Morgunblaðið - 16.09.2011, Blaðsíða 18
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Unnendur góðs bjórs hafa ástæðu til
að kætast í dag því nú má finna nýj-
an íslenskan bjór í kælum vínveit-
ingahúsa. Þrír Bandaríkjamenn
standa að baki Einstök Beer og
stefna á heimsyfirráð.
„Föstudaginn 16. desember á
bjórinn að vera fáanlegur á völdum
stöðum. Við vonumst til að hafa lokið
samningum við ÁTVR innan
skamms og að hægt verði að fá Ein-
stök í vínbúðum 1. október,“ segir
Jack Sichterman, talsmaður hóps-
ins, og bætir við að áður en árið er á
enda verði búið að setja þrjár teg-
undir af Einstök-bjór á markað.
Upphafið að bjórævintýrinu var
að einn þremenninganna, Bernard
LaBorie, lagði af stað í heimsreisu til
að finna heimsins besta vatn. „Hann
langaði að búa til nýtt vörumerki í
drykkjarvatnsbransanum og varði
mörgum árum í að leita, bókstaflega
út um allan heim, að besta vatninu.
Leitin endaði á Íslandi, og í fram-
haldinu hafði Bernard samband við
mig og David Altshuler um að taka
þátt í að framleiða nýtt hágæða
drykkjarvatnsmerki,“ útskýrir Jack.
„Þetta var árið 2006, en áætlanir
okkar breyttust í lok árs 2007 þegar
fór að bóla á samdrætti á öllum
helstu mörkuðum. Við sáum fram á
að væri ekki lengur fýsilegt að koma
með lúxusvatn á markað við þær að-
stæður. Það getur vel verið að við
tökum aftur upp þráðinn síðar, en í
bili var vatnið lagt á hilluna.“
Við undirbúning vatnssölunnar
höfðu félagarnir m.a. heimsótt Víf-
ilfell og Víking-brugghúsið á Akur-
eyri. „Við smökkuðum hjá þeim
bjórinn og vorum hissa á að fyrir-
tækin væru ekki að leggja meiri
kraft í útflutning. Íslenskur bjór býr
nefnilega yfir mörgum einkennum
sem aðrir bjórframleiðendur falsa.
Oft er t.d. lítil innistæða fyrir full-
yrðingum bjórframleiðenda um
hreinleika vatnsins eða þeirri karl-
mannlegu ímynd sem þeir reyna að
skapa í kringum bjórtegundina sína,
en hér á Íslandi er þetta allt til stað-
ar og meira til.“
Bjór fyrir smekkmenn
Jack segir þremenningana hafa
séð mikil tækifæri fyrir íslenskan
bjór á erlendum mörkuðum og
ákveðið að láta slag standa. Þeir
ætla samt ekki að keppa við risa eins
og Carlsberg og Budweiser: stefnan
er sett á svokallaðan craft beer-
markað, sem á íslensku mætti kalla
handverksbjór. Framleiðslan er í
hlutfallslega litlu magni en nostrað
við bjórinn og reynt að höfða til
þeirra sem hafa ástríðu fyrir góðum
og blæbrigðaríkum bjór.
Að sögn Jacks eru margir þættir
sem munu styðja við markaðssetn-
ingu Einstök. „Gæði vatnsins hafa
sitt að segja með gæði bjórsins og
það spilar með öðrum innihaldsefn-
um til að skapa gott bragð. Þá er
næsta víst að Einstök verður eini
bjórinn fáanlegur á mörkuðum okk-
ar erlendis þar sem ekki hefur þurft
að dauðhreinsa vatnið fyrir fram-
leiðslu,“ segir Jack en bruggunin fer
fram hjá Víking á Akureyri. „Upp-
skriftin er í höndum Baldurs Kára-
sonar, bruggmeistara Víking. Hon-
um hefur tekist ákaflega vel til og
nýtt alla sína víðtæku þekkingu við
bruggunina.“
Sterkasti meðbyrinn segir Jack
samt að komi til af þeirri ímynd sem
Ísland hefur. „Bjórframleiðendur
reyna t.d. iðulega að tengja tegundir
sínar við fallegt fólk. Oftast er þar
um algjöra glansmynd að ræða, en í
tilviki Íslands er mikil innistæða fyr-
ir þess konar tengingu. Ekki aðeins
er fólkið í landinu ákaflega mynd-
arlegt, heldur líka með gott innræti,
almennilegt og ævintýragjarnt.“
Með augastað á vaxandi geira
Góð ástæða er fyrir því að fram-
leiðendur Einstök einblína á hand-
verksbjórs-markaðinn. Síðustu ár
hefur mátt sjá mikinn vöxt í þeim
hluta bjórgeirans og sístækkandi
hópur neytenda sem sækist eftir
öðruvísi bjór og meiri fjölbreytni í
drykkjarúrvali. „Þetta er ekki fólk
sem kaupir alltaf sama bjórinn og á
