Morgunblaðið - 26.02.2011, Blaðsíða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2011
AF LISTUM
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Åsne Seierstad sló í gegn meðbókinni Bóksalinn í Kabúlfyrir níu árum. Bókin var
hlaðin lofi og viðurkenningum. Hún
var þýdd á 41 tungumál, þar á meðal
íslensku, og var í 44 vikur á met-
sölulista The New York Times. Bók-
in færði Seierstad tugi milljóna
króna í tekjur. Hluta þeirra notaði
hún til að fjármagna skóla í Afganist-
an þar sem 600 stúlkur eru við nám.
En bókin dró dilk á eftir sér. Bóksal-
inn var ekki ánægður með lýsinguna
á sér.
Seierstad var gestur Shah Mu-hammad Rais í fjóra mánuði. Ra-
is hefir selt bækur í Afganistan í 40
ár. Hann hefur selt bækur af öllum
toga og látið sig einu gilda hverjir
hafa verið við völd. Í grein í Der
Spiegel segir að í bókabúðinni virðist
„andinn og umburðarlyndið gnæfa
yfir öllum átökum milli menningar-
heima“. Þrisvar var honum stungið í
fangelsi vegna bókaverslunarinnar,
en hann hvikaði þó hvergi frá sann-
færingu sinni um að einungis fjöl-
breytileiki þess, sem skrifað hefir
verið, skýri heiminn, allar raddir
verði að fá að heyrast. Hann kveðst
selja allar bækur, allar nema eina.
Bóksalinn kom Seierstad í upp-hafi fyrir sjónir sem upplýstur
maður, en þegar leið á dvölina
breyttist hann í augum hennar í
harðstjóra, sem kúgaði konurnar á
heimilinu. Þessu kom hún rækilega
til skila í bókinni. Þar breytti hún
nafni bóksalans, en ekki fór á milli
mála um hvern bókin fjallaði.
Auðmjúkur skrifari þessa pistilsræddi við Seierstad þegar hún
kom hingað til lands árið 2003. Hún
sagðist hafa verið hissa þegar Rais
lagðist gegn bókinni, sakaði hana um
að hafa hagrætt staðreyndum og
jafnframt stefnt lífi sínu í hættu.
„Hvernig gerði ég það? segðu
mér það, vinsamlegast,“ svaraði hún
þegar þessi fullyrðing fyrrverandi
gestgjafa hennar var borin undir
hana. „Ég bað hann um að segja mér
það. Hann ýkir. Ég held að hjá hon-
um sé þetta spurning um heiður
frekar en peninga. Honum líkaði
ekki bókin og er að berjast fyrir
heiðri sínum og ég virði hann fyrir
það. Ég tel hins vegar að í afgönsku
þjóðfélagi ríki slík kúgun og
grimmd að ekki sé hægt að skrifa
heiðarlega bók um Afganistan þann-
ig að hann verði ánægður. En bók-
salinn er ekki fórnarlamb í bókinni,
heldur konur, ekki sérstaklega kon-
urnar í hans fjölskyldu, heldur afg-
anskar konur almennt. Hann vill
láta lýsa Afganistan sem nútímalegu
landi, en það er ekki raunin. Afgan-
istan er ekki nútímalegt land.“
Deila Rais og Seierstad stendurenn yfir. Á hverjum degi þarf
Seierstad að fást við þetta mál. Rais
hefur rekið baráttu sína með öllum
ráðum, veitt viðtöl, gefið út dæmi-
sögu á bók og nú er dómsmál í upp-
siglingu í Noregi. Bókin hefur haft
mikil áhrif á líf Rais. Fjölskylda hans
er sundruð. Eiginkonur hans, dætur
og tveir synir fóru frá Kabúl. Fyrri
eiginkonan býr í Kanada ásamt
börnum, önnur eiginkonan í Noregi,
einnig ásamt börnum. aðeins tveir
synir eru í Kabúl. Rais segir að við-
brögðin hafi verið hastarleg þegar
bókin kom út á dari. Hótanir dundu
á fjölskyldunni. Margir skilja ekki
hvers vegna hann hafi ekki hefnt sín
á henni með eigin hendi. Rais lítur
hins vegar á sig sem hófsaman músl-
íma og vill leita réttar síns eftir leið-
um hennar menningar. Þannig vill
hann afmá smánina, bæði vegna
þess, sem hann kallar lygar, og að
hún skyldi opinbera líf fjölskyld-
unnar og „misnota gestrisni mína“.
