Morgunblaðið - 17.06.2011, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1 7. J Ú N Í 2 0 1 1
Stofnað 1913 140. tölublað 99. árgangur
Morgunblaðið/Sverrir
Bændur Erfitt ástand er víða hjá
bændum norðanlands.
Álag á bændur á Norðausturlandi
hefur verið mikið, bæði andlegt og
líkamlegt, að því er fram kemur á
vef Búgarðs, ráðgjafarþjónustu í
landbúnaði. Ástand hefur verið erf-
itt vegna kulda og lítillar sprettu.
Segir þar að full ástæða sé til að
hvetja nágranna til að líta hver til
með öðrum. „Það er þreyta í fólki.
Í svona ástandi skiptir mannlegi
þátturinn miklu máli því menn
verða að hafa andlegt þrek til að
standa þessa erfiðleika af sér,“ seg-
ir María Svanþrúður Jónsdóttir,
héraðsráðunautur hjá Búgarði.
„Þetta er alvarlegt ástand. Um
er að ræða stórt landsvæði og
marga bændur og þetta er óvenju
langur kuldakafli,“ segir Haraldur
Benediktsson, formaður Bænda-
samtaka Íslands. Eftir helgi munu
Bændasamtökin reyna að meta að-
stæður og þá möguleika sem eru
fyrir hendi.
„Það gæti orðið afurðatjón og út-
lit fyrir heyskap er í lágmarki. Fólk
er útkeyrt af löngu harðindavori en
andlega hliðin er sá þáttur sem
þarf ekki síður að gefa gaum en
grassprettunni,“ segir Haraldur.
Undir það tekur Eiríkur Blöndal,
framkvæmdastjóri Bændasamtaka
Íslands. „Þetta er mikil vinna og
álag hefur verið á mönnum.“
kristel@mbl.is »4
Mikið and-
legt álag á
bændum
Kuldakast ógn-
ar heyfengnum
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Hörð gagnrýni kemur fram í grein-
argerð sex sérfræðinga sem skipaðir
voru af sjávarútvegsráðherra til að
meta hagræn áhrif af frumvarpi til
nýrra laga um stjórn fiskveiða. Sér-
fræðihópurinn mælir eindregið gegn
takmörkunum á framsali aflaheim-
ilda og telur bann við veðsetningu
óráðlegt. Hópurinn gerði könnun á
áhrifum frumvarpsins á rekstur
nokkurra útgerðarfyrirtækja og
sýna niðurstöðurnar að áhrifin eru
almennt til hins verra.
Fram kemur það álit hópsins að
takmörkun á framsali og viðskiptum
með aflaheimildir, bann við veðsetn-
ingu aflaheimilda og byggðasjónar-
mið við stjórnun fiskveiða hafi í för
með sér kostnað fyrir núverandi fyr-
irtæki í greininni.
Frumvarp um heildarendurskoð-
un á fiskveiðistjórnun var lagt fram á
Alþingi nú í vor, en skömmu fyrir
þinglok var ákveðið að fresta frekari
meðferð þess á Alþingi til haustsins.
Sérfræðihópurinn lagði í sérstaka
könnun á áhrifum frumvarpsins á
rekstur nokkurra útgerðarfyrir-
tækja. Bæði hærra veiðigjald og
flutningur afla frá núverandi hand-
höfum veiðiheimilda í potta hefur
neikvæð áhrif á rekstur þeirra fyr-
irtækja sem nú ráða yfir aflaheim-
ildum, segir í skýrslunni. Á þetta
einnig við um þá sem eru í krókaafla-
markskerfinu, vegna þess að fyrir-
tæki í því séu almennt mjög við-
kvæm fyrir hækkun á veiðigjaldi.
Verði frumvarpið að lögum hefðu
þau mikil áhrif á efnahagslega stöðu
íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja
vegna þess að verðmæti aflaheimilda
muni lækka, verði lögin samþykkt,
og því muni raunveruleg eiginfjár-
staða fyrirtækjanna veikjast. Sam-
kvæmt mati sérfræðihópsins munu
ákvæði frumvarpsins leiða til rúm-
lega 50% lækkunar á virði aflaheim-
ilda.
Áhrif breytinga til hins verra
Sérfræðihópur sjávarútvegsráðherra gagnrýnir fyrirhugaðar breytingar í fiskveiðistjórnun
Mælir eindregið gegn takmörkunum á framsali aflaheimilda og telur bann við veðsetningu óráðlegt
Gegn nýliðun
» Nokkur ákvæði frumvarps-
ins munu hafa áhrif á nýliðun,
segir í greinargerðinni. Tak-
markað framsal og bann við
veðsetningu heimilda geri ný-
liðun erfiða. Að þessu leyti sé
frumvarpið fjandsamlegt nýlið-
un.
Morgunblaðið/Eggert
Saman Fjölskyldan í lok ferðar í Valsheimilinu í gær: Krummi, Sveinn
Benedikt Rögnvaldsson og Signý Gunnarsdóttir.
Hlaupurunum fjórum, Signýju
Gunnarsdóttur, móður Krumma,
Sveini Benedikt Rögnvaldssyni,
föður hans, Ölmu Maríu Rögn-
valdsdóttur, frænku hans, og Guð-
mundi Guðnasyni var fagnað mik-
ið í Valsheimilinu í gær þegar
hlaupinu í kringum landið til
styrktar krabbameinssjúkum
börnum lauk.
Jón Gnarr borgarstjóri tók á
móti hópnum ásamt fjölda fólks,
fjölskyldumeðlimum og stuðnings-
mönnum. Eftir að borgarstjórinn
og fleiri höfðu lokið ræðum sínum
gaf slökkviliðið á höfuðborgar-
svæðinu 450 þúsund krónur til
styrktar félaginu. Hlaupurum leið
mjög vel andlega eftir að hafa
hlaupið um 1.350 kílómetra. »4
„Mikill fögnuður
í Valsheimilinu“
Hetjurnar fjórar komnar heim
Börn af leikskólanum Kvistaborg brostu sínu
blíðasta og veifuðu fánum í tilefni af þjóðhátíð-
ardeginum. Með skrautlegan höfuðbúnað og
andlitsmálningu léku þau sér utandyra í blíð-
skaparveðri og í tilefni hátíðahaldanna var m.a.
boðið upp á hoppkastala sem vakti mikla kátínu.
Þjóðhátíðardeginum fagnað með fána á lofti
Morgunblaðið/Eggert
Jón Sigurðsson 200 ára
ævi og áhrif