálm,
22 svali, 23 sjófuglinn, 24
rjótt, 25 nákvæmlegar.
Lóðrétt | 1 skýrt, 2 skeið-
gengur, 3 rusl, 4 far, 5 kvísl-
in, 6 myrkvi, 10 svipað, 12
áhald, 13 ennþá, 15 óvani, 16
dýs, 18 fárviðri, 19 hinn, 20
dreng, 21 ímynd.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kunngerir, 8 sonur, 9 dolla, 10 púa, 11 merka, 13
rengi, 15 sennu, 18 Eddur, 21 næg, 22 forin, 23 gengi, 24 sann-
indin.
Lórétt: 2 unnur, 3 norpa, 4 endar, 5 iglan, 6 æsum, 7 hali, 12
kæn, 13 eld, 15 safn, 16 norna, 17 unnin, 18 eggin, 19 dengi, 20
reið.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
2. desember 1929
Minnsti loftþrýstingur hér á
landi, 920 millibör, mældist á
Stórhöfða í Vestmannaeyjum
þegar óveður gekk yfir landið.
Alþýðublaðið sagði að „af-
spyrnu-austanrok“ hefði verið
í Eyjum.
2. desember 1932
Kristján Sveinsson augnlækn-
ir opnaði lækningastofu sína í
Skólabrú 1 og starfrækti hana
í áratugi við miklar vinsældir.
Hann var gerður að heið-
ursborgara Reykjavíkur árið
1975.
2. desember 1941
Togarinn Sviði frá Hafnarfirði
fórst út af Snæfellsnesi með 25
manna áhöfn. Hann var á
heimleið af Vestfjarðamiðum
með fullfermi. Fjórtán konur
urðu ekkjur og 46 börn föð-
urlaus.
2. desember 1950
„Öldin okkar“ kom út hjá Ið-
unni. Hún flutti „minnisverð
tíðindi 1901-1930“ og var
„samin eins og dagblað,“ eins
og sagði í auglýsingu. Ritstjóri
var Gils Guðmundsson. Þessi
bókaflokkur varð mjög vin-
sæll.
2. desember 2000
Björk Guðmundsdóttir hlaut
evrópsku kvikmyndaverðlaun-
in í París sem besta leikkonan
fyrir leik sinn í myndinni Dan-
cer in the Dark. Áhorfendur
völdu hana einnig sem bestu
leikkonuna í atkvæðagreiðslu
á netinu og Ingvar E. Sigurðs-
son sem besta leikarann í
Englum alheimsins.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Bjarni Stefánsson, sýslumaður á Blönduósi, fagnar sex-
tíu ára afmæli í dag, fimmtudag. Bjarni hefur verið
sýslumaður á Blönduósi frá 2002, en var þar áður sýslu-
maður á Hólmavík og Neskaupstað.
Í tilefni dagsins hefur hann pantað borð fyrir sig, eig-
inkonuna Hrefnu Teitsdóttur og dótturina Ásu á góðu
veitingahúsi í Boston í kvöld. Ása lauk í sumar prófi í
söng- og upptökustjórn frá Berklee College of Music í Boston.
Spurður hvort embætti hans myndi slaka á við að sekta vegna hrað-
aksturs í tilefni dagsins og í fjarveru sýslumanns segist Bjarni vonast til
að strákarnir stæðu vaktina. „Annars er það svo skrýtið að í gamla
daga reyndi ég að komast sem hraðast, en nú reyni ég að hægja á liðinu
og sekta þá sem fara of hratt,“ segir Bjarni. Þar vísar hann til þess að á
áttunda áratugnum var hann fremstur íslenskra spretthlaupara og
keppti í 100 og 400 metrum á Ólympíuleikunum í München og Montreal.
„Íþróttirnar gáfu mér mikið og ég kynntist mörgu góðu fólki,“ segir
Bjarni. „Ég fékk tækifæri til að ferðast víða um heiminn og taka þátt í
Ólympíuleikum með allri þeirri gleði sem því fylgir og líka sorg eins og
í München 1972. Það var skrýtið að vakna upp við þær hörmungar sem
fylgdu gíslatökunni og morðunum í München. Þessi ár voru mikið æv-
intýri fyrir strák vestan frá Súgandafirði.“ aij@mbl.is
Spretthlaupari og sýslumaður sextugur
Reynir að hægja á liðinu
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ekki afskrifa neina hugmynd, nema
þú sért fullviss um tilgangsleysi hennar. Not-
aðu daginn til þess að skipuleggja þig betur.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Eigur þínar eru í brennidepli um þess-
ar mundir og þú verður að gera upp við þig
hvað þú vilt eiga og hverju þú þarft að
henda.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú þarft að leggja þig sérstaklega
fram til þess að ná tilskildum árangri. Ekki
þrasa um það hvernig á að deila einhverju
niður.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú veist ekki svarið fyrir víst fyrr en
þú tekur á. Einhver þarfnast þín meira en þú
hans/hennar.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Innsæi þitt kemur öðrum sífellt á óvart.
Tækifæri í leiklistargeiranum kunna að vera
framundan.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það lítur út fyrir að draumur þinn um
ferðalag geti ræst. Ræddu fjáröflunarhug-
myndir þínar við aðra og kannaðu viðbrögð
þeirra.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú hefur málstað að verja sem þér er
kær svo þú verður að standa af þér allar
ásakanir jafnvel þótt grófar séu. Gerðu eitt-
hvað skemmtilegt með smáfólkinu.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það er naumast að þú daðrar!
