Morgunblaðið - 23.12.2010, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2010
BAKSVIÐ
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Kaupmenn í miðbænum og í
Smáralind eru sammála um að jóla-
verslun hafi verið með ágætum það
sem af er aðventu. Íslensk hönnun
er vinsæl til gjafa og kaupmönnum
ber saman um að gæði og notagildi
ráði miklu um jólagjafaval.
Verslun hófst í Smáralind árið
2001, en verslun í miðbænum á sér
töluvert lengri sögu. Ein þeirra
verslana, sem einna lengst hafa
starfað við Laugaveginn er
Verslun Guðsteins Eyjólfssonar,
en þar hafa karlmenn fengið „allt
frá hatti og niður í sokka“ frá árinu
1918. Reyndar var verslunin fyrst
við Grettisgötu, en hefur verið við
Laugaveginn frá árinu 1929. Versl-
unin hefur alla tíð verið í eigu sömu
fjölskyldunnar. Eyjólfur Guðsteins-
son, sonur Guðsteins, tók við af
honum og nú stendur Svava Eyj-
ólfsdóttir vaktina, en hún er dóttir
Eyjólfs.
Verslunin er ein fárra við Lauga-
veginn sem opnuð er klukkan níu á
morgnana. „Við veltum því mikið
fyrir okkur um tíma að opna klukk-
an tíu, eins og í flestum búðum hér
við Laugaveginn. Viðskiptavinir
okkar tóku það ekki í mál,“ segir
Svava. „Það er miklu betra aðgengi
og auðveldara að fá bílastæði svona
snemma á morgnana.“
Svava segir jólaverslun hafa farið
vel af stað. „Þetta er svipað og í
fyrra. Þá var mikið verslað og það
kom okkur á óvart í þessu ástandi.
Fólk kaupir praktískari gjafir núna
en fyrir nokkrum árum. Til dæmis
er mikið verið að kaupa nærföt og
sokka til jólagjafa,“ segir Svava.
Hún segir að einnig sé mikið
keypt af peysum til gjafa. „Í fyrra
voru náttfatajól. Ætli það verði
ekki peysujól í ár.“
Líklega hefur sjaldan eða aldrei
verið vinsælla að iðka ýmiss konar
handverk en einmitt nú. Hand-
verksmarkaðir spretta upp víða um
land og einnig er töluvert um að
fólk sé að selja afraksturinn á sam-
skiptasíðum eins og Facebook.
Hildur Jónsdóttir í versluninni
Litir og föndur segir að mikið sé
um að fólk búi til jólagjafir. „Fólk
er að búa til skartgripi, töskur,
koddaver og fatnað og ótalmargt
annað,“ segir Hildur. Hún segir að
það sé miklu algengara nú en fyrir
nokkrum árum að fólk útbúi jóla-
gjafirnar sjálft.
Gæði og notagildi í jólagjöf
Kaupmönnum ber saman um að Íslendingar séu talsvert praktískari í jólagjafavali nú en áður
Vinsælt að búa til jólagjafir og föndurefni selst sem aldrei fyrr Nærföt og sokkar í jólagjöf
Innpökkun Ekki dugðu færri en fimm innpökkunardömur til að pakka inn dýrindis jólagjöfum í Smáralind í gær.
Morgunblaðið/Eggert
Jólafötin Í verslun Guðsteins Eyjólfssonar á Laugavegi hefur margur
maðurinn fengið föt og sloppið við að lenda í jólakettinum
Guðrún Kristín Sveinbjörnsdóttir, kaupmaður og fata-
hönnuður í GUST í Bankastræti, segir mikið hafa selst í
versluninni nú fyrir jólin, þó sé fólk ekki alveg jafn
kaupglatt og í fyrra. „En við erum samt mjög sátt við
okkar hlut,“ segir Guðrún Kristín. Hún hefur stundað
verslunarrekstur í miðbænum í tíu ár og segir að í fyrra
og hittifyrra hafi fólk mikið talað um að það skipti miklu
máli að kaupa íslenska hönnun. „Við finnum ekki eins
mikið fyrir því núna. Ég held að mjög margir séu að búa
til sjálfir.“
Guðrún segir að það sem helst seljist til jólagjafa séu hlý föt, ullarpeysur
og þæfðar kápur.Að sögn Guðrúnar hefur frost lítil áhrif á verslun í mið-
bænum. „Hér er alltaf yndisleg stemning, alveg sama hvert hitastigið er.
Svo fær fólk líka ferskt loft. “
Hlýjar peysur og ferskt loft í Bankastræti
Sala á barnafötum hérlendis hefur aukist á undan-
förnum árum, að sögn Sigrúnar Ellu Helgadóttur í
barnafataversluninni Adams í Smáralind. Hún segir að
jólaverslun hafi farið afar vel af stað í búðinni og að hún
sé svipuð og í fyrra.
Í Adams eru seld föt á börn á aldrinum 0-9 ára. „Léttir
bolir og náttföt eru það sem fólk er helst að kaupa í jóla-
gjafir. Þægileg föt eru líka vinsæl í jólapakkann. Það er
greinilegt að fólk er mjög meðvitað um að kaupa vel við
vöxt, þannig að barnið geti notað fötin lengur. Við sjáum
mikinn mun á því hvað fólk er orðið praktískt í innkaupum,“ segir Sigrún.
