Morgunblaðið - 17.06.2011, Blaðsíða 33
DAGBÓK 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2011
Sudoku
Frumstig
3 6 7 2
7 1 8 5
5 8 3 1 7
9 1 6 5
7 2
8 6 2 5
5 6 1
9
5 9
9 3 6
4 6 1 5 8
4 6
4 6
7 9
1 3
7 1 5
6 1 4 8
5 3
3 8 7
8 6 2
6
7 4 1
7 2 3 6
6 5 1 7 3
3 5
8 2
5 6 8 4 3 2 1 9 7
7 3 2 1 6 9 4 5 8
4 9 1 7 5 8 6 3 2
2 5 6 9 4 7 3 8 1
9 1 3 5 8 6 7 2 4
8 7 4 2 1 3 5 6 9
6 4 5 8 2 1 9 7 3
1 8 7 3 9 5 2 4 6
3 2 9 6 7 4 8 1 5
8 9 7 3 2 4 6 1 5
4 1 6 5 8 7 3 9 2
2 5 3 6 9 1 8 7 4
7 4 9 2 6 5 1 8 3
3 8 1 7 4 9 2 5 6
5 6 2 8 1 3 9 4 7
9 2 8 4 5 6 7 3 1
6 3 5 1 7 8 4 2 9
1 7 4 9 3 2 5 6 8
8 7 4 9 6 1 5 2 3
3 1 6 5 7 2 4 9 8
5 2 9 8 4 3 1 6 7
9 5 1 7 2 8 3 4 6
2 4 3 6 1 5 7 8 9
7 6 8 3 9 4 2 1 5
4 8 5 1 3 9 6 7 2
6 3 2 4 8 7 9 5 1
1 9 7 2 5 6 8 3 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 17. júní, 168. dagur
ársins 2011
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gef-
ast, leitið og þér munuð finna, knýið
á, og fyrir yður mun upplokið verða.
(Matt. 7, 7.)
Víða er lagt mikið upp úr góðumalmenningssamgöngum, en það
á ekki við um Reykjavík. Erlendis er
gjarnan lögð áhersla á tíðar ferðir
vagna eða lesta, því þá skiptir ekki
svo miklu máli þó að viðskiptavinur
missi af vagninum – sá næsti er
handan við hornið. Hjá Strætó er
ferðum fækkað yfir sumartímann,
sem þýðir að farþegi, sem þarf að
fara á milli vagna, þarf að bíða í 20 til
60 mínútur eftir næsta vagni þegar
fyrri vagninn er ekki á áætlun. Oftar
en ekki er fólk því háð einkabílnum.
x x x
Þar til fyrr í vikunni man Víkverjisíðast eftir sér í strætó þegar
Kjartan L. Pálsson, fyrrverandi
blaðamaður, var strætóstjóri. Þá
voru vagnarnir á tíma, ef Víkverji
man rétt, og ef menn voru að verða
seinir á æfingu eða í leik stoppaði
Kjartan sem næst vellinum, þó þar
væri engin stoppistöð, til að auð-
velda eftirleikinn. Þá var strætó fyr-
ir fólkið. Nú virðist strætó bara fyrir
fólk eins og það sem stjórnar borg-
inni um þessar mundir, fólk sem lít-
ur út fyrir að hafa ekkert þarfara að
gera en eyða tíma og fjármunum
borgarbúa í vitleysu.
x x x
Þegiðu, sagði strætóstjóri við far-þega í vikunni og bætti svo við:
Shut up. Hann var á eftir áætlun og
sætti sig ekki við að útlendingurinn
talaði á meðan hann kallaði skilaboð
aftur í vagninn. Áttaði sig svo á
frumhlaupinu og hleypti manninum
með ferðatöskuna úr vagninum á
rauðu ljósi á Snorrabrautinni.
x x x
Víkverji átti leið úr Vesturbænumí Reykjavík að Kópavogsskóla.
Sjálfsagt vegna seinkunarinnar varð
hann að bíða á Hlemmi í rúmlega
hálftíma og kom á áfangastað ríflega
klukkutíma eftir að lagt var af stað.
Venjulega tekur það um 10 mínútur
að aka leiðina en að það taki klukku-
tíma að komast frá Hjarðarhaga að
Digranesvegi og það ekki einu sinni
á annatíma er auðvitað alveg út í
hött. Stjórnendur borgarinnar eru á
öðru máli. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 flæðarmál, 8
slitið, 9 svarar, 10 hestur,
11 sjúga, 13 týna, 15
priks, 18 hótar, 21 tangi,
22 ákæra, 23 krók, 24
flakkari.
