Morgunblaðið - 23.12.2010, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR Afmæli
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2010
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Antík
Antikklukkur og viðgerðir
Sérhæfð viðgerðarþjónusta á
gömlum klukkum og úrum.
Guðmundur Hermannsson úrsmíða-
meistari, ur@ur.is, s. 554 7770 -
691 8327.
Dýrahald
Labrador Retriever hvolpar.
Hreinræktaðir. Ættbókarfærðir HRFÍ.
Sprautaðir. Tilbúnir til afhendingar.
Verð kr. 160 þús. Upplýsingar í síma
695 9597 og í síma 482 4010.
Fatnaður
Victoria´s Secret náttföt
Aðeins 8000 kr
Víð erum á Markaðstorgi á Korpu-
torgi. vsfotin@gmail.com
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratugareynsla.
Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig
á hinum ýmsu byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Til sölu
Ódýr blekhylki og tónerar í
HP, Dell, Brother, Canon og Epson.
Send samdægurs beint heim að
dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150.
Sjá nánar á blekhylki.is
Fótboltaborð Mini Kidz
Lækkað verð. Verð kr. 8.919 m/vsk.
Ótrúlega skemmtilegt fótboltaborð
frá Riley.
www.pingpong.is
Suðurlandsbraut 10 (2.h.),
s. 568 3920.
Fótboltaborð 120 cm frá RILEY.
Frábært borð fyrir alla fjölskylduna.
Verð 32.300 m/vsk.
www.pingpong.is
Suðurlandsbraut 10 (2.h.),
s. 568 3920.
Matta rósin og Halastjarnan
Ný sending af glösum ofl í Möttu
rósinni og Halastjörnunni.
Einnig glös í öðrum munstrum.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Augnablik
Geisladiskur með lögum við
ljóð Hákonar Aðalsteinssonar
flutt af Nefndinni og gestum.
Fæst í Hagkaupum, Tónspili,
Samkaupum Egilsstöðum og
hjá útgefanda í síma 863 3636.
Netfang; darara@gmail.com.
Þythokkíborð 120 cm -150 cm
og 180 cm
Verð frá 19.900,- 28.500,- 59.990,-
www.pingpong.is
Suðurlandsbraut 10 (2.h.),
s. 568 3920.
STIGA borðtennisborð
Á enn nokkrar gerðir af STIGA
borðtennisborðum
Verð frá 48..500 á hjólum með neti.
www.pingpong.is
Suðurlandsbraut 10 (2.h.),
s. 568 3920.
Mokka-
jakkar
Mokka-
kápur
FULLT VERÐ
95.000
69.900
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi. Kaupi allt
gull, nýlegt, gamalt og illa
farið. Leitið til fagmanns og fáið góð
ráð. Uppl. á demantar.is, í síma
699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13 (við Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
Bókhaldsstofan ehf. Reykja-
víkurv. 60, Hf. Færsla á bókhaldi,
launaútr., vsk-uppgjör, skattframtöl,
stofnun fyrirtækja. Magnús Waage,
viðurkenndur bókari, s. 863 2275,
www.bokhaldsstofan.is.
Bátar
Strandveiðibátur
Óska eftir strandveiðibát á 5-6
milljónir verður að ganga 14 mílur
eða meira sími 840 9339 eða
gudi@simnet.is
Bílar
Árg. '07, ek. 62.000 km, NISSAN
QASHQAI LE, dísil, sjálfskiptur,
leðurklæddur, glerþak,17" dekk.
Uppl. í s. 660-3074 / 663-5363.
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Húsviðhald
Parket er okkar fag í 26 ár
Verið í góðum höndum
Notum eingöngu hágæða efni
Förum hvert á land sem er
FALLEG GÓLF ehf - Sími 898 1107
www.falleggolf.is - golfslipun@simnet.is
Þak og
utanhússklæðningar
og allt húsaviðhald.
Ragnar V. Sigurðsson ehf.
Sími 892 8647.
Í dag er 90 ára Ul-
rich Marth, fv. for-
stjóri Baader-þjón-
ustunnar. Ulrich
fæddist í Anklam í fv.
Austur-Þýskalandi.
Þar ólst hann upp og
kláraði menntaskóla.
Seinna nam hann
sjávarlíffræði og við-
skiptafræði við há-
skólann í Hamborg.
