Morgunblaðið - 26.02.2011, Síða 36

Morgunblaðið - 26.02.2011, Síða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2011 ✝ Kristín GuðnýEinarsdóttir var fædd á Bessa- stöðum í Hrúta- firði 6. október 1949. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 18. febrúar 2011. Foreldrar henn- ar voru Einar Björnsson bóndi á Bessastöðum, f. 23.3. 1897, d. 1.5. 1983, og Helga Þorsteinsdóttir, f. 30.4. 1915, d. 7.2. 2011. Systkini hennar: Björn, f. 14.11. 1941, d. 23.7. 1992, Högni Ófeigur, f. foreldra sinna í stórum systk- inahópi. Gekk í barnaskólann á Laugarbakka, Héraðsskólann á Reykjum, Húsmæðraskólann á Varmalandi og lauk mat- artækninámi við Mennta- skólann í Kópavogi. Á sinni lífsleið vann hún hin fjölbreyti- legustu störf, s.s. versl- unarstörf, sjómennsku, öræfa- ferðir og flest störf sem tengjast mat og matreiðslu. Þótt starfvettvangur hennar væri víða um land voru þó Bessastaðir alltaf hennar fasti punktur í tilverunni, þar end- urbyggði hún gamalt hús og þar var hennar lögheimili alla tíð. Kristín var stór persónu- leiki, bæði til orðs og æðis, hjartahlý og greiðvikin. Útför Kristínar verður gerð frá Melstaðarkirkju í Miðfirði í dag, 26. febrúar 2011, og hefst athöfnin kl. 14. 20.12. 1944, Bjarni Þór, f. 31.3. 1948, Jón Ingi, f. 6.10. 1949, Þorsteinn, f. 1.12. 1952 Börn Kristínar með Sigurði Sig- urðarsyni, 1) Ólöf Birna, f. 3.8. 1982, sambýlismaður, Kristinn Freyr Þórsson, f. 4.2. 1984, barn: Kristín Helga, f. 11.2. 2011. 2) Friðgeir Einar, f. 22.11. 1983. Sambýlis- maður Kristínar var John Za- lewski, þau skildu. Kristín ólst upp á heimili Elsku mamma mín, það er erf- itt að setjast niður og skrifa loka- orð til þín. Ég hugsa að það sé erf- itt að finna sterkari manneskju en þig. Þú hefur barist eins og hetja allan þann tíma sem þú hefur ver- ið veik og uppgjöf var aldrei til í þínum huga, þetta stríð ætlaðir þú að vinna. Það er mér og fjölskyld- unni allri mjög ánægjulegt að þú hafir náð að sjá Kristínu Helgu og fylgjast með henni þessa fyrstu daga í lífi hennar. Það er okkur ógleymanleg stund þegar Nonni bróðir þinn kom með þig upp á fæðingardeild svo að þú gætir séð nöfnu þína nýfædda. Þú fékkst hana í fangið og dáðist að henni í tæpa tvo tíma og hún svaf svo vært í ömmufangi. Þú varst svo stolt af litlu ömmustelpunni og ljómaðir öll þegar þú sást hana. Hún á sko eftir að fá að heyra margar sögur af ömmu Stínu í framtíðinni, það er alveg öruggt og ég skal sjá til þess að hún fái að heyra hvað amma hennar var mik- il hetja og töffari. Það er mér mikil huggun að núna ertu búin að finna frið eftir þessi erfiðu veikindi og veit ég að núna ertu komin á betri stað. Vil ég þakka þér fyrir allar þær stundir sem við höfum átt saman og munu þær stundir alltaf lifa í hjarta mér. Hvíldu í friði, elsku mamma mín, ég veit að þú munt alltaf vaka yfir mér. Ég sakna þín í birtingu að hafa þig ekki við hlið mér og ég sakna þín á daginn þegar sólin brosir við mér. Og ég sakna þín á kvöldin þegar dimman dettur á. En ég sakna þín mest á nóttinni er svipirnir fara á stjá. Svo lít ég upp og sé við erum saman þarna tvær stjörnur á blárri festinguni sem færast nær og nær. Ég man þig þegar augu mín eru opin, hverja stund. En þegar ég nú legg þau aftur, fer ég á þinn fund. (Megas.) Ólöf Birna Kristínardóttir. Það gekk illa hjá Bessastaða- hjónunum að eignast stúlkubarn. Loksins þegar hún kom þá fylgdi henni strákur. Stína var eina stelpan í sex systkinahópi og vildi vera eins og „hinir strákarnir“ í sinni barnæsku. Í minningunni eru æskuárin á Bessastöðum eins og ljúfur draumur þar sem dagleg störf voru leikur og Stína fljótust til að gera það sem þurfti og taldi aldrei neitt eftir sér. Hún bætti við sitt kvenlega uppeldi í Kvenna- skólanum á Varmalandi. Eftir það var hún eftirsóttur kokkur og af- kastamikil saumakona. Hún