Morgunblaðið - 23.12.2010, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2010
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Laurent Gbagbo ætlar að sitja sem
fastast á stóli forseta á Fílabeins-
ströndinni þrátt fyrir vaxandi þrýst-
ing um að hann víki. Ban Ki-moon,
framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, kvaðst í gær óttast að borg-
arastyrjöld brytist út á Fílabeins-
ströndinni og lýsti yfir áhyggjum af
öryggi 9.000 friðargæsluliða á veg-
um Sameinuðu þjóðanna í landinu.
Í gær ráðlögðu frönsk stjórn-
völd Frökkum í landinu að hafa sig
á brott, en fyrr um daginn hafði
þýska stjórnin ráðlagt þýskum rík-
isborgurum að gera slíkt hið sama.
Um 15.000 Frakkar búa í landinu,
en mun færri Þjóðverjar. Robert
Zoellick, forseti Alþjóðabankans,
sagði í gær að að öll fjármögnun til
Fílabeinsstrandarinnar hefði verið
fryst. Þetta væri gert í samráði við
Efnahags- og myntbandalag Vest-
ur-Afríku, WEMU. Þá lýsti Evr-
ópusambandið yfir því að Gbagbo
og 17 nánustu samstarfsmenn hans
fengju ekki ferðaheimildir til ríkja
ESB.
Forsetinn neitar að fara frá
Ólga hefur ríkt í landinu frá því
að Gbagbo lýsti sig sigurvegara í
forsetakosningunum, sem fram fóru
28. nóvember. Áskorandi hans,
Alassane Outtara, hefur einnig lýst
yfir sigri og hefur stuðning alþjóða-
samfélagsins á bak við sig.
Samkvæmt kjörstjórn Fíla-
beinsstrandarinnar sigraði Outtara
í kosningunum með 54% atkvæða.
Sameinuðu þjóðirnar staðfestu
þessi úrslit, en stjórnlagaréttur
Fílabeinsstrandarinnar sagði yf-
irlýsingu kjörstjórnarinnar hins
vegar ekki marktæka þar sem hún
hefði ekki komið fyrr en tilskilinn
frestur var útrunninn. Forseti rétt-
arins er stuðingsmaður Gbagbos.
Flokkur Gbagbos viðurkenndi
heldur ekki niðurstöðuna og sagði
að rangt hefði verið haft við í kosn-
ingunum í norðurhluta landsins þar
sem Outtara nýtur mests stuðnings.
Út brutust mótmæli og Gbagbo
beitti hernum til að kveða niður
stuðningsmenn Outtaras, sem leit-
aði skjóls í lúxushóteli í höfuðborg-
inni, Abidjan, þar sem hann er enn
og nýtur verndar 800 liðsmanna úr
friðarsveitum Sameinuðu þjóðanna.
Gbagbo hefur sagt að Outtara sé
óhætt að fara frá hótelinu. Liðs-
menn Outtara segja það ekki hægt
því að 3.000 vígamenn á snærum
Gbagbos séu á kreiki við hótelið.
Nú kveðst Gbagbo hafa sigrað
með 51,45% atkvæða. „Ég er forseti
landsins og þakka þeim Fílabeins-
strendingum, sem endurnýjuðu
traust sitt til mín,“ sagði Gbagbo í
sjónavarpsávarpi á þriðjudag, því
fyrsta frá því hann lýsti yfir sigri.
SÞ og ýmis mannréttinda-
samtök segja að sveitir Gbagbos
hafa framið víðtæk mannréttinda-
brot og fram hafa komið ásakanir
um morð. Frakkar, sem réðu yfir
Fílabeinsströndinni til 1960, hafa
skorað á Gbagbo að stöðva sveitir
sínar.
Gbagbo og liðsmenn hans segja
að Outtara sé strengjabrúða er-
lendra leiðtoga og þá sérstaklega
Frakka. Einn stuðningsmaðurinn,
hinn illræmdi Charles Ble Goude,
sem um árabil hefur verið á lista
Sameinuðu þjóðanna yfir öfgamenn
fyrir „ofbeldi af hálfu vígamanna,
þar á meðal barsmíðar, nauðganir
og morð án dóms og laga“, segir að
ráðabrugg nýlendusinnans Sarko-
zys verði stöðvað. „Hann mun þurfa
að ganga yfir lík okkar til að komast
að Gbagbo.“
Reuters
Þingvopnaður Hermaður með sprengjuvörpu á fundi stuðningsmanna Laurents Gagbos, sem neitar að víkja úr sæti
forseta Fílabeinsstrandarinnar. Ólga hefur verið frá því kosið var og 9.000 friðargæsluliðum í landinu sagt að fara.
Enn þrengist staða forseta
Fílabeinsstrandarinnar
Laurent Gbagbo neitar að víkja úr embætti Alþjóðasamfélagið þrýstir á
Barack Obama Bandaríkjaforseti
undirritaði í gær lög, sem afnema
bann við að samkynhneigðir í hern-
um greini frá kynhneigð sinni.