Sú/sá sem er skotin/n í þér finnst klikkuðu
hugmyndirnar þínar aðdáunarverðar. Ný
nálgun á fortíðina gæti hjálpað þér við að ná
betri tökum á nútíðinni.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það getur verið nauðsynlegt að
hleypa nýju lífi í gömul sambönd. Notaðu
kvöldið til að spjalla við góðan félaga.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Ræddu við foreldra þína í dag ef
hægt er. Félagslífið hefur setið á hakanum
um tíma, gerðu eitthvað í því.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Vinnan verður leikur einn þegar
yfirmaðurinn bregður sér frá. Kannski erfir
þú eitthvað, færð gjafir eða leyfist að nota
eitthvað sem aðrir eiga, þér til ánægju.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það er um að gera að ráðast strax á
vandamálið en láta það ekki breiða sig út yf-
ir allt og alla. Líttu fyrst í eigin barm áður en
lengra er haldið.
Stjörnuspá
Sudoku
Frumstig
6 9 8 5
5 6
6
4 5 2 1
5 9 6 4
7 1 4
1 8
7 9
8 1 7 2
4 9 1 2
1 7 8 6
7 5 6 1
9 7
1 4 5 2
5 7 6 4
2 7 5
6 7
3 9 1
5 7 4
7 6 3
2 4 3 7 8 6
2
1 5
6 1
7 2
8
3 5 4 9 8 7 2 6 1
6 9 2 1 5 4 8 3 7
7 1 8 2 6 3 9 4 5
4 7 5 6 1 8 3 2 9
9 3 6 7 2 5 1 8 4
8 2 1 3 4 9 7 5 6
5 8 7 4 9 2 6 1 3
1 4 9 8 3 6 5 7 2
2 6 3 5 7 1 4 9 8
8 7 3 4 5 6 1 2 9
1 5 6 2 9 3 7 4 8
9 2 4 1 7 8 6 5 3
3 4 5 6 2 7 8 9 1
7 9 8 5 3 1 4 6 2
2 6 1 9 8 4 5 3 7
6 3 2 8 1 5 9 7 4
5 1 7 3 4 9 2 8 6
4 8 9 7 6 2 3 1 5
2 8 6 1 4 3 5 7 9
9 3 5 2 8 7 6 4 1
4 1 7 9 6 5 8 2 3
8 9 2 4 7 1 3 5 6
5 7 1 6 3 8 2 9 4
6 4 3 5 9 2 7 1 8
1 5 4 8 2 6 9 3 7
3 6 9 7 5 4 1 8 2
7 2 8 3 1 9 4 6 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 2. desember,
336. dagur ársins 2010
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. c4 g6 2. d4 Rf6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6
5. Be2 0-0 6. Bg5 c6 7. Dd2 a6 8. Hd1
b5 9. a3 Rbd7 10. Rf3 bxc4 11. e5
Rd5 12. exd6 f6 13. dxe7 Dxe7 14.
Be3 R7b6 15. 0-0 Be6 16. Hfe1 Bf7
17. Bh6 Bxh6 18. Dxh6 Rxc3 19. bxc3
Dxa3 20. Hb1 Hab8 21. h4 Dxc3 22.
h5 Dc2 23. Rh4 c3 24. hxg6 Bxg6
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem haldið var í Kaupmannahöfn ár-
ið 1995. Íslenski stórmeistarinn Mar-
geir Pétursson hafði hvítt gegn
danska alþjóðlega meistaranum
Mikkel Antonsen. 25. Hxb6! og
svartur gafst upp enda staða hans
töpuð eftir t.d. 25. … Hxb6 26. Rxg6
Dxg6 27. Bc4+
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Dísa vann.
Norður
♠865
♥ÁD52
♦102
♣8765
Vestur Austur
♠D73 ♠Á10942
♥G974 ♥K6
♦D965 ♦G87
♣32 ♣ÁD4
Suður
♠KG
♥1083
♦ÁK43
♣KG109
Suður spilar 3♣.
Hjördís (Dísa) Eyþórsdóttir og Valer-
ie Westheimer unnu meistaratvímenning
kvenna á haustleikunum í Orlando. Þær
fengu toppskor fyrir frammistöðu sína í
spili dagsins. Austur vakti á 1♠, Hjördís
doblaði til úttektar, vestur hækkaði í 2♠
og Valerie sagði 2G í merkingunni „tveir
spilanlegir litir“. Hjördís þreifaði fyrir
sér með 3♣ og þar lauk sögnum.
Út kom spaði upp á ás og meiri spaði.
Hjördís tók ♦Á-K og trompaði tígul.
Spilaði næst laufi á kónginn heima og
trompaði svo fjórða tígulinn. Austur yf-
irtrompaði, tók ♣Á og kom sér út á
spaða. Nú reyndi Hjördís að rúlla ♥10 til
austurs, en vestur lagði gosann á tíuna.
Tími til að staldra við og telja punkta. Að
því loknu drap Dísa á ♥Á og spilaði
hjarta í bláinn.
Unnið spil og 23.5 stig af 25 mögu-
legum.
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
2. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 3.14 3,6 9.32 0,9 15.33 3,5 21.51 0,8 10.49 15.47
Ísafjörður 5.24 2,0 11.38 0,6 17.31 2,0 23.59 0,4 11.25 15.20
Siglufjörður 1.07 0,3 7.30 1,2 13.36 0,2 20.00 1,2 11.09 15.02
Djúpivogur 0.16 2,0 6.34 0,7 12.42 1,9 18.46 0,7 10.26 15.09
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið