Morgunblaðið - 23.12.2010, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.12.2010, Blaðsíða 11
Þúsund kleinur fyrir jólin Það er mikið verk að gera þúsund kleinur í einu eins og gert er í Víðiholti. Bökunarplöturnar eru þéttar af kleinum. Orðið kleina merkir fallegar og litlar kökur » Í matreiðslukverinu frá 1800 er uppskrift að kleinum sem eru með tveimur snúningum og soðnar í smjöri. » Kleinur breiddust út um landið á 19. öld. Sagt er að þær hafi fyrst sést á sýslumannssetrinu í Hvammi í Vatnsdal um um 1840 og á Mel í Hrútafirði voru kleinur orðnar jólabrauð um 1860. » Stundum voru kleinur steiktar upp úr sellýsi eins og annað lýsissteikt brauð en margir vildu heldur nota hnýsuspik og steiktu úr hnýsu- lýsi. Mörgum þóttu lýsiskleinur mjög góðar enda hafði sumt fólk ekki vanist öðru. » Orðið kleinur merkir fallegar og litlar kökur, samanber orðið „klenod“. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2010 V ið hjá Bílabúð Benna óskum viðskiptavinum og landsmönnum öllum gleði og friðar yfir hátíðarnar og þökkum samskiptin á árinu sem er að líða. Þann 7. desember lagði Bílabúð Benna sitt af mörkum til samfélagsins með því að færa matargjöf til sameiginlegs átaks Mæðrastyrksnefndar, Reykjavíkurdeildar Rauða Krossins og Hjálparstarfs kirkjunnar. Jólagjöf frá Bílabúð Benna. Bílabúð Benna - Vagnhöfða 23 - 110 Reykjavík - 590 2000 - www.benni.is - benni@benni.is Gleðilega hát íð Það er fátt skemmtilegra um jólin en að spila í góðra vina hópi. Fjöldi skemmtilegra spila hefur verið gef- inn út á Íslandi gegnum árin og nú hefur enn eitt bæst í hópinn: orðaspilið Þú veist. Að spilinu standa hjónin Barði Þór Jónsson og Hulda Guðmundsdóttir en að sögn Barða er um að ræða skemmtilegt og fræðandi fjölskylduspil. 24 hliða teningi er kastað, finna þarf orð sem passa við tilmæli á sérstökum gormaspjöldum og þarf að finna 12 orð sem byrja á bókstafnum sem teningurinn sýnir áður en tími renn- ur út. „Hugmyndin kviknaði um síðustu jól þegar Hulda fékk heimagert spil í jólagjöf frá vinkonu sinni. Við spiluðum þetta spil öll síðustu jól og fólk virtist al- mennt mjög hrifið af því. Upp frá því fór ég að skoða það að gefa út spil á svipuðum nótum og úr varð að ég setti mig í samband við Íslending sem býr í Kína og þá fór boltinn að rúlla. Teningarnir, stundaglösin og blýantarnir koma frá Kína en allt annað er gert hér á Íslandi,“ segir Barði. Einn stór fjöl- skyldupakki Frá því í nóv- ember hefur verið unnið nánast dag og nótt við að leggja lokahönd á verkið og hafa Barði og Hulda fengið mikla hjálp frá fjölskyldumeðlimum, t.a.m. við að kynna spilið, hanna útlit og framsetningu og síðast en ekki síst finna nafn á spilið. „Þannig að það má í raun segja að þetta sé einn stór fjöl- skyldupakki þar sem mæður, feður, systur, bræður, frænkur og frændur hafa lagt okkur lið.“ Að sögn Barða hentar spilið fyr- ir unga sem aldna en hann hefur frétt af heimilisfólki á dvalarheimili sem hafi verið að spila það auk þess sem grunnskólar hafi keypt það til að nota við kennslu. Hægt er að fræðast meira um spilið á facebook.com/thuveist. Nutu aðstoð- ar stórfjöl- skyldunnar Þú veist Barði Þór ásamt dóttur sinni og spilinu Þú veist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.