Morgunblaðið - 26.02.2011, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 26.02.2011, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2011 ● Seðlabanki Rússlands tilkynnti í gær að stýrivextir yrðu hækkaðir um 0,25 prósentur og yrðu þá 8%. Er þetta fyrsta vaxtahækkun bankans frá því í desember 2008. Stjórn bankans segir í yfirlýsingu, að vaxtahækkunin hafi verið ákveðin vegna þess að vísbendingar séu um að verð- bólga í landinu sé vaxandi. Sé jafnframt verið að skapa skilyrði fyrir innflæði fjármagns í landið á sama tíma og olíu- verð á heimsmarkaði fer hækkandi. Seðlabanki Rússlands hækkar vexti um 0,25% Morgunblaðið/Einar Falur Moskva Rússar hækka stýrivexti vegna verðbólguhorfa. Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Óraunhæft er að stefna að því að byggja upp innstæðutryggingasjóð, sem getur mætt stóru kerfisáfalli á íslenskum fjármálamarkaði. Kemur þetta fram í minnisblaði efnahags- og viðskiptaráðuneytis vegna frumvarps um ný lög um innstæðutryggingar. Segir í minnisblaðinu að heildarinnstæður í íslenskum bönkum séu um 1.500 milljarðar króna og þar af séu um 400-600 milljarðar tryggðir, samkvæmt frumvarpinu. Til að mæta algeru hruni á íslenska bankakerfinu þyrfti sjóðurinn því að vera í kringum 500 milljarða króna stór, en slík stærð væri afar kostnaðarsöm. Af lestri minnisblaðsins má draga þá álykt- un að ráðuneytið telji að innstæðutrygginga- sjóður geti í raun ekki tryggt innstæðueigend- ur fyrir falli eins af stóru bönkunum þremur án þess að ríkið hlaupi undir bagga með hon- um. Í frumvarpinu segir hins vegar að ríkið beri enga ábyrgð á skuldbindingum sjóðsins. Ráðuneytið telur að líkur á falli eins af stóru bönkunum séu afar litlar. „Gerist slíkt engu að síður yrði að mæta því með inn- gripum af hálfu ríkisins enda væri efnahags- legt öryggi ríkisins þá í hættu.“ Ráðuneytið telur raunhæfara að ætla inn- stæðutryggingakerfinu að mæta áfalli þegar innlánsstofnun, sem er ekki kerfislega mik- ilvæg, lendir í greiðsluþroti. Ætti það þá við um sparisjóði og smærri banka. Hærri trygging og hærri iðgjöld Frumvarpið felur í sér að innstæður eru tryggðar af tryggingasjóðnum en fjárhæðin er takmörkuð við um 100.000 evrur, andvirði um 16 milljóna króna. Í fyrri lögum takmarkaðist ábyrgð sjóðsins við tæpar 20.900 evrur. Þá fjölgar undantekningum, þannig að innstæður sveitarfélaga, ríkissjóðs og opinberra stofnana og fyrirtækja eru undanskilin tryggingunni, svo dæmi séu tekin. Önnur stór breyting frá gildandi lögum er að iðgjald bankastofnana í tryggingasjóðinn hækkar til mikilla muna. Nú greiða bankar á hverju ári 0,15 prósent af tryggðum innlánum fyrra árs í sjóðinn, en í frumvarpinu er þetta hlutfall hækkað í 1,0 prósent. Ofan á það bæt- ist áhættuhlutfall, sem metið er af Fjármálaeftirlitinu og þá þurfa bankar, sem eru með meira en 10 prósent af heildarinn- lánum í landinu, að greiða aukalega í sjóðinn. Metur efnahags- og viðskiptaráðuneytið það sem svo að iðgjöld muni nema um sjö millj- örðum á ári og að sjóðurinn muni ná lögbund- inni lágmarksstærð árið 2020. Er markmiðið að eignir sjóðsins nemi alls um 4 prósentum af heildarinnlánum í landinu. Telur ráðuneytið reyndar að óþarfi sé að hafa iðgjöldin eins há og frumvarpið gerir ráð fyrir og mælir með því að það verði lækkað úr 1,0 prósenti á ári í 0,3 prósent. Ríkið verði að hlaupa undir bagga Frumvarp 4-600 milljarðar eru tryggðir samkvæmt frumvarpi um innstæðutryggingar.  