Morgunblaðið - 26.02.2011, Page 37

Morgunblaðið - 26.02.2011, Page 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2011 ✝ Leifur SteinarHalldórsson fæddist í Stöðinni í Ólafsvík 15. febr- úar 1934. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 9. febr- úar 2011. For- eldrar hans voru Halldór Friðgeir Jónsson frá Arn- arstapa, f. 1904, d. 1973, og Matt- hildur Kristjánsdóttir frá Ólafs- vík, f. 1903, d. 1962. Systkini Leifs eru: Laufey f. 1923, d. 1925, Jón Steinn, f. 1926, Krist- mundur, f. 1928, d. 1997, Pál- ína, f. 1930, d. 2009, Kristín, f. 1938, Edda Sigurveig, f. 1942, d. 2008, Bára, f. 1943, d. 2008, Bylgja, f. 1943, Víkingur, f. 1947. Eiginkona Leifs var Ragn- heiður Þorgrímsdóttir, f. 20. janúar 1936, d. 8. mars 1987. Þau gengu í hjónaband 22. júní Börn Gunnars frá fyrra hjóna- bandi eru: Tryggvi Örn, f. 1989, Magnea, f. 1994. Sonur Leifs og Unnar Long var Þórir, f. 1955, d. 1973. Dóttir hans er Þórunn Hildur, f. 1973. Eig- inmaður hennar er Reynir Árnason, f. 1970. Börn Þór- unnar eru Dagur Snær, f. 1993 og Ída Margrét, f. 2002. Leifur tók vélstjórnarrétt- indi 1951 í Reykjavík og skip- stjórnarréttindi frá Stýri- mannaskólanum á Ísafirði 1958. Hann byrjaði sinn sjó- mannsferil sem vélstjóri á bát- um föður síns. Tók síðan við skipstjórn og var skipstjóri í 25 ár, lengst af á Halldóri Jóns- syni SH 217 sem var mikið aflaskip og síðar á Steinunni SH 167. Hann var farsæll í störfum sínum til lands og sjáv- ar og lagði heilmikið til sinnar heimabyggðar með athafna- semi sinni í útgerð og land- vinnslu. Síðustu árin rak hann fyrirtækin Klumbu í Ólafsvík og Frostfisk í Þorlákshöfn ásamt sonum sínum. Útför Leifs verður gerð frá Ólafsvíkurkirkju í dag, 26. febrúar 2011, og hefst athöfnin kl. 14. 1962. Börn þeirra eru: 1) Matthildur Soffía, f. 1962, sambýlismaður hennar er Ingólfur Stefánsson, f. 1960. Hans synir eru: Haraldur, f. 1981, Daníel, f. 1989. 2) Þorgrímur, f. 1963, eiginkona hans er Guðlaug Stella Brynjólfsdóttir, f. 1966. Börn þeirra: Ragnheiður, f. 1987, Rögnvaldur, f. 1994, Þorgrímur Goði, f, 2000. 3) Steingrímur, f. 1966, eiginkona hans er Margrét Gylfadóttir, f. 1969. Börn þeirra: Úlfur, f. 1993, Illugi, f. 1996, Ingibjörg, f. 2002, Ragnheiður, f. 2002. 4) Úlfhildur Áslaug f. 1972, eig- inmaður hennar er Gunnar Tryggvason, f. 1969. Börn þeirra: Leifur Steinn, f. 2004, Dýrleif Lára, f. 2006, Vésteinn, f. 2009, Daníel Ernir, f. 2010. Eitt sinn verða allir menn að deyja, segir í fallegu dægurlagi. Það er köld staðreynd sem við lif- um við. Nú kveð ég elskulegan föður minn sem var svo stór hluti af mínu lífi. Hann var mér allt í senn, faðir, móðir og besti vinur minn. Ég hændist ung að honum þar sem hann var sjómaður og oft langdvölum í burtu. Það ríkti eft- irvænting þegar báturinn kom að landi og hann varð svo glaður að finna okkur fjölskylduna sína á ný. Þegar ég var 13 ára dó mamma langt um aldur fram. Hún var föð- ur okkar mikill harmdauði. Pabbi lagði sig allan fram við að sinna okkur sem best og hélt heimilinu í anda móður okkar alla tíð. Heim í Skipholt hefur alltaf verið gott að koma og voru allir ætíð aufúsugestir. Pabbi helgaði sig því að búa börnum sínum gott líf og fylgdi okkur fast eftir út í líf- ið. Fjölskyldan var honum allt. Síðustu árin var hann farinn að ílengjast í Reykjavík til að geta verið í kringum