Morgunblaðið - 02.12.2010, Side 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2010
Saman hafa verið teknar ábók hugleiðingar Matthías-ar Johannessen sem birtarhafa verið á netinu undir
nafninu Á vígvelli siðmenningar. Í
formála bókarinnar talar Jakob F.
Ásgeirsson um tilraun Baugsmanna
til að brjótast til áhrifa á öllum
sviðum þjóðfélagsins sem hin mestu
átök síðan á Sturlungaöld. Það
verður að teljast ofmælt. Jakob lýs-
ir einnig hvernig Matthías hafi tek-
ið til vopna í þágu siðlegs lífs á Ís-
landi en bætir síðan við hinu aug-
ljósa að Matthías hafði varla val um
með hverjum hann stæði þegar
sonur hans, ríkislögreglustjórinn,
var eitt helsta skotmark níðsher-
ferða Baugsmanna. En varla getur
réttlát barátta Vaclav Havels gegn
alræði og ógeði öfgavinstrimanna
talist eitthvað minna göfug af því
að hann hafði ekkert val þar sem
faðir hans hafði verið auðmaður. Í
bókinni eru kunnug stef eldri kyn-
slóðarinnar sem bendir á að hvorki
Eliot né Auden var aðlaður en
poppstjörnur og eigandi plötu-
búðar. Það snertir mann af hve
miklum hæfileika hann notar ljóð til
að skerpa á því sem hann meinar,
en einnig eftirtektarvert hvað
skáldin í kynslóðinni sem kemur á
eftir honum nota mikið lagatexta
poppstjarnanna.
Matthías hefur mikið vald á ís-
lenskri tungu. Texti hans er mátt-
ugur, slunginn þekkingu og
reynslu. Málsgreinarnar ná há-
punkti á útreiknuðum og meðvit-
uðum tímapunkti, setningarnar
hitta beint í mark. Það er lærdóms-
ríkt að lesa texta hans, þó ekki
væri nema vegna stílsins.
Matthías fjallar á áhugaverðan
hátt um skáldskap og fræga andúð
Baudelaires á því að vera nytsöm
manneskja. Það er erfitt að segja
hvort það hafi skaðað eða bætt
skáldskap Matthíasar að hann hef-
ur svo sannarlega verið nytsöm
manneskja í þessu lífi.
Matthías var þátttakandi í tveim-
ur stríðum; kalda stríðinu og síðan
tilraun auðmanna til að ná öllum
völdum á Íslandi. Þar sem kalda
stríðið vannst er meiri áhersla á hin
átökin. Vangaveltur um vangetu
dómstólanna í Baugsmálinu eru
áhugaverðar, sama má segja um
greiningu hans á níðsherferðum
Baugsmiðlanna. Skemmtilegust er
umfjöllun hans um hirðdekur og
hvernig við „dúðum metnað okkar í
dúnmjúka blekkingu frægð-
arinnar“.
Matthías fjallar þónokkuð um út-
rásina sem hann telur að eigi frek-
ar að nefna innrásina í sparifé
landsmanna. Hann bendir á að
sjálfur hafi hann verið flæktur í
þann lygavef sem auðmennirnir
spunnu í kringum glæpi sína, en
núna sé „vefurinn fallinn og enginn
dauður, nema kóngulóin“.
Um þá ríku menn sem hann
þekkti í gamla daga, segir Matt-
hías; „Hugsjón þeirra var sú að
auðgast fyrir almenning“, sem er
ólíkt því sem síðar var.
Göfuglyndi Matthíasar skín í
gegn. Hann sá enga ástæðu til að
miklast af sigri í kalda stríðinu og
núa þeim því um nasir sem áttu
nóg með að afbera það að hafa eytt
ævinni í baráttu fyrir hugsjónir
sem voru hrundar til grunna. Ólíkt
flestum pólitískum andstæðingum
sínum hefur hann líka haft gáfur og
getu til að horfa framhjá pólitík
þegar hann fjallar um skáldskap.
Bókin er listavel skrifuð og at-
hugasemdir Matthíasar meitlaðar
og sitja með lesandanum lengi. Það
er frábært að fá bók frá þessum
Fjölnismanni okkar tíma, Ivan
Bunin okkar lands, þótt Matthías
hafi ekki þurft að flýja land þar
sem öfgavinstrimenn náðu aldrei
mikilvægum völdum hér nema í
mennta- og menningarheiminum.
Fjölnismaður okkar tíma talar af vígvellinum
Á vígvelli siðmenningar
bbbmn
Eftir Matthías Johannessen
Bókafélagið Ugla 2010, 256 bls.
