Morgunblaðið - 16.09.2011, Blaðsíða 1
HEIMILI OG HÖNNUN
HUGMYNDIR AÐ LAUSNUM FYRIR
HVERN SEM ER Í 40 SÍÐNA SÉRBLAÐI
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Sextíu kennurum frá Brekkubæjarskóla á
Akranesi hefur verið gert að greiða rúmlega
fjórar milljónir króna vegna pöntunar á hót-
elgistingu í Boston, en hópurinn kemst ekki á
áfangastað vegna þess að Iceland Express
felldi niður flugferðir til Boston. Ekki tókst að
finna aðra leið til að koma farþegum á áfanga-
stað; því var námsferð kennaranna felld niður.
Hildur Björnsdóttir, talsmaður kennaranna,
segir að sér hafi verið bent á að samkvæmt
reglugerð um réttindi flugfarþega beri flug-
félagi skylda til að koma flugfarþegum til
áfangastaðar með öðrum leiðum ef flug er fellt
niður. Iceland Express hafi ekki virt þessa
Valdís Ásta Aðalsteinsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Flugmálastjórnar, segir að á síðasta ári
hafi Flugmálastjórn fengið úrskurðarvald í
málum af þessu tagi. Hún segir að öll málin eigi
það sammerkt að ekki hafi náðst samkomulag
milli farþega og flugrekenda, en mörg mál
leysist án formlegs úrskurðar. Valdís segir að
réttur farþega sé sterkur og flest þessara mála
falli þeim í vil, en þó ekki öll. Hægt er að áfrýja
úrskurði til innanríkisráðuneytisins og Valdís
segir að nokkur mál hafi farið þangað. Hún
segir að allmargar kvartanir séu enn óaf-
greiddar, en málin taki oft talsverðan tíma.
Flugfélögin hafa þurft að greiða milljónir
króna í bætur til farþega.
MÞurfa að greiða hótelinu 4 milljónir »4
reglugerð. „Við höfum farið fram á að flug-
félagið borgi þennan kostnað en þeir neita því.“
Hótelkostnaður er ekki inni í umræddri
reglugerð en Hildur segir augljóst að kostn-
aðurinn sé tilkominn vegna þess að flugfélagið
kom þeim ekki á áfangastað. „Við erum nú að
leita ráða hjá lögfræðingum um næstu skref.“
44 kvartanir vegna Iceland Express
Það sem af er þessu ári hefur Flugmála-
stjórn afgreitt 62 kvartanir frá farþegum
vegna þess að flugi hefur verið aflýst, vegna
seinkana á flugi eða af öðrum ástæðum. Í flest-
um tilvikum hefur flugfélögunum verið gert að
greiða bætur. Af þessum 62 kvörtunum eru 44
vegna Iceland Express, 17 vegna Icelandair og
ein vegna Flugfélags Íslands.
Fjórar milljónir í súginn
Hópi fólks gert að greiða kostnað vegna pöntunar á hótelgistingu í Boston
en hann komst ekki á áfangastað þar sem Iceland Express felldi niður flugið
Ferðamenn í hvalaskoðun á Ömmu Siggu, báti Gentle Giants á Húsa-
vík, brostu allan hringinn í gær þegar stór hnúfubakur lék listir sínar
við bátshliðina. Amma Sigga var kyrr þegar hvalurinn kom upp í um
tíu metra fjarlægð. Það var líkt og hann væri að skoða ferðafólkið, að
sögn Stefáns Guðmundssonar, eiganda Gentle Giants. Mikið er af hval
á Skjálfanda og verður hvalaskoðun haldið áfram út mánuðinn.
Ljósmynd/Stefán Guðmundsson
Hnúfubakur heillaði ferðamenn við Húsavík
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Nokkrir einstaklingar, um fimm talsins, sem
ekki hafa fengið endurreiknuð gengistryggð
lán vegna þess að þau hafa verið gerð upp fyr-
ir yfirfærslu eigna og skulda viðskiptabank-
anna í ný félög hafa leitað til umboðsmanns
skuldara. „Ef þeir eru ekki fleiri ætti að vera
auðveldara fyrir
bankana að sýna
sanngirni og end-
urreikna þessi
lán,“ segir Svan-
borg Sigmars-
dóttir, sviðsstjóri
kynningarsviðs
umboðsmanns
skuldara.
