Morgunblaðið - 16.09.2011, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2011
HPV bóluefni
Í blaðinu í gær var grein sem hét
„Eru HPV bóluefni örugg?“ Greinin
var eftir Kristján Oddsson lækni.
Grein þessi var skrifuð fyrir hönd
stjórnar Félags fæðingar- og kven-
sjúkdómalækna en stjórnina skipa
ásamt Kristjáni þau Hulda Hjart-
ardóttir, Alda Birgisdóttir, Ragn-
heiður Baldursdóttir og Sigrún Arn-
ardóttir.
LEIÐRÉTT
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð
Héraðsdóms Suðurlands um að karl-
maður, sem ákærður var fyrir
nauðgunartilraun, sæti farbanni út
september. Ríkissaksóknari krafðist
þess að farbannið yrði framlengt til
7. október. Á það féllst héraðsdómur
en Hæstiréttur stytti farbannstím-
ann. Mál mannsins er nú til með-
ferðar í héraðsdómi.
Maðurinn, sem er frá Lettlandi,
var í mars ákærður fyrir að reyna að
þvinga konu til kynferðismaka í júlí
á síðasta ári. Lögreglan var kölluð í
íbúð þar sem konan og maðurinn
voru. Segir í úrskurði héraðsdóms,
að konan hafi verið í miklu uppnámi
og blóðug og maðurinn einnig og
hafði verið bitið framan af einum
fingri hans.
Konan sagði, að þau byggju í
sama húsi. Þetta kvöld hefðu þau
bæði drukkið áfengi. Maðurinn hefði
viljað hafa við hana kynmök en það
hafi hún ekki viljað. Maðurinn hafi
svo ráðist á hana en hún hafi veitt þá
mótspyrnu sem hún hafi getað og
hann hafi svo hætt eftir að hún beit
hann.
Konan dvelur erlendis. Hún ætl-
aði að koma til landsins til að bera
vitni við réttarhöldin í byrjun sept-
ember en af því varð ekki.
Beit framan af fingri manns sem
reyndi að þvinga hana til samræðis
Hæstiréttur staðfestir farbann yfir hinum grunaða
Nýr meirihluti hefur verið myndað-
ur í bæjarstjórn Fjallabyggðar en
meirihluti Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks féll um miðja
viku þegar annar bæjarfulltrúi fram-
sóknarmanna sagði sig úr Fram-
sóknarfélagi Fjallabyggðar.
Í fundargerð bæjarstjórnar
Fjallabyggðar, sem birt er á vefnum
Siglo.is, var lögð fram bókun frá sex
bæjarfulltrúum, sem mynda nýjan
meirihluta. Þetta eru þrír fulltrúar
Sjálfstæðisflokks, einn fulltrúi
Framsóknarflokks, bæjarfulltrúi VG
og einn bæjarfulltrúi Samfylkingar-
innar, sem er fulltrúi Samfylkingar-
félags Ólafsfjarðar í bæjarstjórninni.
Samkvæmt þessu eru tveir fulltrú-
ar Samfylkingarinnar frá Siglufirði
og einn fulltrúi Framsóknarflokks í
minnihluta.
Í bókuninni kemur fram, að nýi
meirihlutinn lýsi yfir stuðningi við
störf núverandi bæjarstjóra og að
hann hafi áfram óskorað umboð
meirihluta bæjarfulltrúa Fjalla-
byggðar til sinna starfa.
Nýr meiri-
hluti í
Fjallabyggð
Blússa á 5.900 kr.
Fleiri litir
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Se
nd
um
íp
ós
tk
rö
fu
Pils á 7.900 kr.
Verk eftir Kristján
Davíðsson
Nokkur málverk eftir
Kristján Davíðsson til sölu
ef viðunandi verð fæst.
Áhugasamir sendi inn
fyrirspurn á box@mbl.is
merkt·„E-24650“
fyrir 26. september.
20-60% afsláttur
Borgartún 36
105 Reykjavík
588 9747
www.vdo.is
HLÍFÐARFÖT
AGV
HJÁLMAR
LAY-Z-SPA
SIXSIONE
BRYNJUR
Nasran fatnaður
– jakkar, buxur og vettlingar
SixSixOne
Peysubrynjur, plastbrynjur, nýrnabelti,
vetlingar, olnboga og hnéhlífar
AGV hjálmar
Lokaðir hjálmar, opnanlegir, vespu-
hjálmar, motocrosshjálmar og gler
Varahlutir í fjarstýrða bíla
Traxxas, GS varahlutir, dekk og felgur60%
AFSLÁTTUR
VARAHLUTIR
Í FJARSTÝRÐA BÍLA
20-40%
AFSLÁTTUR
Litlatún í Garðabæ
- verslunarkjarni í alfaraleið