Efnahags- og viðskiptaráðuneyti telur óraunhæft að Tryggingasjóður innstæðueigenda geti tryggt að fullu allar innstæður  Færi stór banki á hausinn þyrfti ríkið að bregðast við með einhverjum hætti Tryggingasjóður » Heildarinnlán í íslenskum innláns- stofnunum nema nú um 1.500 millj- örðum króna. » Innlán, sem undanskilin eru trygg- ingavernd, nema að mati efnahags- og viðskiptaráðuneytis um 200-300 millj- örðum króna. » Heildarfjárhæð tryggðra innstæðna á Íslandi nemur um 400-500 milljörðum króna. » Miðað er við að sjóðurinn innihaldi um 4 prósent tryggðra innlána, sem myndi nema um 50 milljörðum króna. ● Bandaríska viðskiptaráðuneytið hef- ur fært niður hagvaxtartölur fyrir síð- asta fjórðung. Hagvöxtur í lok síðasta árs nam samkvæmt mælingu yfirvalda 2,8% en ekki 3,2% eins og bráða- birgðaniðurstöður sýndu. Er þetta þvert á væntingar sérfræðinga sem höfðu talið að endurmat hagvaxtar á tímabilinu myndi leiða í ljós að hann hefði verið 3,3%. Að sögn við- skiptaráðuneytisins var hagvöxtur í Bandaríkjunum í fyrra minni en í fyrstu var talið eða 2,8% en ekki 2,9%. Bandaríkin Minni hagvöxtur. Hagvaxtartölur í Bandaríkjunum færðar niður ● Alls voru 1.625 fiskiskip á skrá hjá Siglingastofnun árið 2010 og hafði þeim fjölgað um 43 frá árinu áður. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni voru tog- arar alls 57 og fækkaði um einn frá árinu á undan. Heildarstærð togaraflotans var 65.087 brúttótonn og hafði hann minnkað um 2.783 brúttótonn frá 2009. Opnir fiskibátar voru 807 talsins og 3.857 brúttótonn að stærð. Þeim fjölgaði um 51 milli ára og heildarstærð þeirra jókst um 242 brúttótonn. Fjöldi vélskipa var alls 761 og samanlögð stærð þeirra 83.457 brúttótonn. Vél- skipum fækkaði um 7 skip á milli ára og flotinn minnkaði um 3.312 brúttótonn, að því er fram kemur á vef Hagstofunnar. Fiskiskipum fjölgar milli ára ● 140 ný einkahlutafélög voru skráð í janúar, samanborið við 157 einka- hlutafélög í janúar 2010, sem jafn- gildir tæplega 11% fækkun milli ára. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Flest ný einkahlutafélög voru skráð í flokkunum heild- og smásöluverslun og viðgerðir á vélknúnum ökutækj- um. Í janúar voru 95 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 103 fyrirtæki í janúar 2010, sem jafngildir tæplega 8% fækkun milli ára. Flest gjaldþrot voru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands. Nýjum félögum fækkar Samdráttur breska hagkerf- isins á síðasta ársfjórðungi var meiri en fyrstu mælingar gáfu til kynna. Sam- kvæmt end- urmati breskra yfirvalda nam samdrátturinn 0,6% en ekki 0,5% eins og fyrstu mælingar bentu til. Er þetta mesti samdráttur á einum ársfjórð- ungi frá því á öðrum ársfjórðungi árið 2009. Þó svo að slæmu tíðarfari sé að einhverju leyti kennt um minnk- andi umsvif í hagkerfinu í vetur þá er samdrátturinn mikið áhyggju- efni þar sem hann mælist áður en áhrifa aðhalds- og niðurskurð- araðgerða stjórnvalda er tekið að gæta að fullu. Sérfræðingar telja þau áhrif munu koma fram í ríkara mæli á næstu mánuðum og halda niðri eftirspurn í hagkerfinu. Á sama tíma og samdráttur mælist í breska hagkerfinu er verð- bólga tvöfalt meiri en verðbólgu- markmið Englandsbanka kveða á um en Mervyn