Morgunblaðið - 26.02.2011, Page 44

Morgunblaðið - 26.02.2011, Page 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2011 Sýnendurnir Á þessari samsettu mynd má sjá alla listamennina sem taka þátt í sýningunni Kjarvalsdeildinni í Nýlistasafninu, sem verður opnuð í kvöld. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Þessi sýning á eftir að koma mörg- um í gott jafnvægi,“ segir Snorri Ás- mundsson myndlistarmaður, einn sýnenda og skipuleggjenda sýning- arinnar Kjarvalsdeildin sem verður opnuð í Nýlistasafninu, Skúlagötu 30, klukkan 20 í kvöld. „Við erum bú- in að opna á alls kyns tíðnir og bylgj- ur, inn í aðrar víddir,“ segir hann. „Þetta byrjaði síðasta sumar þeg- ar við Helgi Þórsson, Sigtryggur Berg og Steingrímur Eyfjörð ákváðum að vera með sýningu í Ný- listasafninu. Svo bættust alltaf fleiri í hópinn.“ Þetta er athyglisverður hópur listamanna, innlendra og erlendra. Á meðal þeirra erlendu má sjá mjög þekkt nöfn, á borð við Franz Graf og Jonathan Meese, einnig Annakim Violette og Morgan Betz. Aðrir ís- lenskir listamenn sem eru með eru þau Hulda Vilhjálmsdóttir, Guðný Guðmundsdóttir, Ólafur Lárusson, Laufey Elíasdóttir, Nonni Ragnars og Valgarður Bragason. Eins og súpa sem mallar „Já, það er eins og við höfum verið að malla súpu,“ segir Snorri þegar minnst er á fjölbreytileikann í sam- setningu hópsins. „Við viljum meina að þegar nafnið Kjarvalsdeildin kom upp, þá hafi Kjarval átt einhvern þátt í þessu.Við höfum verið leidd áfram. Þegar maður er í einhverju flæði malla hlutirnir á réttan hátt.“ Fjölbreytileikinn birtist líka í verkunum sjálfum á sýningunni. „Þetta eru allt ný verk, tónlist, vídeó, gjörningar, mikið af mál- verkum – við vorum með Kjarval til hliðsjónar en hann var líka gjörn- ingalistamaður,“ segir Snorri. Hann bætir við að listamennirnir ætli að gista í safninu í nótt, fremja þar seið og fara með þulur. „Við erum að vinna með ákveðinn spíritisma og verðum sífellt andlegri í verkunum og allri okkar nálgun.“ Uppákomurnar við opnun sýning- arinnar, tónlist og gjörningar, verða teknar upp og sýndar í sýningarferl- inu. Kjarval vitjar bernskuslóða Í opinberri tilkynningu listamann- anna segir að ótrúleg atburðarás hafi hrint þessu sýningarævintýri af stað. Í nóvember 2010 hafi geimskip lent við Búðir á Snæfellsnesi og um borð hafi verið verur úr öðru sól- kerfi. „Kapteinninn var enginn ann- ar en Kjarval endurborinn. Hann hafði ákveðið að vitja bernskuslóða sinna úr fyrra lífi og að hrinda í leið- inni nýrri byltingu af stað. Verk sem útnefndir myndlistarmenn munu leysa af hendi.“ Lofað er líflegri sýningu.  Kjarvalsdeildin opnuð í Nýlistasafninu í kvöld  Margir og ólíkir listamenn „Opna á alls kyns tíðnir“ Á morgun, sunnudag, verður dagskrá á Gljúfrasteini þar sem lesið verður upp úr verk- um sem hafa komið út í söfnum Ritvélarinnar, félags ritlist- arnema við Háskóla Íslands. Upplesturinn hefst klukkan 16 og er aðgangur ókeypis. Fjórir ungir rithöfundar lesa upp úr verkum sínum, þau Gunnhildur Helga Steinþórs- dóttir, Hlín Ólafsdóttir, Þorgerður Ösp Arnþórs- dóttir og Kristján Már Gunnarsson. Tvö safnrit hafa verið gefin út með textum meðlima Ritvélarinnar, Hestar eru tvö ár að gleyma, 2009, og Beðið eftir Sigurði, 2010. Bókmenntir Ritlistarnemar á Gljúfrasteini Frá Gljúfrasteini Þeir Guðmundur Oddur Magn- ússon – Goddur, prófessor, og rithöfundurinn Þröstur Helga- son munu fjalla um Birgi Andr- ésson (1955-2007), list hans og feril, á sýningunni Þjóðleg fag- urfræði í Listasafni Árnesinga á morgun, sunnudag, klukkan 15. Á morgun er jafnframt síð- asti sýningardagur. Þröstur er höfundur bók- arinnar Birgir Andrésson – Í íslensum litum en Goddur er prófessor við Listaháskóla Íslands. Á sýningunni er skoðað hvernig þjóðleg fag- urfræði birtist í verkum 12 listamanna. Myndlist Fjalla um Birgi Andrésson Guðmundur Oddur Magnússon Marglaga – skynjunarskóli er heiti sýningar sem opnuð verð- ur í Kling & Bang, við Hverf- isgötu 42, í dag laugardag, kl. 17. „Efniviðurinn okkar er tengsl,“ segir ein lista- mannanna, Lilja Birgisdóttir. „Þarna verða við- burðir, tilraunir, gjörningar sem örva skynjanir og ýmsar uppá- komur. Til jafnvægis við það finnst okkur mikilvægt að skapa tíma fyr- ir samræður til að núllstilla sig.