Morgunblaðið - 02.12.2010, Síða 34
steinn á sér nokkuð skrítnar rekstrarlegar for-
sendur,“ útskýrir Júlíus. „Við þiggjum t.a.m.
ekki laun fyrir reksturinn, þau sækjum við ann-
að. Allt sem kemur inn í útgáfuna fer svo beint í
frekari útgáfu. Við einbeitum okkur bara að því
að vera réttum megin við núllið og ef einhverjir
peningar eru til fara þeir í að byggja undir út-
gáfu á einhverju spennandi.“
Þeir listamenn sem fram koma á Ránni í kvöld
eru Breiðbandið, Deep Jimi and the Zep Creams,
Lifun, Klassart og Valdimar. Á Nasa trylla lýð-
inn hins vegar Bjartmar og Bergrisarnir, Blaz-
Roca, Selma Björnsdóttir og Miðnæturkúrek-
arnir, Klassart, Deep Jimi and the Zep Creams,
Lifun og Valdimar. Miðasala er hafin á midi.is.
arnart@mbl.is
Suðurnesjaútgáfan Geimsteinn, elsta hljóm-
plötuútgáfa ársins, mun fagna farsælu útgáfuári
með tveimur útgáfuhófum. Hið fyrra fer fram á
Ránni, Keflavík, í kvöld en hið síðara á NASA nú
á laugardaginn. Árið í ár hefur verið heilladrjúgt
mjög og á útgáfan til að mynda sex lög í efstu
fimmtán sætum vinsældalista Rásar 2.
„Þetta er hálfgert rugl,“ segir Júlíus Freyr
Guðmundsson, sem rekur Geimstein með Björg-
vini Ívari Baldurssyni. „Geimsteinn hefur aldrei
átt jafn mikið af lögum á vinsældalistum eða jafn
mikið af farsælum plötum. Ekki einu sinni þegar
Hjálmar og Baggalútur voru á okkar snærum
(kímir).“ Geimsteinn er sem kunnugt er fjöl-
skyldufyrirtæki en faðir Júlíusar, Rúnar heitinn
Júlíusson, stofnaði til þess á sínum tíma. „Geim-
Tvöfalt útgáfuhóf hjá Geimsteini
Morgunblaðið/Ernir
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2010
Hljómsveitin heldur sannkallaða
stórtónleika þar sem fram koma
m.a. Kristófer Jensson, Scott
Mclemore, Erna Hrönn Ólafsdóttir,
Börkur Hrafn Birgisson, Daði Birg-
isson, Andrés Þór Gunnlaugsson,
Ari Bragi, Matti Kallio, Markús
Leifsson … og leynigestur.
Thin Jim and the Cas-
taways á Rósenberg
Fólk
Jólamyndin Niko og leiðin til
stjarnanna er sýnd um þessar
mundir í kvikmyndahúsum.
Myndin kom út í Finnlandi árið
2008 og hefur síðan þá hlotið ófá
verðlaun. Annar handritshöfunda
myndarinnar er Marteinn Þór-
isson en hann hlaut ásamt fram-
leiðandanum finnsku kvikmynda-
verðlaunin fyrir besta
kvikmyndahandritið í fyrra. Auk
þess var myndin valin besta
finnska myndin það árið, en þetta
var í fyrsta sinn sem teiknimynd
keppti við leiknar myndir um
þennan eftirsótta titil. Þá vann
myndin til verðlauna á CineKid,
kvikmyndahátíð fyrir barna-
myndir, í Amsterdam. Marteinn
vinnur nú að handriti að fram-
haldsmynd um Niko og félaga.
Verðlaunuð teiknimynd
frá Finnlandi
Mörg einkennileg uppátæki má
finna á samskiptavefnum Facebo-
ok. Í gær var blásið til Hug a
swimmer day, eða Faðmaðu sund-
mann-dagsins. Gera má ráð fyrir
því að margir sundmenn hafi ver-
ið faðmaðir í gær og það jafnvel
ofan í laugum víða um heim.