kippu inni í ísskáp, heldur hefur
þessi hópur gaman af að halda upp á
margar tegundir með ólíka eigin-
leika. Þetta er fólk sem ber saman
bækur sínar við bjórunnendur í
vinahópnum og hreykir sér jafnvel
af að vera fyrst til að uppgötva
spennandi nýja tegund á markaðin-
um.“
Jack segir líka mikilvægt að geta
farið hægt í sakirnar með smárri
framleiðslu fyrst um sinn. Félagarn-
ir vilja ekki fara fram úr sjálfum sér
og geta staðið við allar skuldbind-
ingar. Ekki er samt þar með sagt að
markið sé sett lágt. „Við byrjum á
Íslenska markaðinum enda finnst
okkur Íslendingar eiga það skilið að
vera fyrstir til að gefa álit sitt á þes-
um nýja bjór. Fljótlega munum við
hefja sölu á Bretlandsmarkaði og í
október mun Einstök fást í Kaliforn-
íu og í framhaldinu í Illinois á Chi-
cago-svæðinu. Bara á þessum fyrstu
markaðssvæðum sem við veljum
náum við til um 40 milljóna manns,“
segir Jack. „Spár gera ráð fyrir að
við munum fyrst um sinn nota um
þriðjung af framleiðslugetu Víking-
verksmiðjunnar, en ef markaðurinn
tekur mjög vel við vörunni er senni-
legt að við þurfum að gera aðrar ráð-
stafanir – en það verður seinni tíma
vandamál.“
Jack reiknar með að verkefnið
dæli nokkrum tugum milljóna króna
inn í hagkerfi Íslands næstu mánuði,
en gangi allt að óskum býst hann við
að framleiðslan verði mun umfangs-
meiri. „Við ætlum okkur að búa til
vörumerki sem verður þekkt um all-
an heim. Eftir þrjú til fimm ár vilj-
um við að Einstök Beer sé orðin
þekktasta útflutningsvara Íslands.
Við ætlum að kenna öllum heiminum
að segja „skál“.“
Byggja á ímynd Íslands
Bandarískir viðskiptamenn brugga íslenskan bjór til útflutnings Bjórinn verður kominn til
40 milljóna neytenda á næstu mánuðum Hyggjast gera vörumerki sem verður þekkt um allan heim
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2011
!"# $% " &'( )* '$*
++,-./
+.0-0/
++1-++
2+-3.0
24-//5
+1-30
+02-1+
+-,+22
+.2-13
+/4-4+
++/-+3
+.0-.+
++1-3,
2+-,3/
24-10
+1-3.+
+00-4.
+-,+//
+.0-2.
+/4-3/
2+,-1,3.
++/-32
+.3-2/
++1-15
2+-/45
24-15+
+1-,02
+00-3,
+-,2+
+.0-.2
+/4-5+
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Þremenningarnir sem standa að framleiðslu Einstök eru
engir aukvisar á sviði viðskipta.
Bernard LaBorie er mikill reynslubolti úr lúxusvörugeir-
anum. Hann hefur m.a. starfað mikið við markaðs-
setningu úrvalsvína, var í stjórn einnar virtustu víngerð-
ar Kaliforníu og var þar áður hjá
konínaksframleiðandanum Rémy Martin.
David Altshul er er lögfræðingurinn í hópnum. Hann þyk-
ir útsmoginn viðskiptamaður, með góðan skilning á
mörkuðum og fjárfestingarmöguleikum, enda á hann að
baki langan feril við ráðgjöf sprotafyrirtækja.
Jack Sichterman er auglýsingagúru. Hann rekur eigið
auglýsingafyrirtæki og hefur m.a. sinnt verkefnum fyrir
bjórrisann Miller og vínrisann Gaja Wines.
Auk þess að leggja eigið fé og tíma í verkefnið njóta
þeir Jack, Bernard og David liðssinnis öflugs fjárfestis,
konu sem ekki vill láta nafns síns getið.
Stórhuga Félagarnir Bernard, Jack og David vonast til að gera Einstök að þekktustu útflutningsvöru Íslands.
Föstudaginn 30. september kemur út glæsilegt
sérblað um hannyrðir, föndur og tómstundir
sem fylgja munMorgunblaðinu þann dag
–– Meira fyrir lesendur
SÉ
R
B
LA
Ð
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 26. eptember
Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is
Sími: 569-1105
Han
nyrð
ir, fö
ndur
& tó
mstu
ndir
MEÐAL EFNIS:
Hannyrðir
Skartgripagerð
Jólakortagerð
Útsaumur
Prjón og hekl
Málun
Bútasaumur
Módelsmíði
Rætt við fólk sem
kennir föndur
Rætt við þá sem sauma
og selja föndurvörur
Föndur með börnunum og
þeim sem eldri eru
Ásamt fullt af öðru
spennandi efni
Hannyrðir, föndur & tómstundir
Mennirnir á bak við bjórinn