“ Lærdómsviðburðir verða í gall- eríinu á kvöldin og um helgar en auk þess verður skólinn opinn frá þriðjudegi til sunnudags milli kl. 14 og 18, fram til 20. mars er sýning- unni lýkur. Í skipulögðum viðburðum munu sérstakir gestir skiptast á um að leiða skyntilraunir, efla innsæi og skynlæsi á sem fjölbreytilegastan hátt. Listamennirnir vonast til þess að fólk úr öllum áttum geti komið í skólann, notið og haft gaman af. Skynjunar- skóli í Kling & Bang Viðburðir, tilraunir og örvandi gjörningar Verk úr smiðju listamannanna Eyþór Ingi Jónsson, organisti Ak- ureyrarkirkju, heldur tónleika í Langholtskirkju í Reykjavík, annað kvöld, sunnudag, og hefjast þeir klukkan 20. Á tónleikunum leikur Eyþór Ingi óskalög tónleikagesta. Fyrir nokkrum árum fékk hann þá hugmynd að að halda óskalaga- tónleika. Tónleikar þessir hafa vak- ið mikla athygli og verið mjög vel sóttir. Eyþór auglýsir eftir óskalög- um til að spila á tónleikunum og er hægt að senda óskir á netfangið eythor@akirkja.is. Meðal laga sem hafa lent á efnis- skrá fyrri óskalagatónleika eru Stairway to Heaven, Take Five, Bo- hemian Rhapsody og sálmaspuni. Eyþór Ingi leikur óskalög Listavinafélag Hallgrímskirkju og Bókaútgáfan Opna standa saman að ljósmyndasýningu norska ljósmynd- arans Kens Oppranns sem verður opnuð í forkirkju Hall- grímskirkju á morgun, sunnudag, strax að aflokinni guðsþjónustu. Sýningin nefnist Trú – mannfólkið and- spænis guði sínum. Myndinar á sýningunni eru flestar úr samnefndri bók sem Opna gaf út í fyrra og fékk lofsamlega dóma enda um merkilegt heimildaverkefni að ræða. Kristnir, múslimar, gyðingar, hindúar, búddistar Ken Opprann, sem er fæddur árið 1958, ferðaðist um heiminn í fimmtán ár og ljósmyndaði fólk við allskyns trúarathafnir og á trúarhátíðum. Hann vitjaði sögu- frægra helgistaða og leitaðist við að festa tjáningu trú- arinnar á mynd, hvort sem hana bar fyrir augu á op- inberum stöðum eða birtist honum í einrúmi. Þó að blæbrigðin séu mörg eiga allar þessar myndir sinn sameiginlega svip. Ljósmyndirnar sýna helgihald hjá kristnum mönnum, múslímum, gyðingum, hindúum og búddistum. Opprann nam ljósmyndun við Academy of Arts í San Francisco en starfaði síðan um árabil sem blaða- ljósmyndari við Aftenposten í Ósló. Á síðustu árum hefur hann unnið sjálfstætt og lagt sérstaka áherslu á heim- ildaljósmyndun. Sýningin verður opin á sama tíma og kirkjan alla virka daga frá kl. 9-17 og kl. 10-17 um helgar fram í apríl. Sýning á ljósmyndum Oppranns opnuð í Hallgrímskirkju Trúarbrögð í ljósmyndum Ljósmnd/Ken Opprann Við trúarathöfn Ung stúlka í kvennahópi við athöfn múhameðstrúarmanna í Mið-Austurlöndum. Á morgun, sunnudag, klukkan 17 verða haldnir tónleikar með þátttöku 11 mosfellskra kóra í Guðríðarkirkju. Kórarnir taka höndum saman til að styrkja orgelsjóð nágrannasókn- arinnar þar sem hin nývígða Guðríðarkirkja stendur. Allur aðgangseyrir rennur til smíði Björgvinsorgels. Fram koma Barnakórinn Bjöllurnar, Mosfellskórinn, Kvennakórinn Heklurnar, Álafosskórinn, Kamm- erkór Mosfellsbæjar, Karlakór Kjalnesinga, Kirkjukór Lágafellssóknar, Stöllurnar, Skólakór Varmárskóla, Vorboðarnir og Stefnir. Tónlist Tónleikar 11 kóra í Guðríðarkirkju Guðríðarkirkja í Grafarvogi Bjarni Sigurðsson keramik- listamaður opnar sýningu í Lista- menn gallerí í dag, laugardag, klukkan 16. Galleríið er á Skúla- götu 32. Sýninguna kallar Bjarni Vasa- leik. Á sýningunni er meðal annars vasi sem er listamanninum kær, en vasinn sá var fyrst brenndur í ofni í Danmörku, þar sem Bjarni starfaði, en hefur síðan verið brenndur nokkrum sinnum hér, með mismun- andi glerungi. Alls hefur hann nú verið brenndur níu sinnum, með átta tegundum glerungs. „Þetta er allt í senn leikur með leirinn og leikur með glerung ásamt tilraun til að ná ákveðnu út- liti,“ segir Bjarni. „Leikur glerungs og brennslna einkennir einnig hina vasana á sýn- ingunni í tilraun til að nálgast nátt- úru Íslands,“ segir hann og bætir við að fyrir sér sé glerungsgerð leikur, útkomuna megi alltaf bæta. Leikur með leirinn og með glerunginn Keramiklistamaðurinn Bjarni Sig- urðsson með Ísland í fanginu. Bóksalinn var ekki ánægður með lýsinguna á sér 47 »

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.