Morgunblaðið - 26.02.2011, Síða 1

Morgunblaðið - 26.02.2011, Síða 1
L A U G A R D A G U R 2 6. F E B R Ú A R 2 0 1 1  Stofnað 1913  48. tölublað  99. árgangur  INGÓ GEIRDAL SÝNIR OG KENNIR TÖFRABRÖGÐ ORKA OG FLÆÐI Í DANSINUM RETRO STEFSON Á FERÐINNI Í ÞÝSKALANDI SUNNUDAGSMOGGINN SAMNINGUR 46HÓKUS PÓKUS 10 Morgunblaðið/Golli Í haust Kosið til stjórnlagaþings. Í skoskri skýrslu um framkvæmd fyrstu rafrænu talningarinnar í þing- og sveitarstjórnarkosningum í Skotlandi árið 2007 eru tíundaðir ýmsir annmarkar sem Hæstiréttur gerði athugasemd við vegna kosn- inga til stjórnlagaþings í haust. Á vef stjórnlagaþings kemur þó fram að í „lögum um stjórnlagaþing [sé] höfð hliðsjón af kosningakerfinu í Skotlandi“. Í skosku skýrslunni eru bæði gerðar athugasemdir við að ekki mátti brjóta kjörseðlana saman og að kjörkassar hafi verið lélegir. Ástráður Haraldsson, fyrrverandi formaður landskjörstjórnar, og Jó- hann P. Malmquist, sem tók við sem tæknilegur ráðgjafi vegna kosning- anna af Þorkatli Helgasyni, höfðu ekki séð skosku skýrsluna. Þorkell taldi hana ekki leiða í ljós neina mik- ilvæga hluti varðandi talninguna. Ögmundur andvígur ráði Ögmundur Jónasson lýsti í gær yfir að hann væri andvígur því að Alþingi skipaði stjórnlagaráð í stað stjórnlagaþings en um þetta mál eru skiptar skoðanir innan VG. Hið sama á við um Framsóknarflokkinn því Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, formaður Framsóknar, kveðst fylgjandi uppkosningu í haust en flokksbróðir hans, Hösk- uldur Þórhallsson, á sæti í samráðs- nefnd sem lagði til að skipað yrði stjórnlagaráð. »22 Lærðu ekki af Skotum  Svipuð mistök við kosningar í Skotlandi Meiri mengun á hvert kW » Hvatamenn þess að álver rísi í Helguvík hafa bent á, eftir að ákvörðun um kísilver í Helguvík var kynnt, að kísilver mengi mun meira en álver á hverja kílóvattstund. » Áætlanir gera ráð fyrir að yfir 2000 störf yrðu til í ál- verinu. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Þótt Norðurál hafi handbært fé til fjárfestinga í álveri í Helguvík upp á 304 milljónir dollara, eða sem svarar 36 milljörðum króna, er framtíð verkefnisins í Helguvík í fullkominni óvissu, samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins. Norðurál, dótturfélag Century, hefur þegar lagt um 17 milljarða króna í verkefnið, en eins og kunn- ugt er hefur ekki tekist að ljúka raf- orkusölusamningum við Orkuveitu Reykjavíkur og HS orku, sem Magma Energy á 98,5% hlut í. Norðurál vísaði ágreiningi sínum við HS orku vegna raforkusamn- inga í sænskan gerðardóm, sem kemur saman hér á landi í lok maí. Ekki er búist við niðurstöðu gerð- ardómsins fyrr en líða tekur á sum- ar. Þetta kemur fram í fréttaskýr- ingu í Sunnudagsmogganum í dag. Þar kemur fram að meiri svartsýni en bjartsýni gætir meðal viðmæl- enda blaðsins um framtíð verkefn- isins. HS orka undirbýr nú stjórnsýslu- kæru til iðnaðarráðherra vegna harðra skilyrða sem Orkustofnun setti við veitingu virkjanaleyfis á Reykjanesi. 2,5 milljarða kostnaður HS orka telur að skilyrði Orku- stofnunar þýði allt að tveggja og hálfs árs seinkun á framkvæmdum og kostnaðarauka upp á 2,5 millj- arða króna. Tilbúnir með 36 milljarða  Svartsýni um að álver Norðuráls í Helguvík rísi  Kísilver mengar meira  HS orka undirbýr stjórnsýslukæru vegna virkjanaleyfis  Tefst um 2 1⁄2 ár Morgunblaðið/Jim Smart Nýir Íslendingar Innflytjendum af annarri kynslóð fer fjölgandi. Una Sighvatsdóttir una@mbl.is „Ég borga líka skatta og legg mitt til samfélagsins. Útlendingar eru engin ógn, við vinnum öll saman að því að ná Íslandi út úr þessari kreppu sem það er í núna,“ segir Liene Alekse sem er frá Lettlandi en hefur búið á Íslandi meira og minna frá 19 ára aldri. Innflytjendur og afkomendur þeirra eru orðnir rótgróinn hluti af íslensku samfélagi, þótt saga innflytjenda sé styttri hér á landi en í nágrannalöndunum. Í dag eru innflytjendur 26.171 talsins eða 8,2% landsmanna en voru aðeins 2,1% landsmanna árið 1996. „Ísland er orðið fjölmenning- arsamfélag. Það er ekki einsleitt eins og það var fyrir 10 árum, þótt fólk haldi það kannski ennþá,“ segir Joanna Ewa Dominiczak, formaður Samtaka kvenna af er- lendum uppruna. Hún segir jafn- framt að þegar kreppan skall á hafi mun færri snúið aftur til upp- runalandsins en stjórnvöld hafi búist við, enda samanstendur hóp- urinn nú að miklu leyti af ungu fjölskyldufólki með börn. Þótt langstærsti hluti innflytj- enda hér sé frá Póllandi, eða 38,4%, þá eru nýir Íslendingar úr öllum heimshornum. Morg- unblaðið mun á næstu dögum fjalla um stöðu innflytjenda á Ís- landi, atvinnuleysi þeirra á meðal sem og reynslu þeirra af íslensku samfélagi og hvernig þeim er gert kleift að samlagast því. »18 og 19 Vilja búa hér þrátt fyrir kreppu  Hlutfall innflytjenda í íslensku samfélagi hefur fjórfaldast frá árinu 1996 Hann yljaði tónleikagestum söngurinn hjá Ragn- heiði Gröndal er hún steig á svið í aðalsal Norðurpólsins á Seltjarnarnesi í gærkvöldi. Tónlistarhátíðinni Bergen-Reykjavík-Nuuk lauk þá á Norðurpólnum en hún hófst á fimmtu- dag með sex hljómsveitum og tónlistarmönnum. Dagskráin í gær hófst með því að Ragnheiður og Þjóðlagasveitin léku fyrir gesti en síðan tóku við sjö tónlistaratriði. Vetrarsveifla á Norðurpólnum Morgunblaðið/Ómar  Jón Tómas Ás- mundsson flutn- ingabílstjóri hef- ur farið fjórar ferðir með bú- slóðir burtfluttra Íslendinga frá höfuðborgar- svæðinu og heim að dyrum á Norðurlöndum. Fimmta ferðin verður eftir helgi og fleiri pantanir bíða. Hann er í samkeppni við Sam- skip og Eimskip og kvartar ekki. „Það er óneitanlega kostur að hafa sama flytjandann alla leið.“ »5 Ekur með búslóðir til Norðurlanda Bílstjóri Jón Tóm- as við bílinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.