Nokkuð hefur dregið úr verslunarferðum landans á undanförnum árum
og Sigrún segir að það hafi skilað sér í mun meiri sölu á barnafötum í versl-
unum hér á landi. „Fólk verslar meira heima.“
Landinn orðinn praktískur í innkaupum
Úr hafa verið seld undir merki Michelsen við Laugaveg-
inn í yfir hálfa öld, en verslunin var stofnuð á Sauðár-
króki árið 1909. „Ég verð ekki var við að kuldinn hreki
fólk frá því að koma á Laugaveginn,“ segir Frank Ú.
Michelsen, sem er af þriðju kynslóð Michelsen úrsmiða.
„Verslunin hefur farið mjög vel af stað hjá okkur. Það er
ekkert árið 2007 lengur, en miðað við ástandið held ég
að ég megi una glaður við mitt.“
Frank segir að jólaverslun sé meiri nú en í fyrra og
það hafi komið gleðilega á óvart. Úr eru meðal þess sem
helst selst til jólagjafa í versluninni.„En við seljum mikið af íslenskum
skartgripum, sem eru hannaðir og framleiddir hér á landi,“ segir Frank.
„Fólk horfir líka meira á gæðin nú, en fyrir nokkrum árum.“
„Fólk horfir meira á gæðin“
Áslaug Jónsdóttir og Oddur Gunnarsson, kaupmenn í
verslunni Líf og list í Smáralind, segja að verslunin í ár
hafi verið svipuð og við venjulegt árferði. Með því eiga
þau við eins og verslun var fyrir kreppu.
„Við erum gríðarlega ánægð með verslunina. Það er
greinilegt að fólk kaupir nú mun ódýrari gjafir en áður
og við höfum brugðist við því með því að hafa gott úrval
af slíkri vöru.“
Þau segja að fólk sé talsvert hagsýnna nú en áður.
„Mér finnst fólk velta því meira fyrir sér en áður hvað
það kaupir. Það er eins og verslunarhættir séu að færast í eðlilegt horf,
það er eðlilegt að fólk velti því vel og vandlega fyrir sér í hvað peningarnir
fara,“ segir Áslaug.
Verslunarhættir að færast í eðlilegt horf
„Við erum ekki búnar að öllu
fyrir jólin,“ sögðu mæðg-
urnar Linda Hildur Leifs-
dóttir og Íris Óskarsdóttir,
sem voru í barnafataversl-
uninni Adams í Smáralind í
gær ásamt dóttur Írisar,
Gabríellu Lindu Zingara.
Erindi þeirra var fyrst og
fremst að finna jólakjól á
Gabríellu Lindu. Fjólublár
jólakjóll með doppum var
mátaður og virtist ömmunni
og mömmunni líka hann
býsna vel. Það sama gilti um
þá yngstu.
Þrátt fyrir að vera ekki
„búnar að öllu“ er skammt í
að svo verði og mæðgurnar
voru afar rólegar yfir kom-
andi jólahaldi. „Það er verið
að reka lokahnútinn í dag og
við erum á síðustu stundu að
velja jólakjólinn.“
Mæðgurnar segjast helst
versla í verslunarmið-
stöðvum. „Við förum helst í
Smáralind og Kringluna.
Það er svo hlýtt og gott og
það skiptir svo miklu máli
þegar maður er með lítið
barn,“ segir Íris. „Svo eru
þær búðir sem maður verslar
oftast í ýmist í Smáralind eða
Kringlunni.“
annalilja@mbl.is.
Amma, mamma og barn
velja lítinn kjól fyrir jólin
Morgunblaðið/Eggert
Jólakjóll Íris Óskarsdóttir, Linda Hildur Leifsdóttir og
Gabríella Linda Zingara skoðuðu kjóla í Smáralind í gær.
Þórdís Davíðsdóttir, Valgeir
Skagfjörð og Davíð Alex-
ander Magnússon spek-
úleruðu í karlmannahöf-
uðfötum í Herrafataverslun
Guðsteins á Laugaveginum í
gær.
Valgeir mátaði sixpens-
ara, en verslunin býður mik-
ið úrval af ýmsum höfuð-
fötum.
Ekki verður gefið upp að
svo stöddu hvort sixpens-
arinn mun prýða höfuð Val-
geirs eða hvort hann endar í
jólapakkanum hjá ein-
hverjum lánsömum vini eða
ættingja.
„Við verslum ekki reglu-
lega í miðbænum en við
kíkjum alltaf á Laugaveginn
fyrir jólin,“ segir Valgeir.
„Ef maður verslar einhvern-
tímann á Laugaveginum, þá
er það fyrir jólin og ég kem
mjög gjarnan til Guðsteins á
aðventunni.“
Þau segjast vera búin að
ljúka við meirihluta jólaund-
irbúnings, næstum því búin
að öllu. „Það eina sem er
eftir er að kaupa skötuna,“
segir Valgeir. „Þetta er allt
að detta inn,“ segir Þórdís.
„Eða ég held það.“
annalilja@mbl.is
Mátaði hatt hjá Guðsteini og
átti eftir að kaupa skötuna
Morgunblaðið/Eggert
Verslunarferð Margt fæst í verslun Guðsteins Eyjólfssonar