King, seðla- bankastjóri, hefur varað við því að hún stefni í 5% á næstu mánuðum. Englandsbanki milli steins og sleggju Þetta þýðir að Englandsbanki er á milli steins og sleggju þegar kemur að vaxtaákvörðunum. Stýrivextir hafa verið í sögulegu lágmarki eða um 0,5% í tvö ár en á sama tíma hef- ur Englandsbanki gripið til pen- ingaprentunar til að örva hagvöxt. Ljóst er að ekki verður mikið lengra gengið í þeim efnum án þess að hætta á að verðbólga fari end- anlega úr böndunum. En að sama skapi blasir við að hagvaxtarhorf- urnar nánast útiloka að vextir verði hækkaðir á næstu misserum. ornarnar@mbl.is Meiri sam- dráttur í Bretlandi Regn Þungt yfir breska hagkerfinu um þessar mundir. Skilanefnd Landsbankans og skila- nefnd Glitnis komust fyrir nokkru síð- an að samkomulagi um uppgjör kaup- réttarsamninga síðarnefndu skilanefndarinnar á stórum hlut í verslanakeðjunni Iceland. Á árinu 2008 seldi Baugur Group nánast allt hlutafé í Iceland til Landsbankans til að bæta lausafjárstöðu sína. Baugur, sem nú er í skiptameðferð, fékk þó kauprétti á Iceland á móti, til að geta eignast félagið síðar. Þeir kauprétt- arsamningar voru síðan veðsettir hjá Glitni til aukinnar fyrirgreiðslu vegna óskyldra fjárfestinga. Eftir að stóru bankarnir féllu einn af öðrum stóð því skilanefnd Glitnis uppi með kauprétt- arsamninga á talsverðu magni hluta- fjár í Iceland. Þeir samningar voru hins vegar gerðir upp á árinu 2009, en skilanefnd Landsbankans borgaði Glitni út úr samningunum. Ekki tókst að afla upplýsinga um hvað skila- nefnd Landsbankans greiddi Glitni fyrir uppgjör samninganna. Glitnir á engu að síður talsvert stóran hlut í Iceland, eða um 10%. Bankinn keypti um þrjá fjórðu þeirrar eignar af Baugi sumarið 2008, en afgangurinn var veðsettur bankanum vegna ann- arra skuldbindinga Baugs. Skila- nefnd Landsbankans á um 67% hlut í félaginu, sem er í sölumeðferð. thg@mbl.is Kaupréttir á Ice- land gerðir upp  Glitnir átti kauprétt á stórum hlut í Iceland Morgunblaðið/Árni Sæberg Glitnir Fékk greitt frá skilanefnd Landsbanka vegna kaupréttar. Fyrirtaka var í skuldainnheimtu- máli Arion banka á hendur fyrrver- andi starfandi stjórnarformanni Kaupþings, Sigurði Einarssyni, fyr- ir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Málið er enn í fresti, en heimildir Morgunblaðsins herma að lögmenn Sigurðar reyni nú að ná sátt við Ar- ion banka til að komast hjá dóms- máli. Gestur Jónsson flytur málið fyrir Sigurð, en héraðsdómur veitti aðilum málsins frest fram í miðjan mars til að freista þess að ná sátt. Fram kemur í skýrslu rannsókn- arnefndar Alþingis að útistandandi lán Kaupþings til Sigurðar Ein- arssonar til kaupa á hlutabréfum í bankanum sjálfum hafi numið alls 6,3 milljörðum króna við banka- hrun haust 2008. Málið sem Arion banki sækir nú á hendur Sigurði tengist þó ekki lánum til hluta- bréfakaupa. Upphæðirnar sem um er að tefla í því máli hlaupa á tug- um milljóna króna, eftir því sem næst verður komist. thg@mbl.is Skuldamáli Sigurðar Einarssonar frestað                                            !"# $% " &'( )* '$* ++,-./ +01-23 ++3-.4 /+-42 /5-15+ +0-+54 +/4-2 +-4+/. +0+-0+ +,.-30 ++1-/ +01-0/ ++0-/. /+-4.2 /5-11/ +0-+,3 +/,-50 +-4+3 +0/-2, +15-/2 /+,-.1.1 ++1-40 +03-/3 ++0-14 /+-,,1 /5-3/2 +0-/+ +/,-42 +-4/++ +0/-0. +15-10

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.