barnabörnin sem hann hafði mikið yndi af. Hann gerði fjölskylduna mjög sam- heldna og var í nánu sambandi við okkur öll. Pabbi var yndislegur faðir, hjartahlýr og traustur. Hann veitti okkur skjól og var kletturinn í lífi okkar. Það voru engin vanda- mál í kring um Leif Halldórsson, bara lausnir. Hann gaf okkur gott veganesti út í lífið og var óspar á heilræði okkur til handa. Þegar við vorum börn lagði hann áherslu á að við deildum með okkur. Mað- ur á alltaf að gefa með sér, hamr- aði hann á. Hann var athafnasam- ur og gat ekki séð óunnin verk. „Á morgun segir sá lati“ varð honum oft að orði. Pabbi var náttúruunnandi, lifði og starfaði í einstöku umhverfi Snæfellsness og vildi hvergi ann- ars staðar vera. Hans ástríða var veiði bæði á sjó og í ám. Á sumrin stundaði hann stangveiði í Dölun- um með vinum sínum og fjölskyld- unni. Í þessum veiðiferðum átti fjölskyldan sínar bestu stundir og kærar minningar. Hann kenndi okkur að veiða og það var stór- kostlegt að vera með honum við ána. Pabbi las ána eins og lófann á sér, las í veðrabrigðin með innsæi sínu og nálgaðist ána og umhverfi hennar af mikilli virðingu. Hann hafði náðargáfu til að veiða fisk. Síðustu árin byggði hann sér bústað við Skraumu, fallega á í Dölunum, og fékk leyfi landeig- enda til að rækta ána upp. Þau verk sem þar sköpuðust voru hon- um til mikillar ánægju. Hann var aldrei verkefnalaus. Athafnamað- ur fram á síðasta dag. Með lífs- hlaupi sínu var pabbi okkur góð fyrirmynd. Hann lærði svo lengi sem hann lifði og tileinkaði sér það sem lífið bar honum í skaut. Hann skilur eftir sig fagrar minningar um góðan mann, örlátan og hjartahlýjan. Pabbi var ekkill í 24 ár. Á þeim tíma kenndi hann okkur um gildi ástarinnar með því hvernig hann elskaði móður okkar og virti. Ást- arsamband þeirra var mjög fallegt og þau áttu sanna ást. Eftir að mamma dó hélt pabbi minningu hennar lifandi og hélt arfleifð hennar að okkur systkinunum. Hann lagði sig fram um að láta drauma hennar rætast svo að við börnin þeirra fengjum að njóta þeirra. Það er huggun harmi gegn að vita að nú hafa þau elskend- urnir náð saman á ný. Fyrir hönd systkina minna, Úlfhildur Leifsdóttir. Meira: mbl.is/minningar Afi Leifur var sú manneskja sem við litum upp til og myndum vilja líkjast á marga vegu. Afi var ekki bara góð fyrirmynd, heldur góður vinur. Hann kenndi okkur á lífið á sinn sérstaka hátt. Afa vegnaði vel í lífinu, fór aldrei í framhaldsskóla eða háskóla, hann var bara í lífsins skóla eins og hann sagði. Hann átti nóg fyrir sig og sína og átti líka alltaf eitthvað aukalega fyrir þá sem þurftu á því að halda. Afi var sá sem sá um að öllum í kringum hann liði vel, stóð vörð um fjölskyldu sína og vernd- aði hana eins vel og hann gat. Hann mátti ekkert aumt sjá, vildi hjálpa öllum sem áttu bágt og gaf gjarnan útigangsmönnum pening. Afi kunni líka að stjórna og skipa mönnum fyrir, enda gamall skip- stjóri. Honum leið best niðri við á eða úti á sjó, þar sem hann stund- aði sitt aðaláhugamál; veiði, bæði laxveiði og sjóstangaveiði. Við veiddum mikið með afa. Hann veiddi auðvitað mest, fékk fisk í hverjum hyl sem hann kastaði í. Það var eiginlega óskiljanlegt hversu góður veiðimaður hann var, hann vissi nákvæmlega hvar laxarnir lágu. Maður var kannski búinn að berja hylinn klukkutím- um saman og þá kom afi og … lax á. Það sem okkur þótti