Morgunblaðið - 23.12.2010, Page 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2010
Bubbi Morthens heldur árvissa
Þorláksmessutónleika sína í kvöld
kl. 22 og að þessu sinni í Há-
skólabíói. Bubbi hefur haldið tón-
leika á þessum degi í rúmlega 20 ár
og spjallað eins og honum einum er
lagið við áheyrendur. Tónleikunum
verður útvarpað á Bylgjunni.
Þorláksmessu-
tónleikar Bubba
Fólk
Mr. Silla sem er þekktust af því að hafa leikið
með bandinu sínu Mongoose og að vera söng-
kona múm er nú búin að stofna nýtt band sem
hittist reglulega þessa dagana til að æfa enda
ætla þau í stúdíó í byrjun janúar til að taka upp
plötu. En þótt þau æfi nú á fullu er ekki enn búið
að ákveða nafn á hljómsveitina. Í bandinu eru
Kristinn Gunnar Blöndal sem lék á hljómborð í
Botnleðju, Magnús Trygvason Eliassen sem er
trommuleikarinn í Aniimu, svo eru tveir bassa-
leikarar, þeir Gunnar Örn Tynes og Gylfi Blön-
dal og gítarleikarinn Halldór Ragnarsson.
Að koma í kaffi eða gítarspil?
Að sögn Halldórs varð bandið þannig til að
þau eru öll góðir vinir og ákváðu að fara að fikta
eitthvað við hljóðfærin saman. „Í stað þess að
hittast alltaf yfir kaffibolla og spjalla saman þá
ákváðum við bara að hittast yfir hljóðfærunum
og spila saman,“ segir Halldór. „Það má líka fá
sér kaffi á milli æfinga en aðallega er bara gam-
an að vera með vinum sínum,“ segir hann. Í byrj-
un voru þau helst að vinna úr lagasmíðum Sillu
en með tímanum eru þau öll farin að semja. „Já,
fyrstu fimm lögin eru frá Sillu og við svona
sömdum yfir það en núna eru allir farnir að
koma með sína lagasmíði sem við spinnum sam-
an. Við erum öll í öðrum hljómsveitum en það
myndaðist glufa hjá okkur núna þannig að við
rukum til og fórum að spila saman,“ segir Hall-
dór.
borkur@mbl.is
Mr. Silla er komin með nýtt strákaband
Nýtt band Ekki er búið að ákveða nafn á sveitina.
Plötubúðin 12 tónar og rekstr-
arfélagið Ago ehf. undirrituðu í
fyrradag rekstrarleyfissamning til
sjö ára og felur samningurinn í sér
að 12 tónar verði með tónlist-
arverslun í Hörpu, tónlistar- og
ráðstefnuhúsinu. Verslunin 12 tón-
ar var opnuð árið 1998 við Skóla-
vörðustíg. Nýja 12 tóna verslunin
verður á jarðhæð Hörpu. Á mynd-
inni hér fyrir ofan sjást þeir Lárus
Jóhannesson og Jóhannes
Ágústsson í 12 Tónum árið 2007,
með hrafni sem vakir yfir tónlist-
inni með félaga sínum sem svífur á
veggspjaldi efst á myndinni.
12 tónar verða með
verslun í Hörpu
Dansararnir Brynja Pétursdóttir
og Sandra Erlingsdóttir verða með
danssmiðju, eða „workshop“, dag-
ana 27. og 29. desember kl. 18.30-21
á Dansverkstæðinu á Skúlagötu 28.
Kennt verður afró, hipphopp,
krump og waacking. Finna má við-
burðinn á Facebook með því slá í
leitarglugga „Dans Brynju Péturs“.
