Morgunblaðið - 16.09.2011, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Borgar sig að rannsaka svik
Bóta- og tryggingasvik fara vaxandi í Noregi og líklegt að sama sé að gerast hér
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Samtök fjármálafyrirtækja, SFF, efndu í gær til
ráðstefnu um vátryggingasvik og voru frummæl-
endur fjórir norskir sérfræðingar. Fram kom í
máli Hans-Jacobs Anonsen, sérfræðings hjá syst-
ursamtökum SFF í Noregi, að fjárhæðirnar
skiptu tugmilljörðum ísl. kr. og norsk trygginga-
félög hefðu fjölgað rannsakendum sínum úr 23 ár-
ið 1997 í 65 á þessu ári. Alls hefðu verið upplýst um
802 svikamál í fyrra, flest á sviði líftrygginga.
Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Trygg-
ingastofnunar ríkisins, tók þátt í fundinum. Er vit-
að hvert umfang svika er hér á landi?
„Nei, en við getum dregið ályktanir af könn-
unum og reynslu annarra,“ segir Sigríður Lillý.
„Oft er talað um að hlutfall svika sé um 4% af
heildinni, aðrir hafa farið alveg niður í hálft pró-
sent. En hvor talan sem er notuð þá eru þetta
miklir peningar. Norðmennirnir sögðu að fyrir
hverja krónu sem varið væri í rannsókn á svikum
fengjust fimm inn. Það er engin ástæða til að ætla
að við séum ekki svipuð og aðrar þjóðir í þessum
efnum. Við sjáum sífellt stærri tölur hjá okkur ár
frá ári, með sífellt fleiri mál til rannsóknar.“
Sigríður sagði að verja þyrfti meiri vinnu í rann-
sóknir á bóta- og tryggingasvikum hér. „Við erum
núna með tvo í fullu starfi við þetta og einn í hálfu.
Við komumst ekki yfir það sem við teljum að þyrfti
að gera en það er auðvitað hagræðingarkrafa á öll-
um stofnunum.“
„Norðmennirnir sögðu að fyr-
ir hverja krónu sem varið væri
í rannsókn á svikum fengjust
fimm inn.“
Sigríður Lillý Baldursdóttir.
„Loksins tókst þetta,“ sagði Ómar Þ. Ragnarsson fréttamaður um mynd
sem hann náði úr flugvél í fyrradag. Hún sýnir Kollóttudyngju fremst, svo
fjalladrottninguna Herðubreið og við hlið hennar Herðubreiðartögl.
Fjærst rís Snæfellið, hæst íslenskra fjalla utan jökla. Kollóttadyngja er ein
af mörgum dyngjum á einu mesta dyngjusvæði heims. Venjulega fellur
hún inn í svart landslagið að sumri og hvítt að vetri en í fyrradag skar
hún sig úr vegna fölsins sem fallið var á dyngjukollinn og sást mjög
greinilega.
Dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn í dag, en
hann ber upp á fæðingardag Ómars Þ. Ragnarssonar, 16. september. Deg-
inum verður fagnað með fjölbreyttri dagskrá víða um land. »12
gudni@mbl.is
Fjalladrottningin og hirð hennar
Ljósmynd/Ómar Þ. Ragnarsson
Bandaríkin munu
ekki beita Íslend-
inga viðskipta-
þvingunum vegna
hvalveiða, en
áfram verður
þrýst á að hval-
veiðum verði
hætt. Þetta kom
fram í skýrslu
Baracks Obama,
forseta Banda-
ríkjanna, til fulltrúadeildar Banda-
ríkjaþings í gærkvöldi.
„Aðgerðir Íslendinga ógna vernd-
un dýra í útrýmingarhættu og grafa
undan fjölhliða tilraunum til þess að
tryggja verndun hvala um allan
heim. Hvalveiðar Íslendinga í at-
vinnuskyni og viðskipti með hvala-
afurðir draga úr gildi verndaráætl-
ana,“ sagði forsetinn við þingmenn.
