Morgunblaðið - 26.02.2011, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 26.02.2011, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN 29 BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2011 Núna, þegar Ísland er í kastljósi erlendis á ný vegna Icesave, finnst mér eðlilegt að utanríkisráðuneytið komi á framfæri t.d. enskri þýðingu á yfirlýsingu forsetans á heimasíð- um sendiráðanna. Varðandi Icesave segja heimasíð- ur sendiráðanna að Ísland muni „standa við alþjóðlegar skuldbind- ingar sínar“, þ.e.a.s. borga Icesave- kröfur Breta og Hollendinga. Ekki eitt einasta orð um ákvörðun forseta eða yfirlýsingu hans eða komandi þjóðaratkvæðagreiðslu! Ég nefni þetta vegna skrifa Svenska Dagbladets um ákvörðun forsetans og þess áhuga sem lýsir sér í athugasemdum lesenda blaðs- ins. Eflaust fara margir inn á vefsíðu íslenska sendiráðsins í Stokkhólmi, Kaupmannahöfn og London, en á heimasíðum íslenskra sendiráða grúfir myrkur eins og í draugahúsi um málið. Er ekki utanríkisráðuneytið ein af stofnunum íslenska lýðveldisins? Er ekki forsetinn einn af æðstu emb- ættismönnum íslenska lýðveldisins? Það ætti að vera sjálfsögð krafa að utanríkisráðuneytið birti upplýs- ingar um ákvörðun forseta á heima- síðum sendiráða Íslands og geri yf- irlýsingu hans sem finnst í enskri þýðingu aðgengilega fyrir niðurhal þeirra sem þess óska. Ekki á íslenska lýðveldið að þurfa að treysta bloggurum erlendis til að halda upp upplýsingastarfsemi, sem utanríkisráðuneytið fær borgað fyr- ir en gerir ekki? GÚSTAF ADOLF SKÚLASON, Svíþjóð, Utanríkisráðu- neytið vanrækir lýðveldisbundna upplýsinga- skyldu sína Frá Gústaf Adolf Skúlasyni Að missa atvinnuna er erfitt. Þær þús- undir Íslendinga sem orðið hafa fyrir því á síðustu tveimur til þremur árum vita að neikvæðar afleiðingar atvinnuleysis eru ekki eingöngu fjárhags- legar heldur einnig sálrænar og fé- lagslegar. Eitt af því versta sem hægt er að gera þegar fólk lendir í þeirri að- stöðu að missa vinnuna er að loka sig af félagslega, fólk getur orðið skugginn af sjálfu sér. Mörg dæmi eru um það. Þeir sem eru án vinnu þurfa þar af leiðandi markvisst að viðhalda félagslegri virkni. Til þess að sporna við andlegu niðurbroti einstaklinga sem misst hafa vinn- una var verkefnið Félagsvinir at- vinnuleitenda sett á laggirnar í lok árs 2009. Verkefninu er ætlað að virkja og styrkja atvinnuleitendur í starfsleit sinni, unnið er á ein- staklingsgrunni þar sem maður á mann aðferðin er notuð. Mark- miðin eru að vinna gegn niðurbroti, stækka tengslanet og auka mögu- leika til starfa. Lögð er áhersla á aukna félagslega virkni þátttak- enda og aðgengi þeirra að upplýs- ingum um úrræði sem eru í boði fyrir atvinnuleitendur. Virkni á meðan á atvinnuleit stendur eykur sjálfstraust og vellíðan sem gerir það að verkum að fólk er tilbúið að mæta til starfa þegar kallið kemur. Ókeypis námskeið Félagsvinir atvinnu- leitenda byggja á þriggja mánaða sam- bandi tveggja ein- staklinga þar sem annar leiðir sam- bandið (sjálfboðaliði) en hinn þiggur leið- sögn (atvinnuleitandi). Sá sem leið- ir sambandið fær sér að kostn- aðarlausu 28 stunda námskeið sem ætlað er að styrkja viðkomandi fyrir komandi félagsvinasamband. Markmið námskeiðsins er að þátt- takendur geri sér grein fyrir þeirri ábyrgð og skyldum sem fylgja því að vera félagsvinur. Þeir geti leið- beint öðrum atvinnuleitendum í starfsleit, hafi þekkingu á rétt- indum, skyldum og úrræðum sem eru í boði fyrir atvinnuleitendur. Einnig er lagt mikið upp úr því að þátttakendur auki sjálfstraust sitt og fái ferska sýn á eigin getu og hæfileika sem styrkir þá sjálfa í at- vinnuleitinni. Næsta námskeið fyr- ir sjálfboðaliða hefst 10. mars næstkomandi. Þeir atvinnuleit- endur sem óska eftir félagsvini fá tveggja stunda undirbúnings- námskeið áður en þeir eru tengdir við sjálfboðaliða þar sem farið er yfir hugmyndafræði verkefnisins, markmiðssetningar og gerð vinnu- áætlunar. Næstu námskeið fyrir atvinnuleitendur verða 28. febrúar, 9. mars og 15. mars, hægt er að skrá sig á námskeið á heimasíðu Rauða krossins www.raudikross- inn.is. Persónulegur árangur Verkefnið er krefjandi að því leyti að mikil áhersla er lögð á að fólk nái persónulegum árangri en einnig er lögð áhersla á að fólk upplifi og njóti þess sem tilveran hefur upp á að bjóða – þrátt fyrir bága efnahagslega stöðu og marga erfiða daga. Ávinningur atvinnu- leitenda er að hann fær stuðning til að koma