Morgunblaðið - 26.02.2011, Síða 10
Á matseðli veitingastaðarins Icecreamists í Covent Garden í London má finna
ís sem gerður er úr brjóstamjólk. Tegundin kallast Baby Gaga og kostar skál
af þessum sérstaka ís 14 pund, eða rúmlega 2.600 íslenskar krónur. Brjósta-
mjólkina kaupir veitingastaðurinn frá nýbökuðum mæðrum sem hafa allar
gengist undir læknisrannsókn. Matt O’Connor, stofnandi veitingastaðarins,
segir Baby Gaga-ísinn rjómakenndan og ljúffengan. „Enginn hefur gert neitt
spennandi með ís á síðustu hundrað árum.“ O’Connor segir marga gretta sig
einungis við tilhugsunina um að borða ís úr brjóstamjólk, en sé mjólkin góð
fyrir smábörn þá sé hún vissulega nægilega góð fyrir fullorðna fólkið. „Ísinn
er hreinn, lífrænn og algjörlega náttúrulegur. Ég fékk mér Baby Gaga í morg-
un og mér leið vel.“
Heimurinn
Brjóstamjólkurís á boðstólum
Rjómaís
Nú má fá
slíkan úr
brjósta-
mjólk í
London.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2011
Sp
ör
eh
f.
s: 570 2790www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Hálftfæðiogallarskoðunarferðirinnifaldar
Í þessari töfrandi ferð um eitt mikilvægasta hérað Ítalíu, Emilia - Romagna,
kynnumst við fjölbreyttri menningu og stórbrotnum listum landsins. Ferðin hefst á
flugi til Mílanó og þaðan verður ekið til Rimini þar sem við gistum í 5 nætur. Farið
verður í skemmtilegar skoðunarferðir, t.d. til virkisbæjarins Gradara, þar sem er
heillegur miðaldamúr og einn sá best varðveitti kastali á Ítalíu. Förum til gömlu
hertogaborgarinnar Urbino og einnig til San Marino, smáríkis innan Ítalíu, minnstu
borgar í Evrópu og elsta lýðveldis í heimi. Eftir góða daga verður ekið til Parma,
þar sem gist verður í 2 nætur. Söngkonan Halla Margrét tekur á móti okkur og
leiðir okkur um borgina. Farið verður í Parmigiano ostagerð, til Le Roncola,
fæðingarbæjar Giuseppe Verdi og til Busseto, þar sem hann dvaldi síðustu árin
sín. Kíkjum á kaffihús Höllu Margrétar og höldum þjóðhátíðardaginn hátíðlegan á
Parma Rotta veitingastaðnum, en sá er á lista yfir bestu veitingastaði borgarinnar.
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir
Verð: 181.600 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, allar skoðunarferðir með rútu, hálft
fæði, kvöldskemmtun með Höllu Margréti og íslensk fararstjórn.
Sumarnótt við hafið
11. - 18. júní
SUMAR 2
Morgunblaðið/Sigurgeir S
Hókus Pókus Blaðamaður með pappírsvöndinn sem hann töfraði fram eftir leiðbeiningar Ingós.
PRUFUTÍMINN
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Það er ekki laust við að þaðfylgi eitthvað dularfulltIngó Geirdal töframanniþegar hann kemur í heim-
sókn til mín í vinnuna í þeim tilgangi
að kenna mér eitt töfrabragð. Ingó
hefur töframannslegt yfirbragð og
býr yfir miklum leyndardómum sem
hann deilir ekki með öllum. Hann
ætlar þó að kenna mér eitt lítið
bragð, það fyrsta sem hann lærði,
þegar hann var tíu ára, og ég var
eins spennt og tíu ára barn fyrir
kennslunni því hvað er flottara en að
geta slegið um sig með töfrabragði.
Í bragðið þurfti tvær opnur úr
Morgunblaðinu, þær voru klipptar
þvert í sundur og notaðar þrjár ark-
ir. Fyrst er ein örkin tekin og rúllað
upp í hólk, þá kemur sú næsta og er
annar endinn á henni settur inn í
fyrsta hólkinn og rúllað áfram og
sama gert með þá þriðju. Þá er hólk-
inum aðeins þjappað saman og rifinn
í sundur niður að miðju og svo aftur
á hinn veginn, þannig að hann líti út
eins og banani sem er búið að opna.
Svo er tekið í blaðið sem liggur efst
og það dregið upp og þá vex tré eða
vöndur. Mjög einfalt og skemmtilegt
bragð fyrir krakka og mig að gera.