lét sér fátt fyrir brjósti brenna. Vann við hálendisferðir hjá Úlfari Jak- obsen og stundaði sjómennsku á humar- og loðnuvertíðum og sem skipsþerna hjá Eimskipafélaginu. Hún eignaðist tvö börn með Sig- urði Sigurðssyni verslunarmanni sem hvarf af vettvangi þegar hún gekk með yngra barnið. Eftir að börni fæddust settist hún að á Bessastöðum-syðri, endurbyggði þar gamla íbúðarhúsið og vann um árabil í Staðarskála. Þegar börnin höfðu lokið grunnskóla á Laugar- bakka flutti hún til Reykjavíkur og bjó með Jóni Zalewski í Lunda- hólum 5. Þeirra leiðir skildu fyrir um fjórum árum. Þegar suður var komið lauk Stína matartækninámi við Menntaskólann í Kópavogi og var þar með komin með réttindi í því fagi sem hún vann mest við um ævina. Hún var óvenjudugleg og afar lífsglöð kona og einkar skemmtilegur ferðafélagi. Við hjónin ferðuðumst með henni og Jóni m.a. til Barcelona og Krítar og í stærri hópi til Norður-Nor- egs. Eigum við ljúfar endurminn- ingar úr þeim ferðum. Hún sá líka um margar veislur fyrir okkur hjónin í gegnum tíðina og það var eins og annað sem hún kom ná- lægt, gekk eins og ekkert væri einfaldara og allir glaðir. Það mátti treysta því að hún var alltaf tilbúin að koma til að hjálpa okkur hjónunum þegar við þurftum á því að halda. Fyrir það þökkum við nú. Það var gaman að vaka eina vornótt með Stínu og ekki síður skemmtilegt þegar stórfjölskyld- an kom saman. Þar var Stína alltaf konan sem var manna kátust og ekki skemmdi ef eitthvað var gott í glasi. Og það var alveg ógleym- anlegt að syngja með henni Skjónukvæði og önnur hennar upphaldslög. Þannig viljum við muna hana Stínu. Hryggðar hrærist strengur hröð er liðin vaka ekki lifir lengur ljós á þínum stjaka. Skarð er fyrir skildi skyggir veröldina eftir harða hildi horfin ertu vina. Klukkur tímans tifa telja ævistundir ætíð lengi lifa ljúfir vinafundir. Drottinn veg þér vísi vel þig ætíð geymi ljósið bjart þér lýsi leið í nýjum heimi. (Hákon Aðalsteinsson.) Í dag kveðjum við kæra systur og mágkonu sem lotið hefur í lægra haldi fyrir því meini sem átti að vera lítið mál að lækna þeg- ar það greindist fyrir tæpum tveimur árum. Það gekk því miður ekki eftir þó að hún sýndi fádæma baráttuþrek og bjartsýni í þeirri viðureign. Undir lokin var það hennar stóra gleði að fá að halda á fyrsta barnabarninu sínu sem fæddist réttri viku fyrir andlát hennar. Megi gæfan fylgja afkom- endum hennar í bráð og lengd bæði bornum og óbornum. Bjarni Þór Einarsson og Árndís Alda Jónsdóttir. Hún Stína mágkona er búin að kveðja þessa jarðvist, eftir hetju- lega baráttu við krabbamein, sem hún var ákveðin í að sigra, allt fram á síðasta dag. Það var svo með allt sem Stína tók sér fyrir hendur, að gefast upp var ekki til í hennar hugsun, enda órög við að fara ótroðnar slóðir. Hún var mikið náttúrubarn og naut sín vel í fjallaferðunum með Úlfari Jakobssyni þar sem hún var kokkur mörg sumur á eldhús- bílnum. Heimasveitin var henni mjög kær og var hún afar fús að leggja Bessastaðabúinu lið þegar þörf var á og hún hafði aðstæður til, oftar en ekki lentum við í alls kon- ar ævintýrum ef við tókum að okk- ur bústörfin, spurningin var bara. „Hvað gerist næst?“ Börnin hennar, Ólöf Birna og Friðgeir Einar (Dúddi), voru henni miklir gleðigjafar, hún var mikil móðir og ekki síður félagi, mér er minnisstætt hvað hún ræddi við Ólöfu, pínulitla, sem jafningi væri. En nú er hún Stína komin til Bjössa bróður síns, sjálfsagt eru þau að braska eitthvað saman, eða rökræða við foreldra sína. Hjartans þakkir fyrir sam- fylgdina þennan allt of stutta tíma. Elsku litla fjölskylda, Ólöf, Diddi, Kristín Helga og Dúddi minn. Ég bið guð að styrkja ykkur í sorginni. Ólöf Pálsdóttir. Það er skammt stórra högga á milli í Bessastaðafjölskyldunni þessa dagana. Fyrir viku fylgdum við Helgu ömmu til grafar og í