vænst um við afa er að hann fylgdi einföldum heilræðum og var alltaf sam- kvæmur sjálfum sér. Hann laum- aði inn heilræðunum á réttum augnablikum, þannig að þau fest- ust í minninu. Stundum voru þau í skipstjóratón og stundum á róleg- um nótum: á morgun segir sá lati, maður á alltaf að gefa með sér og það kemur fram í seinna verkinu það sem gert er í því fyrra. Skipholtið og Dalakofinn, þar áttum við okkar bestu og skemmtilegustu stundir með afa, það verður tómlegt án hans. Ingi- björg og Ragnheiður voru svo hræddar um að þær gætu aldrei farið aftur til „Afavíkur“ því afi Leifur hefði tekið lykilinn með sér til himna. Nú hafa þær fengið lykil að Skipholtinu og þeim líður bet- ur. Elsku afi, takk fyrir að þykja svona vænt um okkur, við höldum minningu þinni á lofti, því það leynist lítill Leibbari í okkur öll- um. Þín öllsömul, Úlfur, Illugi, Ingibjörg og Ragnheiður. Einhvern tímann sagði ég: „Þegar ég verð stór ætla ég að verða alveg eins og afi.“ Það var ekkert meira spennandi en að vera á fleygiferð um alla sveit og bæi með afa. Öll sumur klöngrað- ist ég með afa upp og niður Miðá í Dölum. Það voru mínar bestu stundir, þar fylgdist ég með og lærði listina af stórveiðimannin- um. Afi kenndi mér á leyndar- dóma vatnsins og opnaði augu mín fyrir fegurðinni í einfaldleikanum, náttúrunni. Árin liðu og ég óx úr fangi þínu og stóð við hlið þér sem ung kona. Sokkabandsárin hófu göngu sína með tilheyrandi partí- um og sætum strákum en mesta fjörið var í Skipholtinu, þar var ýmislegt leyfilegt sem annars mátti ekki. Vinkonur mínar voru svo hrifnar af afa, enda alltaf svo sætur og smart. Í Skipholtinu var dekrað við okkur með dýrindis máltíðum og nammi í öllum skál- um. Afi, þú varst frábær kokkur, svo mikill gestgjafi. En afi gat líka verið strangur við mig þegar ég kom mér í vandræði. Einu sinni sem oftar vorum við vinkonurnar ég, Tanja og Margrét í ævintýra- leit í Ólafsvík, við ætluðum að keyra út á Djúpalón. Afi var ekki hrifinn af þeirri hugmynd enda las hann leikinn eins og veðrið. En við óþekku stelpurnar stálumst af stað og festum bílinn á miðjum Djúpalónsafleggjaranum, þar var engin umferð og ekkert símasam- band. Svo skall á blindbylur. Þá óskaði ég þess að hafa hlustað á afa. En allt í einu sáum við gegn- um blindbylinn að glitti í bílljós sem nálguðust á ógnarhraða og viti menn, þar voru afi hetja og Jónsteinn bróðir hans, riddarar á gráum Land Rover og auðvitað með kaðal. Í þetta skipti fengum við ekki skammir, afi var bara feg- inn að fá okkur heilar á húfi. Enn þann dag í dag velti ég fyrir mér hvernig afi vissi um afdrif okkar niðri á Djúpalóni. Oft sá hann prakkarastrikin áð- ur en þau gerðust. Svo urðum við eldri og fljótt breyttist fyllingin á nammiskálunum í fyllingu á vín- skápinn og á eldhúsborðinu voru skilaboð á krumpuðum miða ásamt peningum, skilaboðin voru: „Afi býður á ballið“ skrifað með sjómannaskriftinni sem leit út eins og hann væri staddur í mikl- um öldusjó. Elsku afi, þú gafst mér og kenndir mér svo margt, þú kennd- ir mér að veiða, að virða og lesa náttúruna. Þú kenndir mér að keyra á þjóðvegum landsins þegar ég var 10 ára, bæði innan og utan vegar. Þú kenndir mér að á eftir vatninu er Diet Coke næsthollasti drykkurinn og að kaffi er allt í lagi svo lengi sem maður setur mjólk út í það. Ég er svo heppin að hafa átt þig í öll