Morgunblaðið - 26.02.2011, Síða 14
ÚR BÆJARLÍFINU
Albert Eymundsson
Hornafjörður
Vetrarvertíð hefur verið rysjótt
vegna gæftaleysis. Neta- og línubát-
ar hafa þó fengið ágætisafla þegar
gefið hefur á sjó. Loðnuskipin Ás-
grímur Halldórsson og Jóna Eð-
valds eru langt komin með kvóta
sinn og er aflinn frystur og verkaður
til manneldis að stærstum hluta.
Ný lifrarniðursuðuverksmiðja tók
til starfa á Höfn í janúar. Um er að
ræða samstarfsverkefni Skinneyjar-
Þinganess og pólsks fyrirtækis sem
hefur þekkingu og reynslu á þessu
sviði. Gert er ráð fyrir að verk-
smiðjan skapi 5-10 manns vinnu.
Þorrablót eru haldin í annarri
hverri sveit og alltaf vel sótt. Ekki
skortir listafólk með leynda hæfi-
leika til að skemmta sem gerir sam-
komurnar eftirminnilegar og frum-
legar.
Góugleði í Öræfunum tekur við
af þorrablótunum og þykir jafn-
ómissandi og blótin. Góugleðin verð-
ur næstkomandi helgi í Hofgarði og
mun Níels Árni Lund stjórna sam-
komunni á sinn einstaka hátt.
Árleg blúsveisla verður sömu
helgi um „allan bæ“ á Höfn. Nýstár-
leg og áhugaverð uppákoma verður
á Fosshóteli Vatnajökli þar sem
framreiðslufólk, hönnuðir og lista-
menn tengja saman matarmenn-
ingu, hönnun, sýningu og tónlist.
Allt heimatilbúið úr héraði og eng-
inn þarf að láta sér leiðast þessa
daga.
Menningarverðlaun Horna-
fjarðar voru afhent í vikunni. Að
þessu sinni urðu tveir einstaklingar
fyrir valinu. Annar er Ragnar Ara-
son sem hefur á undanförnum árum
helgað tíma sinn gerð nytja- og
skrautmuna úr tré. Ragnar var val-
inn handverksmaður ársins á hand-
verkssýningunni á Hrafnagili. Hinn
er Þorsteinn Sigurbergsson sem
setti upp ljósalistaverk á vatnstank
bæjarins. Ljósasýningin hefur glatt
bæjarbúa og vakið athygli gesta.
Íbúaþing er haldið í dag, laug-
ardag. Mjög góð mæting er á þingið
þar sem íbúar fá tækifæri til að viðra
skoðanir sínar og móta framtíðarsýn
samfélagsins. Haukur Ingi Jónasson
frá Háskóla Íslands er verkefna-
stjóri þingsins en hann kom að
skipulagningu og framkvæmd Þjóð-
fundarins í Laugardalshöll. Afrakst-
urinn verður m.a. notaður við að-
alskipulagsvinnu sveitarfélagsins.
5-10 ný störf munu skapast
Ljósmynd/ Björn Arnarson
Afhending Þorsteinn Sigurbergsson og Magnhildur Gísladóttir tóku við
menningarverðlaunum Hornafjarðar fyrir hönd Ragnars Arasonar.
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2011
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
45
42
3
Sértilboð 8. og 15. mars
frá 109.900
Tenerife
Heimsferðir bjóða einstök tilboð til Tenerife þann
8. og 15. mars í viku. Veðurfarið er einstaklega
milt og notalegt sem og allt umhverfið.
Frá kr. 109.900
Vime Callao Garden *** með „allt innifalið“
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna í íbúð með einu
svefnherbergi í viku. Sértilboð 8. og 15. mars.
Frá kr. 119.900
Parque Santiago ****
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna í studioíbúð í
viku. Sértilboð 15. mars.
Frá kr. 129.900
Isla Bonita **** með „allt innifalið“
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna í herbergi í viku.
Sértilboð 8. mars.
Grindavíkurbær og aðrir eigendur
félagsheimilisins Festi í Grindavík
hafa auglýst fasteignina til sölu.
Vilji er til að nýta húsið á sem fjöl-
breytilegastan hátt fyrir sam-
félagið.
Húsið er illa farið og þarf að
byggja það upp. Gert er ráð fyrir
því að samkomusalur verði áfram í
húsinu. Stjórn eigendafélagsins
mun meta tilboð út frá verði, fjár-
mögnun og hugmyndum um upp-
byggingu.