Lóðrétt | 2 eins, 3 hreinsa,
4 klettur, 5 leggja í rúst, 6
vað á vatnsfalli, 7 tengja
saman, 12 ganghljóð, 14
aðferð, 15 poka, 16 stétt,
17 kjaftæði, 18 login, 19
tappa, 20 suð.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 þjark, 4 hægur, 7 áflog, 8 rykug, 9 góð, 11 lært, 13
assa, 14 ásátt, 15 sjal, 17 arma, 20 ótt, 22 jagar, 23 aukið, 24
lúnar, 25 annan.
Lóðrétt: 1 þjáll, 2 aflar, 3 kugg, 4 hörð, 5 gikks, 6 regla, 10
ófátt, 12 tál, 13 ata, 15 skjól, 16 angan, 18 ríkan, 19 arðan, 20
órór, 21 taða.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Hönnuð atburðarás.
Norður
♠KD54
♥ÁG3
♦D4
♣K1075
Vestur Austur
♠862 ♠97
♥D5 ♥10962
♦108763 ♦K952
♣942 ♣ÁDG
Suður
♠ÁG103
♥K874
♦ÁG
♣863
Suður spilar 4♠.
Eitt er að blekkja til að villa á sér
heimildir. En blekking kemst á æðra
stig þegar kveikt er á ranghugmynd,
sem fær óvininn til að feta fyrirfram
markaða óheillabraut. Ímyndasmiðir
kalla slíkt að „hanna atburðarás“.
Brasilíumaðurinn Gabríel Chagas
var í hlutverki seiðskrattans í austur.
Suður opnaði á 13-15 punkta grandi og
endaði svo í 4♠ eftir hálitaspurningu
norðurs. Útspilið var ♣2 (þriðja hæsta),
sagnhafi lét smátt úr borði og Chagas
fékk fyrsta slaginn á ♣G. Og svo?
Chagas tók á laufás og spilaði tíg-
ulníu! Suður reiknaði dæmið nákvæm-
lega eins og fyrir hann var lagt: rauk
upp með ♦Á, tók trompin og svínaði
♣10. Þannig fékk Chagas alla þrjá
laufslagina og líka á ♦K.
En útspilið – þriðja hæsta? Gleymdi
suður því? Greinilega.
17. júní 1811
Jón Sigurðsson, síðar nefndur
forseti, fæddist á Hrafnseyri
við Arnarfjörð í Vestur-
Ísafjarðarsýslu. Foreldrar
hans voru Sigurður Jónsson
prestur og Þórdís Jónsdóttir.
Jón lést í desember 1879.
17. júní 1911
Háskóli Íslands var settur í
fyrsta sinn. Jafnframt voru
Prestaskólinn, Læknaskólinn
og Lagaskólinn lagðir niður.
Fyrsta árið voru 45 nem-
endur í Háskólanum, þar af
ein kona.
17. júní 1944
Lýðveldishátíðin. Stofnun ís-
lenska lýðveldisins var form-
lega lýst yfir á þingfundi á
Lögbergi á Þingvöllum.
Sveinn Björnsson var kjörinn
fyrsti forseti Íslands. Hátíð-
argestir voru um 25 þúsund
(landsmenn voru þá um 127
þúsund). Þrátt fyrir úrhell-
isrigningu fram eftir degi
þótti hátíðin takast vel.
17. júní 2000
Þjóðhátíðarskjálftinn. Jarð-
skjálfti sem mældist 6,5 stig
og átti upptök í Holtum í
Rangárvallasýslu reið yfir
Suðurland kl. 15.41 og fannst
víða. Enginn slasaðist en hús
skemmdust, m.a. á Hellu,
hveravirkni breyttist, tugir
tonna af gleri brotnuðu,
minkar sluppu úr búrum og
„útsæðið hoppaði upp úr
moldinni,“ eins og sagði í DV.
Annar stór skjálfti varð fjór-
um dögum síðar.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
„Mér finnst það forréttindi að eiga afmæli 17. júní.
Það er alltaf flaggað fyrir mér,“ sagði Ásta Sig-
urðardóttir, hundaræktandi í Dalsmynni á Kjal-
arnesi. Hún fæddist 17. júní 1944 og því jafngömul
íslenska lýðveldinu. Þegar hún var barn trúði hún
því að það væri flaggað fyrir henni. En var næði til
að halda upp á afmælið hennar?
„Það var nú málið, það var aldrei haldið upp á
afmælið,“ sagði Ásta, sem ólst upp á Hvamms-
tanga. Hún bætti úr því og hélt fjölmennar veislur
þegar hún varð 40, 50 og 60 ára, enda vinahóp-
urinn stór. Ásta á sjö börn og 19 barnabörn.
„Bestu afmælisgjöfina fékk ég þegar ég varð þrítug,“ sagði Ásta.
„Þá eignaðist ég dóttur, Sesselju Salóme Tómasdóttur, og nú höldum
við alltaf upp á afmælin okkar saman.“ En hvernig finnst Ástu að jafn-
aldra hennar, íslenska lýðveldinu, hafi farnast um ævina?
