Morgunblaðið - 16.09.2011, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2011
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Hópur kennara við Brekkubæjar-
skóla á Akranesi hefur verið krafinn
um að greiða rúmlega 4 milljónir
króna vegna pöntunar á hóteli í
Boston, en kennararnir neyddust til
að afpanta hótelið eftir að Iceland
Express felldi niður flug til borg-
arinnar. Flugfélagið neitar að greiða
kostnaðinn og eru kennararnir að
leita ráða hjá lögfræðingi um næstu
skref í málinu.
Um 60 manna hópur kennara við
Brekkubæjarskóla ætlaði að fara í
námsferð til Boston í vetrarfríi skól-
ans í október. Hópurinn var búinn
að skipuleggja ferðina og hafa sam-
band við skóla í Boston sem ætluðu
að taka á móti kennurunum. Fólk
var einnig búið að panta hótel,
borga inn á ferðina og gera aðrar
ráðstafanir. Í lok ágúst fengu kenn-
ararnir símtal frá Iceland Express
þar sem tilkynnt var að búið væri að
fella flugið niður. Hildur Björns-
dóttir, talsmaður kennaranna, segir
að Iceland Express hafi boðið hópn-
um að fljúga til New York helgina á
eftir, en hún segir að það hafi ekki
gengið upp vegna þess að ferðina
hafi átt að fara í vetrarfríi kennara.
„Nú hefur hótelið í Boston krafið
okkur um þóknun sem er 75% af
heildarverði bókunarinnar, þ.e.
rúmlega 4 milljónir vegna þess að
við komum ekki þarna í október. Við
höfum farið fram á að flugfélagið
borgi þennan kostnað en þeir neita
því,“ segir Hildur.
Hildur segir að eftir að flugið var
fellt niður hafi verið reynt í tvo daga
að finna aðrar leiðir til að komast í
ferðina. Þegar ljóst hafi verið að það
myndi ekki takast hafi strax verið
haft samband við hótelið. Sam-
kvæmt reglum þess hafi stórir hóp-
ar þrjá mánuði til að afpanta gist-
ingu án þess að greiða þóknun, en
sá tími hafi verið liðinn.
Hildur segir að sér hafi verið bent
á að samkvæmt reglugerð um rétt-
indi flugfarþega beri flugfélagi
skylda til að koma flugfarþegum til
áfangastaðar með öðrum leiðum ef
flug er fellt niður. Iceland Express
hafi ekki virt þessa reglugerð.
„Hótelkostnaður er hins vegar
ekki inni í þessari reglugerð, en það
segir sig náttúrlega sjálft að þessi
kostnaður er tilkominn vegna þess
að flugfélagið kom okkur ekki á
áfangastað. Við erum nú að leita
ráða hjá lögfræðingum um næstu
skref.“
Þurfa að greiða hótelinu 4 milljónir
Iceland Express neitar að greiða
þrátt fyrir að hafa fellt niður flugið
Iceland Express Í lok ágúst fékk sextíu manna hópurinn símtal frá Iceland
Express þar sem tilkynnt var að búið væri að fella flugið til Boston niður.
Stjórn Strætó bs. vinnur að því í
september að endurskoða fargjöld í
strætó. Nú liggur m.a. fyrir stjórn-
inni tillaga frá 26. ágúst sl. um að
lækka staðgreiðslugjald fyrir börn
að 12 ára aldri fyrir staka ferð nið-
ur í 150 krónur. Í dag kostar stök
ferð 350 krónur fyrir börn og ung-
linga en farmiðinn hækkaði um 250
krónur, úr hundrað krónum í byrj-
un þess árs.
Einar Örn Benediktsson, sem sit-
ur í stjórn Strætó bs. fyrir hönd
Reykjavíkurborgar, segir ung-
mennafargjöldin alltaf í endur-
skoðun. „Það eru til nemakort sem
eru niðurgreidd af sveitarfélög-
unum á höfuðborgarsvæðinu fyrir
þá sem vilja koma í Strætó. Þau
gilda fyrir framhaldsskólanema og
upp úr.“
Nemakortin kosta 11.000 krónur
og duga þá heila önn. Heill vetur
kostar 20.000 krónur. Einar segir
nemakortin tilraunaverkefni sem
hófst árið 2007. Þá voru send út
30.000 tilboð til nemenda sem átti
að vera hugsanlegur kostnaður upp
á 400 milljónir. Hins vegar þekkt-
ust aðeins 6.000 nemar tilboðið
þannig að það jók ekki strætónotk-
un þó aukning hafi orðið síðar.