Félagsheimili til sölu
Icelandair var valið fyrirtæki árs-
ins hjá Félagi viðskiptafræðinga og
hagfræðinga (FVH) og Birkir Hólm
Guðnason, framkvæmdastjóri Ice-
landair, var valinn viðskiptafræð-
ingur ársins. Verðlaunin voru af-
hent í fyrradag á „Íslenska
þekkingardeginum,“ ráðstefnu sem
sem Félag viðskiptafræðinga og
hagfræðinga stóð fyrir á Hótel Nor-
dica. Auk Icelandair voru fyr-
irtækin Rio Tinto Alcan á Íslandi og
Samherji tilnefnd til þekking-
arverðlaunanna. Forseti Íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti
verðlaunin en hann er verndari
þekkingardags FVH.
Í niðurstöðum dómnefndar segir
að þær hagræðingaraðgerðir sem
Icelandair hafi ráðist í hafi skilað
mjög góðum árangri. Í fyrra var
einingarkostnaður Icelandair sá
þriðji lægsti í Evrópu og félagið eitt
að 10 best reknu flugfélögum Evr-
ópu. Segja megi að Icelandair hafi
náð góðum árangri í umhverfi sem
einkennist að gríðarlegri sam-
keppni og erfiðum ytri skilyrðum.
Ljósmynd/Tomasz Þór Veruson
Afhending Birkir Hólm Guðnason, forstjórir Icelandair, tekur við verðlaununum úr hendi
Ólafs Ragnars Grímssonar. Birkir Hólm var einnig valinn Viðskiptafræðingur ársins.
Birkir Hólm Guðnason og Icelandair hljóta
Íslensku þekkingarverðlaunin
Í dag, laugardag, kl. 15 verður ár-
leg sýning Blaðaljósmyndarafélags
Íslands „Myndir ársins“ opnuð í
Gerðasafni í Kópavogi. Á sýning-
unni verður að finna bestu blaða-
og tímaritsljósmyndir og mynd-
skeið ársins 2010. Veitt eru verð-
laun fyrir bestu ljósmyndir ársins í
átta flokkum og tvenn verðlaun fyr-
ir myndskeið ársins. Flokkarnir í ár
eru fréttamynd ársins, íþróttamynd
ársins, portrettmynd ársins, tíma-
ritamynd ársins, umhverfismynd
ársins, mynd ársins úr daglegu lífi
og myndaröð ársins. Dómnefnd
ljósmynda var skipuð fimm ein-
staklingum og höfðu þeir úr um
1.300 myndum að velja frá 34 ljós-
myndurum. Dómnefndin valdi svo
171 mynd á sýninguna í ár.
Við sama tækifæri verða tilkynnt
blaðamannaverðlaun ársins 2010,
en þau eru veitt í þremur flokkum.
Þá verður opnuð á jarðhæð safnsins
sýning Þorkels Þorkelssonar ljós-
myndara sem nefnist Burma: Líf í
fjötrum. Sýningarnar verða opnar
til 10. apríl.
Sýningar Ljósmyndir hengdar upp.
Sýningar opnaðar
og verðlaun veitt
Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur sent frá sér ályktun
þar sem hörmuð er sú forgangsröðun sem birtist í
ákvörðun ríkisstjórnarinnar um niðurskurð hjá heil-
brigðisstofnunum. Sú áætlun að fækka um sex starfs-
menn hjá Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja á næstu
mánuðum sé fráleit og komi með að skaða starfsemi
þessarar mikilvægu stofnunar.
„Niðurskurður Heilbrigðisstofnunnar um 100 millj-
ónir á þremur árum er í engum takti við rekstrarlega
þarfir stofnunarinnar. Það er fráleitt að verja allt að tvö
þúsund milljónum í „að kíkja í pakkann hjá ESB“ á með-
an aldraðir fá ekki þjónustu vegna niðurskurðar. Það stenst enga skoðun
að verja 500 milljónum í stjórnlagaþing á meðan að veikt fólk þarf frá að
hverfa. Bæjarstjórn hvetur ríkisstjórn Íslands til að endurskoða forgangs-
röðun sína með hagsmuni aldraða, sjúkra og annarra í huga,“ segir í álykt-
uninni.
Ríkisstjórnin endurskoði niðurskurð
Í tilefni þess að hálft ár er liðið
frá opnun menningarhússins
Hofs á Akureyri verður opið hús
sunnudaginn 27. febrúar frá kl.
13-15. Notendur hússins verða á
staðnum og kynna starfsemi sína.
Mikið verður um að vera í hús-
inu þennan dag, svo sem kvik-
mynda- og listsýningar, tónlist-
arflutningur og trúðurinn
Guðfinna kemur í heimsókn. Þá
verður útvarpsþátturinn Gestir
út um allt í umsjón Margrétar
Blöndal og Felix Bergssonar í
beinni útsendingu frá Hamra-
borg.
Akureyrarstofa býður í kaffi
og óvæntan glaðning á 2. hæð.
Allir velkomnir og aðgangs-
eyrir er enginn.
Opið hús í Hofi
STUTT