Danssmiðja á jólum
í Dansverkstæðinu
Hljómsveitin Heavy Experience gaf
út plötu í vikunni samnefnda sveit-
inni, en hún spilar þunga tónlist án
nokkurrar raddar. Þeir lýsa því sjálf-
ir á MySpace-síðunni sinni að „instru-
mental“ tónlist þeirra sé undir áhrif-
um frá Ennio Morricone og að henni
sé best lýst á þann hátt að hún sé eitt-
hvað svipað því og ef Dylan Carlson
hefði gengið til liðs við hinn klassíska
Coltrane-kvartett. „Það má nú ekki
taka þetta sem við skrifuðum á MyS-
pace-síðuna of bókstaflega,“ segir Al-
bert Finnbogason, einn meðlimur
sveitarinnar, en aðrir í sveitinni eru
Brynjar Helgason, Tumi Árnason,
Oddur Júlíusson og Þórður Her-
mannsson. „Þetta á MySpace er nú
svolítið grín hjá okkur, en samt ekki
út í loftið,“ segir hann. Fyrir þá sem
ekki þekkja til að þá er Dylan Carl-
son einna þekktastur fyrir að hafa
keypt haglabyssuna sem Kurt Coba-
in skaut sig með en þeir voru félagar.
Carlson hefur spilað lengi „drone“-
tónlist sem var fáum að skapi til að
byrja með en er vinsæl í dag. Morri-
cone er þekktastur fyrir kvikmynda-
tónlist en hann varð frægur eftir að
hafa samið tónlistina við spagettí-
vestrana.
„Þetta er allt öðruvísi tónlist en við
höfum verið að spila áður,“ segir Al-
bert. „Persónulega hef ég verið mikið
í svona mömmumartraða-tónlist, sem
er hrá, hröð og með öskrum og látum.
En þessi tónlist byggist meira á
dýnamík en keyrslu. Við tókum plöt-
una upp „live“ um eina helgina og er-
um mjög ánægðir með afraksturinn.
Það var bara ýtt á record-takkann og
síðan spilað. Við sendum þetta síðan á
Kimi Records sem vildu endilega
gefa hana út. Þetta er tíu tommu vín-
ylplata með aðeins nokkrum lögum,
en hvert lag er yfirleitt um tíu mín-
útur. Við erum ekki búnir að ákveða
neina dagsetningu á útgáfutónleik-
unum en þeir verða. Það er bara
spurning hvar og hvenær,“ segir Al-
bert. borkur@mbl.is
Erfið reynsla er komin
með nýja plötu
Þyngsli Heavy Experience er búin að gefa út plötu.
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Í gær gaf bókaútgáfan Útúrdúr út
ræðusafnið Kæru vinir – ræðusafn
2000-2010 eftir Ásmund Ásmunds-
son myndlistarmann. Bókin er safn
ræðna sem listamaðurinn hefur
haldið við hin ýmsu tilefni síðustu tíu
ár og spanna vítt svið; allt frá fræði-
legum úttektum á stöðu myndlist-
arinnar við Kaliforníuháskóla í
Berkeley í Bandaríkjunum til tæki-
færisræðna við opnanir sýninga eða
afmæli kollega. Ræðurnar einkennir
flest það sem Ísland og Íslendingar
þurfa í dag; jákvæðni, kurteisi og
hjartahlýja.
Flestar ræðurnar byrja á kæru
vinir enda kærleikurinn einkennandi
fyrir þennan listamann. Það er sama
hvort hann talar við embættismenn
eða vini sína, þá ber hann virðingu
fyrir áheyrendum sínum og hvetur
þá til dáða. En það er ekki nóg að
hafa háar hugsjónir og jákvæðni
þegar kemur að ræðuskrifum því
léttleiki og húmor verður að fylgja ef
það á að ná að hrífa áheyrendur. Af
því á Ásmundur nóg, enda tryggir
hann að ávallt séu einn til tveir
brandarar í hverri ræðu. Þeir koma
ekki óforvarandis. Því góður drama-
túrg er búinn að undirbúa áheyr-
endur áður en að brandaranum kem-
ur þannig að hann fari ekki framhjá
þeim án þess að að honum sé hlegið.
