Morgunblaðið - 23.12.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.12.2010, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 2 3. D E S E M B E R 2 0 1 0  Stofnað 1913  300. tölublað  98. árgangur  –– Meira fyrir lesendur fylgir með Morgu nblaði nu í da g dagur til jóla 1 Kertasníkir kemur í kvöld www.jolamjolk.is UNNUR STEIKIR ÞÚSUND KLEIN- UR FYRIR JÓLIN SÝKNAÐIR AF KRÖFU ARES- BANKA MISTÖK EF GYLFI ÞÓR FÆRI STRAX FRÁ HOFFENHEIM VIÐSKIPTABLAÐ FRAMTÍÐIN BJÖRT ÍÞRÓTTIREKKERT MÁL 10 Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Þegar skoðaðar eru tölur Seðlabankans um erlenda stöðu þjóðarbúsins og beina fjárfestingu Íslendinga erlendis sést að þar er gert ráð fyrir því að Íslend- ingar eigi um 780 milljarða króna í erlendum hluta- bréfum. Við það bætast svo tæpir 300 milljarðar undir liðnum Lán til tengdra félaga, þannig að bein fjárfesting erlendis nemur í kringum 1.050 millj- örðum króna. Seðlabankinn veitir ekki upplýsingar um það í hvaða fyrirtækjum hlutabréfaeignin er, en bein fjárfesting erlendis er þó flokkuð eftir geirum atvinnulífsins. Kemur þar fram að eign Íslendinga í fyrirtækjum sem starfa í efnaiðnaði, gúmmí- og plastvöruframleiðslu nemi ríflega 380 milljörðum. Þá er eign í erlendri verslun um 160 milljarðar og 124 milljarðar í erlendri matvælaframleiðslu. Ekki verður séð að svo háar fjárhæðir náist nema ef með í reikninginn eru tekin fyrirtæki, sem í raun eru í höndum erlendra kröfuhafa. Má í því dæmi nefna Actavis, Baug Group og Bakkavör. Í tilfelli Actavis er fyrirtækið í raun á valdi erlendra kröfu- hafa með Deutsche Bank í fararbroddi. Í verslunar- rekstri hlýtur verslunarveldi Baugs að vega þungt, en skuldir þess eru, eins og fram hefur komið, nær allar hjá erlendum bönkum eða gömlu bönkunum. Mikil óvissa ríkir um raunverulega eignastöðu þjóð- arbúsins, en ætla má að hrein skuldastaða sé nær 1.000 milljörðum en 378 milljörðum í mati Seðla- bankans. MErlend eign ofmetin? »Viðskipti Bein erlend eign ofmetin  Samkvæmt tölum Seðlabankans nemur erlend eign Íslendinga í hlutabréfum og lánum til tengdra aðila um 1.150 milljörðum  Hætt við að þessi eign sé ofmetin  Algengt er orðið að banda- rískar fjöl- skyldur bregðist við kreppunni með því að gefa börnum notuð leikföng í jóla- gjöf, að sögn The New York Times. „Vöruskipti, aldagamalt við- skiptafyrirbæri, hafa breiðst út eins og eldur í sinu á árinu og kreppan fær margs konar fólk til að skiptast á öllum sköpuðum hlutum, allt frá hönnunarflíkum yfir í gítarkennslu- tíma,“ segir blaðið. Sumir nota vefsíður eins og Thre- dUP.com til að skiptast á notuðum leikföngum og fatnaði. Það gerði Mellissa Spitzer, heimavinnandi hús- móðir í S-Dakota. Hún fann m.a. heljarstóran vörubíl handa syni sín- um og leikfangahest handa lítilli frænku. Spitzer spurði ættingjana hvort gefa mætti börnum þeirra not- að dót. Þeir samþykktu. Notuð leikföng vinsælar jólagjafir  Íslenskri af- þreyingu, áður 365 hf., var sam- kvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í gær óheimilt að greiða upp lán frá Íslandsbanka sumarið 2009 en með þeim gjörn- ingi var öðrum kröfuhöfum Ís- lenskrar afþreyingar mismunað. Í lok ágúst 2008 fékk 365 hf. 305 milljóna kr. lán á 24% vöxtum í raun. Héraðsdómur segir að sami maður, Jón Ásgeir Jóhannesson, hafi verið við allar hliðar borðsins þegar Glitnir veitti 365 lánið til að kaupa eigin bréf og afskrá félagið og í kjölfarið selja fjölmiðlahlutann til Rauðsólar, félags í eigu Jóns Ás- geirs. »Viðskipti Sami maður við all- ar hliðar borðsins Tröllkerlingin Grýla er komin til byggða, nánar tiltekið í tjald Vísindaveraldar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Þótt sögurnar sem fara af Grýlu fjalli flestar um illsku hennar, sér í lagi í garð óþekkra barna, er hún glöð á að líta enda líklegt að börnin sem heimsóttu tjaldið og stilltu sér upp hjá kerlu hafi hagað sér vel. Hræðast ekki brosmildu Grýlu Morgunblaðið/Eggert Svo virðist sem fleiri velji nú þann kost að verja jólum og áramótum á sól- arströnd en sala á sólarlandaferðum er meiri nú en undanfarin tvö ár. Forsvars- menn ferðaskrif- stofa segja þó töluvert langt í land eigi að miða við góðærisárin 2006 og 2007 sem voru algjör metár í utanlandsferðum. Vinsælustu áfangastaðirnir eru sem fyrr Kanaríeyjar og Spánn. Sala á skíðaferðum hefur sömuleiðis farið vel af stað en lagt verður í fyrstu skipulögðu skíðaferðirnar í janúar. Ekki hefur verið farið til Tenerife á vegum Heimsferða síðan 2007 svo óhætt er að tala um meira en 100% aukningu frá því í fyrra. »4 Sækja í sól um jól  Fleiri eyða jólum og áramótum ytra Strönd Fólk sækir í hita um jólin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.