Morgunblaðið - 02.12.2010, Page 30
30 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
VIÐ VERÐUM AÐ
HRESSA ÞIG VIÐ KALLINN
ÉG VEIT
HVERNIG ÉG GET
GLATT ÞIG!
ÞETTA
ER BETRA
ÞÚ HLÝTUR AÐ
VERA AÐ GRÍNAST!
JÁ,
BYRJAÐU
SVONA
SÍÐAN SKALTU SVEIFLA
BANDINU YFIR HÖFUÐIÐ OG
RÉTT ÁÐUR EN ÞAÐ SNERTIR
TÆRNAR ÞÁ HOPPARU. ENDUR-
TAKTU ÞETTA SVO HRATT!
ÞÚ ERT ENN ÞÁ REIÐ ÚT Í
MIG, ER ÞAÐ EKKI?
HVERNIG
DETTUR ÞÉR
ÞAÐ Í HUG?!
ÉG VEIT ÞAÐ EKKI,
ÉG FÉKK ÞAÐ BARA Á TILFINNINGUNA
ÉG HELD AÐ
GUÐRÚN GPS SÉ
VIRKILEGA
AFBRÝÐISSÖM
„MANNESKJA”.
AF HVERJU?
VEGNA ÞESS AÐ
HÚN FYLGIST
MEÐ ÞÉR Í
GEGNUM GERVI-
TUNGL HVERT
SEM ÞÚ FERÐ?
Gæsamamma og Grímur
NEI, VEGNA
ÞESS AÐ HÚN LÆTUR
VÍGBÚIÐ VÉLMENNI
ELTA MIG HVERT
SEM ÉG FER
Í HVERT SKIPTI SEM ÉG SEGI ÞÉR
AÐ ÉG HAFI ÁHYGGJUR ÞÁ SEGIRÐU MÉR
AÐ ÞÆR SÉU ÓMERKILEGAR
HVERNIG
LIÐI ÞÉR EF ÉG
HAGAÐI MÉR
SVONA GAGNVART
ÞÉR?
ÞAÐ
FÆRI EFTIR
EINU? HVERJU?!
HVORT
ÞÚ HEFÐIR
RÉTT FYRIR ÞÉR
EÐA EKKI
ÉG ÆTLA
AÐ FARA OG TAKA
NOKKRAR
MYNDIR
SJÁUMST! ÉG
SKIL
ÞETTA
EKKI
Í GÆR ÆTLAÐI ÉG AÐ
SEGJA MARY JANE AÐ ÉG VÆRI
KÓNGULÓARMAÐURINN
EN Í DAG
HEF ÉG ÁHYGGJUR
AF ÞVÍ AÐ HÚN SÉ
ÞEGAR BÚIN AÐ
ÁTTA SIG Á ÞVÍ
Úrskurður
Hæstaréttar
Ég geri ráð fyrir að
margir hafi beðið
eftir úrskurði
Hæstaréttar um nið-
urstöðu kæru vegna
peningabréfa, sem
allmargir voru svikn-
ir um þ.e.a.s. fengu
borgaða 2⁄3 af inn-
eignum sínum.
Ég held að marg-
ir, sem töpuðu mikl-
um peningum við fall
bankanna og spari-
sjóða, hafi getað ætl-
ast til að fá inneignir
sínar aðrar í sjóðum óhreyfðar,
nei aldeilis ekki. Kaupþing og
Glitnir borguðu um 85% en
Landsbanki 68,8%. Þetta skýrir að
hluta hvers konar misindismenn
sátu við völd til þess eins að moka
rækilega undir afturendann á
sjálfum sér, sem greinilega hefur
vitnast um.
Ég heyri daglega á rásum sjón-
varpsstöðva viðkvæðið „Fyrir þig
og þína“, sem kemur frá örvænt-
ingarfullum sparisjóðum, ekki veit
ég hvað mörgum, sem gera nú að-
för að fólki til að lokka það til við-
skipta á ný. Hvaða traust getur
fólk almennt borið til fjár-
málastofnana lengur? Eru ein-
hverjir sparisjóðir til lengur sem
starfa undir nafni? Hvað varð um
SPRON, Sparisjóð
vélstjóra (BYR),
Sparisjóð Mýrasýslu
o.fl., o.fl? Eru þeir
allir gjaldþrota? Voru
kannski ryksugaðir
innan frá eins og
bankarnir sumir
hverjir? Hvenær mun
sá tími koma að fólk
geti áhyggjulaust
gengið inn í banka
eða sparisjóð og
lagt fyrir fé sem það
hefur aflað á heið-
arlegan hátt án þess
að eiga það á hættu
að það glatist allt
innan viss tíma í
höndum misindismanna sem sitja
þar við stjórn?
Hver er skýring á að fólk tekur
innistæður sínar út í stórum stíl
og geymir í útleigðum hólfum eða
í öryggishólfum heima við, jafnvel
undir koddanum eins og sagt er?