Bill Clinton hugðist þegar hann
varð forseti afnema bannið við að
samkynhneigðir gegndu herþjón-
ustu. Úr þeirri tilraun varð afkára-
leg málamiðlun um að „spyrja ekki
og segja ekki frá“.
„Við erum ekki þjóð sem segir,
„ekki spyrja, ekki segja frá“,“ sagði
Obama í gær og bætti við: „Við er-
um þjóð sem fagnar þjónustu hvers
einasta föðurlandsvinar.“
Baráttumenn fyrir rétti samkyn-
hneigðra líkja þessum áfanga við
fall Berlínarmúrsins og niðurrif
kynþáttamúra í hernum árið 1948.
Stuðningsmenn bannsins segja
að afnám þess muni veikja sam-
stöðu innan hersins. Obama segir
að afnám þess muni styrkja öryggi
þjóðarinnar: „Nú munu tugþús-
undir Bandaríkjamanna undir
merkjum hersins ekki lengur verða
látnir lifa í lygi.“
Grænt ljós fyrir
samkynhneigða í
herþjónustu
Reuters
Tímamót Obama undirritar lögin.
Stjórn útgáfu-
mála í Kína hefur
tilkynnt að ekki
megi nota ensk
orð og enskar
skammstafanir í
kínverskum dag-
blöðum, bókum
og á kínverskum
vefjum á netinu.
Jafnframt eigi að þýða ensk manna-
og staðarnöfn. Ástæðan er sögð sú
að „slangrið“ ógni „hreinleika“ kín-
verskunnar.
Í tilkynningu stjórnarinnar kem-
ur fram að brot á þessari ákvörðun
varði refsingu. Engu að síður má
gera undantekningar séu þær
nauðsynlegar en þá verður ná-
kvæm þýðing á kínversku að fylgja.
Haft var eftir ónafngreindum rit-
stjóra í Peking að tilskipunin gæti
komið niður á skilningi fólks. Það
væri góðra gjalda vert að vernda
kínverskuna en það væri of mikið
að útrýma viðurkenndum orðum og
skammstöfunum. „Allir þekkja IBM
en ég velti því fyrir mér hve margir
skilja „guoji shangye jiqi gongsi“,“
sagði hann.
IBM verður guoji
shangye jiqi gongsi
Japönskum nemendum í námi er-
lendis hefur aldrei fækkað eins
mikið og 2008 og kennir ríkisstjórn
landsins efnahagsástandinu um og
skorti nemenda á víðsýni.
Samkvæmt könnun japanska
menntamálaráðuneytisins voru
tæplega 67.000 japanskir nem-
endur í skólum erlendis 2008 og
hafði þeim fækkað um 11% frá
árinu áður. Um 29.200 þessara
nemenda voru í Bandaríkjunum og
hafði þeim fækkað um 14% frá
fyrra ári. Um 16.700 japanskir
nemendur voru í Kína og hafði
þeim fækkað um 10%. Tæplega
4.500 stunduðu nám í Bretlandi og
þar var fækkunin 22%.
Erlendum nemendum fjölgar
Árið 2004 voru um 83.000 jap-
anskir nemendur í erlendum skól-
um og hafa aldrei verið fleiri.
Á sama tíma hafa aldrei fleiri er-
lendir nemendur stundað nám í
Japan. Þeir voru um 142.000 síðast-
liðið vor og er það 7% fjölgun frá
2009. Kínverskum nemendum hef-
ur fjölgað um 9% og eru nú rúm-
lega 86.100 í Japan. Um 20.200
nemendur frá Suður-Kóreu stunda
nám í Japan.
Japanskir nemendur læra frekar heima
Fílabeinsströndin framleiðir um
40% af því hráa kókói sem fram-
leitt er í heiminum. Óstöðugleik-
inn þar í landi gæti því hæglega
haft áhrif á verðið á kókói og leitt
til þess að súkkulaði hækki í
verði. Það tekur þrjú ár frá því að
kókórunna er plantað þar til
fyrsta uppskeran fæst. Ræktunin
krefst því þolinmæði. Hún er
hins vegar í höndum þúsunda
smábænda, sem ekki eiga auð-
velt með að skipta um grein hvað
sem líður hinu pólitíska ástandi.
Þess utan vegur metuppskera í
Gana upp á móti óvissu á Fíla-
beinsströndinni.
Dýrara súkkulaði?
S k e i f u n n i 3 j · S í m i 5 5 3 8 2 8 2 · w w w . h e i l s u d r e k i n n . i s
• Vasar
• Diskar
• Lampar
• Pottar
• Myndir
o.m.fl .
Frábært verð, mik
ið úrval
gefðu
Gjafabréf
heilsumeðferð · heilsuvörur · dekur · leikfimi
Jafnvægi fyrir líkama og sál
veittu vellíðan
gefðu
gjafabréf
Kínversk
handgerð list
Frábær jólagjöf
á gamla genginu!
Opið sunnudaga kl. 11-16