Sundmenn þurfa jú faðmlög eins
og aðrir.
Sundmenn faðmaðir á
fullveldisdeginum
Í dag byrjaði hin þekkta útvarps-
kona Margrét Maack jóladagatalið
sitt á netinu sem hún kallar Jóla-
mokk. Á hverjum degi mun hún vera
með „mokk“ á vídeóinu sínu þar sem
hún jólagrínast. Fyrsta „mokkið“
birtist í gær. Þar stílfærði hún atriði
úr bíómyndinni Love actually sem
hún segir að sé uppáhaldsjólamynd
allra. Hún fékk vin sinn, Berndsen,
til að leika í flugvallaratriðinu úr bíó-
myndinni. Hann kemur hlaupandi til
stelpunnar sem hann er skotinn í og
faðmar hana innilega. Margrét byrj-
ar jólamokkið með faðmlagi. „Já,
það er mjög jólalegt að faðma,“ segir
Margrét. „Markmiðið er að gera
alltaf eitthvað jólalegt á hverjum
degi. Þetta er í þriðja sinn sem ég
geri svona jóladagatal. Vinur minn
Arnór Bogason byrjaði með þetta og
svo fórum við Atli Viðar Þor-
steinsson vinur minn að gera svona
líka og það er orðin svolítil sam-
keppni á milli okkar í þessu. En
þetta er ekki eina jóladagatalið sem
ég er að gera. Ég er líka að gera
gjafadagatal fyrir systur mína, ég er
jólaóð og jólagóð. En í hvorugu jóla-
dagatalinu er nokkur söguþráður,
þetta lýsir bara daglegu lífi í desem-
ber.
Maður er að athuga hvort maður
sé í miklu jólaskapi eða ekki. Ég
fann fyrir því þegar ég byrjaði að
gera dagatalið að ég ákvað með
sjálfri mér að gera hitt og þetta jóla-
legt sem ég hefði ekki gert nema af
því að ég var að gera dagatalið og
það var mjög skemmtilegt. Til dæm-
is fór ég í fyrra í konfektgerð og var
extra sæt og vel til höfð af því að ég
var að gera dagatalið. Svo datt ég
einu sinni í netta unglingaveiki
gagnvart foreldrum mínum í fyrra
og það er ekki mjög jólalegt. Af því
að ég var að gera dagatalið gat ég
náð jólaskapinu upp aftur og verið
góð við mömmu og pabba,“ segir
jóladagatals stelpan María Maack.
borkur@mbl.is
Jóladagatalið Jólamokk
hjá Margréti Maack
Morgunblaðið/Ernir
Flipp Jóladagatal Margrétar Maack segir frá daglegu lífi í desember.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Út er komin ljósmyndabókin Andlit
– Íslenskir listamenn eftir ljósmynd-
arann Jónatan Grétarsson. Bókin
hefur að geyma portrettmyndir af
170 íslenskum listamönnum, ungum
sem öldnum og þar af nokkrum sem
fallnir eru frá. En af hverju portrett-
myndir af listamönnum frekar en
öðru fólki? „Mig langaði að skrásetja
samtímalistamenn. Ég flutti til
Bandaríkjanna 2006 með konunni
minni, hún var að fara í mastersnám í
klassískum söng og kennslufræðum.
Ég ákvað að stökkva út með henni af
því mig langaði aðeins að finna sjálf-
an mig, var búinn að gera svo mikið
fyrir aðra, var ekki að gera akkúrat
það sem mig langaði alltaf að gera,“
svarar Jónatan.
– Þetta er umfangsmikið verkefni,
að ljósmynda allt þetta fólk?
