Morgunblaðið - 26.02.2011, Blaðsíða 25
200 km
1
3
2
200 km
4
3
2
1
4
Heimildir: Reuters, fréttir fjölmiðla
ÁTAKASVÆÐI
Miðjarðarhaf
L Í B Í A
E
G
Y
P
T
A
L
A
N
D
TSJAD
Tripolí
Menn Gaddafis
hófu gagnárásir
á bæi vestan við
borgina
BARIST UM YFIRRÁÐ
Misrata
Uppreisnarmenn náðu borginni á sitt
vald í fyrradag og liðsmenn
öryggissveita Gaddafis flúðu
Átök héldu áfram í bænum í gær og
fregnir líbískra fjölmiðla hermdu að
tugir manna lægju í valnum
Á valdi uppreisnarmanna og engir her-
eða lögreglumenn sáust í bænum
Zuara
Zawiyah
Al Kufrah
Mótmælendur náðu svæðinu á sitt vald
Á valdi andstæðinga GaddafisÁ valdi stjórnarinnar
L Í B Í A
Tripolí
Ras Lanuf
Darnah
Al-Bayda
Tobruk
Ajdabiya
TÚNIS
Miðjarðarhaf
Benghazi
Mótmælin
hófust hér
Sirte
Fæðingarbær
Gaddafis
Reuters
Sorg Líbíumenn biðja fyrir framan lík manna sem biðu bana í árásum
öryggissveita Gaddafis í Benghazi, næststærstu borg Líbíu.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Navi Pillay, mannréttindafulltrúi
Sameinuðu þjóðanna, fordæmdi í
gær árásir öryggissveita og málaliða
Muammars Gaddafis einræðisherra
í Líbíu og sagði að nýjustu fréttir frá
landinu bentu til þess að þúsundir
manna hefðu beðið bana eða særst
alvarlega í árásunum.
Pillay sagði að herferðin gegn frið-
samlegum mótmælum í Líbíu hefði
„magnast ógnvænlega“ og skírskot-
aði til nýrra frétta um fjöldamorð og
pyntingar á mótmælendum.
Embættismenn Matvælaáætlunar
Sameinuðu þjóðanna sögðu að hætta
væri á matvælaskorti í landinu
vegna þess að innflutningur hefði
stöðvast að mestu, auk þess sem
átök hindruðu dreifingu matvæla.
Líbíumenn eru að miklu leyti háðir
innfluttum matvælum.
Uppreisnarmenn hafa náð mest-
um hluta Líbíu á sitt vald en mikil
óvissa er um framvinduna og óttast
er að öryggissveitir Muammars
Gaddafis snúi vörn í sókn og haldi
manndrápunum áfram. Fregnir
hermdu í gær að öryggissveitir
hefðu gert gagnárásir á bæi vestan
við Tripolí eftir að uppreisnarmenn
náðu bæjunum á sitt vald í fyrradag.
Haft var eftir Tripolí-búa að íbúar
höfuðborgarinnar væru skelfingu
lostnir vegna manndrápa dauða-
sveita Gaddafis sem hafa skotið á
borgarbúa til að koma í veg fyrir
mótmæli. „Hér eru fjölskyldur sem
hafa ekki fengið að sækja lík þeirra
sem dóu … nema þær undirriti yfir-
lýsingu um að andstæðingar núver-
andi stjórnvalda hafi skotið þá.“
Vilja refsiaðgerðir
Fréttastofan AFP sagði að nokkr-
ir menn hefðu beðið bana í gær þeg-
ar dauðasveitir Gaddafis hefðu
hleypt af byssum á fólk til að hindra
mótmæli eftir föstudagsbænir í
moskum Tripolí.
Þótt eystri helmingur landsins sé
nú á valdi uppreisnarmanna óttast
þeir að varnir þeirra séu of veikar og
öryggissveitir Gaddafis geti náð
byggðunum á sitt vald að nýju.