Eins og segir í Der Spiegel er það al-
varlegasta ásökunin því að gestrisn-
in er samkvæmt óskráðum siðalög-
málum pastúna eitt af mikilvægustu
siðalögmálunum. Engum má vísa á
dyr, en gestur má heldur ekki skaða
gestgjafa sinn með neinum hætti.
Þegar er einn dómur fallinn.Seierstad og forlagi hennar var
gert að greiða Suraiu Rais, annarri
eiginkonu bóksalans, 31 þúsund evr-
ur fyrir brot gegn friðhelgi einkalífs
hennar í þremur tilvikum. Lögmað-
ur fjölskyldunnar segir að hún sé öll
tilbúin að stefna blaðamanninum.
Seierstad kveðst engu hafa log-ið í bókinni. Í greininni í Der
Spiegel kveðst hún stundum hafa
velt því fyrir sér hvort heimur henn-
ar og hans geti ekki farið saman, en
vill ekki trúa því. Og hún segist enn
kunna að meta hann: „Afganistan
þarf á fólki eins og honum að halda.“
Enn deilt um
bóksalann í Kabúl
Morgunblaðið/Þorkell
Langvinn deila Norski blaðamað-
urinn Åsne Seierstad á enn í deilum
við bóksalann í Kabúl tæpum níu ár-
um eftir að bókin um hann kom út.
»Ég tel hins vegarað í afgönsku þjóð-
félagi ríki slík kúgun og
grimmd að ekki sé hægt
að skrifa heiðarlega bók
um Afganistan þannig
að hann verði ánægður.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
ARKITEKTÚR
HÖNNUN • LISTIR
MIÐLUN • TÍZKA
ALÞJÓÐLEGT
FAGNÁM
Barcelona • Madrid
Firenze • Milano
Roma • Torino • Venezia
Glasgow • London
New York
MÖGNUÐ HASARSPENNUMYND
SEM ENGINN MÁ MISSA AF!
THE MECHANIC KL. 5.50 - 8 - 10.10 16
THE MECHANIC LÚXUS KL. 8 - 10.10 16
HOW DO YOU KNOW KL. 5.20 - 8 - 10.35 L
BIG MOMMA´S HOUSE KL. 1 (700 kr) - 3.20 - 5.40 - 8 L
THE EAGLE KL 10.30 16
JUST GO WITH IT KL. 1 (700 kr) - 3.20 - 5.30 - 8 - 10.30 L
BLACK SWAN LÚXUS KL. 3 - 5.30 16
GULLIVER´S TRAVEL 3D KL. 1 (950 kr) - 3.10 L
ALFA OG OMEGA 3D KL. 1 (950 kr) - 3.10 L
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%
5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
-H.S.S.,MBL
T.V. - KVIKMYNDIR.IS-H.H., MBL -H.V.A., FBL
HOW DO YOU KNOW KL. 5.25 - 8 - 10.35 L
BIG MOMMA´S HOUSE KL. 3 (700 kr) - 5.30 - 8 L
127 HOURS KL. 3.40 (700 kr) - 5.50 - 8 - 10.10 12
BLACK SWAN KL. 3 (700 kr) - 5.30 - 8 - 10.30 16
THE FIGHTER KL. 3 (700 kr) - 10.30 14
GLERAUGU SELD SÉR
HOW DO YOU KNOW KL. 8 - 10.10 L
BIG MOMMA´S HOUSE KL. 3.40 (900) - 5.50 - 8 L
JUST GO WITH IT KL. 10.10 L
SÚÐBYRÐINGUR, SAGA BÁTS KL. 6 L
ALFA OG OMEGA 3D KL. 4 (600 kr) L
GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR
MERKTAR MEÐ RAUÐUTilboð í bíó
THE MECHANIC Sýnd kl. 6, 8 og 10:10
TRUE GRIT Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:25
BIG MOMMA’S HOUSE 3 Sýnd kl. 2 (700kr), 3:40 og 5:50
JUST GO WITH IT Sýnd kl. 8 og 10:25
ALFA OG ÓMEGA Sýnd kl. 2 (700kr) og 4 ísl. tal
MÚMÍNÁLFARNIR - 3D Sýnd kl. 2 (950kr) og 4:10 ísl. tal
Stundum þarf maður stelpu,
til að ná stelpunni
SPRENGHLÆGILEG GAMANMYND
SEM ENGIN MÁ MISSA AF
HHH
„Myndin hin besta skemmtun
sem hentar öllum aldurshópum“
-H.H. - MBL
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum