Morgunblaðið - 16.09.2011, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2011
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Hjólreiðar eru hagkvæmur sam-
göngumáti í mörgu tilliti að mati
Troels Andersen, dansks verkfræð-
ings sem undanfarin 20 ár hefur
sérhæft sig í umferðarskipulagi
með áherslu á hjólreiðar. Hann hef-
ur m.a. veitt borgum í Danmörku,
Mexíkó og Kína sérfræðiráðgjöf
varðandi hjólreiðar. Andersen er á
meðal fyrirlesara á ráðstefnunni
„Hjólum til framtíðar“. Hann er
einnig stjórnarformaður danska
hjólreiðasendiráðsins, Cycling Em-
bassy of Denmark.
Andersen hjólaði lítillega um
Reykjavík í gær í fyrstu heimsókn
sinni til Íslands. Eftir stutt kynni af
hjólaleiðum borgarinnar sagði hann
að sumt væri mjög gott en annað
síðra. Hann nefndi t.d. sambland
gangandi umferðar og hjólreiða-
fólks á göngustígum þar sem hjól-
unum væri ætluð eins metra breið
rein en göngufólki tveir metrar.
Þessum hlutföllum ætti að snúa við
eða afmá skilin. Hann sagði að í
Danmörku væri blönduð umferð
gangandi og hjólandi á stígum í
görðum eða utan borga. Þeir sem
fari um þessar leiðir gangandi eða
hjólandi ættu að hafa varann á sér
gagnvart samferðafólki á stígunum.
Gatnakerfið í Danmörku er víða
þrískipt. Þar er rein fyrir vélknúna
umferð í eina akstursstefnu, skör
hærra er hjólreiðastígur við hliðina
þar sem hjólað er í eina stefnu og
yst og enn hærra er gangstétt.
Andersen sagði hæðarmuninn veita
hjólreiðafólkinu öryggistilfinningu
og það stuðli að því að börn, ung-
lingar og eldra fólk hjóli á hjóla-
stígunum.
Margfaldur ávinningur
Andersen sagði hjólreiðar hag-
kvæmar fyrir hjólreiðafólk, borg-
aryfirvöld og atvinnulífið. Kaup-
mannahafnarbúar fara t.d. meira en
30% ferða sinna á reiðhjólum. Færu
þeir á bílum í staðinn yrði umferð-
aröngþveiti, að sögn Andersen.
Hjólreiðarnar greiða því fyrir um-
ferðinni.
Andersen segir að sýnt hafi verið
fram á að fjárfesting í hvatningu til
hjólreiða skili sér á innan við
tveimur árum. Þar vegur
þungt heilsubótin sem
fylgir reglulegum hjólreið-
um, t.d. til og frá vinnu.
Fólk stundi heilsurækt um
leið og það fari ferða sinna.
Það efli heilsuna sem
dregur úr veikind-
um og það kemur
atvinnulífinu til
góða í mynd
minni fjarvista.
Heilsubætandi
samgöngumáti
Hjólreiðar eru hagkvæmar að mati umferðarsérfræðings
Morgunblaðið/Sigurgeir S
Hjólað Fulltrúar hjólasendiráða í Danmörku og Hollandi brugðu sér á bak ásamt borgarfulltrúum og fulltrúum
ráðuneyta og fóru í hjólaferð um Reykjavík. Í dag er haldin ráðstefna um hjólreiðar í tilefni samgönguviku.
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Hörð gagnrýni kom fram í ræðu
Atla Gíslasonar, alþingismanns, í
umræðum á Alþingi aðfaranótt
fimmtudags um frumvarp ríkis-
stjórnarinnar um breytingar á
Stjórnarráðinu. Sakaði hann Jó-
hönnu Sigurðardóttur, forsætisráð-
herra, um að valda enn á ný deilum
á lokadögum þingsins um mál sem
legið hefði fyrir að væri umdeilt og
nyti ennfremur ekki fulls stuðnings í
ríkisstjórninni og jafnvel ekki á
meðal almennra stjórnarþing-
manna.
Þá gagnrýndi hann forgangsröð-
un ríkisstjórnarinnar enda væru
breytingar á Stjórnarráðinu ekki
forgangsmál með hagsmuni fólksins
í landinu í huga. Önnur og mikilvæg-
ari mál sætu á hakanum.
Óbreytt stjórnmálamenning
Vitnaði Atli í ræðu sinni til
skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis
og skýrslu þingmannanefndar undir
hans forystu um viðbrögð við rann-
sóknarskýrslunni þar sem foringja-
ræði er gagnrýnt og sagði þá gagn-
rýni eiga við um frumvarp
ríkisstjórnarinnar. Frumvarpið fæli
í sér meðal annars að auka völd
framkvæmdavaldsins á kostnað Al-
þingis. Sjálfstæði og virðing þings-
ins væri einfaldlega í húfi.
Hann sagði að þó Jóhanna Sig-
urðardóttir hefði sest í stól forsætis-
ráðherra hefði stjórnmálamenningin
á Alþingi ekki breyst. Stjórnvöld
hefðu ekki tekið mið af skýrslu
rannsóknarnefndar þingsins. Sjálf-
stæðismenn ættu sér það þó til
málsbóta ólíkt núverandi stjórnvöld-
um að skýrslan hafi ekki verið kom-
in út þegar þeir voru síðast við völd.
Í sátt en ekki ágreiningi
Atli lagði áherslu á mikilvægi þess
að breytingar á Stjórnarráðinu
væru ekki gerðar í ágreiningi heldur
í sátt. Vitnaði hann þar meðal ann-
ars til málflutnings Steingríms J.
Sigfússonar, núverandi fjármálaráð-
herra, á Alþingi árið 2007 þegar þá-
verandi ríkisstjórn Sjálfstæðis-
flokksins og Samfylkingarinnar stóð
fyrir breytingum á Stjórnarráðinu.
Ekki gengi að stöðugt væri verið að
gera breytingar á grundvallarmál-
um eins og fyrirkomulagi þess,
kosningalögum og stjórnarskránni.
Spurði hann hvort þingmenn vildu
að með hverri nýrri ríkisstjórn væri
krukkað í þessum málum.
Hann sagðist þó vilja taka það
fram að hann teldi frumvarpinu ekki
alls varnað. Þar mætti líka finna ým-
islegt gott. En þau atriði sem hann
hefði gagnrýnt í ræðu sinni varðandi
frumvarpið væru hins vegar óvið-
unandi.
Sagði sjálfstæði
og virðingu
Alþingis í húfi
Atli Gíslason um breytt Stjórnarráð
Morgunblaðið/Kristinn
Alþingi Atli Gíslason gagnrýndi
frumvarpið um Stjórnarráðið.
Stjórnarráðið
» Atli Gíslason sakaði for-
sætisráðherra um að valda enn
á ný deilum á síðustu dögum
þingsins.
» Frumvarp um breytingar á
Stjórnarráðinu yki völd fram-
kvæmdavaldsins á kostnað
löggjafarvaldsins.
» Stjórnvöld hefðu ekki tekið
mið af skýrslu rannsóknar-
nefndar Alþingis.
Svandís Svavarsdóttir, umhverf-
isráðherra, hefur skipað starfshóp
sem falið er „að gera tillögur um að-
gerðir sem stuðlað geti að endur-
reisn svartfuglastofna hér við land
og styrkja verndun og sjálfbæra
nýtingu þeirra.“
Starfshópnum er falið að fjalla
sérstaklega um veiðar og nýtingu
svartfugls og hvort breytingar á lög-
um eða reglum sem varða nýtingu á
svartfugli, þar með talinni eggja-
töku, geti komið að gagni við end-
urreisn svartfuglastofna hér við
land. Þetta er gert í ljósi alvarlegrar
stöðu svartfuglastofna hér við land.
Starfshópurinn var skipaður 12.
september sl. og skal hann skila til-
lögum sínum til umhverfisráðuneyt-
isins ekki síðar en 31. október næst-
komandi, samkvæmt skipunarbréfi.
Í starfshópnum sitja þau Sigurður
Á. Þráinsson frá umhverfisráðuneyti
og er hann formaður hópsins. Menja
von Schmalensee, skipuð án tilnefn-
ingar, Guðbjörg H. Jóhannesdóttir,
tilnefnd af Bændasamtökum Ís-
lands, Guðmundur A. Guðmundsson,
tilnefndur af Náttúrufræðistofnun
Íslands, Steinar Rafn Beck Bald-
ursson, tilnefndur af Umhverf-
isstofnun og Sæunn Marinósdóttir,
tilnefnd af Skotveiðifélagi Íslands.
Þeir sem tilnefndu fulltrúa í starfs-
hópinn bera sjálfir kostnað vegna
setu fulltrúa sinna í starfshópnum.
gudni@mbl.is
Starfshópur um endur-
reisn svartfuglastofna
Morgunblaðið/RAX
Lundar Lundanum hefur gengið illa
að koma upp ungum undanfarin ár.
Veiðar og nýt-
ing í brennidepli
Sjófuglar
» Álka, langvía, lundi, stutt-
nefja og teista eru svartfugla-
tegundir sem verpa hér.
» Tegundum á borð við stutt-
nefju, langvíu og álku hefur
fækkað mikið í stórum fugla-
björgum á sunnan- og vest-
anverðu landinu.
Samgönguvika hefst í dag. Af
því tilefni standa Lands-
samtök hjólreiðamanna og
Hjólafærni á Íslandi fyrir ráð-
stefnu í Iðnó í Reykjavík í dag
um hjólreiðar.
Á ráðstefnunni verður
fjallað um hvernig stuðla megi
að auknum hjólreiðum, hver
staðan sé í þeim efnum á Ís-
landi og hvert beri að stefna.
Margir munu taka til máls á
ráðstefnunni, þeirra á meðal
þrír erlendir fyrirlesarar sem
væntanlegir voru á ráðstefn-
una. Einnig munu Dagur B.
Eggertsson, formaður
borgarráðs, og Ögmundur
Jónasson, innanrík-
isráðherra, ávarpa ráð-
stefnugesti og taka þátt í
pallborðsumræðum
ásamt fleirum. Þá
mun Bergþór Páls-
son syngja hjóla-
lög.
Samgöngu-
hjólreiðar
HJÓLUM TIL FRAMTÍÐAR
Troels Andersen
! " #
$ % %
&'"
( ( ) (
& *
"
$ + , - ./ 0 1"# , " "
(
0 ./ 2 ./ 0 3' ' 0 ,