Beyglar hnífapör
Ingó segir að hann hafi byrjað
að sýna þetta bragð á jólaskemmt-
unum. „Ég var tíu ára þegar ég byrj-
aði að læra töfrabrögð og er búinn
að vera að þessu í um þrjátíu ár.
Þetta bragð tekur smá æfingu en
ekkert miðað við hvað tekur að gera
töfrabrögð eins og ég er að gera
núna, ég er kannski búinn að eyða
fimm til sex árum í að fullvinna eitt
atriði sem tekur tvær mínútur í sýn-
ingu,“ segir Ingó. Hann kennir mér
ekki fleiri brögð en sýnir mér nokk-
ur fyrir lengra komna. Ingó mætti
ekki með stóra svarta töfra-
mannatösku á staðinn eins og ég
bjóst við heldur lítinn innkaupapoka
utan um töfradótið sitt sem voru nú
bara venjulegir hlutir sem hann
gerði óvenjulega hluti við.
Hann segist ekki notast við nein
sérstök töfratæki. „Það er hægt að
kaupa einhver töfratól sem gera
galdurinn fyrir mann en það er ekk-
ert gaman að því, ef maður leggur
stund á þetta vill maður gera brögð
Hókus pókus
fyrir byrjendur
Hvern langar ekki til að kunna að draga kanínur upp úr hatti, að láta fólk hverfa
eða beygla hnífapör með hugaraflinu einu saman? Ingó Geirdal töframaður hefur
fengist við töfrabrögð í þrjátíu ár og býr yfir miklum leyndardómum. Hann fékkst
til að kenna blaðamanni eitt saklaust bragð sem á eftir að koma sér vel í partíum.
Með frægum Ingó Geirdal með
Alice Cooper en hann skemmti hon-
um baksviðs á tónleikum 2005. Ingó
skemmti einnig Depeche Mode bak-
sviðs á tónleikum í Svíþjóð í fyrra.
Fyrir þá sem hafa gaman af nýyrða-
smíði gæti vefsíðan Urbandiction-
ary.com verið skemmtileg. Hún er
reyndar á enskri tungu en það sakar
ekki að hafa ensk nýyrði á taktein-
unum. Síðan var sett á laggirnar árið
1999 og síðan þá hafa verið sett þar
inn 5.624.289 nýyrði eða orð með
nýrri merkingu. Það eru notendur
síðunnar sem setja þau inn og virðast
vera duglegir við það.
Margt þarna er mjög sniðugt en
annað minna sniðugt. Hægt er að
gefa nýyrðunum þumalputta upp eða
þumalputta niður eftir því hversu
sniðug manni finnst þau. Þarna má til
dæmis sjá eitt nýyrði frá 21. febrúar
sem fær um 5500 þumalputta niður
en aðeins um 1500 upp, svo fólk hef-
ur verið lítið hrifið af því. Flest orðin
fá þó meira af upp en niður.
Á forsíðu síðunnar má sjá nýjustu
orðin og fylgja þeim útskýringar eins
og í orðabók og dæmi um hvernig má
nota þau í setningu. Auðvelt er að
leita að orðum á síðunni, þeim er rað-
að eftir stafrófsröð eða það er hægt
að fá tilviljunarkennd orð upp.
Í gær var orð dagsins Laborhood
sem er öðruvísi en Neighborhood, La-
borhood er hverfið sem þú vinnur í,
Neighborhood þar sem þú býrð.
Vefsíðan www.urbandictionary.com
Reuters
Í vinnunni Það má finna nýja merkingu fyrir flest orð.
Orð með nýrri merkingu
Eyþór Ingi leikur óskalög á orgel
Langholtskirkju annað kvöld, sunnu-
dagskvöld, kl. 20.
Fyrir nokkrum árum fékk Eyþór
Ingi þá snjöllu hugmynd að halda
óskalagatónleika. Tónleikar þessi
hafa vakið mikla athygli og verið
mjög vel sóttir. Eyþór auglýsir eftir
óskalögum til að spila á tónleikunum
á orgel og má senda óskalagabeiðnir
á netfangið eythor@akirkja.is.
Dæmi um lög sem hafa verið flutt
eru: Stairway to heaven, Theme from
Star Wars, Bohemian Rhapsody, Ský-
ið, Take five og sálmaspuni.
Miðasala er við innganginn.
Endilega …
… fáið óskalag
spilað á orgel
Queen Hægt er að fá lagið Bohemian
Rhapsody með Queen leikið á orgel.