dag kveðjum við dóttur hennar, Krist- ínu Einarsdóttur, eða Stínu frænku eins og við kölluðum hana alltaf. Stína var hörkukona sem við systkinin litum mikið upp til. Hún var alltaf hress, kát og drífandi. Hún sagði sína meiningu hiksta- laust og lét ekkert á sig fá. Æsku- minningin um Stínu frænku er sveipuð hetjuljóma. Hún var hetj- an sem brunaði um á Skódanum sínum, vann uppi á fjöllum á stórum trukkum með túrista nú eða skellti sér á sjóinn. Hún var kona sem vílaði ekkert fyrir sér. Við vildum verða eins og Stína frænka þegar við yrðum stór. Töffari er kannski besta lýsingar- orðið yfir hana frænku okkar. Stína eignaðist börnin sín Ólöfu Birnu og Friðgeir Einar með stuttu millibili og réðst þá í það verk að skapa þeim heimili, sjálf- stæð móðirin. Hún gerði upp gamla bæinn á melnum á Bessa- stöðum sem Þuríður amma henn- ar og Bjarni heitinn byggðu á sín- um tíma. Til að fjármagna endurbygginguna vann Stína mjög mikið og við systurnar feng- um það verkefni að passa krakk- ana nokkur sumur á Bessastöð- um. Þó að við hefðum þetta formlega og vel borgaða verkefni er auðvitað ljóst að Lóa og Bjössi og amma Helga báru hitann og þungann af því. Við munum eftir Stínu að smíða eldhúsinnrétt- inguna, pússa gólf og skápa, sauma gardínur og í skógrækt í kringum húsið til að temja norðangarrann í Hrútafirðinum. Í eldhúsinu á Melum er platti sem á stendur „Gott skap gerir vinnuna létta“ og þessi orð hafði Stína svo sannarlega að leiðarljósi í lífinu. Stína flutti til Reykjavíkur þegar börnin hennar fóru í framhalds- skóla og þar var tekið á móti okk- ur með sama myndarbragnum og heima í sveitinni. Á tyllidögum eins og á bolludegi og sprengidegi borðuðum við systkinin sem bjuggum í Reykjavík oft hjá Stínu frænku, því ekki kunnum við að elda svoleiðis dýrindi. Hún hélt ævinlega þorrablót og þar var gleði og gaman og gott að borða. Ef við þurftum á aðstoð að halda var ávallt viðkvæðið „ekkert mál“ þegar við leituðum til Stínu. Hvort sem um var að ræða að gista hjá henni í þrjár vikur meðan á verk- námi í Reykjavík stóð, að sauma gardínur fyrir stofugluggana eða að fá að vera hjá henni um áramót eða páska ef maður komst ekki norður vegna vinnu. Stína barðist við krabbamein síðastliðin tvö ár og því miður hafði krabbinn betur. Okkur lang- ar til að þakka Dísu frænku fyrir að vera einstök hjálparhella á síð- ustu mánuðum Stínu. Þar fer önn- ur dugnaðarkona sem lætur verk- in tala. Hinn 11. febrúar 2011 eignaðist Stína sitt fyrsta barna- barn, hana Kristínu Helgu, og fyr- ir guðsmildi fengu þær að hittast og kynnast aðeins áður en leiðir skildi. Elsku Ólöf og Dúddi, við send- um okkar dýpstu samúðarkveðj- ur. Stína frænka mun alltaf eiga stað í hjarta okkar. Takk fyrir allt, elsku Stína. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Ingunn Helga Bjarnadóttir, Ragnhildur Bjarnadóttir og Jón Árni Bjarnason. Samleið okkar Stínu var löng og farsæl og bar aldrei skugga á. Æska okkar var samtvinnuð, við vorum dætur samlyndra systra og vináttan erfðist til okkar frænkn- anna og hefur tryggðarbandið á milli okkar aldrei slitnað og aðeins styrkst með árunum. Stína var ein sú óeigingjarnasta manneskja sem ég hef kynnst, hún var alltaf boðin og búin til hjálpar og var fyrst á staðinn, sama hvað var eða hver átti í hlut. Hún var einstaklega næm á að finna hvar hjálpar var þörf, bæði í fjölskyldunni og utan hennar. Aldrei var haldin sú veisla hjá mér og mínum nánustu, skírn, ferming eða gifting, þar sem Stína töfraði ekki fram stórkostleg veisluborð eins og henni einni var lagið. Öll verkefni voru leyst af alúð og um- hyggju. Stína vann mest við matseld og voru verkefnin fjölbreytt, ekki alltaf hefðbundin og oft þurfti hún að vinna við erfiðar aðstæður. Snjósleðaferðir með nokkurra mánaða gamalt barn og barningur við storm og ófærur