Hvers vegna ættu eldri borgarar
að hafa sína peninga á neikvæðum
vöxtum til að greiða 18% fjár-
magnstekjuskatt af þeim og fá svo
restina senda til Tryggingastofn-
unar til frádráttar á bótum, sem
eru nú varla of háar fyrir þá sem
þeirra njóta?
Svanur Jóhannsson.
Ást er…
… að komast að því
sem skiptir raunverulega
máli í lífinu.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9,
gönguhópur kl. 10.30, vatnsleikfimi
kl. 10.45, myndlist og prjónakaffi kl.
13, bókmenntaklúbbur kl. 13.30.
Árskógar 4 | Handavinna/smíði/
útskurður kl. 9. Botsía kl. 9.30. Helgi-
stund kl. 10.30, myndlist kl. 13.30.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Opið hús í Boðaþingi 9, Kópavogi,
sama hús og Hrafnista, 4. desember
kl. 14. Upplestur úr nýjum bókum.
Hinar vinsælu Bergssystur syngja.
Veitingar í boði félagsins. Enginn að-
gangseyrir.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids kl. 13.
Félag kennara á eftirlaunum | Bók-
menntaklúbbur í Kennarahúsinu kl.
14.
Félagsheimilið Boðinn | Jóga kl. 9,
handavinna kl. 13.
Félagsheimilið Gjábakki | Ramma-
vefnaður kl. 9.05, leikfimi kl. 9.15,
málm- og silfursmíði kl. 9.30, bók-
band kl. 13 og myndlistarhópur kl.
16.10.
Félagsheimilið Gullsmára 13 |
Handavinna kl. 9, ganga kl. 10, brids
og handavinna kl. 13, jóga kl. 18.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ
| Trésmíði/tréskurður kl. 9 og 13.
Gönguhópur kl. 11, handavinnuhorn
og karlaleikfimi kl. 13, botsía kl. 14,
Garðakórinn æfing kl. 16.
Félagsstarf Gerðubergi | Helgistund
kl. 10.30, umsj. sr. Guðmundur Karl
Ágústsson. Vinnustofur op. frá há-
degi, m.a myndlist, búta- og perlu-
saumur. Á morgun kl. 10. 15 er Ey-
steinn Björnsson gestur í prjónakaffi
og les úr bókum sínum.
Hraunbær 105 | Jólabasar kl. 13-16,
handunnir munir og fleira skemmti-
legt.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, qi-
gong kl. 10, leikfimi kl. 11.20, gler-
skurður kl. 13, félagsvist kl. 13.30,
pílukast kl. 13.30, jólafundur fim. 9.
des. kl. 14.
Hvassaleiti 56-58 | Botsía kl. 10.
Hannyrðir frá kl. 13, félagsvist kl.
13.30, kaffisala.
Hæðargarður 31 | Bútasaumssýning
listasmiðju og myndlistarsýning Erlu
Þorleifsdóttur. Opnað fyrir hádeg-
isverð kl. 12 föstudag 3. des. og 6.
des.
Íþróttafélagið Glóð | Sundlaug
Kóp.: Ganga kl. 16.30. Hringdansar í
Kópavogsskóla kl. 17.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun,
föstudag, er sundleikfimi kl. 9.30,
listasmiðjan kl. 13.
Norðurbrún 1 | Botsía kl. 10-11,
handavinna og útskurður kl. 9/13.
Leirlist kl. 9/13.
Vesturgata 7 | Handavinna kl. 9 15,
glerskurður (Tiffanys), ganga kl.
11.30. Kertaskreytingar kl. 13 og kór-
æfing, leikfimi kl. 14.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Jóla- og
aðventufagnaður 10. des. kl. 18. Jóla-
hlaðborð og mikið til skemmtunar.
Upplýsingar og skráning í síma 411-
9450.
Pétur Stefánsson hafði hægt umsig á Leirnum, póstlista hag-
yrðinga, um nokkurt skeið. En gaf
út kröftuga yfirlýsingu er hann
mætti aftur til leiks:
Lífið mitt svo indælt er,
eintóm gleðivíma.
Fyrir viku fékk ég mér;
flatskjá, græjur, síma.
Friðrik Steingrímsson var ekki
seinn að bregðast við, enda þykir
honum fátt skemmtilegra en að
kveðast á við Pétur. Og má ráða af
vísunum að hann gladdist er fréttir
af dauða Péturs voru stórlega ýkt-
ar:
Sannast orðtak sýnist mér,
sumpart allavega,
að það sem lýðum leiðast er
lifir ótrúlega.
Ljúfsár virðist lífssýn þín,
laus við allan trega.
Daðraðu og drekktu vín
og deyðu reglulega.
Guðmundur Stefánsson orti að
gefnu tilefni:
Í sólarljóma lítur
landið yfir, vökull.
Orðinn aftur hvítur
Eyjafjallajökull.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af flatskjá, græjum og síma