„Mér fannst forsetinn okkar gera stórkostlega góða hluti að grípa
þarna inn í Icesave-málið. Hann hefði mátt gera það fyrr. Mér finnst
ríkisstjórnin þurfa að bæta sig. Það þarf að laga skattleysismörkin og
skapa meiri atvinnu. Það er nú málið. Maður þarf ekki að vera neinn
stjórnmálafræðingur til að sjá það,“ sagði Ásta. gudni@mbl.is
Ásta Sigurðardóttir er 67 ára í dag
Fékk dóttur í afmælisgjöf
Nýirborgarar
Áshildur Bærings
Snæbjörnsdóttir
fæddist 10. mars sl. kl.
8.53. Hún vó 3.570 g
og var 51 cm löng.
Foreldrar hennar eru
Árný Anna Svav-
arsdóttir og Snæbjörn
Freyr Valbergsson.
Flóðogfjara
17. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 1.14 0,3 7.16 3,7 13.21 0,3 19.39 4,1 2.56 24.02
Ísafjörður 3.21 0,2 9.09 2,0 15.21 0,3 21.30 2,4 1.34 25.34
Siglufjörður 5.29 0,0 11.56 1,2 17.38 0,3 23.53 1,4 1.17 25.17
Djúpivogur 4.13 2,0 10.23 0,3 16.48 2,4 23.04 0,5 2.11 23.46
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Leggðu öll spilin á borðið því aðeins
þannig færðu vinnufélaga þína á þitt band.
Leyfðu þeim hinsvegar að blómstra í einkalíf-
inu.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú munt að öllum líkindum taka farsæl-
ar ákvarðanir varðandi vinnuna í dag eða á
morgun. Dæmið gengur upp.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú bregst of harkalega við hlut-
unum. Skemmtu þér ef þú getur. Leggðu allt
kapp á að finna farsæla lausn svo þú getir
fundið frið í hjarta þínu.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Ef ágreiningur rís upp meðal fjöl-
skyldumeðlima þarf að komast að mála-
miðlun. Fólk er tilfinningasamara en ella
þessar vikurnar.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Fólk, hlutir og aðstæður sem sem þér
finnast vanalega aðlaðandi, eru beinlínis
freistandi núna. Varastu að senda öðrum
misvísandi skilaboð.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Sýndu mikla varúð í fjármálum þessa
dagana. Oft var þörf en nú er nauðsyn að þú
gerir það sem til þarf til að bæta heilsufar
þitt.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Til er máltæki sem segir, ekki reyna að
selja það sem þegar er selt. Hafðu verkefnin
innan þess ramma sem þú ræður við.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Einhver mótvindur verður næstu
daga. Gefðu þér tíma til þess að kynna þér
málavöxtu í deilumáli.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Láttu ekki hugfallast þótt þér
finnist umbun erfiðis þíns láta á sér standa.
Reyndu að huga að framtíðinni og hugsa um
það sem skiptir meira máli.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert í þægilegu draumkenndu
ástandi og því munu dagdraumar setja svip
sinn á daginn hjá þér. Vissulega er vinnan
mikils virði, en meira skiptir þó góð heilsa.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Nú er þér óhætt að setja markið
hátt ef þú gætir þess aðeins að ganga ekki
fram af þér. Haltu þínu striki.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Aðrir geta hjálpað þér við að takast á
við skapbresti þína. Ekki taka áhættu þó að
þú viljir vera sjálfstæð/ur.
Stjörnuspá
1. Rf3 f5 2. c4 Rf6 3. g3 e6 4. Bg2 d5 5.
0-0 Bd6 6. Rc3 c6 7. d3 0-0 8. e4 dxe4 9.
dxe4 e5 10. Db3 Db6 11. Dc2 Rxe4 12.
Rxe4 fxe4 13. Rg5 Bf5 14. Bxe4 g6
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Kaupmanna-
höfn. Íslenski stórmeistarinn Henrik
Danielsen (2.545) hafði hvítt gegn Dan-
anum Martin Haubro (2.003). 15. c5!
Bxc5 hvítur hefði einnig unnið eftir
15. … Dxc5 16. Db3+. 16. Dc4+ Kh8 17.
Rf7+ Kg7 18. Bh6+ Kf6 19. Rg5! Rd7
20. Bxf5 Kxf5 21. De6 mát! Henrik er
upphaflega frá Danmörku og varð stór-
meistari í skák árið 1996. Hann tefldi í
fyrsta skipti fyrir Íslands hönd á Ól-
ympíumóti í skák árið 2006 en skömmu
áður hafði hann fengið íslenskan rík-
isborgararétt. Á síðustu misserum hef-
ur hann teflt mikið á alþjóðlegum mót-
um ásamt því að sinna skákþjálfun.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.