Morgunblaðið - 26.02.2011, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.02.2011, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2011 ILVA Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík, sími 522 4500 www.ilva.is mánudaga - föstudaga 11-18:30, laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18sendum um allt land RÝMINGARSALA VARA HÆTTIR EIK ANTIK. Plankaparket, Svartbæsað. Verð 8.990.-/fm NÚ 5.390.-/fm EIK RUSTIC. 3ja stafa, mattlakkað. Verð 4.990.-/fm NÚ 2.990.-/fm EIK RUSTIC. Plankaparket, mattlakkað. Verð 7.990.-/fm NÚ 4.990.-/fm NATURAL RUSTIC. Plankaparket plast, fasað smelluparket. Verð 2.990.-/fm NÚ 1.990.-/fm -40% -40% -35% -30% Bjóðum uppá vaxtalaust lán til 6 mánaða FLOOR. Parket undirlag. Verð 7.900.-/fm NÚ 5.490.-/fm „Mín skoðun er sú að kynningin eigi að uppistöðu til að fara fram í fjöl- miðlum, í umræðuþáttum, blaðaskrif- um o.s.frv. Það er mjög mikilvægt að stuðla að upplýstri umræðu í þjóð- félaginu. Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um frekari kynningu af hálfu innanríkisráðuneytisins en við erum með þetta allt í skoðun,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkis- ráðherra, aðspurður hvort tekin hafi verið ákvörðun um að útbúa kynning- arefni vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave 9. apríl nk. Fram kom í máli Össurar Skarp- héðinssonar utanríkisráðherra eftir synjun forsetans að ráðist yrði í kynn- ingarherferð erlendis. Hafa rætt við matsfyrirtækin Aðspurður um þá hlið mála svarar Steingrímur J. Sigfússon fjármála- ráðherra því til að hann hafi farið í nokkur viðtöl við erlenda fjölmiðla. Utanríkisþjónustan, ýmis ráðuneyti og Seðlabankinn hafi upplýst erlenda aðila um stöðuna. „Það hefur verið rætt við matsfyrirtækin.“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknar, segir lítið að marka fréttir um að synjun forsetans hafi haft neikvæð áhrif á lánshæf- ismat Íslands. „Því hefur verið haldið fram að skuldatryggingaálag hafi rokið upp úr öllu valdi eftir að forset- inn synjaði. Það er rangt.“ Ekki náðist í Össur. baldura@mbl.is Kynning á Icesave í skoðun  Kosið verður um Icesave-lögin 9. apríl Ögmundur Jónasson Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Hugmyndahúsi háskólanna verður lokað á mánudag þar sem Listaháskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík sem staðið hafa að baki því hafa ekki fjárhagslegt bolmagn til að halda því lengur úti. Ingibjörg Gréta Gísladóttir, fram- kvæmdastjóri Hugmyndahússins, staðfestir þetta en verk- efnið hefur verið starfrækt frá því í apríl árið 2009 og fóru sextíu verkefni og fyrirtæki þar í gegn þar til í október á síðasta ári. Segir Ingibjörg að 159 störf hafi skapast þar í alls kyns fyrirtækum, þar á meðal tæknifyrirtæki, hönn- unarfyrirtækjum, listahátíðir og ferðaþjónustufyrirtæki svo eitthvað sé nefnt. Meirihlutinn hafi verið í því sem kall- að er skapandi greinar. „Við áttum í rauninni að loka um áramótin en Listaháskólinn afréð að halda þessu aðeins opnu lengur til að sjá hvað hægt væri að gera. Þetta átti að vera tveggja ára verkefni og ýta þessum bolta af stað. Svo voru þeir að vonast til að einhver gæti gripið boltann, sérstaklega vegna þess árangurs sem hefur náðst, “ segir Ingibjörg. Þreifingar hafi verið út um allt til þess að halda verkefninu gangandi, bæði hafi ver- ið leitað til hins opinbera og atvinnu- lífsins. Allir hafi verið mjög já- kvæðir gagnvart því en á end- anum sé ekkert fast í hendi og því neyðist þau til þess að loka. „Það tala allir vel um þetta verkefni og finnst það frábært, það vantar ekki. Það hefur ekkert