Barack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, ræddi í gær við leiðtoga Bret-
lands, Frakklands og Ítalíu um
hvernig bregðast ætti við blóðsút-
hellingunum í Líbíu. Stjórnvöld í
Bretlandi og Frakklandi skoruðu á
öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að
samþykkja refsiaðgerðir gegn stjórn
Gaddafis, svo sem ferðabann og
frystingu eigna. Bretar og Frakkar
beita sér einnig fyrir því að Gaddafi
og helstu samstarfsmenn hans verði
dregnir fyrir Alþjóðasakamáladóm-
stólinn sem dæmir í málum manna
sem sakaðir eru um alvarlega glæpi
gegn mannkyninu, svo sem hópmorð
og stríðsglæpi.
Bandarískir embættismenn sögð-
ust ekki útiloka nein úrræði til að
binda enda á blóðsúthellingarnar.
Talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins lagði þó áherslu á að
ekki mætti stefna lífi útlendinga í
Líbíu í hættu og skírskotaði til þess
að hugsanlegt er að stuðningsmenn
Gaddafis svari refsiaðgerðum með
því að ráðast á útlendinga sem hafa
ekki getað forðað sér frá Líbíu.
Stjórnvöld á Vestur-
löndum hafa sætt gagn-
rýni fyrir hversu seint
hefur gengið að flytja
tugi þúsunda útlendinga
frá Líbíu. Her Ítalíu bjó
sig í gær undir að bjarga
Ítölum, sem urðu inn-
lyksa á olíusvæði í
suðaustanverðri Líbíu.
Anders Fogh Rasmussen,
framkvæmdastjóri Atlants-
hafsbandalagsins, ræddi mál-
ið við ráðherra ríkja Evrópu-
sambandsins og bauð aðstoð
bandalagsins við flutningana.
Óttast að þúsundir liggi í valnum
Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna fordæmir fjöldamorð í Líbíu Dauðasveitir Gaddafis
skutu á fólk fyrir utan moskur í höfuðborginni til að koma í veg fyrir mótmæli eftir föstudagsbænir
Vísindamenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að leir-
gos í stærsta leireldfjalli heims haldi líklega áfram í 26
ár til viðbótar, að sögn fréttavefjar breska ríkis-
útvarpsins, BBC. Um 50.000 manns hafa misst heimili
sitt vegna leirgossins sem hófst á Austur-Jövu í Indó-
nesíu í maí 2006.
Þegar gosið náði hámarki spjó það 180.000 rúmmetr-
um af leir á degi hverjum, eða sem samsvarar 50 sund-
laugum sem eru gjaldgengar á ólympíuleikum. Leirinn
hefur flætt yfir íbúðarhús, skóla og ræktarland á sjö
ferkílómetra svæði.
BBC hefur eftir einum vísindamannanna, Richard
Davies, jarðfræðingi við Durham-háskóla, að þetta sé í
fyrsta skipti sem hægt hafi verið að meta hversu lengi
leirgosið geti staðið. Matið er meðal annars byggt á
niðurstöðum fjögurra ára rannsóknar á því hversu
mikill aur streymir úr eldfjallinu.
Rakið til borunar
Vísindamenn hafa lengi deilt um orsök leirgossins,
hvort það hafi hafist vegna borholu á svæðinu eða
vegna jarðskjálfta, sem mældist 6,3 stig á Richters-
kvarða og varð nokkrum dögum áður en gosið hófst.
Báðar tilgáturnar voru ræddar á ráðstefnu jarðvís-
indamanna í Suður-Afríku árið 2008. Meirihluti vís-
indamannanna á ráðstefnunni, eða 42 af 74, taldi að
rekja mætti leirgosið til borholunnar fremur en jarð-
skjálftans. „Komið hafa fram margar vísbendingar sem
sýna að borun olli gosinu,“ sagði Davies.
Fyrirtæki sem boraði eftir olíu á svæðinu samþykkti
árið 2008 að greiða 13.000 fjölskyldum, sem misstu
heimili sitt, skaðabætur. Fyrirtækið viðurkenndi þó
ekki að borunin væri eina orsök leirgossins.
Davies sagði að gosið væri rakið til vatns í svo-
nefndum veiti, jarðlagi sem vatn rennur tiltölulega
greitt um og er 2,5-3,5 kílómetra undir yfirborði fjalls-
ins. Vatnið færi upp um borholuna og í gegnum aurlag
áður en það gysi upp á yfirborðið í gegnum gosop.
