Morgunblaðið - 02.12.2010, Blaðsíða 36
AF BÓKUM
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Í gær var tilkynnt hverjir væru til-nefndir til íslensku bókmennta-verðlaunanna og ástæða til að
óska þeim til hamingju. Verðlaunin
voru fyrst veitt Stefáni Herði Gríms-
syni árið 1989 fyrir ljóðabókina Yfir
heiðan morgun. Hann hlaut eina millj-
ón króna í verðlaun og mörkuðu verð-
launin sér strax sess sem mikilvægustu
bókmenntaverðlaun landsins.
Milljón krónur voru mikill pen-ingur á þessum árum, fram-
reiknuð verðmæti þess miðað við láns-
kjaravísitölu eru 2.630.000 krónur. Í
dag er verðlaunaféð 750.000 krónur.
Strax árið 1990 var verðlaununum
skipt í tvennt, þar sem annarsvegar
æðstu bókmenntaverðlauna landsins?
Verður það ekki fyrr en 750 þúsund
kallinn dugar ekki fyrir öðru en pulsu
og kók?
Svo má velta fyrir sér hversvegna
tilnefning til æðstu bókmenntaverð-
launa Íslands verður að vera í nóv-
ember þegar flestar bækurnar koma
út? Það er pirrandi að hugsa til þess
að nú í ár var þriggja manna nefnd að
lesa 60 bækur á fjórum vikum og velja
þær bestu í einhverjum kapplestri. En
það er kannski bjartsýnt að ætlast til
þess að bókmenntamenn hafi sitt fram
þegar þeir eiga við markaðsmenn.
voru verðlaunuð fræðirit og hinsvegar
fagurbókmenntir og fékk þá hvor
750.000 krónur og hefur sú upphæð
haldið sér að krónutölu síðan. En
framreiknaðar eru 750.000 krónur árið
1990 litlar 1,9 milljónir í dag.
Það er óneitanlega búbót fyrirhöfund að fá tæpar tvær milljónir
króna í verðlaun en 750.000 krónur
eru ekki nema tæplega þriggja mánaða
starfslaun rithöfunda úr Lista-
mannasjóðnum. Ég man að vinur minn
keypti sér litla 25 fermetra íbúð á
milljón krónur árið 1991 þannig að
menn geta ímyndað sér hve verðlaunin
hafa verið vegleg. Í dag dugar verð-
launaféð ekki fyrir íbúðarkaupum, það
er varla að þau dugi uppí afborgun af
húsnæðisláni. Það er ástæða fyrir þá
sem standa að þessum verðlaunum að
velta því fyrir sér hvenær þeir telji við
hæfi að hækka krónutölu þessara
Íslensku bókmenntaverðlaunin
» Í dag dugar verðlauna-féð ekki fyrir íbúðar-
kaupum, það er varla að það
dugi uppí afborgun af hús-
næðisláni.
Bóndinn Bergsveinn fékk tilnefningu fyrir bók
sína sem inniheldur kjarnyrt bréf frá bóndanum
Bjarna sem ýmist klórar konum eða kindum.
Morgunblaðið/Kristinn
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2010
Það hlýtur að vera
dálítið snúið að
vera Josh Groban.
Holtaþokuvælandi
blöðruselur en um
leið listamaður sem
þráir að láta taka
sig alvarlega. Eins og berlega kem-
ur í ljós á þessari nýjustu plötu hans,
sem er unnin með sjálfum töfra-
lækninum, Rick Rubin. Sjálfur er ég
mjög svag fyrir Groban, hef t.d.
mikla unun af jólaplötunni hans og
var því nokk spenntur er ég brá
þessari undir geislann. Ég efast ekki
um það eitt andartak að Groban er
heill og sannur í þeirri viðleitni sinni
að kafa á ögn dýpri mið. Hann er
meira að segja með þriggja daga
skegg og trefil á umslaginu til að
sanna sitt mál. Lítið fer þó fyrir
áhrifum Rubin, platan hljómar
býsna áþekk fyrri plötum og rækileg
mínusstig eru gefin fyrir slátrun á
„Straight to You“ Nick Cave. Grob-
an verður kannski ekki hrárri en
þetta en að ósekju hefði hann mátt
nýta sér krafta Rubin betur. Ég veit
að hann bæði vill það og getur.
Josh Groban – Illuminations
bbbnn
Glatað
tækifæri?
Arnar Eggert Thoroddsen
Rosalega var Bret-
inn að bíða mikið
eftir þessari plötu,
sem seldist von úr
viti er hún kom út.
