Morgunblaðið - 23.12.2010, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2010
Úrval af reyktum ál í gjafapakkningum
Einnig jólahumarinn
Sægreifinn
Geirsgötu 8, sími 553 1500
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Þegar borið er saman verðið á nokkr-
um algengum matvörum sem bæði
fengust í Bónus í Holtagörðum og
Krónunni á Granda reynist munurinn
í verðkönnun ASÍ að meðaltali vera
um 0,8%, fyrrnefndu versluninni í
hag.
Verðmunur á hamborgarhrygg
með beini í verslunum var allt upp í
122% þegar verðlagseftirlit Alþýðu-
sambands Íslands kannaði verð í sjö
lágverðsverslunum og stórmörkuðum
í Reykjavík og á Akureyri sl. mánu-
dag. Kannað var verð á 46 algengum
matvörum í eldhúsum landsmanna yf-
ir hátíðarnar. Bónus var oftast með
lægsta verðið í 27 tilvikum af 46 en í
15 tilfellum var um eða undir tveggja
krónu verðmunur á Bónus og Krón-
unni. Nóatún var með hæsta verðið í
19 tilvikum en Samkaup-Úrval var
næstoftast með hæsta verðið.
Mikill verðmunur reyndist á hangi-
kjöti og hamborgarhrygg, verðmun-
urinn var frá 32% upp í 122%. Mesti
munurinn var á KEA-hamborgar-
hrygg m/beini sem var á lægsta verð-
inu hjá Nettó Akureyri á 989 kr./kg.
Dýrastur var hann hjá Nóatúni og
Samkaupum-Úrvali á 2.198 kr./kg,
það er 122% verðmunur eða 1.209 kr.
Dýrar appelsínur í Hagkaupum
Mikill verðmunur á grænmeti og
ávöxtum milli verslana vakti einnig
athygli, segir í tilkynningu ASÍ. Sem
dæmi má nefna að ódýrustu fáanlegu
appelsínurnar kostuðu 168 kr./kg í
Fjarðarkaupum en 339 kr./kg hjá
Hagkaupum, það er 102% munur.
Lægsta verð á Lindu-konfekt-
kassa, 460 g, var 998 kr. í Bónus en
það var dýrast í Fjarðarkaupum á
1.498 kr. Lægsta kílóverðið af Mac-
intosh Quality Street var 1.299 kr./kg
hjá Bónus en það var dýrast hjá Nóa-
túni á 1.990 kr./kg.
Verslunin Kostur neitaði að taka
þátt í verðkönnun ASÍ.
0,8% munur á verði
Lítill munur á matvörum í Bónus og Krónunni í verð-
könnun ASÍ Verðmunur á hamborgarhrygg allt að 122%
Morgunblaðið/Þorkell
Verðkönnun Ekki sama hvar ham-
borgarhryggurinn er keyptur.
Mikið hefur snjóað á Akureyri síðustu daga og
starfsmenn bæjarins eru nú í óðaönn að hreinsa
götur. Víða eru ruðningar, þó ekki svo stórir að
þeir skyggi á jólin. Ef marka má veðurspár
stefnir í hvít jól um allt land en gert er ráð fyrir
éljagangi með suðurströndinni á aðfangadag og
vægu frosti. Jólin hvítu gætu þó verið skamm-
vinn því á jóladag er spáð suðaustanátt og hlýrra
veðri sunnanlands.
Hvít jól á Akureyri en skammvinn fyrir sunnan
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Jólabjórinn var vinsæll í ár, svo vin-
sæll að þeir sem ekki hafa þegar
tryggt sér og geyma nokkra slíka
hafa þegar misst af lestinni. Fjórar
mest seldu tegundirnar af jólabjór
höfðu til og með 21. desember sl.
selst í um 619 þúsund lítrum. Gerir
það 28% söluaukningu milli ára.
Mest seldi jólabjórinn í ár er Vík-
ing Jólabjór, og á meðfylgjandi töflu
má sjá að gríðarleg söluaukning varð
á tegundinni milli ára, eða um 50%.
Álíka mikil aukning varð einnig á
sölu jólabjórs Kalda. Athygli vekur
hins vegar að á sama tíma minnkar
sala á jólabjór Egils um 11% .