„Þetta er langtíma verkefni hjá
mér, 40 ára verkefni. Í rauninni byrj-
aði ég að vinna á fullu að bókinni
2007 en elstu myndirnar eru frá
2005, þannig að þetta eru fyrstu
fimm árin af 40 í þessari bók. Mig
langar svo að sjá þróunina á lista-
mönnunum, hvernig yngstu lista-
mennirnir í dag, sem eiga eftir að
koma aftur og aftur í stúdíó, verða
eftir 40 ár. Kristján Davíðsson og
Thor Vilhjálmsson voru einu sinni
ungir og þú sérð hvernig þeir eru í
dag, þeir eru bara hreinn skúlptúr og
listaverk. Og mig langar svo að sjá
hvernig listamennirnir í dag koma til
með að þróast, ásamt því að mynda
þessu elstu núna, mynda samtíma-
listamenn í 40 ár. Svo bætast nýir
listamenn alltaf við, það verða nátt-
úrlega komnir yngri listamenn eftir
40 ár,“ segir Jónatan. Spurður að því
hvaða listamaður sé yngstur í bók-
inni svarar Jónatan því til að það sé
söngkonan Þórunn Antonía Magn-
úsdóttir og sá elsti listmálarinn
Kristján Davíðsson, en myndina af
honum tók Jónatan þegar hann var
níræður.
Manneskjan eins og hún er
– Þú beitir mjög harðri lýsingu í
þessum myndum, það er ekkert ver-
ið að fegra fólkið.
„Þær eru svolítið realístískar þess-
ar myndir að því leyti að ég sýni allt,
manneskjuna nákvæmlega eins og
hún er,“ segir Jónatan. En hvernig
skyldu fyrirsæturnar hafa brugðist
við útkomunni? „Ég hef fengið mjög
jákvæð viðbrögð, flestir eru mjög
hrifnir. Þegar upp er staðið er það
landslagið í andlitinu sem heillar fólk
í portrettmyndum, hugsa ég, frek-
ar en eitthvert Hollywood-skot
sem er búið að fótósjoppa. Ég
lýsi þær líka og tek þær þann-
ig að ég þurfi ekki að vera í
mikilli eftirávinnslu, ég vil
helst að þetta sé nánast í lagi
því það er náttúrlega miklu
skemmtilegra að taka myndir
en að eyða tímanum í
tölvunni.“ Jónatan
segist ekki hafa
hitt marga af
listamönnunum
fyrr en þeir
komu í stúdíóið til hans. Þá hafi hann
spjallað við þá yfir kaffibolla, reynt
að komast betur að því hverjir þeir
væru, lesið í andlit þeirra um leið og
spáð í hvernig hann vildi lýsa þau.
Ekki bara ljósmyndarinn
„Það myndast gagnkvæmt traust
þegar menn eru búnir að spjalla
svona lengi áður en þeir fara í
myndatökuna. Þú vilt ekki bara
stökkva inn í stúdíó og fara eftir
kortér. Þú þarft að gefa þér tíma í
þetta til að árangurinn verði góður.
Þetta er ekki bara ég að taka mynd-
ina, listamaðurinn er auðvitað með-
vitaður um eigið útlit þannig að þetta
þarf að vera ákveðinn performans
hjá honum þó svo að ég reyni að fá út
úr myndatökunni það sem ég vil,“
segir Jónatan.
Landslagið
í andlitum
listamanna
Jónatan Grétarsson skrásetur ís-
lenska listamenn með portrettum
Ljósmynd/Jónatan Grétarsson
Elstur Kristján Davíðsson listmálari er elstur í bókinni. „Hreinn skúlptúr og
listaverk,“ segir Jónatan um andlit Kristjáns og Thors Vilhjálmssonar.
Jónatan Grétarsson hefur
stundað ljósmyndun í rúman
áratug. Hann lauk sveinsprófi
hér á landi árið 2001 og hélt að
því loknu í master class-nám
við ICP, International Cent-
er of Photography í New
York.
Jónatan starfaði við ljós-
myndun samhliða námi, var
tímaritaljósmyndari hjá út-
gáfunni Fróða frá árinu
2000 til 2006,
ásamt því að reka
eigið ljósmynda-
stúdíó.
Nam við ICP
ÚR FERILSKRÁNNI
Jónatan
Grétarsson
Reffilegur Blaz-
roca gefur út hjá
Geimsteini.
jonatangretarsson.com/