mín 24 ár. Núna er ég orðin stór og veit ekki hvort ég er orðin alveg eins og afi en ég veit að hluti af honum lifir í mér og ég mun lifa lífinu honum til sóma. Jæja, elsku afi, núna er komin kveðjustund. Tími til að draga inn árar, slá af og leggja við bryggju. En það veit ég að það átt þú aldrei eftir að gera. Nú siglir þú um höfin með ömmu Ragnheiði. Höfðing- inn, hetjan mín, afi minn. Elsku afi, takk fyrir mig. Þar sem fuglarnir sungu og aldan brotnaði stóð ég við hlið þér og fékk svarið við tilgangi lífsins. (Ragnheiður.) Þín Ragnheiður Þorgrímsdóttir. Hann afi Leifur eins og við köll- uðum hann er farinn til himna að hitta ömmu Ragnheiði. Við höfð- um beðið og vonað að hann fengi að vera með okkur lengur, fengi að upplifa vorið og sumarið í Ólafsvík einu sinni enn en nú var hann tilbúinn að fara. Ekki löngu fyrir andlátið sagði hann okkur að fyrst núna væri hann búinn að klára allt sem hefði þurft að klára og nú gæti hann farið að hitta Ragnheiði. Við erum viss um að hann hafi hlakkað til endur- fundanna, hlakkað til að hitta ást- ina í lífinu sem fór of fljótt frá hon- um. Það verða eflaust fleiri fagnaðarfundir, eitt er víst að gamli hundurinn okkar Hannibal verður alsæll að fá afa Leif, nú fyrst fær hann nóg af aukabitum og góðgæti. Afi Leifur var mikill sælkeri, það var mjög gaman að fá hann í mat, við eigum öll eftir að sakna þess að fá hann í soðnu ýs- una á mánudögum sem honum þótti auðvitað alltaf langbest. En hann naut þess líka að fá íslenskan heimilismat, eldaðan á gamla mát- ann og helst með óleyfilegu magni af salti og kjötkrafti. Á kveðju- stund sem þessari er þakklæti í huga okkar, þakklæti fyrir að hafa fengið tækifæri til að kynnast þeim tímum og viðhorfum sem afi Leifur endurspeglaði með lífi sínu. Takk fyrir okkur. Elsku afi Leifur, góða ferð og góðar kveðjur. Fjölskyldan í Kvistalandi, Þorgrímur, Guðlaug og börn. „Mamma, ég hélt að afi Leifur yrði til að eilífu,“ sagði Ingibjörg afastelpa daginn sem afi dó. Ein- hvern veginn hélt ég það líka, rétt- ara sagt óskaði þess heitt að tengdafaðir minn yrði manna elst- ur því tilvera okkar yrði svo miklu fátækari án hans. Leifur var ein- stakur maður og stórbrotinn per- sónuleiki sem aðeins var til í einu eintaki. Ég var svo heppin að ein- mitt hann af öllum tengdapöbbum í heiminum var tengdafaðir minn. Ég hitti hann fyrst þegar ég var 15 ára gömul í Ólafsvík. Stein- grímur hafði ákveðið að kynna kærustuna sína formlega. Ég var með kvíðahnút í maganum. Leifur var jú skipstjóri með stóru S og það fór ekki framhjá neinum þeg- ar hann var á ferð. Áhyggjurnar reyndust óþarfar, því á bak við hrjúft yfirbragð skipstjórans leyndist stórt og ofurhlýtt hjarta. Leifur gaf strax til kynna að hon- um fyndist ég aðeins of ung fyrir son sinn sem þá var 18 ára. En hann tók mér opnum örmum. Ég hafði skömmu áður misst móður mína og Leifur lét mig strax finna að ég gæti alltaf leitað til hans. Leifur var mér svo miklu meira en „tengdafaðir“ hann var mér falleg föðurímynd og góður vinur. Hann fyllti upp í tómarúm móðurleysis með hlýju sinni og veitti mér, ung- lingnum, mikilvæga öryggis- kennd. Leifur var fyrst og fremst fjölskyldumaður. Hann var svo stór og óaðskiljanlegur hluti af okkar lífi. Ekki leið sá dagur að við heyrðum ekki í honum. Þegar Leifur var í bænum mætti hann í morgunkaffið til okkar upp úr