Morgunblaðið - 26.02.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2011
FLUGFELAG.IS
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/F
LU
53
86
4
02
/1
1
*Verð á mann miðað við flug fram og til baka til Reykjavíkur, Egilsstaða, Akureyrar eða Ísafjarðar.
Seyðisfjörður Ísafjörður Akureyri
Vonir standa til þess að hægt verði
að koma Goðafossi, flutningaskipi
Eimskips, í slipp um miðja næstu
viku, að sögn Ólafs Hand, upplýs-
ingafulltrúa félagsins. Trygginga-
félag Eimskips metur tilboð frá
slippstöðvum áður en ákvörðun um
hvert farið verður með skipið er tek-
in, en hugsanlegt er að það verði
flutt til Póllands. Dæling úr olíutönk-
um skipsins stóð enn yfir í gær-
kvöldi, en annar tveggja tanka sem
tæma á er nú tómur og dæling úr
hinum vel á veg komin. Skipið verður
ekki flutt þaðan sem það liggur
bundið nú fyrr en því starfi er lokið.
Gámarnir sem fluttir voru af Goða-
fossi eru allir komnir til Fredrikstad,
og verða þeir fluttir til Íslands eins
fljótt og auðið er. einarorn@mbl.is Noregur Goðafoss á strandstað.
Fer vonandi í slipp í næstu viku
Ljósmynd/Johnny Leo Johansen
Sýning Blaðaljósmyndarafélagsins, Myndir ársins,
verður opnuð í Gerðarsafni í Kópavogi í dag. Þá verða
afhent verðlaun fyrir bestu ljósmyndirnar í átta flokk-
um og myndskeið ársins verður einnig verðlaunað.
Samhliða fyrrnefndum verðlaunaafhendingum verða
Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands afhent
og hefst athöfnin kl. 15. Verðlaunað er í þremur flokk-
um.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Myndir og fréttir ársins valdar
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Það er engin spurning, þetta hefur
áhrif á þær viðræður sem eru í
gangi,“ segir Björn Snæbjörnsson,
formaður Starfsgreinasambands Ís-
lands, SGS, spurður um áhrif verð-
hækkana, sem dynja yfir landsmenn,
á þær kjaraviðræður sem eru í gangi
milli aðila vinnumarkaðarins.
Flestallir liðir neysluvísitölunnar
hækkuðu í síðustu mælingu Hagstof-
unnar og fram kom í Morgunblaðinu í
gær að vegna hækkandi hrávöru-
verðs á heimsmarkaði væri útlit fyrir
þrálátar verðhækkanir á ýmsum
nauðsynjavörum á næstunni.
„Þetta hefur allt áhrif því viðræð-
urnar ganga út á að geta hækkað
kaupmátt launa. Það eru ekki góð tíð-
indi að sjá matvöru, eldsneyti og allt
annað hækka í verði,“ segir Björn en
spurður hvort þessar hækkanir muni
breyta kröfugerð verkalýðsfélaganna
segir hann engar ákvarðanir liggja
fyrir um það. Verðlagsmál muni hins
vegar án efa koma til tals þegar rætt
verður um launalið samninganna.
Ragnar Árnason, forstöðumaður
vinnumarkaðssviðs Samtaka atvinnu-
lífsins, tekur undir með Birni að verð-
hækkanir geti haft áhrif á kjaravið-
ræður, enda geri verkalýðsfélögin
kröfu um að ná fram kaupmáttar-
aukningu við endurnýjun samninga.
Hins vegar sé ekki farið að reyna
mjög á viðræður um launaliðinn og
fleiri þættir en verðlag hafi einnig
áhrif á gerð kjarasamninga. Þessi
umræða komi upp í öllum samningum
og til að tryggja kaupmáttaraukningu
þurfi margt að breytast, svo svigrúm
skapist til að hækka laun.
Hækkanir inn í
kjaraviðræður
Formaður SGS segir verðhækkanir
klárlega hafa áhrif á kjaraviðræðurnar
Verðhækkanir komu skýrt fram í
nýjustu mælingu Hagstofunnar
á neysluvísitölunni í febrúar.
Verðlag hækkaði um 1,18% frá
janúarmánuði og 12 mánaða
verðbólga fór úr 1,8% í 1,9%.
Þriggja mánaða verðbólgan er
nú 2,4%. Hækkun varð á fatnaði
og skóm, húsbúnaði og hús-
gögnum, mat- og drykkjarvöru,
húsnæði, bensíni og flugfar-
gjöldum. Útlit er fyrir áfram-
haldandi verðhækkanir.
Allt hækkaði
Nauðsynjar Verðlag á uppleið á ný.
VÍSITÖLUMÆLINGIN