Morgunblaðið - 15.04.2011, Side 44

Morgunblaðið - 15.04.2011, Side 44
FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 105. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. „Farið hefur fé betra“ 2. Naglalakkaður drengur vekur … 3. Segir sig úr þingflokknum 4. Zeta-Jones leitar sér lækninga … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Annar hluti fimm hluta kvikmynda- bálks Erlends Sveinssonar um píla- grímsgöngu Thors heitins Vilhjálms- sonar verður frumsýndur í Bíó Paradís í dag. Rætt er við Erlend um bálkinn í blaðinu í dag. »36 Morgunblaðið/Kristinn Pílagrímsganga Thors, annar hluti  Uppselt er á af- mælistónleika Stefáns Hilm- arssonar og Eyj- ólfs Kristjáns- sonar í Salnum 30. apríl. Auka- tónleikum hefur verið bætt við hinn 12. maí. Hinn 4. maí nk. verða liðin 20 ár frá því fé- lagarnir fluttu lagið „Nínu“ í Evró- visjónkeppninni og eru tónleikarnir haldnir af því tilefni. Aukatónleikar hjá Stebba og Eyfa  Önnur sólóplata Elízu Newman, Pie in the Sky, hefur hlotið góðar við- tökur í Bretlandi, m.a. í gagnrýni dag- blaðsins The Sunday Mail. Platan hefur verið í spilun í tvær vikur í Indie Spotlight á iT- unes í Bandaríkj- unum. Elíza kem- ur fram með Helga Björnssyni á Café Rósen- berg 19. apríl, í Fuglabúrinu. Pie in the Sky vel tekið í Bretlandi VEÐUR Akureyri og FH fögnuðu sigri í fyrstu viðureignunum í undanúrslitum N1-deildar karla í handknattleik í gær- kvöldi. Deildarmeistarar Ak- ureyringa höfðu betur á móti HK-ingum í spennandi leik á Akureyri en í Kapla- krika lönduðu FH-ingar öruggum sigri. Liðin eigast við öðru sinni á morgun og þá eiga HK og Fram heima- leiki. »» 2-3 Akureyri og FH fögnuðu sigri Það stefnir allt í að Lionel Messi skori vel yfir 50 mörk fyrir Barcelona á leiktíðinni en argent- ínski töframaðurinn sló markamet hjá Börsungum í vik- unni þegar hann skor- aði sigur- markið gegn Shakhtar. Hann hefur skorað 48 mörk á tíma- bilinu, þar af fjórar þrennur. »4 Messi er óstöðvandi með Börsungum Stjörnumenn eru ekki af baki dottnir í einvíginu gegn KR-ingum um Ís- landsmeistaratitilinn í körfuknattleik karla. Eftir að hafa tapað fyrsta leikn- um með 30 stiga mun náðu Garðbæ- ingar að jafna metin í einvíginu með því að vinna Vesturbæjarliðið með tveggja stiga mun í æsispennandi viðureign á heimavelli sínum í Garða- bæ. »» 4 Stjörnumenn ekki af baki dottnir ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Einar Jóhannesson, klarínettuleik- ari hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands, segist kveðja Háskólabíó með sökn- uði og hann finni fyrir ljúfsárum kenndum, en tónleikar Sinfóníu- hljómsveitarinnar í gærkvöldi voru síðustu tónleikar sveitarinnar í stóra sal bíósins eftir nær hálfrar aldar starfsemi í húsinu. „Þetta hús hefur verið starfsvettvangur minn í rúm 30 ár, hérna hef ég náð að þroskast sem listamaður og fengið alls konar tækfæri,“ segir Einar. „Ég hugsa með miklu þakklæti til hússins.“ Að sögn Einars hefur farið mikil orka hjá Sinfóníuhljómsveitinni í að búa til tónlist í Háskólabíói og líkja megi flutningunum í tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu við það að fara úr móðurfaðmi. „Þetta er eins og að flytja að heiman og svolítið út í óvissuna, eins og að fara út í heim, því Harpa er heimur út af fyrir sig. Þetta eru mikil tímamót og ég verð að viðurkenna að ég er svolítið meyr.“ Nánd og samstaða Einar segir að margir tónlistar- menn hafi talað illa um hljómburð- inn í Háskólabíói en síðan hafi marg- ir listamenn komið salnum til varnar og bent á að þetta væri ekki versta húsið. Vissulega væru aðstæðurnar frumstæðar fyrir svona stóra hljóm- sveit. Erfitt væri með upphitun og að leggja frá sér hljóðfæri vegna plássleysis, en á móti kæmi mikil nánd og samstaða í kjallaranum, sem væri allt í senn kaffistofa, upp- hitunarherbergi, hljóðfærageymsla og fleira. „Þröngt mega sáttir sitja,“ segir hann og bætir við að menn hafi alltaf þurft að leggja mikið á sig í Háskólabíói til að búa til góðan hljóm. Því fagni menn því að komast í Hörpu þar sem hljómburður sé góður. Þar geti hljómsveitin líka spilað tónverk sem hún hafi varla getað gert í Háskólabíói. Tónverk Jóns Leifs þurfi til dæmis mikið rými. „Ég bíð eftir þeirri stundu þegar við flytjum Heklu Jóns Leifs í Eldborg,“ segir hann. „Það verður heimsviðburður.“ Gunnar allt í öllu Einar segir að hann hafi snemma fengið áhuga á hljómsveitinni. „Ég byrjaði að smygla mér á sinfóníu- tónleika í Háskólabíói 10 ára gam- all,“ rifjar hann upp, en þá var Gunnar Þjóðólfsson umsjónarmaður hljómsveitarinnar og dyravörður. Gunnar starfaði manna lengst með hljómsveitinni en fór á eftirlaun fyr- ir nokkrum árum. „Gunnar smeygði mér alltaf inn mjög ástúðlega en ákveðið, en hann var algerlega ómissandi hluti hljómsveitarinnar og starf hans fyr- ir hljómsveit- ina er ómet- anlegt.“ Eins og að fara úr móðurfaðmi  Sinfóníuhljómsveitin flytur í Hörpu eftir 50 ára starfsemi í Háskólabíói Morgunblaðið/Kristinn Kveðjustund Síðustu tónar Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Háskólabíói voru í gærkvöldi en hljómsveitin hefur starfað þar síðan 1961. Fyrstu tónleikar Sinfóníu- hljómsveitarinnar í Háskólabíói fóru fram 12. október 1961 og á tæplega hálfri öld hefur sveitin haldið þar yfir 1.400 tónleika. Með tilkomu Háskólabíós eignaðist Sinfóníuhljómsveitin í fyrsta sinn fastan samastað til æfinga og tónleikahalds, og þar með aðstöðu til að þróa starf sitt og flytja helstu meistaraverk tónbók- menntanna, en tónar hennar heyr- ast þar ekki lengur. Yfir 1.400 tónleikar Í BÍÓINU Í HÁLFA ÖLD Á laugardag Suðvestanátt, 8-13 m/s og víða él, þó síst austan- lands. Hiti 0 til 5 stig við ströndina en vægt frost til landsins. Á sunnudag SV 5-10. Áframhaldandi éljagangur, hiti breytist lítið. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 4-10 m/s og él eða slydduél, þó síst norðaustantil á landinu. Kólnandi, og hiti víða 0 til 4 stig en vægt frost til landsins síðdegis.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.