átta og kom aftur seinnipartinn, í te og spjall. Helst vildi hann mæta á alla viðburði sem sneru að barnabörn- unum. Svona var afi Leifur, allt í öllu, fjölskyldan var númer eitt, tvö og þrjú. Hann var eins og kletturinn í hafinu sem stendur af sér storminn og þegar veðrinu slotar rís hann teinréttur upp úr haffletinum, alltaf á sínum stað, alltaf til staðar. Vandamálin eru til að leysa þau sagði hann alltaf. Ekkert verkefni var Leifi of- vaxið. Hann gekk hreint til verks og lét ekki aðra segja sér fyrir verkum. Honum féll aldrei verk úr hendi og hefði sjálfsagt verið greindur ofvirkur ef sú greining hefði verið tiltæk í þá daga. Hon- um leiddust sunnudagar og hátíð- isdagar og maður mátti passa sig að missa ekki út úr sér ef eitthvað vantaði eða var ógert á heimilinu því þá var hann rokinn að redda málunum; Magga, áttu ekki skó- horn? Nei, þú verður að eiga skó- horn, manneskja. Já er það? Já, þetta gengur ekki svona. Andar- taki síðar er skóhornið komið í hús, búið að negla það í sjónlínu fyrir miðjum vegg til móts við úti- dyrahurðina. Útkoman var mis- góð en það skipti ekki máli. Verkið var búið og gert. Það er óhætt að segja að öllum hafi þótt vænt um Leif, bæði mönnum og dýrum. Fyrir skyld- mennum mínum og vinum var hann eins og nákominn frændi. Það var falleg stund þegar Leifur, alveg undir það síðasta, kallaði afastrákinn Illuga og vinina tvo, Högna og Ísak, á sinn fund til að segja þeim frá sjálfum sér í gamla daga. Honum þótti vænt um þessa þrenningu og fylgdist vel með þeim. Sagðist sjá sjálfan sig og gömlu vini sína í þeim. Þessi vin- átta er engin tilviljun, sagði hann. Það er ástæða fyrir henni. Þú kvaddir með storminum og við sátum eftir með lognið, ég held að það hafi ekki verið nein tilviljun. Elsku Leifur, ég á þér svo mik- ið að þakka og þykir ofurvænt um þig. Ég veit að þú vissir allt um það. Þín Margrét. Meira: mbl.is/minningar Með tengdaföður mínum er fallinn frá einstakur athafnamað- ur. Maður þeirrar kynslóðar sem hóf lífsbaráttuna við kröpp kjör og lítil þægindi en vann sér í haginn með einstakri eljusemi og þori. Hann hafði af mikilli reynslu og lífsspeki að miðla sem ekki rúmast í þessum fáu minningarorðum en eru varðveitt hjá okkur fjölskyldu hans. Í þau tíu ár sem ég hef þekkt Leif hefur fjölskyldan verið hans aðalviðfangsefni og hana hefur hann ræktað af mikilli alúð. Það varð mér fljótlega ljóst þegar ég var að kynnast Leifi að hann leit á sjálfan sig sem fulltrúa Ragnheið- ar heitinnar eiginkonu sinnar og var oft að sinna hennar erindum í daglega lífinu, m.a. í því að siða okkur, fólkið sitt til og leiðbeina. Slík varð ást hans og virðing fyrir æviástinni. Hann hafði ástríðu fyr- ir fiskveiðum bæði á sjó og í ám. Orðinn sjötugur samdi Leifur við veiðirétthafa að ánni Skraumu á Skógarströnd um að koma laxi upp fyrir ófæru í tröllvöxnu en ægifögru gljúfri neðarlega í ánni. Menn höfðu amk. í tvígang gefist upp á þessari þraut áður. Átti ég því láni að fagna að aðstoða hann við lausnir á þessu skemmtilega verkefni. Var elja hans og áræði slík að laxinn hlýddi að lokum þrátt fyrir nokkur áföll á leiðinni. Kominn á áttræðisaldur varð hann fyrir því óláni að fyrirtæki hans í Ólafsvík brann til kaldra kola og héldu flestir í eitt stund- arkorn að nú væri rekstri sjálf- hætt. En með eldhafið í bakgrunni lýsti hann því hinsvegar yfir