Morgunblaðið - 16.09.2011, Blaðsíða 10
Mér virðist heimurinn stundum snúast meiraen góðu hófi gegnir um megrun, eða rétt-ara sagt útlit. Í kjölfar þess að ég las bókina Lýtalaus
um daginn og skrifaði gagnrýni um fór ég að velta því
fyrir mér hvort ungt kvenfólk hugsaði um fátt annað en
megrun. En megrunartalið í umræddri bók fór alveg
með mig eins og lesa má í dómnum sem birtist hér í
blaðinu fyrir viku síðan.
Ég fór að spyrja kvenfólk í kringum mig út í þetta og
komst að því að heimur mjög margra yngri kvenna
snýst um útlitið og að missa nokkur kíló. Dagurinn hefst
á „feitunni“ eða „ljótunni“ og svo er byrjað að telja.
Fyrst eru það kalóríurnar í morgunmatnum og svo há-
degismatnum og áfram í hverri máltíð yfir daginn. Þá er
farið í ræktina og talið hve miklu af kalóríum er brennt.
Kvöldið fer svo í að fá samviskubit og ógeð á sjálfum sér
yfir að hafa fengið sér eina súkkulaðikökusneið í sauma-
klúbbnum. Þegar í rúmið er komið er því svo heitið að
standa sig betur í megruninni á morgun.
Vissulega eru þeir margir sem eru of feitir og
þurfa að grenna sig og allir hafa gott af því að
hugsa um heilsuna en ekki svo að það heltaki líf-
ið. Það er líka ekkert samasemmerki á milli
megrunar og hreysti eða hamingju.
Megrunartal er eitt af því leið-
inlegasta sem ég veit og fólk sem er
gagntekið af því hvað það er mörg
kíló og hvað það borðar finnst
mér líka yfirleitt leiðinlegt. Það á
að borða hollt og af skynsemi án
þess að þurfa að hugsa út í það.
Lífið er stutt og hver nennir að
eyða því í að fá samviskubit yfir
hverjum súkkulaðibita?
Fjölmiðlar mega líka eiga það að
þeir ýta undir þá ímynd að allir eigi að
vera í sífelldri megrun. Það er farið í
megrunarkeppni og hverja forsíðuna á
eftir annarri prýða konur sem hafa misst
þrjátíu kíló á þremur árum. Þetta virðist vera mikið les-
ið en ekki þó af mér. Ég fæ hroll af fyrir og eftir mynd-
um og megrunarráð stjarnanna gefa mér grænar bólur.
Hef ég þá aldrei farið í megrun, fæ ég þá aldrei „fit-
una“? Það kemur fyrir en ég slæ þá hugsun frá mér um
leið og hún bankar uppá. Ég gæti örugglega verið fimm
kílóum léttari með strangara mataræði og meiri hreyf-
ingu. En mér finnst ég ekki þurfa á því að halda, ég er í
kjörþyngd og ég borða það sem mér sýnist þegar mér
sýnist. Ég kann ekki einu sinni að telja kalóríur og veit
ekki hver eðlilegur dagskammtur af þeim er. Allt í
kringum mig finnst mér konur stunda þá íþrótt að rífa
sig niður og vilja fá alla í það með sér. Mér finnst ég
stundum vera eina konan sem er ánægð með lík-
ama sinn en það má ekki segja, því það er eins
og það sé skömm að vera sáttur við sjálfan
sig.
Ég biðla því til kynsystra minna um all-
an heim að hætta að hugsa um megrun
og mat. Ekki vera samt með græðgi;
hófsemi og heilbrigð skynsemi er
lykillinn. Fáið ykkur eftirrétt þegar
þið farið út að borða, bjór um helgar
og mat í föstu formi í staðinn fyrir
fljótandi í hádeginu. Ekki vera eins
og þurrar kjúklingabringur,
skemmtið ykkur aðeins. Lífið er
of stutt til að telja kalóríur og
kíló.
»Allt í kringum mig finnst mér konurstunda þá íþrótt að rífa sig niður og
vilja fá alla í það með sér.
HeimurIngveldar
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Á vefsíðunni urbandictionary.com er
að finna breskt slangur af ýmsu tagi.
Sumt er kjánalegt, annað dónalegt
en margt bara einfaldlega mjög fynd-
ið. Það getur verið ágætt að slá um
sig með skemmtilegu útlensku
slangri t.d. á Facebook. Útlenskir vin-
ir þínir eiga örugglega eftir að verða
gapandi yfir fjölbreyttum orðaforða
þínum. Svo má líka bara sletta þessu
saman við íslenska orðaforðann og
jafnvel þá íslenska slangrið. Það er jú
alltaf best að hafa hið ástkæra, ilhýra
í huga og reyna að vernda það.
Eitt sem má finna á vefsíðunni er
„bag texting“ eða tösku sms. Það er
tilvalið að nota ef þú ert úti með vin-
um, þarft að senda sms en vilt ekki
vera dónaleg/ur. Þá er bara að þykjst
vera að leita að einhverju ofan í tösk-
unni en vera í raun að skrifa sms. Hér
er ágætt að hafa hraðar hendur til að
tösku smsið verði ekki of áberandi.