skilað sér svo það er ekki hægt annað en að loka. Enginn hefur tekið þetta verkefni með okkur og sagt að við skulum gera þetta. Við erum enn á sama stað og í haust,“ segir hún. Vonlaust að byggja upp aftur Ingibjörg hefur þó ekki áhyggjur af afdrifum verk- efnanna sem enn séu í gangi í Hugmyndahúsinu eftir að lokað verður á mánudag. „Það eru ekki mörg fyrirtæki hér innanhúss núna. Út af óvissuástandinu er fólk búið að finna annað húsnæði til að fara í. Húsnæðið út af fyrir sig er kannski minnsta vandamálið. Hugmyndirnar lifa áfram en farvegurinn og þetta skapandi umhverfi það fer og það er svo vont að byggja það upp aftur. Það verður aldrei byggt eins upp aftur,“ segir Ingibjörg. Hugmyndirnar lifa áfram þrátt fyrir lokun  Hugmyndahúsi háskólanna lokað á mánudag vegna fjárskorts  Enginn tilbúinn til þess að taka við boltanum Morgunblaðið/RAX Nýsköpun Hugmyndahús háskólanna hefur verið til húsa að Grandagarði 2. Hafa 60 verkefni farið þar í gegn. Lífeyrisþegar fengu nýverið sent bréf þar sem fram kemur tillaga að tekjuáætlun fyrir árið og greiðslu- áætlun bóta sam- kvæmt því. Kona, sem hefur þegið ör- orkubætur um skeið, fékk sent bréf sem undirritað var af sýslumanninum í Hafnarfirði en þar var verið að tilkynna breyt- ingu á tekjuáætlun fyrir þetta ár. Í bréfinu kom jafnframt fram að hún skuldaði Tryggingastofnun heilar 25 krónur. „Tryggingastofnun hefur borist ný tekjuáætlun frá þér. Á grundvelli hennar hefur bótaréttur ársins verið endurreiknaður. Fyrir liggur of- greiðsla að fjárhæð 25 krónur sem ekki verður innheimt fyrr en að loknu uppgjöri ársins haustið 2012,“ segir m.a. í bréfinu til konunnar. Hún hafði samband við sýslu- mannsembættið, sem vísaði erindinu á Tryggingastofnun, en henni fannst það varla ómaksins vert að standa í bréfasendingum fyrir svo litlar fjár- hæðir. „Ég vildi vekja athygli á þessu því mér finnst þetta í senn sorglegt og hlægilegt. Manni er sýnd lítilsvirðing með því að senda bréf með svona fjárhæð,“ sagði kon- an við Morgunblaðið, en hún vildi ekki láta nafns síns getið. bjb@mbl.is Fékk bréf upp á 25 króna skuld Hafrannsóknastofnun hefur í vetur fengið nokkrar tilkynningar um að einstaka makríll hafi fengist með öðrum afla. Talið er að þetta sé í flestum tilvikum makríll úr hrygn- ingu síðasta árs og varð hans m.a. vart í síðasta haustralli. Makríllinn hrygndi m.a. á milli Íslands og Fær- eyja og jafnvel inni í íslensku lögsög- unni. Líklegt er að makríllinn sem land- að var með loðnuafla úr færeyska skipinu Finni fríða á Fáskrúðsfirði í gær eigi uppruna sinn að rekja á þær slóðir. Makríllinn vex hratt fyrsta árið og reyndist þessi um 19 sentimetra langur. aij@mbl.is Morgunblaðið/Albert Kemp Makríll með loðnunni Þrjú af þeim sex verkefnum sem til- nefnd voru til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands sem afhent voru á miðvikudag tengjast Hugmyndahús- inu, þar á meðal sigurvegarinn, „Pantið áhrifin frá Móður Jörð“, um hugmyndafræðilegan veitingastað þar sem upplifun, fræðsla og umhverfisvitund fara saman. Tengdist þremur af sex tilnefningum NÝSKÖPUNARVERÐLAUN Nýsköpunarverlaun forsetans Verð á íslensku metani hækkaði í vikunni úr 114 krónur á normal- rúmmetra í 120 krónur og hefur hækkað um 36% frá árinu 2007. Á sama tíma hefur vísitala neyslu- verðs hækkað um 38%. Sé miðað við orkujafngildi 95 oktana bensíns er verðið á metani þó rétt um helmingur þess sem bensínið kostar í dag, en algengt lítraverð er nú 221,6 krónur. Einn lítri af dísilolíu kostar tæpar 227 krónur. Metanverð hækkað í 120 kr./Nm³

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.