Morgunblaðið - 16.09.2011, Page 11
einmitt á sýningunni,“ segir Anton
og bætir við að hann þekki ekki al-
veg eins marga fugla og Alex. „En
ég er að vinna í því.“
Þekkir flesta fugla í Evrópu
Alex hefur óbilandi áhuga al-
mennt á fuglum. „Mér finnst bæði
gaman að skoða þá og að mynda þá.
Ég fer í fuglaskoðunarferðir bæði
hér heima og í útlöndum og tek þá
myndavélina alltaf með,“ segir Alex
sem hefur lesið sér heilmikið til um
fugla og þekkir flesta fugla í Evrópu,
hann þekkir einnig vel til amerískra
fugla. Hann segir það eflaust hafa
haft áhrif hversu snemma kviknaði
áhugi á fuglum og fuglaljósmyndun
að nágranni hans er Jóhann Óli
Hilmarsson formaður Fuglavernd-
ar. „Hann er einn helsti fugla-
ljósmyndari landsins. Stjúpfaðir
minn er líka í þessu, svo þetta er ná-
lægt mér. Ég hef tekið myndir af um
120 fuglum á Íslandi en skráðar teg-
undir hér eru um 300 að meðtöldum
flækingum, svo það er nóg eftir.“
Anton Ísak hefur líka verið iðinn og
segist hafa náð að mynda 97 teg-
undir íslenskra fugla.
Sumir glápa á okkur
Þeir segjast fá misjöfn viðbrögð
við þessu óvenjulega áhugamáli, en
ekki er mikið um að krakkar á þeirra
aldri hafi áhuga á fuglaljósmyndun.
„Fólk starir stundum á okkur þegar
við erum með þessar stóru linsur
einhversstaðar úti við. Og litlir
krakkar koma oft til okkar og spyrja
hvað þetta sé. En flestir í kringum
okkur hrósa okkur.“
En eru þeir meira heillaðir af
einum fugli en öðrum? „Allir fuglar
eru fallegir og erfitt að gera upp á
milli þeirra. En ég get alveg játað að
mig langar til að ná mynd af haferni
og fálka, ég á það eftir. En ég stefni
að því að ná því á næsta ári,“ segir
Alex en aftur á móti hefur Anton
Ísak tekið mynd af fálka og er stolt-
ur af því, enda sjaldgæfur fugl. „Ég
náði mynd af honum í nágrenni við
Mývatn, ég hafði séð hann á
ákveðnum stað og fór nokkrar ferðir
og sat fyrir honum áður en ég komst
í færi til að ná góðri mynd.“
Steindepill Alex Máni tók þessa einstöku mynd af steindepli.
Kría Anton Ísak náði að fanga augnablikið þegar krían nældi sér í síli.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2011
Nemendafélag Verslunarskóla Íslands
stendur nú fyrir uppskriftakeppni í
tengslum við hátíðina Full borg matar.
Keppnin var kynnt í hádegi nú í vik-
unni en þá kom hinn nýútskrifaði
kokkur Gísli Matthías Auðunsson í
heimsókn í skólann og eldaði spenn-
andi rétti úr íslensku hráefni sem
nemendur fengu að smakka.
„Krökkunum fannst spennandi að
sjá hvað hann eldaði og fá síðan að
smakka svona góðan mat,“ segir Sig-
ríður Erla Sturludóttir, formaður nem-
endafélagsins. Hún segir nemendur
skólans vera fulla af góðri orku þessa
dagana en nýtt eldhús hefur verið tek-
ið í notkun í skólanum þar sem áhersla
er lögð á hollan og góðan mat. Gísli
eldaði blómkáls couscous með gulrót-
um í forrétt, reykta ýsu með dilli og
piparrót og nýuppteknum kartöflum í
aðalrétt og loks skyrrétt með bláberj-
um og deigmylsnu ofan á.
Uppskriftakeppnin er nú í fullum
gangi en uppskriftin getur verið að
forrétti, aðalrétti eða eftirrétti, allt
eftir því sem nemendum dettur í hug.
Sigurvegarinn fær skemmtileg verð-
laun að hætti matgæðinga, meðal
annars út að borða fyrir tvo á Fisk-
markaðnum ásamt. Þar að auki verður
haldinn eins konar hátíðar-hádeg-
isverður þar sem vinningsrétturinn
verður eldaður fyrir nemendur skól-
ans. „Full borg matar er spennandi há-
tíð og okkur finnst skemmtilegt að
taka þátt í henni. Hátíðin snýst um ís-
lenska matargerð þannig að íslenskt
hráefni og uppskrift er þemað í keppn-
inni hjá okkur,“ segir Sigríður Erla.
Full borg matar í Versló
Vandvirkir Nemendur fengu að smakka girnilegan mat.
Uppskriftakeppni nemenda
Loðin Þessi taska
minnir kannski helst á
krúttlegt gæludýr.
Smart Óvenjuleg lita-
samsetning sem
gengur vel upp.
Sjóaraleg Þessi gengur
við bæði hvítt og svart.
Ljósmyndasýningin Fuglablik er
tileinkuð Hjálmari R. Bárðarsyni
sem lést í mars 2009. Í tilkynn-
ingu segir að Hjálmar hafi verið
brautryðjandi í fuglaljós-
myndun hér á landi og hann gaf
út fyrstu stóru ljósmyndabók-
ina um íslenska fugla árið 1986.
Hjálmar, ásamt Grétari Eiríks-
syni, var af annarri kynslóð ís-
lenskra fuglaljósmyndara en
það var Björn Björnsson frá
Norðfirði sem ruddi brautina.
Hjálmar var gríðarlega áhuga-
samur, iðinn, nákvæmur og list-
rænn í ljósmyndun sinni.
Ljósmyndarar sýningarinnar
eru á aldrinum 14 til 87 ára.
Sammerkt með verkunum er
aðdáun og virðing á íslenskri
náttúru og íslenskum fuglum. Í
verkunum leika ljósmyndararnir
sér að litum, ljósi og skugga,
sýna fugla að leik og starfi, í
aksjón eða kyrra, portrett eða
sem hluta af náttúrunni. Efn-
istökin eru jafn margbreytileg
og ljósmyndararnir eru margir.
Sýningin stendur til 25. sept-
ember og er opin virka daga frá
kl. 8-19 en um helgar frá kl. 12-
18.
Fuglablik
LJÓSMYNDASÝNING
FUGLAVERNDAR
Kæru landsmenn
Til hamingju með
Dag íslenskrar náttúru!
Upplýsingar um dagskrá er að finna á
www.umhverfisraduneyti.is
Í aldanna rás hefur íslensk náttúra gefið okkur kraft
og veitt innblástur um leið og hún hefur gert okkur
kleift að lifa af í harðbýlu landi.
Í náttúru landsins er falinn fjársjóður sem mikilvægt
er að varðveita fyrir komandi kynslóðir.
Höldum daginn hátíðlegan og njótum þess sem
íslensk náttúra hefur að bjóða.