Morgunblaðið - 23.12.2010, Blaðsíða 52
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 357. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318
1. Ný tíska: Gufuböð fyrir leggöng
2. Ásdís Rán og Ósk Norðfjörð …
3. Farsíminn bjargaði manninum
4. Forðaði peningum …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Ljósmyndasýning Friðriks Arnar
Hjaltested, Convoy, sem Morgun-
blaðið sagði frá um helgina, hefur
verið keypt upp í heilu lagi. Friðrik
mun halda áfram að keyra með sýn-
inguna um bæinn í húsvagninum.
Morgunblaðið/Einar Falur
Friðrik Örn seldi alla
sýninguna sína
Í kvöld verður
haldið jólaskák-
mót Víkinga-
klúbbsins og
Skákklúbbs
skemmtistaðarins
Faktorý á Smiðju-
stíg 6. Að loknu
móti munu lista-
menn skemmta
gestum, m.a.
Jóhann Eiríksson úr hljómsveit-
unum Gjöll og Reptilicus. Dagskráin
hefst kl. 20 með hraðskákmóti.
Jólaskákmót haldið á
Faktorý í kvöld
Í kvöld verður opið hús í Íslensku
óperunni frá kl. 19 til 21. Antonía
Hevesi, píanóleikari Íslensku óp-
erunnar, mun fá til liðs við sig góða
gesti úr íslenska söngheiminum og
mun hópurinn
flytja lög og
samsöngva úr
heimi jóla- og
óperu-
tónlistar. Að-
gangur er
ókeypis á þessa
skemmtun.
Opið hús í Íslensku
óperunni í kvöld
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Dregur smám saman úr vindi og ofankomu en dálítil él sunnan og
austan til. Frost 4 til 18 stig, kaldast inn til landsins.
VEÐUR
Samtök íþróttafréttamanna
hafa birt listann yfir þá sem
urðu í tíu efstu sætunum í
kjörinu á íþróttamanni árs-
ins 2010. Þar eru fjórir
handboltamenn og tveir
knattspyrnumenn ásamt
keppendum í frjáls-
íþróttum, fimleikum, körfu-
bolta og sundi. Sex karlar
og fjórar konur skipa hóp
tíu efstu að þessu sinni en
kjörið sjálft fer fram 5. jan-
úar. »2-3
Íþróttamaður
ársins, tíu efstu
Mæðgurnar Miglena Apostolova og
Velina Apostolova eru í íslenska
landsliðinu í blaki en faðir Velinu og
eiginmaður Miglenu er landsliðsþjálf-
ari. Landsliðið tekur þátt í alþjóðlegu
móti í Lúxemborg í byrj-
un ársins og verð-
ur fjölskyldan
þar í eldlín-
unni. »3
Mæðgur í landsliði og
heimilisfaðirinn þjálfar
Íslandsmethafinn í sjöþraut
kvenna og bronsverðlaunahafi
frá heimsmeistaramótinu í frjáls-
íþróttum 19 ára og yngri í sumar,
Helga Margrét Þorsteinsdóttir úr
Ármanni, kom heim í gærkvöldi
að loknum rúmlega viku æf-
ingabúðum í Växjö í Svíþjóð. Þar
æfði hún m.a. með ólympíu-
meistaranum Carolinu Klüft. »3
Helga Margét æfði
með Klüft í Växjö
ÍÞRÓTTIR
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Loftið yfir Landakotshæð er þrungið dísætum
greniilmi. Ilminn leggur frá jólatrjám, sem eru
seld á bílaplaninu fyrir utan Landakotskirkju,
eins og verið hefur á aðventu undanfarin 20 ár.
Að sögn Baldurs Freys Gústafssonar, eig-
anda Jólatrjáasölunnar Landakots, fær jólatrjáa-
salan afnot af fjórum bílastæðum á bílastæði
kaþólsku kirkjunnar ásamt afnotum af rafmagni.
Í staðinn fá kirkjan og Landakotsskóli jólatré að
eigin vali. „Þetta er úrvalsfyrirkomulag og allir
njóta góðs af,“ segir Baldur.
Trén eru ættuð frá Danmörku, nánar til-
tekið af heiðum Jótlands og þau koma til landsins
um mánaðamótin nóvember/desember. „Við
kaupum alltaf tré af sama ræktandanum,“ segir
Baldur. „Þetta er normannsþinur og trén eru
ræktuð í sérstökum jólatrjáaskógi skammt frá
Horsens.“
Talsvert færri tré eru pöntuð nú en fyrir
nokkrum árum. „Fram að hruni fengum við alltaf
u.þ.b. tvo fjörutíu feta gáma sem tóku um 2000
tré. Árið 2008 pöntuðum við einn gám sem tekur
um 1000 tré og við höfum haldið okkur við það
síðan. Áður seldum við trén yfirleitt á þremur til
fjórum stöðum, en nú erum við eingöngu við
Landakot,“ segir Baldur.
Stóru trén seljast vel
Heldur var jólatrjánum farið að fækka við
Landakot í gær og Baldur taldi líklegt að trén
myndu seljast upp síðar um daginn. „Líklega
vanmátum við þörfina fyrir jólatré í ár, sér-
staklega hvað varðar stóru trén,“ segir Baldur.
Að hans sögn kallast jólatré stór, séu þau
hærri en tveir metrar. Baldur segir það hafa
komið sér á óvart hversu vinsæl stóru trén voru,
en þau eru talsvert dýrari en minni trén. „Við
héldum að vegna kreppunnar keypti fólk minni
og ódýrari tré í ár. En það var nú ekki raunin.
Fólk kaupir bara jólatré einu sinni á ári og vill þá
hafa þau eftir sínu höfði. En litlu krílin, smæstu
trén, fara fyrst, síðan fara þau stóru og millistóru
trén fara síðast.“
Baldur þvertekur fyrir að kuldaboli og aðrar
slíkar óvættir fæli fólk frá því að leggja leið sína
upp á Landakotshæð til að skoða og þreifa á
grenitrjám þar til draumatréð kemur í leitirnar.
„Kuldinn hefur alls ekki þau áhrif að fólk
komi ekki til að versla við okkur. Einu áhrif kuld-
ans eru þau að fólk er fljótara að velja sér tré.
Og það er hið besta mál.“ Jólatrjáasalan hefur
verið í samstarfi við Styrktarfélag krabbameins-
sjúkra barna undanfarna tvo áratugi. Í samstarf-
inu felst að styrktarfélagið fær einn fjórða af öll-
um ágóða sölunnar. „Við erum virkilega ánægð
og stolt af því að þau skuli vilja starfa með okk-
ur,“ segir Baldur.
MGæði og notagildi í jólagjöf »18
Greniangan yfir Landakoti
Jólatrjáasali segir
óvænt hversu mikið seld-
ist af stórum jólatrjám í ár
Morgunblaðið/Eggert
Jólatré Baldur Freyr Gústafsson seldi jólatré á Landakotshæð á aðventunni. Stóru trén voru afar vin-
sæl og kom það Baldri nokkuð á óvart, en hann átti von á að minni og ódýrari tré myndu seljast betur.
Á föstudag (aðfangadag jóla) Austlæg átt, 5-10 m/s, skýjað með köflum eða bjart-
viðri, en 10-15 og dálítil él við suðurströndina. Frost 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins.
Á laugardag (jóladag) Austanátt 5-13. Él við suður- og austurströndina en annars þurrt
og bjart að mestu. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag (annan í jólum) Hvöss suðaustan- og austanátt með snjókomu eða slyddu.