Morgunblaðið - 23.12.2010, Page 14
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Nokkurra daga afar strangt nám-
skeið í snjómokstri er nú að baki í
höfuðstað Norðurlands. Flestir lík-
lega komnir í mjög góða æfingu.
Varla var maður búinn að moka
heim að dyrum svo blaðberinn kæm-
ist með góðu móti að lúgunni í fyrra-
málið þegar aftur þurfti að hendast
út með skófluna svo blaðberinn
kæmist með góðu móti að lúgunni í
fyrramálið.
Mér sýnist á spánni að skófluna
sé hægt að geyma inni í skúr þar til á
sunnudag enda loks klárt að jólin
verða hvít hér nyrðra og því þarf
ekki meira í bili. Og ég gleðst í
hjarta mínu, skóflunnar vegna.
Árleg blysför í þágu friðar verður
gengin á Akureyri í dag. Lagt verð-
ur af stað frá Samkomuhúsinu kl. 20
og gengið út á Ráðhústorg þar sem
flutt verða ávörp og sungið. Kerti
verða seld í upphafi göngunnar.
Sérþjónusta við fatlaða flyst al-
farið frá ríki til sveitarfélaga um ára-
mótin og af því tilefni undirrituðu í
gær fulltrúar nokkura sveitarfélaga
við Eyjafjörð samning um sameig-
inlegt þjónustusvæði. Akureyri
verður leiðandi sveitarfélag í hópn-
um og sér um að veita fötluðum á
svæðinu öllu þjónustu.
Akureyri hefur séð um málefni
fatlaða frá árinu 1997 skv. samningi
við ríkið. Reynslan er því fyrir
hendi.
Markmið samningsins eru eink-
um að tryggja fötluðum samþætta
og heildstæða þjónustu, laga þjón-
ustu að þörfum og óskum fatlaðra
með hliðsjón af ólíkum aðstæðum og
stuðla þannig að auknu sjálfstæði
þeirra; efla félagsþjónustu á svæð-
inu; þróa samstarf sveitarfélaga á
svæðinu og að stuðla að hagræðingu
í rekstri með samþættingu þjónustu-
og rekstrarþátta.
Forystumennirnir á myndinni
hér til hliðar skrifuðu undir samn-
inginn: Guðný Sverrisdóttir f.h.
Grýtubakkahrepps, Eiríkur Björn
Björgvinsson frá Akureyri, Jónas
Vigfússon, Eyjafjarðasveit, Jón
Hrói Finnsson, Svalbarðsstrand-
arheppi, og Guðmundur Sigvaldson,
Hörgárbyggð.
Adrei hafa fleiri komið í heiminn
á fæðingardeild Sjúkrahússins á Ak-
ureyri á sama árinu og nú. Sonur
Vilborgar Sigurðardóttur og Arnars
Tryggvasonar, sem fæddist á sunnu-
daginn, er 500. barnið sem fæðist á
deildinni í ár, að því er fram kemur á
vef Vikudags.
Fæðingametið á FSA var sett
1990 þegar 461 barn fæddist en það
met var slegið 11. nóvember. Barn
númer 501 fæddist í vikunni og von
er á fleiri í heiminn fyrir áramót.
Íbúar í Eyjafirði voru 100 fleiri 1.
desember síðastliðinn en ári áður og
íbúum Akureyrar fjölgaði um 165 á
tímabilinu, það er tæpt eitt prósent.
Starf bæjarritara á Akureyri
verður lagt niður frá og með áramót-
unum skv. ákvörðun bæjarráðs á
dögunum. Fjórir greiddu atkvæði
með tillögu um að leggja embættið
niður en Ólafur Jónsson sjálfstæð-
ismaður sat hjá.
Karl Guðmundsson bæjarritari
mun gegna nýrri stöðu verkefn-
isstjóra innra eftirlits frá og með
næstu áramótum. Hann mun einnig
að hluta til gegna stöðu verkefn-
isstjóra innkaupa á meðan verkefn-
isstjórinn er í fæðingarorlofi.
Ekki meiri snjó, meiri snjó
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Samstarf Guðný Sverrisdóttir, Eiríkur Björn Björgvinsson og Jónas Vig-
fússon. Standandi f.v. Jón Hrói Finnsson og Guðmundur Sigvaldason.
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2010
HITAVEITA
SPJARAÐU ÞIG WWW.CINTAMANI.IS
CINTAMANI CENTER LAUGAVEGI 11, 101 REYKJAVÍK, S. 517 8088
CINTAMANI KRINGLUNNI, 103 REYKJAVÍK, S. 533 3003
CINTAMANI AUSTURHRAUNI 3, 210 GARÐABÆ, S. 533 3805
ESTER
Dúnúlpa með hettu og loðkraga. Tveir renndir
vasar að framan og einn innanávasi. Hettu er
hægt að taka af. Fylling er 95% dúnn og 5% fiður
sem gerir úlpuna létta og hlýja.
Stærðir: XS-3XL
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S/
C
IN
52
87
6
12
/1
0
Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra
viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið.
1 dagur til jóla
Í dag, á Þorláksmessu, standa ís-
lenskir friðarsinnar fyrir blysför
niður Laugaveginn í Reykjavík, líkt
og þeir hafa gert á hverri Þorláks-
messu í þrjá áratugi. Safnast verð-
ur saman á Hlemmi og leggur
gangan af stað stundvíslega kl. 18.