Þá var 13% aukning í sölu á hinum
geysivinsæla Tuborg Julebryg en
hann seldist upp snemma í desem-
ber. Mikil eftirspurn hefur verið eftir
honum í ÁTVR síðan þá og því ljóst
að mun meira hefði selst af bjórnum
ef framboðið hefði svarað eftirspurn.
andrikarl@mbl.is
Nærri þrjátíu prósenta
aukning í sölu jólabjórs
Jólabjór
(lítrar óháð söluumbúðum, flöskur eða dósir)
Lítrar 2010 Lítrar 2009 Breyting í %
Viking Jólabjór 150.415,9 100.711,9 49%
Tuborg Julebryg 65.832,4 58.417,3 13%
Egils Jólabjór 43.526,8 48.767,8 -11%
Kaldi Jólabjór 35.116,6 23.721,7 48%
Samtals selt af jólabjór 619.121 483.951 27,9%
Lítið úrval eftir
í Vínbúðum ÁTVR
Svínainflúensa
hefur greinst í
ungum ein-
staklingi hér á
landi sem nýkom-
inn er frá Eng-
landi. Hann hafði
ekki verið bólu-
settur en mun
ekki vera mikið
veikur.
„Fólk verður að fara með gát,
halda sig inni við ef það er veikt,
passa að hósta ekki framan í næsta
mann og muna að þvo sér reglulega
um hendurnar,“ segir Haraldur
Briem sóttvarnalæknir þegar spurt
er hvernig bregðast eigi við ef mað-
ur veikist. „Og svo er það mikilvægt
að láta bólusetja sig. Ef menn fengu
hana ekki í fyrra og urðu ekki sann-
anlega veikir af henni geta þeir lent í
þessu en þeim stendur enn til boða
að fá bólusetningu. Við getum búist
við að fá hópsýkingar hingað og
þangað en reiknum þó ekki með að
þetta verði stór faraldur eins og í
fyrra. Við erum vel stödd hér, nóg
bóluefni er til.
Þegar svínaflensan gekk hérna
fyrir um ári bólusettum við um
helming þjóðarinnar þannig að við
álítum að stór hluti þjóðarinnar sé
býsna vel varinn.“
Haraldur minnir á að einnig sé
hér að ganga núna hefðbundin inflú-
ensa sem hafi gert það á hverju ári
um langt skeið, eitt tilfelli hafi
greinst með vissu. Þrír flensustofnar
séu í reynd að ganga, svínaflensa en
líka tveir stofnar af hefðbundnu
flensunni, A og B. kjon@mbl.is
Greindist
með svína-
flensu
Haraldur Briem
Fólk hvatt til að
láta bólusetja sig
Margir árekstrar urðu á höfuðborg-
arsvæðinu í gær en talsverð hálka
skapaðist eftir að fór að snjóa. Hjá
fyrirtækinu Árekstur.is voru skráðir
yfir 20 árekstrar yfir daginn.
Þung umferð var í borginni þar
sem margir voru að gera jólainn-
kaup. Hálkan var líka víðar á land-
inu. Árekstur varð við Öxl á Norður-
landsvegi um hádegisbilið í gær.
Fjórir voru í öðrum bílnum en einn í
hinum. Engin meiðsl urðu á fólki. Að
sögn lögreglunnar á Blönduósi var
mjög hált á Norðurlandi.
Árekstrar
í hálkunni
Verð á tunnu af
hráolíu fór yfir 94
dollara á heims-
markaði í gær og
bensín hækkaði
um 15 dollara.
Þetta er mjög
óvenjulegt á
þessum árstíma
þar sem verð er
yfirleitt lægst í
desember, að
sögn Magnúsar Ásgeirssonar, inn-
kaupastjóra hjá N1. Hluti hækk-
ananna á heimsmarkaði sé þegar
kominn fram í verðinu hér heima.
,,Það er óvenjuhátt verð í desem-
ber miðað við það sem venja er,“ seg-
ir Magnús. Enn sé óvíst hvort hækk-
anirnar haldi áfram í janúar. „Það er
engan veginn gefið að svo verði.
Veðrið hefur áhrif á það. Með fimbul-
kulda víða í Evrópu eykst olíu-
notkunin og eftirspurnin verður mjög
mikil, sem hefur áhrif á verðið.“
Olía hækkar
á markaði
Bensín Hækkun
í farvatninu?