Morgunblaðið - 23.12.2010, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2010
Atli Vigfússon
laxam@simnet.is
Það er ekkert mál að gerasvona margar kleinur íeinu því ég hef svo gamanaf þessu. Ég bý deigið til í
þremur skömmtum, flet það út og
sný upp á jafnóðum. Svo tek ég
góðan tíma í að steikja eða um það
bil tvær og hálfa klukkustund.“
Þetta segir Unnur Sigríður Kára-
dóttir, bóndi í Víðiholti í Þingeyj-
arsýslu, en hún er þekkt fyrir mjög
góðar kleinur enda bakar hún mik-
ið og gefur fólkinu sínu poka af
kleinum fyrir jólin.
Unnur á fimm barnabörn og
frændgarð sem kann vel að meta
kleinurnar en hún segist setja
meira af eggjum í jólakleinurnar en
venja er til. Hún segist ekkert
þurfa að spara eggin því hún býr
með landnámshænur og þær fá alla
matarafganga en í staðinn fær
Unnur næg egg til heimilisins.
Þetta er góð endurvinnsluað-
ferð því hænurnar eru alætur og
nýta allt sem þær fá og aldrei þarf
að henda neinu matarkyns sem til
fellur.
Mildar tólgarbragðið
Nokkuð virðist misjafnt hvern-
ig uppskriftir eru notaðar í kleinur
og sumir nota engin egg og svo er
líka misjafnt hvaða bragðefni eru
notuð. Unnur notar sítrónudropa
en það er ekki alls staðar svo. Þá
steikja margir kleinurnar bara í
tólg en aðrir blanda saman tólg og
annarri jurtafeiti. Unnur segist
nota djúpsteikingarfeiti samhliða
tólginni og mildar það tólg-
arbragðið en það er samt alveg
nauðsynlegt með.
Eins og sjá má geta kleinuupp-
skriftir verið mjög mismunandi.
Kleinur I
4 egg
300 g sykur
5 dl súr rjómi
1 kg hveiti
5 tsk. lyftiduft
2 tsk. hjartarsalt
½ tsk. salt
1 tsk. kardimommur
2 tsk. kúmen
tólg
Kleinur II
1 kg hveiti
200 g sykur
3 tsk. hjartarsalt
4 tsk. kardimommur
300 g smjör
2 dl mjólk
jurtafeiti
Kleinur voru lengi jólabrauð
ásamt lummum og pörtum en eru nú
hversdagsbrauð og eru alltaf vinsælar
á borðum. Þær eru alltaf gott kaffi-
brauð en margir segja að þær séu
eins mismunandi og heimilin séu
mörg enda mikið til í því. Unnur seg-
ist ekki fara eftir nákvæmri uppskrift
í hvert sinn, heldur sé þetta orðinn
einhver vani að búa til deigið eftir til-
finningu. Það virðist alltaf takast og
kleinurnar í Víðiholti bregðast ekki og
skyldfólkinu sem fær kleinur í poka í
jólapóstinum hlýnar um hjartaræt-
unar þegar þetta góða brauð sem
kleinurnar eru fara á kaffiborðið.
Steikir um þúsund
kleinur fyrir jólin
Margir kunna vel að meta jólakleinurnar hennar Unnar Sigríðar Káradóttur,
bónda í Víðiholti í Þingeyjarsýslu. Unnur steikir um þúsund kleinur fyrir hver jól
og gleður fólkið sitt með poka af kleinum um jólahátíðina.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Kleinukona Unnur í Víðiholti kann lagið á kleinunum.
Þeir sem ekki hafa tíma eða nennu til
að skrifa jólakort geta sent vinum og
kunningjum syngjandi kveðjur í
tölvupósti, þar sem textinn er eftir
sendandann en um sönginn sjá hinir
ýmsu tónlistarmenn sögunnar, hver
og einn syngur eitt orð. Þessi sam-
ansoðni söngur er frekar fyndinn og
gleður vafalítið viðtakandann. Til að
geta gert þetta þarf aðeins að slá inn
á leitarvél (Google) orðin: let them
sing it for you, þá kemur efst upp
slóð á sænska útvarpinu (sverigesra-
dio.se/p1/src/sing/#) og þetta er
afar einfalt, aðeins þarf að slá þann
texta sem viðkomandi vill senda inn í
ferhyrninginn á forsíðunni og þar fyr-
ir neðan er sett inn nafn og netfang
sendanda sem og netfang móttak-
anda. Svo er um að gera að hafa
kveðjuna sem lengsta, jafnvel per-
sónulega sögu sem skondið er að
heyra sungna. Það er líka gaman að
dunda sér við að þekkja söngvara
orðanna, til dæmis er hello-ið greini-
lega hið eina sanna hello sem Lionel
Richie syngur í ofurvæmna laginu
Hello, is it me you’re looking for, og
sumir vilja meina að sé ömurlegasti
ástarsöngur allra tíma.
Vefsíðan www.sverigesradio.se/p1/src/sing/#
Væminn Lionel Richie syngur hello-ið í syngjandi kveðjunum.
Láttu þá syngja fyrir þig
Eins og landsmenn vita er aðfanga-
dagur jóla á morgun, dagurinn sem
flestir hafa hlakkað til allan mánuðinn.
Þorláksmessuna nota margir til að
leggja lokahönd á jólaundirbúninginn,
hitta vini og fara í bæinn. Endilega
notið daginn í dag til að gera eitthvað
skemmtilegt, ekki eyða honum í
stress og stúss, hittið vini og fjöl-
skyldu og hlæið dátt, njótið lífsins,
leikið ykkur.
Þorláksmessa er haldin því 23. des-
ember árið 1193 andaðist Þorlákur
Þórhallsson Skálholtsbiskup en hann
fæddist árið 1133 á Hlíðarenda í Fljóts-
hlíð.
Endilega …
… skemmtið
ykkur í dag
Morgunblaðið/Þorkell
Þorláksmessa Stuð í miðbænum.
Þessi uppskrift fylgdi með heim til Ís-
lands eftir Frakklandsdvöl íslenskrar
fjölskyldu fyrir um hálfri öld. Hún hef-
ur síðan verið elduð um hver jól og
tekið einhverjum breytingum með ár-
unum, sérstaklega varðandi kryddið.
Að auki er skinkumagnið minna en í
upphaflegu uppskriftinni.
Þetta þarf í patéið:
15 g smjör
1 saxaður laukur
450 g svínahakk
225 g smátt söxuð kjúklingalifur
225 g smátt saxað svínagúllas
2 lítil eða meðalstór egg, léttþeytt
6 msk rjómi
2 msk koníak
2-5 pressuð hvítlauksrif eftir smekk
½-1 tsk allrahanda eftir smekk
negull og múskat eftir smekk
salt og pipar eftir smekk (það má
nota piparinn hraustlega, en þess
þarf að gæta að fara varlega með
saltið)
250 g beikonsneiðar
100-200 g skinka, skorin í lengjur
100 g ósaltaðar pistasíuhnetur
2-3 lárviðarlauf
ögn af timían
Aðferð: Smjörið er brætt í litlum
potti, laukurinn settur út í og látinn
krauma þar til hann er mjúkur án þess
þó að brúnast.
Laukur, svínahakk, svínagúllas,
kjúklingalifur, egg, rjómi, koníak, hvít-
laukur og krydd – allt hrært saman
þar til það hefur blandast vel (í fyrsta
skipti sem þetta er gert er ágætt að
steikja smáslettu á pönnu til að at-
huga hvort kryddið er hæfilegt).
Tveggja lítra mót (sumum þykir
girnilegra að hafa tvö minni mót) er
klætt að innan með beikonsneiðum –
en 2-3 sneiðar eru settar til hliðar.
Þriðjungur blöndunnar er settur í mót-
ið, svo helmingurinn af skinkulengj-
unum og helmingurinn af pist-
asíuhnetunum. Þetta er endurtekið og
loks síðasti þriðjungur blöndunnar
settur efst. Beikonsneiðarnar sem
voru settar til hliðar eru settar efst,
lárviðarlauf ofan á og timían stráð yfir.
Mótinu er lokað og einangrað vel
með álpappír. Bakað í vatnsbaði í ofni
við 180°C í u.þ.b. einn og hálfan tíma.
Að þeim tíma liðnum er mesti hitinn
látinn rjúka úr áður en lokið er tekið
af. Paté-ið er þá fergt með u.þ.b. 1 kg
þungu fargi þar til það er orðið kalt
(það er gott að hella smávökva af, en
þess þarf að gæta að hafa fargið ekki
of þungt, því þá pressast of mikill
vökvi úr og paté-ið verður þurrt).
Paté-ið má geyma í ísskáp í um eina
viku. Bragðið heldur áfram að þrosk-
ast í nokkra daga eftir bakstur og það
er því eiginlega best tveimur eða
þremur þremur dögum eftir að það er
gert.
Steingrímur Sigurgeirsson
Uppskriftin
Franskt
jólapaté
Fleiri uppskriftir má finna á Matur
og vín-vef Morgunblaðsins: mbl.is/
matur og á www.vinotek.is.
„Mér fannst
vanta almenni-
lega hresst spil
og einfalt,“ segir
Arnaldur Gauti
Johnson sem ný-
verið gaf út spilið
Fjör til enda.
„Mér finnst gam-
an að spila með
fjölskyldu og vin-
um og mér fannst
svo margir vera orðnir leiðir á að
vera alltaf að svara sérhæfðum
spurningum, þurfa að syngja ein-
hver lög, leika eða gera sig að fífli.
Þess vegna langaði mig að búa til
hresst spil eins og Hættuspilið, sem
kom út fyrir 10 árum, þar sem menn
eru til í að spila, er fjörugt og menn
dragast inn í skemmtunina og allir
eru til í að vera með, líka fúli pabb-
inn og stirði frændinn.“
Þróaði spilið í flugferðum
Um eitt ár er síðan Arnaldur
Gauti byrjaði að þróa Fjör til enda.
„Ég ferðast mikið milli Stokkhólms
og Reykjavíkur út af vinnunni og ég
vann þetta mest í fluginu. Í staðinn
fyrir að horfa á bíómynd eða lesa
krimma var ég með glósubók með
mér og það var fínt að gleyma aðeins
vinnunni og dunda mér í þessu. Svo
fór fullur kraftur í þetta í maí, vann í
spilinu yfir sumarið og í haust og svo
kýldi ég á þetta í nóvember.
Að sögn Arnaldar Gauta gengur
leikurinn þannig fyrir sig að spilað
er á heimskorti. Á því eru brautir og
eru þátttakendur með spjöld á hendi
og kasta teningum. „Þarna er bland-
að saman heppni og kænsku. Mark-
miðið er að fara á heimsálfureit sem
er í hverri heimsálfu og vinna sér
þar inn heimsálfuspjald. Þar eru ein-
faldar þrautir sem þarf að leysa. Svo
eru inn á milli happaglappaspjöld og
þar lendirðu í alls konar ævintýr-
um.“
Fjör til enda Heppni og kænska.
Arnaldur Gauti
Johnson
Spil fyrir fúla pabbann
og stirða frændann