Ungmenni á aldrinum 12-18 ára
geta ekki nýtt sér þessi kort en Ein-
ar bendir á að þeim standi til boða
að kaupa sér 20 miða fargjaldakort
þar sem ferðin kosti þá 105 krónur.
Hins vegar sé verið að endur-
skoða hvernig hægt sé að koma til
móts við þennan aldurshóp en ein-
falda þurfi þau fargjöld sem í boði
eru. Hinn 1. október nk. tekur gildi
9-10% hækkun á mánaðar-, þriggja
mánaða og níu mánaða strætókort-
um . sigrunrosa@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Bið Gengið um borð í strætó.
Fargjöld
Strætó end-
urskoðuð
Í athugun að koma
til móts við 12-18 ára
Undanfarna daga hafa menn unnið við það að
smíða ris á lóðinni á mótum Suðurgötu og Hjarð-
arhaga, þar sem áður var Simmasjoppa, og í gær
var það sett í heilu lagi á áratugagamalt hús við
hliðina. Gamla risið var rifið í fyrradag og þegar
búið var að gera allt tilbúið fyrir upplyftinguna
var húsinu lokað aftur með nýja risinu og small
það á hæðina fyrir neðan sem flís við rass. Vel að
verki staðið. steinthor@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Nýtt ris sett í heilu lagi á gamalt hús
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Ekki hefur enn náðst samkomulag í viðræðum ríkisins
og lífeyrissjóðanna um með hvaða hætti lífeyrissjóðir
taka þátt í kostnaði við sérstaka vaxtaniðurgreiðslu
vegna skuldastöðu heimilanna. Niðurstaða átti að
liggja fyrir ekki síðar en 1. september.
Þegar fallið var frá ákvörðun um að leggja tíma-
bundinn skatt á lífeyrissjóði vegna þessa var ákveðið
að taka upp viðræður í sumar um með hvaða hætti
sjóðirnir tækju þátt í að fjármagna sinn hluta þessara
aðgerða. Samkomulag átti að liggja fyrir áður en Al-
þingi kæmi saman í september. Það hefur ekki gengið
eftir.
Arnar Sigurmundsson, for-
maður Landssamtaka lífeyris-
sjóða, segir að viðræður séu í
gangi milli fulltrúa fjármálaráðu-
neytisins og lífeyrissjóða vegna
málsins. Niðurstaða liggi ekki fyr-
ir en þær byggjast á viljayfirlýs-
ingunni, sem undirrituð var í des-
ember 2010.
Arnar segir að haldnir hafi ver-
ið 3-4 fundir. Reynt sé að finna
einhverja leið sem báðir aðilar
geti orðið sáttir við en hann vildi á þessu stigi ekki
greina frá hvaða leiðir væri rætt um. Reynt verði að ná
niðurstöðu fyrir 1. október.
Samkomulag hefur ekki náðst
um greiðslur lífeyrissjóðanna
Niðurstaða viðræðna vegna vaxtaniðurgreiðslu átti að liggja fyrir 1. september
Tæpir tíu mánuðir liðnir
» Viðræður um með hvaða hætti lífeyr-
issjóðir fjármagni hluta tímabundinnar
vaxtaniðurgreiðslu á 2 árum byggjast á
viljayfirlýsingu frá í byrjun desember 2010.
» Hlutur fjármálafyrirtækjanna er greiddur
með skattlagningu á bankana. Til stóð að
leggja skatt á lífeyrissjóðina í bandorms-
frumvarpi í júní en þeirri hugmynd var mót-
mælt harðlega. Alþingi hætti því við skatt-
lagningu sjóðanna.
Arnar
Sigurmundsson
Heimir Már Pétursson, upplýs-
ingafulltrúi Iceland Express,
segir að ferðin til Boston hafi
verið felld niður með góðum fyr-
irvara, en flugfélög megi fella
niður ferðir með tveggja vikna
fyrirvara. Farþegum hafi verið
boðið að fara viku síðar til New
York eða fá miðana endur-
greidda og flestir hafi þegið það.
Samkvæmt reglugerð eiga
farþegar rétt á skaðabótum frá
flugrekanda þegar flugi er aflýst
nema flugi sé aflýst a.m.k.
tveimur vikum fyrir áætlaða
brottför. Iceland Express aflýsti
fluginu til Boston með um
tveggja mánaða fyrirvara.
Boðin önnur
flugferð
ICELAND EXPRESS