Morgunblaðið - 02.12.2010, Síða 40
Það er óhætt að lofa magnaðri
upplifun á tónleikum Sinfón-
íuhljómsveitarinnar í kvöld. Einn
eftirtektarverðasti hljómsveit-
arstjóri nútímans, Vasily
Petrenko, fer höndum
um hina stórbrotnu 5.
sinfóníu Mahlers.
Petrenko hefur lagt
heiminn að fótum
sér á síðustu ár-
um með tilfinn-
ingaþrunginni
túlkun sinni.
Vasily Petrenko
stjórnar Mahler
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 336. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318
1. Gunnar játi og segi af sér
2. Stundaði sjálfsfróun í bíói
3. Íris Lind var næst inn
4. Sjaldgæf sjón skammt frá landi
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
The Game, einn vinsælasti rappari
heims í dag, verður með tónleika á
Broadway 18. desember næstkom-
andi. Miðasala er hafin í Mohawks,
Kringlunni, og næsta víst að færri
munu komast að en vilja.
The Game með tón-
leika 18. desember
Lalli töframað-
ur gefur út aðra
kennslumynd sína
í töfrabrögðum og
kemur hún út í
þessari viku. Fyrri
mynd hans, Á bak
við tjöldin, kom út
fyrir síðustu jól
og hlaut mikið lof.
Nú hefur Lalli sett saman aðra mynd,
Töfrandi brögð, þar sem hann kennir
forvitnu töfrafólki trixin á bak við
brögðin.
Lalli töframaður
gefur út mynddisk
Á föstudag Norðan 8-13 og él austast, annars mun hægari og víða léttskýjað. Frost 0 til
12 stig, kaldast í innsveitum.
Á laugardag Norðvestlæg átt og bjartviðri, en dálítil él við norður- og vesturströndina.
Áfram kalt í veðri.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Stöku él austan til, annars léttskýjað. Kólnandi veður, frystir víðast
hvar á morgun.
VEÐUR
Framarar komust í gærkvöldi
tveimur stigum frá HK og sitja einir
í 2. sæti N1-deildar karla í hand-
knattleik eftir að þeir unnu 10
marka sigur á HK-ingum, 36:26.
Markahæstur hjá Fram var Andri
Berg Haraldsson sem skoraði sjö
mörk en fékk svo að líta
rauða spjaldið um
miðjan seinni hálf-
leik. Hjá HK var
Ólafur Bjarki Ragn-
arsson markahæstur
með átta mörk. »3
Fram í 2. sæti eftir
sigur á HK
Rhein-Neckar Löwen hristi af sér
slenið í þýska handboltanum í gær-
kvöldi og sigraði Þýskalandsmeistara
Kiel á heimavelli í Mannheim 28:24.
Landsliðsmaðurinn Guðjón Valur Sig-
urðsson kom inn á þegar rúmar fimm
mínútur voru eftir af leiknum. »1
Guðjón Valur kom inn á
í sigri Löwen á Kiel
Atvinnukylfingurinn Stefán Már Stef-
ánsson verður kylfusveinn hjá vini
sínum Birgi Leifi Hafþórssyni í loka-
úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröð-
ina sem hefst á laugardaginn. Rætt
er við Birgi í íþróttablaði Morg-
unblaðsins í dag en hann er kominn
til Katalóníu og þar spáir næturfrosti
næstu daga og lítt skemmtilegu hita-
stigi fyrir golfiðkun. » 2
Stefán Már verður
kylfusveinn hjá Birgi
ÍÞRÓTTIR
Ágúst Ingi Jónsson
Sigurður Sigmundsson
„Hérna er búinn að vera þvílíkur
fjöldi fólks og mikil hátíð,“ sagði
Ragnhildur Þórarinsdóttir, ein átta
Tungnakvenna sem buðu upp á kaffi
og kleinur í gær í tilefni opnunar
nýrrar brúar yfir Hvítá.
„Við notuðum stærðarinnar spýtu
sem gestabók og hún er þétt skrifuð
beggja vegna. Þó skrifuðu ekki næst-
um allir á spýtuna og hér er enn fullt
af fólki,“ sagði Ragnhildur síðdegis í
gær. Konurnar úr Biskupstungunum
búa nú allar í Hrunamannahreppi
austan árinnar og fannst ærið tilefni
til að slá upp smáveislu við vinnubúð-
irnar fyrir neðan Bræðratungu.
Þær fengu brúarsmiðinn og fram-
kvæmdastjóra Já-verks, Gylfa Gísla-
son frá Kjarnholtum í Bisk-
upstungum, í lið með sér. „Hópar
fólks komu úr báðum sveitunum og í
rauninni alls staðar að. Hér er
blankalogn og friðarkertið fyrir utan
rétt blaktir. Þetta er stór dagur og
bros á andlitum. Þetta er mikil sam-
göngubót, ekki bara fyrir okkur
hérna fyrir austan, heldur fyrir alla
Íslendinga,“ segir Ragnhildur.
500-700 bílar á sólarhring
Brúin tengir saman Biskups-
tungur og Hrunamannahrepp og
með henni styttist vegurinn milli
Flúða og Reykholts verulega. Áætl-
að er að 500 til 700 bílar fari um veg-
inn á sólarhring. Framkvæmdir hóf-
ust í júní í fyrra og er verkið á
áætlun. Heildarkostnaður við veg og
brú er áætlaður ríflega milljarður.
Vegurinn verður klæddur endanlegu
slitlagi í vor. Ræktunarsamband
Flóa og Skeiða er aðalverktaki að
framkvæmdinni, en JÁ-verk er und-
irverktaki við brúarsmíðina og unnu
40 til 50 manns við hana þegar mest
var.
Þessar samgöngubætur skipta
miklu máli fyrir íbúa svæðisins.
Grænmetisbændur sitthvorumegin
við ána ákváðu af þessu tilefni að
gefa grunnskólum í sveitum hver
annars ferskt grænmeti í desem-
bermánuði til að halda upp á tíma-
mótin.
Fjölbreytni eykst
í ferðaþjónustu
Ferðaþjónustan fagnaði einnig,
en með nýju brúnni opnast nýir
möguleikar fyrir ferðaþjónustuna.
„Áður var alltaf talað um gamla
góða gullna hringinn, en nú eru
þetta orðnir margir hringir, margir
útúrdúrar, og fjölbreytnin eykst í
ferðaþjónustunni,“ var haft eftir Ás-
borgu Arnþórsdóttur, ferðamála-
fulltrúa uppsveita Árnessýslu, í
fréttatilkynningu. Slíkt komi sér vel
fyrir heimamenn jafnt sem ferða-
fólk.
Fjöldi fólks og mikil hátíð
Kaffi og kleinur
í boði Tungna-
kvenna við opnun
Hvítárbrúar
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Samgöngubót Umferð var hleypt á nýja brú yfir Hvítá í gær og fögnuðu heimamenn og gestir þeirra af því tilefni.
Kaffi og kleinur Systurnar Guðríður og Ragnhildur Þórarinsdætur frá
Spóastöðum voru meðal átta kvenna úr Biskupstungum sem slógu upp
veislu við vinnubúðirnar. Konurnar eru nú búsettar í Hrunamannahreppi.