Því hlær Ásmundur sjálfur aðeins
fyrr í ræðunni til að hita áheyrendur
upp og sýna þeim að þar sem hann
hlæi megi þeir líka slaka á og hlæja.
Til að ná góðum hlátri áheyrenda
eru gæði brandarans nefnilega ekki
svo mikilvæg heldur að áheyrendur
viti að þeir megi og eigi jafnvel að
hlæja.
Jákvæði listamaðurinn
Ásmundur hefur haldið fjölda
einka- og samsýninga og hlaut
Menningarverðlaun DV árið 2003
fyrir verk sitt Steypu. Mörg verka
hans hafa vakið athygli eins og hinn
vinalegi óður hans til uppgangsins
og velmegunarinnar frá árinu 2005
en þá byggði Ásmundur turn úr
tómum olíutunnum sem hann hellti
steinsteypu ofan í, á svipaðan hátt
og gert er í kampavínsturnum. Þá er
kampavínsglösum raðað upp og
freyðivíni hellt yfir þannig að það fer
í öll glösin.
Jákvæði rithöfundurinn
En þetta er ekki í fyrsta sinn sem
ritverk eftir Ásmund birtist því hann
er höfundur að 101 Artists Quotes
sem hann gerði í samstarfi við Justin
Blaustein og bókinni Díana í snjón-
um sem kom út árið 2008. Í bókinni
um Díönu segir frá ævintýrum
hennar ef hún hefði lifað áfram.
„Já, það var svona fan-fiction
bók,“ segir Ásmundur. „Það er
bara yndisleg bók um ynd-
islega manneskju frá aðdá-
anda hennar,“ segir hann.
Í nýju bókinni heldur
hann áfram í einlægri að-
dáun, því í ræðum hans
er að finna „öll réttu
orðin: allar klisj-
urnar um íslenska náttúru, kraftinn
í íslensku listamönnunum, trúna á
innilegt samband þjóða og sömuleið-
is allar tuggurnar um uppreisn-
argjarna listamanninn sem boðar
landanum eitthvað nýstárlegt og
hneykslanlegt“, segir í formála bók-
arinnar. Valur Brynjar Antonsson
skrifar hann og skrifar meðal ann-
ars: „Ásmundur gefur fólki aldrei
tilefni til að hneykslast á ræðum sín-
um. Hann er hátíðlegur og kurteis,
glaðbeittur og hreinskiptinn.“
Ásmundur bendir einnig á að
myndir af honum við ræðuhöldin á
þessu tímabili segi ákveðna sögu.
Eða eins og hann orðar það svo fal-
lega: „Klæðnaðurinn á mér og orð-
færið er allt annað fyrir hrunið en
eftir það. Það hefði verið fráleitt að
vera með róttækni árið 2006 enda
var ég alls ekki með slíkt. Núna þyk-
ir það sjálfsagt og eðlilegt og þá auð-
vitað gríp ég til þess.“
Jákvæðar
ræður sem
listaverk
Kampavínsfreyðandi brosmildi
Jákvæðni á jákvæðni ofan
Ræðumaðurinn Ásmundur hefur sýnt það að hann er landi og þjóð til sóma.
Ásmundur hefur haldið ýmsar
sýningar eins og Ásmyndir á
Smokka sem var á Mokka, Ís-
lenskt bein í sænskum sokki í
Gautaborg og Listamenn á
barmi einhvers í Nýlistasafninu
og síðar annan hluta þeirrar
sýningar í Kling og Bang. En
þekktust er líklega sýningin
sem hann nefndi Into the
Firmament og var sett upp
árið 2005. Þar setur hann
tómar olíutunnur upp í
píramída og í staðinn
fyrir kampavín
flæðir steypa yfir
allar tunnurnar.
Ásmundur
LISTAVERKIÐ