Morgunblaðið - 02.12.2010, Page 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2010
ekki að finnast það spennandi. Til-
vísanir í verk Thors í myndinni eru
mest úr verkum sem ég hef ekki les-
ið eftir hann en það hefði án vafa
auðgað mjög upplifunina. Ég leyfi
mér að efast um að það sé mikil
tenging í efnisvalinu fyrir Íslend-
Heimildarmyndin Draum-urinn um veginn fjallarum ferðalag Thors Vil-hjálmssonar um veg
heilags Jakobs, sem er pílagrímsleið
með endastöð í Santiago de Comp-
ostela.
Í flestum ferðasögum skiptir
tvennt mestu máli. Í fyrsta lagi að sá
sem leiðir mann inn í ferðina sé
áhugaverð manneskja, að manni líði
vel í návist hans allt ferðalagið. Í
öðru lagi að ferðin sjálf sé áhugaverð
eða að umhverfið eða aðstæðurnar
séu það. Það er varla hægt að hugsa
sér betri ferðafélaga en Thor Vil-
hjálmsson. Hann er viskan upp-
máluð og ró og þægindi eru í fasi
hans. Flestir Íslendingar hafa
ferðast með honum í bókum hans og
sum ferðalögin hafa verið óþægileg,
önnur yndisleg en vegna fjölda
þeirra finnst manni sem maður
þekki hann mjög vel og hann sé hluti
af þeirri stóru og litríku fjölskyldu
sem maður á í heimi ímyndunar-
innar.
Ferðalagið gæti verið mjög
áhugavert fyrir kaþólska eða
sagnfræðiáhugamenn með áhuga á
þessu svæði en undirrituðum tókst
inga. En þau eru samt næg til að
njóta myndarinnar, því gamall mað-
ur að gera draum sinn að veruleika
er fallegt viðfangsefni. Auk þess sem
lífsspekin sem hann kemur á fram-
færi vekur upp vangaveltur sem lifa
löngu eftir að myndinni lýkur.
Ferðalag með vini
Draumurinn um veginn
bbbnn
Heimildarmynd 1.hluti.
Stjórnandi: Erlendur Sveinsson.
Kvikmyndaverstöðin ehf.
BÖRKUR
GUNNARSSON
KVIKMYNDIR
Draumur Gamall maður að gera draum sinn að veruleika er fallegt við-
fangsefni. Thor Vilhjálmsson gekk veg heilags Jakobs til Santiago.
Háskólakennarinn JohnBrennan (Crowe) tekurþví vægast sagt illa ereiginkona hans (Banks)
er dæmd í fangelsi fyrir morð. Hann
trúir því ekki að hún sé sek af verkn-
aðinum og leitar því allra leiða til að
koma henni út fyrir veggi fangelsins
með góðu eða illu. Þegar lögfræð-
ingar bregðast, tekur hann til sinna
eigin ráða og byrjar að skipuleggja
flótta hennar úr fangelsi. Þess má
geta að myndin er endurgerð á
frönsku kvikmyndinni Pour Elle frá
árinu 2008. Liam Neeson er aug-
lýstur sem einn af þeim stórleik-
urum sem myndin státar af. Sann-
leikurinn er hins vegar sá að Neeson
birtist aðeins í nokkrar mínútur í
myndinni. Stendur sig svo sem
ágætlega í því hlutverki. Fyrri helm-
ingur myndarinnar er nokkuð lang-
dreginn. Brennan byrjar að plotta
flótta eiginkonu sinnar úr fangels-
inu. Meðal annars hengir hann stórt
kort upp á vegg nokkurn á heimili
sínu og teiknar þar alls kyns pílur,
tölur og útreikninga. Minnti svolítið
á kvikmyndina Beautiful Mind, þó
ekki sé nema vegna þess að Russell
Crowe fór þar með hlutverk John
Nash sem í þeirri mynd stundaði
svipaða iðju. Háskólakennarinn leit-
ar sér síðan aðfanga til framkvæmd-
ar flóttans úr fangelsinu í undir-
heimum og lemstrast talsvert í því
ferli öllu saman. Síðari hluti mynd-
arinnar er síðan mun hressilegri en
sá fyrri, en leikstjóranum Haggis
tekst að halda mikilli spennu allt til
loka. Helsti galli myndarinnar er lík-
lega hversu löng hún er, eða rúm-
lega tveir tímar.
Crowe reynir að koma konunni úr fangelsi
Smárabíó, Laugarásbíó
Næstu þrír dagar (The Next Three
Days) bbbnn
Leikstjóri: Paul Haggis
Handrit: Paul Haggis og Fred Cavayé
Leikarar: Russell Crowe, Elizabeth
Banks og Liam Neeson. Bandaríkin,
2010, 122 mínútur.