að hafist yrði handa við uppbyggingu strax að slökkvistarfi loknu. Og viti menn, örfáum misserum síðar var nýja Klumba í Ólafsvík risin stærri og öflugri en áður og skap- ar verðmæt störf. Er þetta lýsandi dæmi um áræðið sem í honum bjó. Leifur var orðvandur maður og aldrei heyrði ég hann hallmæla nokkrum manni. Honum fannst það vera skylda sín að aðstoða þá sem voru aðstoðar þurfi og reynd- ist mörgum vel. Takk fyrir allt, Gunnar Tryggvason. Vinur minn og „frændi“ er fall- inn frá. Skipstjórinn frá Ólafsvík. Kletturinn í hafinu sem stóð vakt- ina þrátt fyrir brotsjó – sterkur, hlýr og traustur. Hann minnti mig á Richard Burton, stórglæsilegur og sjarmerandi en var þó ekki fyr- ir aðalhlutverkin. Stóra sviðið var ætlað börnum og barnabörnum sem hann umvafði með margvís- legum hætti og helgaði líf sitt. En Ragnheiður frænka, eiginkonan sem hann missti fyrir rúmum ald- arfjórðungi, var sú sem hann lifði fyrir. „Konan vildi hafa þetta svona,“ sagði Leifur iðulega með glampa í augum. Ég sé Rönku fyr- ir mér, Parísarprinsessuna, í græna stólnum í stofunni. Eins og Grace Kelly, óviðjafnanleg og stórglæsileg. Ég átti orðið „mitt“ herbergi í Skipholtinu í Ólafsvík, bókaher- bergið. Þar hefur verið gott að skrifa undanfarin ár, andrúmsloft- ið einstakt með myndir af stórfjöl- skyldunni alltumlykjandi. Og skipstjórinn matreiddi ofan í mig, tók ekki annað í mál. Vanafastur og viðræðusnjall. Skipholtið var öllum opið og á allra vitorði hvar lykillinn var geymdur ef Leifur var að heiman. Samt var skemmti- legast að hafa hann sveimandi um, inn og út, sífellt á ferli að passa upp á sína. Honum þótti það skott- úr að skreppa til Reykjavíkur. Það máttu ekki líða of margir dagar á milli þess sem hann heimsækti krakkana. Þegar hann renndi inn í Reykjavík ók hann aldrei stystu leið í gegn, sjórinn varð að vera í sjónmáli. Höfðinginn og hafið. Það var hans heimavöllur og stang- veiðin í Dölunum. Leifur hefði án efa getað staðið við gjöfula á dög- um saman án þess að nærast eða sofa. Það var hans hugleiðsla og list, að renna fyrir fisk, fanga augnablikið. Barn náttúrunnar. Leifs verður sárt saknað. Ekki aðeins af hans nánustu heldur öll- um Ólsurum. Hann var herra Ólafsvík í mínum augum og hugs- aði um fleiri en margan grunar enda einstakt góðmenni. Matt- hildur, Þorgrímur, Steingrímur og Úlfhildur hafa öll erft eigin- leika móður og föður, hreint ynd- islegt að umgangast þau. Mér hef- ur ætíð fundist þau vera systkini mín. Söknuður þeirra er mikill en minningin um einstakan föður og afa lifir. Söknuður Leifs er engu minni enda forréttindi að fá að vera í návist frændsyskina minna og þeirra barna. Ég sé Rönku frænku taka á móti Leifi sínum eftir langan aðskilnað. Myndin er sterk og falleg. Og saman munu þau héðan í frá halda verndar- hendi yfir sínum nánustu, leiða þau ómeðvitað um lífsins bröttu leið. Fólkinu mínu sendi ég samúð- arkveðjur. Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum, hugsið ekki um dauð- ann með harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvelur, þótt látinn mig hald- ið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakk- lát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Kahlil Gibran) Þorgrímur Þráinsson. Leifur S. Halldórsson  Fleiri minningargreinar um Leif S. Halldórsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.