BÖRKUR
GUNNARSSON
BÆKUR
Morgunblaðið/Kristinn
Matthías Johannessen „Bókin er listavel skrifuð og athugasemdir Matt-
híasar meitlaðar og sitja með lesandanum lengi.“
Þetta er stór bók, 632 bls. ívænu broti, litprentuðmeð ótal myndum ogskýringarteikningum og
nauðsynlegum skrám. Hér er afar
ítarleg heimildaskrá og skrár um
ljósmyndir, íðorð, alþjóðleg fræði-
orð og íslensk sveppaheiti. Meg-
inmál bókarinnar er síðan tvískipt.
Fyrri parturinn og sá styttri (136
bls.) fjallar almennt um sveppi og
sveppafræði, eðli sveppa og form-
gerð, sveppi í lífríkinu, gerð er
grein fyrir nytjum og skaðsemi,
sögu rannsókna, bæði í alþjóðlegu
og íslensku samhengi. Í lok þessa
bókarhluta er fjallað um sveppa-
söfnun og greiningu. Síðari hluti
bókar er miklum mun lengri og er
lýsing á íslenskum sveppum og
flokkum þeirra.
Ég fæ ekki betur séð en frá-
gangur bókar sé góður. Myndir
mættu raunar vera stærri, en ég
get alveg fallist á þau rök sem
fram koma í formála að stærri
myndir kalla á stærra brot og þar
með óhandhægt. Ég rakst á örfáar
prentvillur og þó einkum skipt-
ingavillur milli lína sem meiri
hætta er á í tvídálka broti.
En fyrir hverja er þá þessi bók?
Notagildi hennar er margvíslegt.
Hér geta eigendur timburhúsa séð
hvaða sveppir ógna ríki þeirra og
hvernig á að verjast þeim og hvað
ber að varast í þeim efnum. Trjá-
ræktendur sjá hér glögglega hvaða
sníkjusveppir og ryðsveppir geta
leikið gróður þeirra grátt, ef svo
má segja um ryðsveppi. Þeir sem
breyta lífrænum úrgangi í mold
eiga hér fróðleiksbrunn og ekki
síst þeir sem safna sveppum, verka
þá og borða sér til bragðbætis.
Hér er verkunaraðferðum lýst og
hvað hentar best. Hér er greint
frá hlutverki sveppa við öl- og
ostagerð, svo nokkuð sé nefnt og
síðan geta menn fengið fótsveppi
sér til ama. Eiginlega er þetta bók
sem veitir svör við ótal spurn-
ingum og raunar vakna fleiri
spurningar en mann grunar um
leið og svörin birtast! Það kom
mér á óvart að hér hafa greinst
um 2000 sveppategundir, þar af
um 700 stórsveppategundir; og
væntanlega á enn eftir að bætast í
sumblið. Sveppir eru beinlínis allt í
kringum okkur – og undir iljum,
jafnvel þar sem feyra er í malbiki!
Þeir eru mikilvægur hlekkur í
þeirri hringrás náttúrunnar sem er
lífinu nauðsynleg. Sveppir eru eig-
inlega afskaplega merkilegar líf-
verur og í raun ótrúlegt að sjá
hvað skilgreiningar á kerfum við
upphaf 21. aldar eru sumpart
óljósar þegar að sveppum kemur.
Ég ætla mér ekki þá dul að fara
í fræðilega sauma á þessu riti, ég
nálgast það sem mikill áhugamað-
ur um sveppatínslu og -át, auk
þess sem ég rækta tré, held við
timburhúsi og á safnhaug og er
stórum fróðari eftir lesturinn um
betrumbætur á öllum þessum svið-
um! Bókin er læsileg af því að hún
er á góðri íslensku. Hins vegar er
umræðuefnið mjög sérhæft, fræði-
orð eru í hverri línu og ótal nýyrði
blasa við augum og lesandi þarf að
fara hægt yfir síður og einbeita
sér, og þó eru orðin gegnsæ í
besta máta. Mörg þessara orða
hefur Helgi búið til, einkum nöfn á
sveppum og þau eru hugvitssamleg
og mörg hver falleg og nær öll lýs-
andi. Nú veit ég ekki hvaða nöfn
Helgi bjó til en hér eru nokkur úr
skrá um íslensk sveppaheiti: blá-
silfri, bumbutrekla, dvergdusill,
glanstrefill, glitberkill, gullspaði,
hrímhetta, kveiftrefill og mætti svo
halda áfram til loka stafrófsins.
Það er af sem áður var þegar
menn notuðu orðið gorkúla um alla
sveppi. Færeyingar eiga hins veg-
ar orðið hundaland um það svæði
sem sveppir þekja: þeir eiga að
vaxa þar sem hundar míga.
Þessi bók er mikið eljuverk og
hefur verið áratugi í smíðum og
ber vott ríkulegri þolinmæði, alúð
og virðingu fyrir viðfangsefninu.