Take That á meðal-
Bretann með húð og hári, líkt og
Oasis, og úr því að Robbie Williams
er kominn aftur í hópinn liggur
gervöll þjóðin kylliflöt. Sem feyreyki
hefur Take That gefið út tvær endu-
komuplötur, Beautiful World (2006)
og The Circus (2008), báðar þægi-
legar „inniplötur“. Á Progress fara
Take That-liðar hins vegar ham-
ingjusamir fram að hengifluginu og
bjóða upp á frískandi, grúvmiðað
rafpopp með ævintýralegum sveigj-
um og beygjum. Platan stendur
þannig vel, hún heldur athyglinni og
þetta er fínasta popp, jafnvel örlítið
meira en það. Knýjandi spurningin
er hins vegar hvað næst? Mun Take
That, fyrst strákasveita, ná að búa
sér til framhaldsslíf, standsetja sig
sem ofurvinsælar poppstjörnur á
nýjan leik? Það væri saga til næsta
bæjar, en hráefnið virðist til staðar.
Og viljann vantar væntanlega ekki.
Taktu þessa
plötu …
Take That – Progress
bbbmn
Arnar Eggert Thoroddsen
Táningspopp-
stjarnan og tán-
ingsstúlknatryll-
irinn Justin Bieber
skaust upp á
stjörnuhimininn
með ógnarhraða í
fyrra. Fyrsta smá-
skífa Biebers, „One Time“, komst í
efstu 30 sæti lagalista í yfir tíu lönd-
um og fyrsta breiðskífan hans, My
World, náði platínusölu í Bandaríkj-
unum. Bieber náði og í fyrra þeim
merka árangri að verða fyrstur tón-
listarmanna til að ná sjö lögum af
fyrstu plötu á bandaríska lagalistann,
yfir 100 vinsælustu lögin. Geri aðrir
sextán ára strákar betur!
Þessar ógnarvinsældir verða ekki
aðeins skýrðar með því að klókir tón-
listarútgefendur og -framleiðendur
standi á bak við hann því strákurinn
er hæfileikaríkur. Hann syngur vel,
spilar ágætlega á gítar og er fínn á
tónleikum, ef marka má tónleika-
upptökur á plötunni sem hér skal
rýnt í. Bieber hefur notið aðstoðar
tónlistarmannsins og -framleiðand-
ans Ushers við að koma sér á fram-
færi og fingraför Ushers má vissu-
lega greina á My Worlds The
Collection. Platan hefur að geyma
lög af fyrstu breiðskífu Biebers auk
endurhljóðblandaðra laga og laga
sem hann vann í samstarfi við hina og
þessa, m.a. Ludacris og Jaden Smith.
Allt hefur verið lagað til og fínpússað
af Usher og kollega hans L.A. Reid.
Tónlist Biebers er gítarpopp með
vænum skammti af R&B, töluvert
væmin á köflum sem höfðar ábyggi-
lega ágætlega til dreyminna tánings-
stúlkna og jafnvel -drengja. Hér er
sungið um stelpur, táningsástir, ást-
arsorg, Rómeó og Júlíu og þar fram-
eftir götunum. Þetta er sæmilegasta
popp, ristir vissulega ekki djúpt, syk-
urhúðað með endemum en fram-
reiðslan er flott, útsetningar og öll
umgjörð til fyrirmyndar. Bieber
svínliggur í táningsstúlknajólapakk-
ann, svo mikið er víst.
Svínliggur í táningsstúlknajólapakkann
Justin Bieber – My Worlds The
Collection bbbnn
Helgi Snær Sigurðsson
Reuters
Stjarna Bieber þenur raddböndin á tónleikum og táningsstúlkur skríkja sig
hásar. Aðdáendur hljóta að taka My Worlds The Collection fagnandi.
Erlendar plötur
Harry Potter, Hermione
Granger, Ron Weasley og
Voldemort eru komin aftur
í magnaðasta ævintýri
allra tíma
BESTA SKEMMTUNIN
LIFE AS WE KNOW IT kl. 8 10 RED kl. 8 - 10:20 12
HARRY POTTER kl. 5:30 - 8:30 - 10:30 10 ÓRÓI kl. 8 - 10:20 10
HARRY POTTER kl. 5:30 - 8:30 VIP FURRY VENGEANCE kl. 5:50 L
DUE DATE kl. 5:50 - 8 - 10:20 10
/ ÁLFABAKKA
HARRY POTTER kl. 5 - 6 - 8 - 9- 10:10 10 GNARR kl. 5:40 L
DUE DATE kl. 5:50 - 8 - 10:20 10 RED kl. 8 12
/ EGILSHÖLL
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
HHHH
- BOXOFFICE MAGAZINE
HHHH
- Time Out New York
„IT’S THE BEST FILM IN
THE SERIES.“
- ORLANDO SENTINEL
HHHH
„ÞETTA ER KLASSÍK
VORRA TÍMA.“
- Ó.H.T. – RÁS 2
HHHH
Aðsóknarmesta
myndin á Íslandi í dag
SÝND Í KRINGLUNNI
„EXCELLENT.
A ZEITGEIST FILM.“
- RICHARD CORLISS, TIMES