til að komast í vinnu, vinna á sjó og á fjöllum þar sem vinnudagurinn var oft óheyri- lega langur og lítið um svefn. Þetta eru bara örfá dæmi um verkefni Stínu í gegnum árin. Í hennar huga þá voru svona hlutir ekkert erfiðir – heldur bara verk- efni sem þurfti að leysa og hafa gaman af. Stína var einstæð móðir tveggja barna, Ólafar Birnu og Friðgeirs Einars, sem voru auga- steinarnir hennar og takmarkið í lífinu var að koma þeim til manns. Þau nutu ástar hennar og um- hyggju og voru það sem gaf lífi hennar gildi. Það var aldrei spurn- ing um forgangsröðunina hjá Stínu, börnin voru henni allt. Eftir fæðingu Friðgeirs Einars gerði hún upp hús ömmu sinnar á Syðri Bessastöðum og bjó þar í haginn fyrir sig og börnin sín. Það var ekki lítið verk þar sem það hafði staðið autt í tugi ára og ófá hand- tökin sem þurfti til að koma því í íbúðarhæft ástand. En með góðri hjálp bræðra hennar varð þetta að fallegu heimili fyrir litlu fjölskyld- una sem naut nálægðar og stuðn- ings fjölskyldunnar „í neðra“ eins og Stína orðaði það. Hún velti sér aldrei upp úr sorg og sút. Í gegnum öll hennar veik- indi var gert grín að hlutunum og tekist var á við veikindin eins og hvert annað verkefni sem þurfti að leysa með svartan húmor að vopni. Þegar hún missti hárið fannst henni óþægilegt að vera með höfuðfat eða hárkollu svo hún sleppti því yfirleitt. Tilgerð var ekki að hennar skapi og hún ákvað það að ef fólk gæti ekki horft á hana svona skyldi það bara horfa á eitthvað annað. „Tökum eina Stínu á þetta“ er orðið viðkvæði í fjölskyldunni ef eitthvað fer úr skorðum eða staðið er frammi fyr- ir vandamálum. Sem sagt verum ekki að væla yfir þessu – leysum þetta bara. Stína er ekki lengur hjá okkur. Ég horfi á farið í koddanum henn- ar í sófanum mínum og það kemur enginn úr kofanum á morgnana og býður hraustlega góðan daginn. Það er tómlegt í kotinu núna og söknuðurinn er mikill. Elsku Dúddi minn, Ólöf Birna, Diddi og litla Kristín Helga, við Nonni sendum ykkur okkar bestu hugsanir. Hjördís Edda Ingvarsdóttir. Kristín Guðný Einarsdóttir  Fleiri minningargreinar um Kristínu Guðnýju Ein- arsdóttur ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku- legrar dóttur minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu og systur, SIGRÍÐAR BJARKAR ÞÓRISDÓTTUR, Arnarkletti 30, Borgarnesi. Guð blessi ykkur öll. Júlíana Hálfdánardóttir, Svanhildur Margrét Ólafsdóttir, Jón Þór Þorvaldsson, Þórir Valdimar Indriðason, María Hrund Guðmundsdóttir, Anna Heiðrún Þorvaldsdóttir, Samúel Helgason, Þorvaldur Ægir Þorvaldsson, ömmubörn og systkini. ✝ Hjartans þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, BRYNHILDAR JÓNSDÓTTUR. Jón Svavar Úlfljótsson, S. Fanney Úlfljótsdóttir, Björn M. Björgvinsson, Björg Jóhannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem auð- sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, MÖRTU SVEINSDÓTTUR, áður Hjallabraut 33, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Sólvangi, Hafnarfirði. Gísli Wíum, Kolbrún Aradóttir, Hildur Wíum, Sævar B. Sigfússon, Þór Wíum, Hjördís Hermannsdóttir, Sveinn Wíum, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug varðandi andlát og útför okkar ástkæru GUÐRÚNAR BRYNJÓLFSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Garðvangi í Garði fyrir einstaka umönnun og hlýju. Valtýr Sæmundsson, Sæmundur Valtýsson, Guðlaugur Valtýsson, Sigríður Björnsdóttir, Anna Marta Valtýsdóttir, Árni Ólafur Þórhallsson, Brynja Þóra Valtýsdóttir, Grétar I. Guðlaugsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför hjartkærrar móður okkar og ættarstólpa, VIVAN SVAVARSSON. Fyrir hönd tengdabarna, allra afkomenda, vina og vandamanna, Ingunn Franzén, Elín Sólveig Benediktsdóttir, Gunnar Benediktsson, Hallgrímur Benediktsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.