Hann gerðist um-
boðsmaður fyrir Baa-
der-fiskvinnsluvélar
hér á landi, settist
hér að 1959, og stofnaði Baad-
er-þjónustuna, sem heitir Baader
Ísland í dag. Hann hóf að kynna
Baader- flatnings-, flökunar- og
roðflettivélar. Á þessum tíma var
allur fiskur handflakaður hér á
landi, en með komu Baader-fisk-
vinnsluvélanna hófst tæknibylting
í frystihúsum landsins eða úr
handflökun yfir í vélflökun. Þetta
var mikil bylting á þeim tíma. Á
næstu árum urðu flest frystihús
landsins vélvædd með Baader-
flökunar- og flatningsvélum.
Seinna fóru þær í frystitogarana
og enn seinna bættust síldarflök-
unarvélar við. Ulrich tók þátt í
þessari byltingu af miklum áhuga
og dugnaði.
En Ulrich kom víða við. Meðal
annars hafði hann áhuga á ís-
lenska hestinum og hestamensku.
Þetta áhugamál vatt upp á sig.
Hann keypti jörðina Sandhólaferju
í Rangarvallasýslu til að stunda
hestamennsku og ræktun. Í gegn-
um fyrirtæki sitt Sigurður Hann-
esson & Co hóf hann útflutning á
þeim. Hann ferðaðist um allt land
og heimsótti bændur og keypti
hesta af þeim. Þannig kynntist
hann landi og fólki mjög vel. Þessi
Ulrich Marth
útflutningur stóð yfir
árin 1959 til 1972 er
hann hætti því. Þetta
var mikið umfangs, á
þessum tíma flutti
hann út á sjöunda
þúsund hesta, mest
til Þýskalands, Sviss
og Norðurlandanna,
einnig til Bandaríkj-
anna, Kanada og
lengst til Argentínu,
alls til tuttugu og
eins lands. Til að
byrja með voru hest-
arnir fluttir út með
skipum þar til hann, fyrstur
manna, flutti þá út með flugvélum.
Einnig bauð hann mörgu fólki
frá Þýskalandi og öðrum löndum
til Sandhólaferju til að kynna ís-
lenska hestinn erlendis, meðal
annars rithöfundinum Ursulu
Bruns sem skrifaði þá mikið í
Þýskalandi um íslenska hestinn í
bækur og tímarit, Walter Feld-
mann o.fl. Það var oft mjög mann-
margt og þröng á þingi í gamla
húsinu á Sandhólaferju.
Í dag er sonur Ulrichs, Jochum,
forstjóri fyrir Baader á Íslandi og
dótturdóttir hans, Jakobína Vals-
dóttir, sér um reksturinn á Sand-
hólaferju.
Ulrich og kona hans Eleonora
eiga þrjú börn, barnabörnin eru
tíu og barnabarnabörn orðin átta.
Þau eru bæði við góða heilsu, hafa
undanfarin ár dvalist yfir vetrar-
tímann í Portúgal en koma með
farfuglunum á vorin til Íslands og
búa þá á Sandhólaferju fram undir
vetur.
Ég óska tengdaföður mínum
innilega til hamingju með afmælið
og óska honum velfarnaðar um
ókomin ár.
Valur Marinósson.
Nú þarf að setjast
niður og „líta yfir far-
inn veg“ eins og segir í
skátasönglaginu góða. Það gerist
sjálfkrafa þegar maður áttar sig á því
að það eru yfir 30 ár síðan ég kynntist
Þór Ingólfssyni í starfi Skátafélagsins
Vífils í Garðabæ. Þór var nefnilega
gjaldkeri félagsins þegar ég var að
byrja mín foringjaár í skátastarfi og
fyrstu heimsóknirnar mínar í Goða-
túnið voru til að sækja ávísanir fyrir
rútuferðum eða skálagjöldum vegna
ýmissa ferða eða atburða. Karl Rúnar
sonur Þórs var líka í skátastarfinu í
Garðabænum og urðum við fljótt
mestu mátar og vinir.
Árin liðu og undirritaður endaði
sem félagsforingi Vífils í átta ár og
alltaf var Þór gjaldkeri með öll mál á
hreinu og mikill máttarstólpi, hvort
sem taka þurfti til hendinni í húsinu
eða smíða eldhúsinnréttingu fyrir
skálann. Öllu reddaði Þór og var alltaf
að kenna og sýna okkur yngri skát-
unum réttu handtökin. Þór var mikill
húmoristi og stríddi okkur Karli lengi
á því að loksins eitt árið þegar við ætl-
uðum að fara að mála þakið á skáta-
heimlilinu, þá var komið fram á haust
og orðið kalt. Við drifum okkur upp á
þak og rétt náðum að ýta málningunni
út á þriðjung af þakinu, en málningin
hefði dugað á allt þakið ef við hefðum
tekið ráðum hans og gert þetta fyrr
Þór Ingólfsson
✝ Þór Ingólfsson,búfræðingur, hús-
gagnasmíðameistari
og tryggingamaður,
fæddist á Ísafirði 6.
júlí 1933. Hann lést á
líknardeild Landa-
kotsspítala 8. desem-
ber 2010.