hugmyndum sínum í framkvæmd, ræðir málin í trúnaði, fær ferska sýn á aðstæður sínar, eflir sjálfstraust sitt og sjálfsmynd, fær leiðbeiningar um þau úrræði sem í boði eru, getur komið auga á ný og spennandi tækifæri og eykur atvinnumöguleika sína. Þeir sem hafa áhuga á að vita meira um verkefnið eða einfaldlega ræða sín mál á opinskáan hátt í hópi ein- staklinga í sömu stöðu eru boðnir að koma í Rauðakrosshúsið í Borg- artúni 25 á milli 13 og 16 alla virka daga. Þar er alltaf heitt á könn- unni. Eftir Fjólu Einarsdóttur » Þúsundir manna eru án atvinnu, líðan þeirra á þessum óvissu- tímum er mikið áhyggjuefni. Félagsvin- um atvinnuleitenda er ætlað að styrkja þá. Fjóla Einarsdóttir Höfndur er verkefnisstjóri Félagsvina atvinnuleitenda. Gleymum ekki líðan atvinnuleitenda Glæsilegar íbúðir við Lækjarbrún í Hveragerði Íbúðirnar eru einstaklega vel staðsettar í faðmi náttúrunnar og íbúar þeirra hafa aðgang að margvíslegri þjónustu Heilsustofnunar Náttúru- lækningafélags Íslands. Kaupendur gerast sjálfkrafa aðilar að þjón- ustusamningi við HNLFÍ sem veitir aðgang að viðamikilli þjónustu Heilsustofnunarinnar gegn greiðslu mánaðarlegs grunngjalds. Kaupendur gerast aðilar að þjónustusamningi við HNLFÍ og greiða fyrir hann á mánuði sem hér segir, kr. 14.600 fyrir einstakling en kr. 21.600 fyrir hjón (bundið NVT des.'10). Innifalið í þjónustusamningnum er: · Öryggishnappur · Eftirlit næturvarðar · Brunaviðvörunarkerfi · Hirðing lóðar · Skipulagðar daglegar gönguferðir · Aðgangur að baðhúsi HNLFÍ · Aðgangur að tækjasal HNLFÍ · Aðgangur að bókasafni HNLFÍ · Aðgangur að innra starfi og fræðslu HNLFÍ Sérkjör íbúa húsanna að: · Matsal HNLFÍ · Heilsuböð/leirböð og partanudd · Viðtöl við íþróttafræðinga · Viðtöl við næringarráðgjafa Önnur þjónusta í boði: · Ræsting og þvottur · Heimsending máltíða · Snyrti- og hárgreiðslustofa · Heilsuvöruverslun Austurmörk 4, Hveragerði, www.byrfasteign.is sími 483 5800 Soffía Theodórsdóttir, löggiltur fasteignasali Skipholti 29a Sími 530 6500 www.heimili.is HÆÐARGARÐUR – OPIÐ HÚS SUN. KL. 15-16 Á morgun, sunnudag, er opið hús í Hæðargarði 29 – íbúð fyrir eldri borgara. Eignin er á efstu hæð í lyftuhúsi og er um 110 fm að stærð. Tvö svefnherbergi og stofur. Stórbrotið útsýni til suðurs, vesturs og norðurs. Íbúð getur verið laus strax. Mikil þjónusta í boði fyrir eldri borgara. Opið hús á morgun milli kl. 15 og 16, verið velkomin. Félagsheimilið Festi til sölu Víkurbraut 58 ehf auglýsir fasteignina Víkurbraut 58, Grindavík (Félagsheimilið Festi), til sölu í því ástandi sem fasteignin er. Markmiðið með sölu fasteignarinnar er að húsið nýtist á sem fjölbreytilegastan máta fyrir samfélagið í Grindavík. Gert er ráð fyrir að samkomusalur verði áfram til staðar. Áhugasamir kaupendur eru beðnir að skila inn hugmyndum og tilboðum til Róberts Ragnarssonar, bæjarstjóra, Víkurbraut 62, merkt Festi, í síðasta lagi fimmtudaginn 11. mars nk. kl. 12:00. Í kjölfarið mun stjórn Víkurbrautar 58 ehf. funda með hverjum tilboðsaðila fyrir sig þar sem þeir eru beðnir að leggja fram hugmyndir sínar um uppbyggingu Víkurbrautar 58 og hvernig fjármögnun framkvæmda verði háttað. Á grundvelli þeirra hugmynda og tilboðsverðs verður tekin ákvörðun um hvaða tilboði verður tekið. Jafnframt áskilur stjórn Víkurbrautar 58 ehf sér rétt til þess að hafna öllum tilboðum. Nánari upplýsingar gefur bæjarstjóri í síma 420 1100 eða á robert@grindavik.is Morgunblaðið birtir alla út- gáfudaga aðsendar umræðu- greinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni eða í bréfum til blaðsins. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Innsendikerfið Þeir sem þurfa að senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Formið má m.a. finna undir Morgunblaðs- hausnum efst t.h. á forsíðu mbl.is. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Ekki er lengur tekið við grein- um sem sendar eru í tölvupósti og greinar sem sendar eru á aðra miðla eru ekki birtar. Í fyrsta skipti sem formið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið, en næst þegar kerfið er notað er nóg að slá inn netfang og lykilorð og er þá not- andasvæðið virkt. Ekki er hægt að senda inn lengri grein en sem nemur þeirri hámarkslengd sem gefin er upp fyrir hvern efnisþátt en boðið er upp á birtingu lengri greina á vefnum. Nánari upplýsingar gefur starfsfólk greinadeildar. Móttaka aðsendra greina - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.