Vefsíðan www.urbandictionary.com
Dónaskapur Þessi ætti frekar að
setja símann ofan í töskuna sína.
Fyndið og dónalegt slangur
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2011
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Fuglaáhugamenn Hér eru þeir Anton Ísak og Alex Máni á ljósmyndasýningu Fuglaverndar.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
V
inirnir Alex Máni Guðríð-
arson og Anton Ísak
Óskarsson kynntust í
gegnum sameiginlegt
áhugamál sem er fugla-
ljósmyndun. Þeir eiga báðir myndir á
ljósmyndasýningunni Fuglablik sem
nú er í Ráðhúsi Reykjavíkur og er á
vegum Fuglaverndar en þeir eru
meðlimir í félaginu. Þeir eru lang-
yngstir þeirra sem eiga myndir á
sýningunni. Alex er 14 ára og býr á
Stokkseyri en Anton er 15 ára og býr
í Reykjavík. Alex hefur haft mikinn
áhuga á ljósmyndun frá því hann var
mjög ungur en segist ekki hafa farið
að mynda fugla „fyrr en“ hann var
sjö ára. „Þá var ég að prófa mig
áfram með litla filmuvél með lítilli
linsu en ég fékk mér stóra góða vél
fyrir nokkrum árum, enda er nauð-
synlegt að vera með góðar græjur ef
mynda á fugl svo vel sé. Við erum
báðir búnir að koma okkur upp alveg
eins vél og alveg eins linsu, Canon
7D og 400 mm linsu, en það hentar
vel í fuglaljósmyndun.“
Erfitt að ná góðri mynd
Anton hefur ekki verið eins
lengi að í fuglaljósmyndum og Alex,
hann byrjaði að mynda fugla fyrir
einu og hálfu ári. „Ástæðan fyrir því
að ég fór að mynda fugla er sú að
mér finnst þeir vera skemmtileg dýr
og áhugaverðir. Og það er ögrandi
og erfitt að taka góðar myndir af
fuglum. Ég verð mjög glaður ef ég
næ mynd af sjaldgæfum fugli eða
einhverjum sem er mjög erfitt að
nálgast til að ná mynd. Því fylgir sig-
urtilfinning að fanga flott augnablik
þegar fuglarnir eru á mikilli hreyf-
ingu og í einhverju ati. Eins og til
dæmis þegar ég tók myndina af kríu
með síli í gogginum, fljúgandi rétt
yfir vatnsfletinum. Ég er rosalega
ánægður með þá mynd og hún er
Gaman og ögrandi
að mynda fugla
Þeir hafa óbilandi áhuga á fuglum og þeir hafa myndað hundrað tegundir íslenskra
fugla. Þeir fyllast sigurtilfinningu þegar þeir fanga óskaaugnablik. Þeir eru yngstu
þátttakendurnir á ljósmyndasýningu Fuglaverndar sem nú stendur yfir.
Hin árlega Oktoberfest
stendur nú yfir í Háskóla
Íslands og í kvöld fer hin
eiginlega Oktoberfest
fram með mottu- og bún-
ingakeppni. Nú er tæki-
færið til að dressa sig upp
og mæta í sem flottustum
búningi. Í kvöld mun einn-
ig Lúðrasveit verkalýðsins
leika og frá klukkan 23
mun ofurbandið Tanzen
gera allt vitlaust. Heldur
gleðin síðan áfram fram
eftir nóttu. Ættu skemmt-
anaþyrstir einstaklingar
að geta byrjað helgina
með trompi á Oktober-
fest. En gleðin heldur síð-
an áfram annað kvöld með
tónleikum og almennri
gleði.
Endilega ...
... skellið ykkur á Oktoberfest
Morgunblaðið/Ernir
Bjórhátíð Meyjar munu skenkja gestum öl.
Það er spennandi árstími framundan
í tískuheiminum en nú er kynnt vor-
og sumartískan fyrir næsta ár, enda
eru tískuhönnuðir alltaf nokkrum
skrefum á undan okkur hinum.
Tískuvikur eru nú haldnar í helstu
stórborgum heimsins og nýverið var
kynnt á tískuvikunni í New York nýj-
asta línan frá hönnuðinum Tory
Burch. Hún hannar fatnað jafnt sem
fylgihluti, til að mynda skrautlegar
töskur í ýmsum litum og mynstrum.
Töskurnar eru í meðalstærð sem er
gott fyrir dömurnar enda er algjört
vesen að vera með of litla tösku.
Burch er bandarískur hönnuður og
varð fyrst þekkt árið 2004, en Op-
rah Winfrey hefur meðal annars
keypt hönnun hennar. Myndband af
nýjustu línu Burch og fleiri myndir
má sjá á vefsíðu hennar www.toryb-
urch.com.
Tískuvikur
Litríkar töskur hönnuðarins
Tory Burch kynntar í New York
Reuters
Litagleði Þessi samsetning er sumarleg þó hún sé úr haustlínunni.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.