Skýrt er frá niðurstöðum rannsóknarinnar í tímarit-
inu Journal of the Geological Society. bogi@mbl.is
Telja líklegt að leirgosið
standi í 26 ár til viðbótar
Borhola olli gosi sem hefur valdið mikilli eyðileggingu
Á kafi Aur hefur streymt upp úr gíg eldstöðvar við bæ-
inn Sidoarjo í Indónesíu og fært í kaf nálæg þorp.
Reuters
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2011
Mannréttinda-
samtökin Am-
nesty Inter-
national saka
Sameinuðu þjóð-
irnar og Afríku-
sambandið um að
bregðast íbúum
Líbíu. Samtökin
gagnrýna viðbrögð
öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna og hvetja það
til að grípa til afdráttar-
lausra aðgerða. Afríku-
sambandið er einnig gagn-
rýnt fyrir að hafa ekki kallað
saman friðar- og öryggisráð sitt til
að ræða fjöldamorðin og mann-
réttindabrotin í Líbíu.
Mannréttindaráð SÞ samþykkti í
gær að hefja rannsókn á mann-
réttindabrotunum og lagði til að
allsherjarþing SÞ vísaði Líbíu úr
ráðinu. Líbía var kosin í Mannrétt-
indaráðið í maí á liðnu ári með 155
atkvæðum af 192 á allsherjarþingi
SÞ. Kosið er í ráðið til þriggja ára í
senn og ríkjum, sem eiga sæti í
ráðinu, ber að uppfylla „ýtrustu
kröfur“ um verndun mannréttinda.
Segja SÞ bregðast íbúunum
LÍBÍU VÍSAÐ ÚR MANNRÉTTINDARÁÐI SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA?
Stjórnarand-
stæðingur á bæn
í Benghazi.
Happdrætti
húsnæðisfélagsins SEM
útdráttur 24. febrúar 2011
Ferðavinningur frá Heimsferðum, verðmæti 200.000 kr.
Vinninga ber að vitja innan árs. Upplýsingasími 588 7470 og á heimasíðu SEM.is
Þökkum ómetanlegan stuðning. Birt án ábyrgðar.
Ferðavinningar frá Heimsferðum, verðmæti 100.000 kr.
2851
3471
12404
12965
13087
13446
14131
19751
21058
23689
26587
31421
33008
34838
36979
37299
38209
41660
42383
47695
49688
54601
55174
55204
55628
58701
64798
69328
71079
71307
71327
71921
78472
79435
81140
83479
85352
90232
91283
91707
91728
96863
99011
102760
107051
108169
109683
109716
114807
115783
118362
118708
120430
123679
124762
125109
128078
129489
130250
132010
25
613
689
1444
2624
4188
4242
6073
7006
7109
7221
8478
9745
10616
10821
11236
11370
12427
14930
15202
15249
15357
15891
16610
17133
17260
18197
18485
19475
19630
20324
20427
20754
21623
22213
23016
23265
25091
25140
25412
25543
25681
25989
27251
27914
28016
29236
29518
30130
30360
30850
31595
32574
33227
33665
34181
35895
35925
36595
36602
36924
37263
37294
38345
38778
38925
40247
40577
40595
40761
40792
40899
41707
42103
42408
42467
42613
43757
43788
44136
44388
45993
46066
46242
46534
46656
48070
48086
48332
50455
50802
51041
51246
51677
52094
53487
54398
54917
56278
58458
59110
59282
61588
63386
63771
65545
67463
68600
68880
70702
70995
71174
71373
72807
74094
74133
74735
74735
74799
76211
77009
78128
78288
78820
79098
79347
80183
80859
81393
83520
84302
84681
84851
85436
85526
85840
86281
86349
87077
87504
87505
87618
88326
88398
88435
88546
88551
89062
89507
89742
89857
90299
91428
92231
93263
95290
95326
97316
98613
100661
100798
100808
101033
101399
101520
102982
103323
103337
103692
104471
104990
106925
106936
107160
107430
107481
107775
107844
108518
108738
110311
113838
114747
115494
115584
116482
116512
117322
117370
117581
118005
118285
119463
120395
120605
122023
122569
123379
123400
124066
124865
124924
125142
125961
126439
127100
127733
127951
128181
129379
129666
129882
129918
131737