Útför Þórs fór fram
frá Garðakirkju 16.
desember 2010.
um sumarið. Þór
minnti okkur oft á það
þegar við lögðum
málninguna á þakið –
og svo var hlegið.
Alltaf var Þór tilbú-
inn með tékkheftið á
lofti og urðu þær ófáar
heimsóknirnar í Goða-
túnið til að sækja þær
eða skila nótum til
hans. Mikið var alltaf
spjallað og hlegið og
var ávallt gaman að
heimsækja fjölskyld-
una, en þau tóku öll
þátt í þessu af lífi og sál. Ranný eig-
inkona Þórs, sem lést fyrir nokkrum
árum, studdi einnig dyggilega við
bakið á okkur í skátastarfinu í margs
konar viðburðum.
Karl tók svo við starfi félagsfor-
ingja í félaginu á eftir mér og þá var
nú Þór gjaldkeri stoltur og studdi enn
frekar við bakið á honum með veru
sinni í stjórninni.
Árið 1987 fékk Þór afhent gull-
merki félagsins fyrir frábær störf og
var síðan gerður að heiðursfélaga í
Vífli árið 2002. Árin liðu og þegar Þór
hætti í stjórninni árið 2001 voru liðin
heil tuttugu ár. Þór var ávallt viðbú-
inn og búum við skátar í Garðabæ enn
að því og verður honum seint full-
þakkað fyrir öll hans störf í þágu Víf-
ils. Leiðir okkar lágu einnig í gegnum
vinnuna okkar til fjölda ára, en við
vorum báðir að vinna í Brunabóta-
félagi Íslands og síðar hjá VÍS.
Hvort sem var í vinnuferðum eða á
hátíðum fyrirtækisins var Þór alltaf
með og vann öll þessi verk með já-
kvæðni að leiðarljósi. Talandi um
árshátíðir, þá verð ég að nefna dans-
inn, en hann var hjá Þór og Ranný eitt
af aðaláhugamálunum.
Þau voru þvílíkt snilldardanspar að
það hættu allir að dansa og fylgdust
bara með þegar þau svifu um gólfin.
Alltaf voru þau bæði brosandi, hress
og kát. Þannig minnist ég þeirra.
Með þessum orðum þakka ég Þór
samveruna og samstarfið og flyt inni-
legar samúðarkveðjur frá fjölskyldu
minni til Karls Rúnars, Þórunnar
Erlu, Dagrúnar Birtu, Rannveigar
Þóru og Teddyar.
Björn Hilmarsson.
Árið 1985 var boðið til kynningar-
fundar Kiwanis í Hafnarfirði. Kiwan-
isklúbburinn Eldborg bauð til fund-
arins.
Á þennan fund mættu þáverandi
svæðisstjóri, Hallbjörn Sævars,
ásamt umdæmisstjóra Kiwanis, Þór
Ingólfssyni. Þarna hófust kynni mín
af Þór sem áttu eftir að duga vel og
lengi. Ákveðið var að stofna nýjan
Kiwanisklúbb í Hafnarfirði (Hraun-
borg) og ég varð þar í forsvari, sem
var ekki síst að þakka uppörvun og
hvatningu Þórs. Hann var alltaf boð-
inn og búinn til að aðstoða mig og leið-
beina, því ég vissi ekki mikið um Kiw-
anis og var þarna að stíga mín fyrstu
Kiwanis-spor. Þór var duglegur að
hringja í mig til að vita hvernig gengi
og hafði mikinn metnað fyrir að þessi
nýi klúbbur yrði að veruleika.
Seinna fékk ég svo að kynnast
Rannveigu konu Þórs og sjá hversu
samheldin þau voru. Þau voru glæsi-
leg hjón og það var unun að horfa á
þau dansa saman. Þau dönsuðu af því-
líkri list. Það var mikið áfall fyrir Þór
þegar hans elskulega kona lést.
Þór var alla tíð mikill félagsmála-
maður. Hann var virkur í skátahreyf-
ingunni og mjög öflugur Kiwanis-
félagi og þá sérstaklega í
Kiwanisklúbbnum Setbergi sem hann
var í til dauðadags. Ég á góðar minn-
ingar um hjálpsaman félaga og vin
sem studdi af alúð mig og klúbbinn
minn. Guð blessi þá sem nú eiga um
sárt að binda.
Magnús Jónasson,
fyrsti forseti Kiwanisklúbbs-
ins Hraunborgar.