Sagðist hann ekki ætla að fara
fram á það við fjármálaráðherra
Bandaríkjanna að setja við-
skiptatakmarkanir á íslenskar
vörur. Þess í stað beinir Obama því
til embættismanna hvort rétt sé að
ferðast til Íslands og ræða hvalveiði-
mál við Íslendinga þegar þeir eru
þar staddir.
Gary Locke, viðskiptaráðherra
Bandaríkjanna, benti sérstaklega á
Ísland samkvæmt svonefndu Pelly-
ákvæði, vegna hvalveiðanna. Pelly-
ákvæðið er hluti af þarlendri löggjöf
um friðun sjávardýra og samkvæmt
því geta Bandaríkin beitt þau lönd
viðskiptaþvingunum sem brjóta
gegn því.
Engar
viðskipta-
þvinganir
Barack
Obama
Þó þrýst á Íslendinga
Guðmundur Steingrímsson alþing-
ismaður hefur að undanförnu átt í við-
ræðum við ákveðna fulltrúa Besta
flokksins og ákveðna meðlimi úr
stjórnlagaráði um hugsanlega stjórn-
málasamvinnu á landsvísu.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru þessar umræður ekki
langt á veg komnar og þegar Morg-
unblaðið spurði Guðmund Stein-
grímsson um málið í gær, þ.e. hvernig
viðræðurnar gengju, vildi hann hvorki
játa því né neita að slíkar viðræður
stæðu yfir. Hann sagði ótímabært að
tjá sig um málið. agnes@mbl.is
Viðræður við
Besta flokkinn
Þingmenn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks í utanríkis-
málanefnd hafa tilkynnt forseta Al-
þingis að þeir geti ekki tekið þátt í
ferð nefndarinnar til Evrópulanda ef
þingstörfum ljúki ekki fyrir helgi.
Ferðin á að hefjast eftir helgi. Fleiri
þingmenn ætla einnig út í næstu
viku vegna Norðurlandaráðsfunda.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, for-
maður þingflokks sjálfstæðismanna, sagði að þing-
menn hefðu skipulagt tíma sinn í næstu viku í sam-
ræmi við starfsáætlun Alþingis. Búið væri að
skipuleggja ferð utanríkismálanefndar, ferðin á að
vara alla næstu viku. „Við fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins í utanríkismálanefnd munum ekki fara í
þessa ferð ef þingið er hér allt í hers höndum.“
Evrópuför í uppnámi?
UTANRÍKISMÁLANEFND OG ÞINGSTÖRFIN
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra staðfesti á Al-
þingi í gær blaðafregnir þess efnis að hann hefði sett fyr-
irvara í ríkisstjórn við frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra um breytingar á stjórnarráðinu. Jón
Bjarnason sjávarútvegsráðherra gagnrýndi einnig frum-
varpið í umræðunum í gærkvöld.
„Það hefur áður komið fram og sá fyrirvari stendur
enn,“ sagði Ögmundur. „Þetta mál hefur átt sér langan
aðdraganda og það er að sannast í þessu máli eins og með
ávextina að því betri verða þeir þeim mun betur sem þeir
fá að þroskast. Og sú gagnrýni sem ég setti fram á sínum
tíma við skýrslu Gunnars Helga Kristinssonar prófess-
ors, sem þetta frumvarp er unnið upp úr, er þungamiðjan
í minni gagnrýni á frumvarpið, það er að segja aukin mið-
stýring innan stjórnarráðsins. Ég er andvígur henni og
hef gagnrýnt það.“ Ráðherrann sagði að mjög mikilvægt
væri að tryggja víðtæka sátt um skipan stjórnarráðsins
og samskipti ríkisstjórnar og Alþingis.
Ekki tókst að ljúka þingi í gærkvöld og stóðu fundir
enn þegar blaðið fór í prentun. kjon@mbl.is
Ögmundur gagnrýnir
stjórnarráðsfrumvarpið
Segir það auka miðstýr-
ingarvald forsætisráðherra
NÝTT KORTATÍMABIL
ILVA Korputorgi, 112 Reykjavík
sími 522 4500 www.ILVA.is
einfaldlega betri kostur
Brauð með hangikjöti.
490,-
SMURT
BRAUÐ