Morgunblaðið - 26.02.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2011
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga 10–18, laugardaga kl. 11–14 og sunnudaga kl. 13–16
Verðmatsdagur
listmunauppboð
Gallerí Fold • þar sem verkin seljast
Erum að taka á móti verkum
á næsta uppboð sem verður 7. mars
Af því tilefni bjóðum við þér uppá ókeypis verðmat
sunnudaginn 27. febrúar kl. 13–16.
Síðasta uppboð var það besta frá 2007. Um 85% verkanna seldust
og flest þeirra á góðu verði.
Eina ferðina enn er sú staða kominupp að allir vita að einn af
æðstu embættismönnum þjóðarinnar
fer með ósannindi en fáir vita hver
þeirra er hinn seki. Forseti Íslands
sagði á dögunum að ráðherra hefði
hótað að ríkisstjórnin færi frá neitaði
hann Icesave III. Einungis tveir, for-
menn stjórnarflokkanna, geta hótað
slíku.
Sigurður KáriKristjánsson
spurði Jóhönnu á Al-
þingi í fyrradag
hvort að hún hafi
hótað forsetanum.
Hún harðneitaði því.
Hún vildi ekkert nán-
ar um málið segja en
benti fyrirspyrjanda
á Bessastaði.
Morgunblaðiðhefur reynt að
afla upplýsinga um
málið þar en forseti
kýs, að svo stöddu að
minnsta kosti, að
gefa ekkert upp um
hver hótaði honum.
Um Steingrím J.er það að segja að hann mun
ekki hafa hitt forsetann um langa
hríð og sé það satt beinast grunsemd-
irnar annað.
Það kann að vera vísbending viðlausn þessarar gátu hver hefur
áður lent í því að deila um staðreyndir
við æðstu embættismenn. Aðkoma Jó-
hönnu að launamáli seðlabankastjóra
er í fersku minni.
Önnur vísbending gátunnar kannað vera hver það er sem sí og æ
hótar stjórnarslitum, þrátt fyrir að
sitja sjálf í stóli forsætisráðherra.
Það verður að viðurkenna að þessigáta er heldur einföld. Hún hent-
ar eiginlega bara yngstu börnunum.
Ólafur Ragnar
Grímsson
Einn segir ósatt
STAKSTEINAR
Jóhanna
Sigurðardóttir
Steingrímur
J. Sigfússon
Veður víða um heim 25.2., kl. 18.00
Reykjavík 1 snjóél
Bolungarvík 1 snjókoma
Akureyri 4 skýjað
Egilsstaðir 4 skýjað
Kirkjubæjarkl. 3 skýjað
Nuuk -10 snjóél
Þórshöfn 6 skýjað
Ósló -1 þoka
Kaupmannahöfn 0 heiðskírt
Stokkhólmur 0 skýjað
Helsinki -7 skýjað
Lúxemborg 6 skýjað
Brussel 8 súld
Dublin 12 skýjað
Glasgow 11 léttskýjað
London 13 skýjað
París 11 skýjað
Amsterdam 8 þoka
Hamborg 3 heiðskírt
Berlín 0 heiðskírt
Vín 0 léttskýjað
Moskva -13 heiðskírt
Algarve 20 heiðskírt
Madríd 20 heiðskírt
Barcelona 15 heiðskírt
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 8 heiðskírt
Aþena 7 skýjað
Winnipeg -27 léttskýjað
Montreal -3 snjókoma
New York 12 alskýjað
Chicago 0 alskýjað
Orlando 25 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
26. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:47 18:36
ÍSAFJÖRÐUR 8:58 18:34
SIGLUFJÖRÐUR 8:41 18:17
DJÚPIVOGUR 8:18 18:03
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Skipulagsráð Reykjavíkur hefur
samþykkt tillögu fulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins í ráðinu þar sem
lagt er til að skipulagsstjóri borg-
arinnar móti drög að stefnu hvað
varðar veitingarekstur utandyra
og leggi fyrir skipulagsráð.
Tillögurnar verði settar fram
með aðgengilegum hætti og verði
leiðbeiningareglur fyrir rekstr-
araðila veitingahúsa. Miðað verði
við að leiðbeiningareglurnar
verði tilbúnar á vefsvæði sviðsins
í aprílmánuði. Þá verði haft sam-
ráð við veitingamenn og aðra sem
málið varðar.
Í greinargerð með tillögunni,
sem Júlíus Vífill Ingvarsson, Gísli
Marteinn Baldursson og Jórunn
Frímannsdóttir fluttu, segir m.a.:
„Á undanförnum árum hefur
fjölgað þeim veitingastöðum sem
bjóða þjónustu sína utandyra.
Sem dæmi um það hversu stutt er
síðan þessi þróun hófst fyrir al-
vöru er að í Þróunaráætlun mið-
borgar, sem er frá árinu 2001, er
ekki fjallað um veitingarekstur á
gangstéttum og torgum borg-
arinnar. Þessi starfsemi setur þó
sterkan svip á yfirbragð og
ímynd miðborgarinnar í þá veru
að gera hana meira aðlaðandi og
líflegri.
Í þeim tilgangi að skapa skjól
fyrir viðskiptavini hafa víða í
miðborginni verið settir upp laus-
legir veggir af ýmsum toga. Sums
staðar má bæta aðstöðu fyrir
veitingaþjónustu utandyra og
dæmi eru um að húsgögn standist
ekki sjálfsagðar kröfur um gæði
og útlit.“
Einnig hefur skipulagsráð falið
skipulags- og byggingarsviði að
bregðast við í þeim tilvikum, þar
sem búnaður hefur verið settur
upp á útisvæðum veitingahúsa í
leyfisleysi.
Reglur settar um útiveitingar
Dæmi um að húsgögn standist ekki
sjálfsagðar kröfur um gæði og útlit
Morgunblaðið/Ómar
Austurvöllur Veitingastarfsemin hefur sett sterkan svip á yfirbragð og
ímynd miðborgarinnar á sumrin og gert hana meira aðlaðandi og líflegri.
Karl Ragnars lætur af starfi for-
stjóra Umferðarstofu frá og með
1. mars nk. fyrir aldurs sakir en
hann verður sjötugur 27. febrúar.
Við starfi hans tekur Dagný Jóns-
dóttir. Dagný er þrítug.
Hún verður við stjórnvölinn til
loka þessa árs en þá er fyr-
irhugað að starfsemi nýrrar
stofnunar, Farsýslunnar, taki við
verkefnum Umferðarstofu, að því
er segir í tilkynningu frá stofn-
uninni.
Nýr forstjóri tekur
við Umferðarstofu
Karl Ragnars Dagný Jónsdóttir