ÞÓRÐUR
GUNNARSSON
KVIKMYND
Mögulegt? Háskólakennarinn John Brennan er 100% sannfærður um sak-
leysi konu sinnar og unir því ekki að hún þurfi að dúsa í steininum.
Leikarinn
Johnny Depp
hefur sagt frá því
að forstjóri Disn-
ey-samsteyp-
unnar hafi ekki
þolað hvernig
hann túlkaði Jack
Sparrow í sínum
frægu sjóræn-
ingjamyndum. Í
viðtali við Vanity Fair segir Depp að
hann „haldi að það hafi verið Mich-
ael Eisner, forstjóri Disney á þeim
tíma, sem hafi sagt að hann væri að
eyðileggja myndina“. Leikarinn seg-
ir að Eisner hafi spurt hvort Depp
væri einhver einfeldningur eða hvort
hann væri fullur á tökustað. Depp
fékk Óskarsverðlaunatilnefningu
fyrir leik sinn. Talsmaður Disney
sagði aðspurður að allir væru himin-
lifandi með framlag Depps. Þess má
geta að Disney-fyrirtækið er nú með
fjórðu myndina í bígerð þar sem
Depp leikur sem fyrr Sparrow.
Eisner þoldi
ekki Depp
Johnny Depp
Umsjónarmaður
með vali á leik-
urum í kvikmynd-
ina The Hobbit
hefur verið rek-
inn. Ástæðan er
sögð sú að hann
hafði sett auglýs-
ingu í dagblað á
Nýja-Sjálandi
þar sem óskað
var eftir auka-
leikurum í myndina sem ljósir væru
á hörund. Umsjónarmaðurinn mun
hafa neitað konu af pakistönskum
uppruna um hlutverk í myndinni
vegna litarafts hennar.
Dýrkeyptar kröf-
ur um hörundslit
Hobbiti Fróði í
Lord of the Rings.
Sýnd kl. 8 og 10:15
HHHH
„...Fyrsta flokks afþreying“
-S.V., MBL
Sýnd kl. 6Sýnd kl. 6
Sýnd kl. 10:30 - Ótextuð
SJÁÐU JACKASS EINS OG ÞÚ
HEFUR ALDREI SÉÐ ÁÐUR!
HHH
-T.V. - kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6Sýnd kl. 8 og 10:30
HVERSU LANGTMYNDIR ÞÚ GANGA
FYRIR ÞÁ SEM ÞÚ ELSKAR?
ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND
HHH
„Prýðisskemmtun fyrir alla
fjölskylduna, falleg saga til að
njóta í aðdraganda jólanna“
-B.B., MBL
-bara lúxus
Sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
SMÁRABÍÓ Nánar á Miði.is
5%
Nánar á Miði.isBORGARBÍÓ
THE NEXT THREE DAYS KL. 8 - 10.15
NIKO OG LEIÐIN TIL STJARNANNA KL. 6
ARTÚR 3 KL. 6
JACKASS 3D KL. 8 - 10
12
L
L
12
Nánar á Miði.is
THE NEXT THREE DAYS KL. 5.20 - 8 - 10.40
THE NEXT THREE DAYS LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.40
NIKO OG LEIÐIN TIL STJARNANNA KL. 3.40 - 6
SKYLINE ÓTEXTAÐ KL. 8 - 10.10
JACKASS 3D ÓTEXTAÐ KL. 5.50 - 8 - 10.10
UNSTOPPABLE KL. 10.10
EASY A KL. 5.50 - 8
ARTHÚR 3 KL. 3.40
ÚTI ER ÆVINTÝRI 2 KL. 3.40
AULINN ÉG 3D ÍSL. TAL KL. 3.40
12
12
L
12
12
L
L
L
L
L
AGORA KL. 6 - 9
NIKO OG LEIÐIN TIL STJARNANNA KL. 6
DRAUMURINN UM VEGINN KL. 6
SKYLINE ÓTEXTAÐ KL. 8 - 10.10
UNSTOPPABLE KL. 8 - 10.10
BRIM KL. 6
YOU WILL MEET A TALL DARK STRANGER KL. 8 - 10.15
14
L
L
12
L
12
L
HÁSKÓLABÍÓ
ÍSL. TAL
ÍSL. TAL
"MYND SEM HITTIR Í MARK!"
-H.H, MBL
EPÍSK STÓRMYND EFTIR
LEIKSTJÓRA THE OTHERS
FRÁBÆR TEIKNIMYND
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
MEÐ ÍSLENSKU TALI
MISSIÐ EKKI AF ÞESSUM MAGNAÐA
VÍSINDASKÁLDSÖGUTRYLLI Í BÍÓ!
DRAUMURINN
UM VEGINN