Morgunblaðið - 26.02.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2011
Njótum náttúrunnar
Skoðið ferðaáætlun Útivistar á
www.utivist.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Kristín Ágústsdóttir
Neskaupstaður | Trébryggjurnar hverfa nú ein af
annarri í sjávarþorpum, og flestir sjá talsvert
eftir þeim. Bryggjur í Neskaupstað eru þar eng-
in undantekning. Um daginn var Súnbryggjan
fjarlægð, enda töluverð hætta talin stafa af fún-
um og brotnum spýtum og holum í dekkinu.
Engu að síður var sjarmerandi að laumast út á
grasi gróna bryggjuna og reyna að dorga í gegn-
um götin. Súnbryggjan var smíðuð í kringum
1940. Hún stóð fyrir neðan gamla frystihúsið og
var m.a. hluti af leikmynd í kvikmyndinni Haf-
inu.
Þá er búið að loka Bæjarbryggjunni svoköll-
uðu í miðbænum fyrir umferð dorgandi og gang-
andi manna. Að sögn hafnarstjóra Fjarðabyggð-
ar, Steinþórs Péturssonar, stendur til að
endurgera hana á næstu árum. Sú bryggja var
smíðuð snemma á síðustu öld og hefur verið
gerð upp nokkrum sinnum.
Morgunblaðið/Kristín Ágústs
Trébryggjurnar hverfa ein af annarri
Egill Ólafsson
Einar Örn Gíslason
Gleði Flateyringa kann að hafa
reynst ótímabær og atvinnuhorfur í
bænum aftur komnar í uppnám eftir
að stjórn Byggðastofnunar ákvað á
fundi sínum í gær að samþykkja ekki
kaup Lotnu ehf. á eignum þrotabús
Eyrarodda. Veiðar og vinnsla hófust
á ný nú í vikunni, en óljóst er hvort
eða hvenær framhald verður þar á.
„Það eru auðvitað ákveðin von-
brigði að þetta hafi ekki náð að
ganga eftir, sérstaklega í ljósi þess
hvað þetta var langt komið,“ segir
Daníel Jakobsson, bæjarstjóri Ísa-
fjarðarbæjar. „Ég hefði gjarnan vilj-
að sjá [Byggðastofnun] grípa inn í
fyrr.“ Ísafjarðarbær er einn kröfu-
hafa í þrotabú Eyrarodda, en Daníel
segir sveitarfélagið hafa lagt sig
fram um að sýna sveigjanleika hvað
það varði, og ekki standi á því þegar
kemur að því að koma vinnslu af stað
sem allra fyrst.
Hafnað vegna viðskiptasögu
Anna Kristín Gunnarsdóttir,
stjórnarformaður Byggðastofnunar,
segir ákvörðun stjórnar byggjast á
viðskiptasögu eigenda Lotnu, en
stofnunin er langstærsti kröfuhafinn
í þrotabú Eyrarodda. „Starfsmenn
Byggðastofnunar voru búnir að fara
yfir málið og því var hafnað af eðli-
legum ástæðum. Við horfum þar til
viðskiptasögu þeirra og eins hefur
þetta ekki verið auglýst,“ segir Anna
Kristín. Kristján Kristjánsson, einn
eigenda Lotnu, furðar sig á þessari
afgreiðslu. Hann segir Byggðastofn-
un þegar hafa veitt skriflegt sam-
þykki fyrir yfirtökunni, og á þeim
forsendum hafi starfsfólk verið ráðið
og veiðar og vinnsla hafist.
Daníel segist ekki hafa forsendur
til þess að meta afstöðu Byggða-
stofnunar til viðskiptasögu eig-
endanna. Guðmundur Björgvinsson,
formaður Íbúasamtaka Flateyrar,
tekur í sama streng. „Við erum sár
og reið, burtséð frá því hvaða kar-
akterar þetta eru,“ segir Guðmund-
ur. „En þeir sem taka ákvörðun um
að pakka saman og flytja vestur á
firði til þess að taka að sér fisk-
vinnslu, og í raun eitt stykki þorp –
það hlýtur að vera eitthvað í þá
spunnið.“ Hann furðar sig á fram-
göngu Byggðastofnunar og skipta-
ráðanda, sem hafi haft bæjarbúa að
leiksoppum. „Þetta er svo yfirgengi-
lega undarlegt mál. Ég held að flest-
ir skilji þorpssálina hér, fólk var
ánægt og kátt þegar það sá að þetta
virtist ætla að komast svona fljótt af
stað aftur,“ segir Guðmundur. Von-
brigðin séu eftir því.