Fólk er hvatt til að mæta tíman-
lega. Að venju munu friðarhreyf-
ingar selja kyndla á Hlemmi áður
en gangan leggur af stað. Söngfólk
úr Hamrahlíðarkórnum og Kór
Menntaskólans við Hamrahlíð
syngur í göngunni. Í lok göngunnar
verður svo haldinn stuttur úti-
fundur á Ingólfstorgi.
Einnig verður farin friðarganga
á Ísafirði. Lagt verður af stað frá
Ísafjarðarkirkju kl. 18 og gengið
niður á Silfurtorg þar sem verður
hefðbundin dagskrá með tónlist,
ljóðum og mæltu máli.
Friðarganga niður Laugaveginn
Morgunblaðið/Sverrir
Blys Friðarganga á Þorláksmessu er hefð.
Helgistundir þjóðkirkjunnar verða
milli sex og sjö hundruð allt land
um jól og áramót. Á höfuðborg-
arsvæðinu verða til dæmis 160
messur og helgistundir í kirkjum
þessa daga. Reynsla síðustu ára sýn-
ir að flestar kirkjur eru fullsetnar
við aftansöng á aðfangadag. Að
auki verður helgihald á sjúkra-
húsum, dvalarheimilum og víðar. Upplýsingar um messur má meðal ann-
ars finna á heimasíðum sóknanna og á www.kirkja.is.
Það eru margir sem ekki geta sótt jólaguðsþjónustur í kirkjum af
ýmsum ástæðum. Prestar annast því helgihald á sjúkrahúsum, fang-
elsum og á dvalar- og hjúkrunarheimilum um land allt. Auk þess er ár-
leg jólamessa fyrir heyrnarskerta og heyrnarlausa í Reykjavík.
Mikill fjöldi Íslendinga tekur þátt í jólahaldi á erlendri grund. Helgi-
hald fyrir Íslendinga búsetta erlendis var á aðventu í London, Kaup-
mannahöfn, Lúxemborg og í Noregi. Jólamessa verður í Osló fyrir Ís-
lendinga þar.
Tugþúsundir taka þátt í kirkjuhaldi á jólum
Að undanförnu hafa Vinir Sólheima
staðið fyrir jólamarkaði í kjall-
aranum í Iðu. Markaðurinn hefur
verið opinn frá kl. 13-18 alla daga
fram að jólum, en lengur í dag, á
Þorláksmessu.
Listaverk íbúa Sólheima eru til
sölu á markaðnum, einnig hin
þekktu Sólheima-kerti svo og
krukkurnar með lífræna góðgætinu
og bakarísvörurnar úr lífræna hrá-
efninu frá bakaríi Sólheima. Að
auki má finna alls konar gjafavöru,
leikföng, fatnað og fylgihluti sem
velunnarar í röðum heildsala hafa
gefið á markaðinn.
Vinir Sólheima með
jólamarkað í Iðu
Breytingar verða á akstri Strætó
bs. um jól og áramót eins og jafnan
á stórhátíðum. Á Þorláksmessu
mun strætó aka eftir hefðbundinni
áætlun. Á aðfangadag verður ekið
eins og á laugardegi til um kl. 14.00
en þá hætta vagnarnir akstri. Hve-
nær það nákvæmlega verður fer
eftir staðsetningu endastöðva. Á
jóladag verður enginn akstur. Á
annan í jólum verður ekið sam-
kvæmt hefðbundinni sunnudags-
áætlun.
Milli jóla og nýárs verður akstur
með hefðbundnum hætti, en á
gamlársdag verður ekið eins og á
laugardegi til um kl. 14 en þá hætta
vagnarnir akstri. Hvenær það verð-
ur nákvæmlega fer eftir staðsetn-
ingu endastöðva. Á nýársdag verð-
ur enginn akstur, en frá og með 2.
janúar verður akstur með hefð-
bundnum hætti.
Allar nánari upplýsingar er að
finna í leiðabók og leiðarvísa á
www.stræto.is eða í þjónustusíma
Strætó bs., 540 2700.
Enginn strætó á ný-
ársdag og jóladag
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra hefur undirrit-
að reglugerðir um úthlutun byggða-
kvóta fyrir fiskveiðiárið 2010/2011.
Þær eru sambærilegar reglugerðum
síðustu fiskveiðiára í öllum aðalatrið-
um.
Heildarúthlutunin nemur 4.564
tonnum sem er um 17% aukning frá
fyrra fiskveiðiári þegar hún var 3.885
tonn. Því til viðbótar koma 972 tonn
sem ekki nýttust í fyrri úthlutun en
eru samkvæmt nýjum reglum yfir-
færanleg milli ára. Alls fara því 5.536
tonn til úthlutunar til smærri byggð-
arlaga í landinu.
Alls fá nú 44 byggðarlög í landinu
úthlutun byggðakvóta sem er nokkru
fleira en undanfarin ár. Staðir sem
ekki fengu úthlutun í fyrra eru Vog-
ar, Arnarstapi, Stokkseyri, Djúpi-
vogur, Hellissandur og Rif. Byggða-
kvóti getur mestur orðið 300 tonn og
fær eitt byggðarlag, Flateyri, svo
háa úthlutun en þau sem koma næst
á eftir fá umtalsvert minna. Lægst
getur úthlutun verið 15 tonn.
Byggðakvótinn
verður 5.536 tonn