Ég óska Helga Hallgrímssyni til
hamingju með verkið. Þetta er
ekki bara sveppabók, þetta er
Sveppabókin, sem allir áhugamenn
um þessar dularfullu lífverur þurfa
að eiga og lesa.
Sveppir, sveppir alls staðar
Sveppabókin – Íslenskir sveppir
og sveppafræði
bbbbn
Eftir Helga Hallgrímsson.
Skrudda 2010. 632 bls.
SÖLVI
SVEINSSON
BÆKUR
Helgi Hallgrímsson „Þessi bók er mikið eljuverk...“ segir m.a. í dómnum.
METSÖLULISTI BÓKAVERSLANA byggir á upplýsingum frá flestum bókaverslunum landsins
og öðrum verslunum sem selja bækur (stórmörkuðum, bensínstöðvum o.fl.).
Rannsóknasetur verslunarinnar tekur saman listann fyrir Félag íslenskra bókaútgefenda.
Metsölulisti
Félags bókaútgefenda
22. til 28. nóvember
Allar bækur
1 Léttir réttir Hagkaups
- Friðrika Hjördís
Geirsdóttir / Hagkaup
2 Furðustrandir - Arnaldur
Indriðason / Vaka-Helgafell
3 Ég man þig - Yrsa Sigurðardóttir /
Veröld
4 Stóra Disney matreiðslubókin
- Ýmsir höfundar / Edda
5 Bók fyrir forvitnar stelpur! - Þóra
Tómasdóttir/Kristín Tómasdóttir /
Veröld
6 Gunnar Thoroddsen -
Guðni Th. Jóhannesson / JPV útgáfa
7 Þokan - Þorgrímur Þráinsson / Mál
og menning
8 Útkall, pabbi hreyflarnir loga
- Óttar Sveinsson / Útkall
9 Eyjafjallajökull - Ari Trausti
Guðmundsson & Ragnar Th.
Sigurðsson / Uppheimar
10 Ertu Guð, afi? -
Þorgrímur Þráinsson / Vaka-
Helgafell
Íslensk og þýdd
skáldverk
1 Furðustrandir - Arnaldur
Indriðason / Vaka-Helgafell
2 Ég man þig - Yrsa Sigurðardóttir /
Veröld
3 Ljósa - Kristín Steinsdóttir / Vaka-
Helgafell
4 Morgunengill - Árni Þórarinsson /
JPV útgáfa
5 Svar við bréfi Helgu -
Bergsveinn Birgisson / Bjartur
6 Önnur líf -Ævar Örn Jósepsson /
Uppheimar
7 Heimanfylgja -
Steinunn Jóhannesdóttir / JPV
útgáfa
8 Handritið að kvikmynd - Bragi
Ólafsson / Mál og menning
9 Martröð millanna -
Óskar Hrafn Þorvaldsson /JPVútgáfa
10 Áttablaðarósin - Óttar M.�orðfjörð
/ Sögur
Æviminningar
1 Gunnar Thoroddsen -
Guðni Th. Jóhannesson /
JPV útgáfa
2 Jónína Ben - Sölvi Tryggvason /
Sena
3 Það reddast -
Inga Rósa Þórðardóttir / Hólar
4 Þóra Biskups og raunir
íslenskrar.... - Sigrún Pálsdóttir /
JPV útgáfa
5 Alvara leiksins - ævisaga Gunnars
Eyjólfssonar - Árni Bergmann / JPV
útgáfa
6 Árni Matt : frá bankahruni til
byltingar - Árni M.Mathiesen /
Veröld
7 10.10.10 - atvinnumannssaga
Loga Geirssonar - Henry Birgir
Gunnarsson / Vaka-Helgafell
8 Á valdi örlaganna -
Þórunn Sigurðardóttir / JPV útgáfa
9 Fátækt fólk - Tryggvi Emilsson /
Forlagið
10 19. nóvember - ævim. Hauks
Guðmundssonar - Freyja
Jónsdóttir / Sögur útgáfa
Barnabækur
1 Bók fyrir forvitnar stelpur!
- Þóra Tómasdóttir/Kristín
Tómasdóttir / Veröld
2 Þokan - Þorgrímur Þráinsson / Mál
og menning
3 Ertu Guð afi? -
Þorgrímur Þráinsson / Vaka-
Helgafell
4 Jólasyrpa 2010 - Disney / Edda
5 Þú getur eldað! - Annabel Karmel /
Vaka-Helgafell
6 Lítil saga um latan unga -
Guðrún Helgadóttir / Vaka-Helgafell
7 Jólasveinarnir - Iðunn Steinsdóttir
/ Salka
8 Jólasmásyrpa 2010 - Disney /
Edda
9 Töframaðurinn - Michael Scott /
JPV útgáfa
10 Strumpafjör 1 - Peyo / Iðunn