Ekki liggur fyrir hvort fiskvinnslu
verður haldið áfram eftir helgi, að
sögn Kristjáns Kristjánssonar.
Óvissan yfirtekur Flateyri á ný
Stjórn Byggðastofnunar fellst ekki á kaup Lotnu á eignum þrotabús Eyrarodda, en veiði og vinnsla
er þegar hafin Reiði og vonbrigði meðal bæjarbúa Óljóst er hvort starfsemi verður haldið áfram
Flateyri Framtíð vinnslu er óljós.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Þeir Hannes Smárason og Pálmi
Haraldsson hafa skilað dómstóli í
New York yfirlýsingum þess efnis að
hægt verði að ganga að eignum þeirra
í Bandaríkjunum falli dómur á Íslandi
þeim í óhag. Þar með er skilyrðum
sem dómarinn, Charles E. Ramos,
setti fyrir frávísun fullnægt og málið
úr sögunni á þeim vettvangi.
Í vikunni var útlit fyrir að málið
yrði tekið upp að nýju, þar sem yf-
irlýsingar Hannesar og Pálma höfðu
ekki skilað sér, en starfsmaður dóm-
stólsins sendi málsaðilum tölvupóst
þess efnis á þriðjudagskvöld. Auk
þeirra Hannesar og Pálma hafði slita-
stjórn Glitnis höfðað mál á hendur
þeim Jóni Ásgeiri Jóhannessyni,
Ingibjörgu Pálmadóttur, Jóni Sig-
urðssyni, Þorsteini Jónssyni og Lár-
usi Welding, vegna ráðstöfunar fjár
sem aflað var með skuldabréfaútgáfu
í Bandaríkjunum árið 2007.
Engar líkur á endurupptöku
Varnaraðilar höfðu allir andmælt
því kröftuglega að málið skyldi rekið
vestan hafs. Þeim hefur nú orðið að
ósk sinni og verður málið að öllum lík-
indum rekið fyrir dómstólum hér á
landi. Lögmaður slitastjórnar spurði
Ramos, þegar niðurstaðan lá fyrir í
gær, hvort hugsanlegt væri að telja
hann á að íhuga endurupptöku. Hann
sagði að líkurnar á því að fallist yrði á
slíka beiðni væru „engar“.
Ekki náðist í Steinunni Guðbjarts-
dóttur, formann slitastjórnar Glitnis,
vegna málsins.
Máli slitastjórnar gegn sjö-
menningunum vísað frá
Dómari í New York segir „engar líkur“ á endurupptöku
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Umhverf-
isstofnun hefur
sent Vest-
mannaeyjabæ
bréf um áform
stofnunarinnar
um að svipta
sorpbrennslu
bæjarins starfs-
leyfi.
Fram kemur að í mars 2010
sendi Umhverfisstofnun Vest-
mannaeyjabæ bréf um áminningu
þar sem losun á ryki í útblást-
urslofti hefði ítrekað verið yfir
mörkum og var þess krafist að úr-
bætur yrðu gerðar innan ákveðins
frests. Í maí 2010 hefði bærinn
verið áminntur og þess krafist að
nýjar mælingar yrðu gerðar. Nið-
urstöður þeirra mælinga sýndu að
losun ryks frá stöðinni var yfir
mörkum.
Hyggst svipta
sorpbrennsluna
í Eyjum starfsleyfi
Ef einhverjir þeirra sem náðu kjöri
á stjórnlagaþing kjósa að taka ekki
sæti í fyrirhuguðu stjórnlagaráði,
verður lagt til að í þeirra stað komi
þeir sem voru næstir því að ná sæti
á stjórnlagaþingi, að sögn Ágústs
Geirs Ágústssonar, formanns
starfshóps um viðbrögð við ákvörð-
un Hæstaréttar. Þó verði tekið tillit
til kynjajafnræðis.
Gengið á röðina ef
einhver vill ekki sæti
Öllu starfsfólki Eyrarodda var
sagt upp í októberlok, og var
fyrirtækið úrskurðað gjaldþrota
þann 17. janúar síðastliðinn og
við það komst framtíð fisk-
vinnslu á Flateyri í uppnám.
Lotna ehf. keypti í kjölfarið
stóran hluta eigna þrotabúsins
og hóf veiðar í byrjun vikunnar.
Vinnsla í frystihúsinu hófst síð-
an á miðvikudaginn.
Róðrar ný-
hafnir aftur
FLATEYRI