Svanborg segir
að sumir þeirra
sem þangað hafi
leitað hafi verið
hræddir um að
krónan myndi falla
meira og séð fram
á að geta ekki
staðið í skilum með erlendu lánin. Þeir hafi
tekið lán í íslenskum krónum í staðinn og séu
nú að borga af þeim í þessum bönkum.
Starfsmenn umboðsmanns skuldara hafa
haft samband við fjármálafyrirtækin og reynt
að fá þau til að endurreikna lánin og endur-
greiða. Bankarnir hafa vísað þessum málum
frá sér, á skilanefndir gömlu bankanna, eins
og fram kom í viðtali við Boga Ragnarsson
kennara í Morgunblaðinu í gær. Þeir segjast
hafa tekið við tilgreindum eignum og skuld-
bindingum og þar á meðal séu ekki kröfur
vegna viðskipta sem gerð voru upp í tíð gömlu
bankanna.
Svanborg segir að þessi afgreiðsla sé
ósanngjörn gagnvart þessum fáu einstak-
lingum en segir ekki hægt að fullyrða að hún
gangi gegn lögunum. „Þetta hefur ekki borið
árangur en við höfum ekki gefist upp og höld-
um áfram.“
Mál hjá
umboðs-
manni
Telja ósanngjarnt að
endurreikna ekki lánin
Bílalán
» Þeir sem skuld-
uðu bílalán hjá
dótturfélögum
bankanna hafa
fengið endurreikn-
ing og eftir atvikum
endurgreiðslu þótt
þau hafi verið gerð
upp fyrir yfirfærslu
eigna og skulda til
nýju bankanna.
Sala á nýjum íslenskum bjór hefst í
dag. Þrír bandarískir frumkvöðlar
standa að baki „Einstök Beer“ sem
bruggaður er hjá Víking á Akureyri.
Þremenningarnir eru stórhuga og
vonast til að gera góða hluti á mark-
aði fyrir handverksbjór.
Bjórinn verður innan skamms
kominn í sölu á mörkuðum sem
spanna um 40 milljónir neytenda og
ætlunin er að gera „Einstök“ að
þekktustu útflutningsvöru Íslands á
næstu 3-5 árum.
Athafnamennirnir hyggjast m.a.
nýta sér ímynd landsins við mark-
aðssetninguna og segja að ólíkt
flestum öðrum bjórtegundum þurfi
ekki að teygja sannleikann til að
kenna „Einstök“ við hreinleika og
fegurð.
Vaxandi markaður er fyrir hand-
verksbjór en hann höfðar til ein-
staklinga sem sækjast eftir fjöl-
breyttari drykkjarupplifun og
blæbrigðaríkari bjór en stóru al-
þjóðlegu merkin bjóða upp á. »18
Kenna öllum að segja „skál“
Bandarískir frumkvöðlar standa að baki „Einstök Beer“
Ætla að gera bjórinn að þekktustu útflutningsvöru Íslands
Stórhuga „Einstök Beer“ fer brátt í
sölu á mjög stórum mörkuðum.
Flokkafylking vinstri- og miðju-
manna vann þingkosningarnar í
Danmörku í gær og hlaut nauman
meirihluta á þingi, alls 92 sæti af 179.
Hin 45 ára gamla Helle Thorning-
Schmidt, leiðtogi jafnaðarmanna,
verður forsætisráðherra, fyrst
kvenna í sögu þjóðarinnar.
„Þetta er stórkostlegt,“ sagði
Thorning-Schmidt í gærkvöldi en
fráfarandi forsætisráðherra, Lars
Løkke Rasmussen, hafði þá viður-
kennt ósigur sinn. Hann gat þó yljað
sér við að flokkur hans, Venstre, hélt
sínum hlut og er áfram stærstur á
þingi með 47 sæti. Jafnaðarmenn
töpuðu nokkru fylgi og hefur það
ekki verið minna í meira en öld. »20
Stjórnin féll og Thorning-
Schmidt tekur við völdum
Vinstriflokkar til valda á ný
Kosningar í Danmörku
Þingsæti
alls: 179
Hægri- og
miðjuflokkar
Vinstri- og
miðjuflokkar
92 87
Stofnað 1913 217. tölublað 99. árgangur
F Ö S T U D A G U R 1 6. S E P T E M B E R 2 0 1 1