Morgunblaðið - 16.09.2011, Side 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2011
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Helle Thorning-Schmidt, leiðtogi Jafnaðar-
mannaflokksins danska, verður næsti forsætis-
ráðherra Dana og fyrst kvenna til að gegna því
embætti. Þegar búið var að telja 98% atkvæða í
kosningunum í gær var flokkabandalag hennar
með 89 sæti en borgaralegu flokkarnir með 86.
Fjögur sæti deilast síðan á Færeyjar og Græn-
land, af þeim fá vinstrimenn þrjú og því alls 92,
borgaralegu öflin fá alls 87. Flokkur Thorning-
Schmidt tapaði hins vegar fylgi frá síðustu kosn-
ingum, fékk 24,9% atkvæða og 44 þingsæti, tapaði
einu. Er þetta minnsta fylgi sem flokkurinn hefur
fengið í meira en öld.
Venstre, forystuflokkur í ríkisstjórnum Dana
síðustu tólf árin, er áfram stærstur, fékk 26,7% at-
kvæða og 47 þingsæti, bætti við sig einu. Þykir
þetta vera mikill varnarsigur fyrir Lars Løkke
Rasmussen forsætisráðherra. „Við föllum með
heiðri og sóma,“ sagði einn af ráðherrum hans,
Søren Pind.
Pópúlistaflokkur Piu Kjærsgaard, Danski þjóð-
arflokkurinn, bætti við sig nokkru fylgi en hann
hefur veitt stjórn borgaraflokkanna stuðning á
þingi án þess að gegna ráðherraembættum. Radi-
kale Venstre, sem er miðflokkur þrátt fyrir nafn-
ið, og Einingarlistinn, sem er lengst til vinstri í lit-
rófi danskra stjórnmála, unnu báðir mikið á.
Ljóst var að Sósíalíski vinstriflokkurinn myndi
tapa miklu fylgi en sárabótin var að flokkurinn
myndi í fyrsta sinn í 50 ára sögu sinni fá sæti í rík-
isstjórn.
Íhaldsflokkurinn galt afhroð
Ljóst er að Thorning-Schmidt bíður erfitt verk-
efni, efnahagur Dana hefur versnað og hart er
deilt um tillögur hennar sem andstæðingarnir
segja að geti stóraukið ríkisskuldirnar.
Íhaldsflokkurinn galt afhroð, virtist ætla að
missa minnst helming þingsæta sinna. En Brian
Mikkelsen, ráðherra efnahags- og atvinnumála,
spáði því að ný samsteypustjórn vinstri- og miðju-
manna með Thorning-Schmidt í forystu yrði ekki
langlíf. „Hún [stjórnin] verður að spanna allt frá
Einingarlistanum til Radikale, það verður snúið
verkefni og það verða fljótlega kosningar á ný,“
sagði Mikkelsen.
Naumur sigur Thorning-Schmidt
Venstre er stærsti flokkurinn en jafnaðarmenn með minnsta fylgi í meira en öld
Íhaldsflokkurinn galt afhroð og Sósíalíski vinstriflokkurinn tapaði einnig miklu fylgi
Reuters
Tapaði og vann Helle Thorning-Schmidt, gamall
leiðtogi jafnaðarmanna, við kjörklefann í gær.
Hnífjafnt 1998
» Alls sitja 179 manns á
danska þjóðþinginu, þar af eru
tveir frá Færeyjum og tveir frá
Grænlandi.
» Í kosningunum 1998 réð
annað þingsæti Færeyinga úr-
slitum.
» Jafnaðarmenn hrepptu sæt-
ið með 179 atkvæði fram yfir
Sambandsflokkinn sem styður
borgaralegu flokkana.
» Uffe Ellemann-Jensen, leið-
togi Venstre, varð því að sætta
sig við að jafnaðarmaðurinn
Poul Nyrup Rasmussen yrði
forsætisráðherra.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, hét í gær bráðabirgða-
stjórninni í Líbíu aðstoð Breta við
leitina að Muammar Gaddafi, fyrr-
verandi einræðisherra landsins.
Cameron og Nicolas Sarkozy, forseti
Frakklands, fóru til Líbíu í gær og er
þetta í fyrsta skipti sem erlendir
þjóðarleiðtogar heimsækja landið
eftir að uppreisnarmenn náðu höfuð-
borginni Trípólí á sitt vald.
„Við verðum að halda áfram þessu
verkefni NATO þar til allir íbúar
landsins njóta verndar og þar til
verkinu er lokið,“ sagði Cameron.
„Við hjálpum ykkur að finna Gaddafi
og láta hann svara til saka fyrir
rétti.“
Sarkozy sagði að Líbíumönnum
stafaði enn hætta af Gaddafi og
vopnuðum liðsmönnum hans. Hann
lagði áherslu á að „engar annarlegar
hvatir“ lægju á bak við aðstoð
NATO-ríkjanna við bráðabirgða-
stjórnina í Líbíu. „Við gerðum þetta
vegna þess að við töldum það rétt.“
Sarkozy og Cameron fóru lofsam-
legum orðum um hugrekki líbísku
þjóðarinnar og lofuðu að aðstoða
þjóðarráðið við að koma á lýðræði og
tryggja varanlegan frið í landinu.
Sarkozy hvatti Líbíumenn til að
forðast hefndir og til að leitast við að
tryggja þjóðareiningu og sættir.
Sarkozy og Cameron njóta mikilla
vinsælda í Líbíu vegna þáttar þeirra
í aðstoðinni við að binda enda á 42
ára einræði Gaddafis.
Leiðtogarnir ræddu við Mustafa
Abdul Jalil, formann þjóðarráðsins,
sem þakkaði þeim fyrir aðstoðina.
Jalil hefur óskað eftir vopnum til að
gera þjóðarráðinu kleift að ná öllu
landinu á sitt vald og sigrast á þeim
liðsmönnum Gaddafis sem veita enn
mótspyrnu. Hann sagði að Gaddafi
væri í felum í suðurhluta landsins að
undirbúa árásir á borgir, olíu-
vinnslusvæði og orkuver.
Lofa aðstoð við að finna Gaddafi
Reuters
Hönd í hönd Sarkozy, Cameron og Mustafa Abdul Jalil í Benghazi.
Cameron og Sarkozy heimsækja Líbíu fyrstir þjóðarleiðtoga Heita því að aðgerðum NATO verði
haldið áfram uns allir Líbíumenn njóti verndar Jalil segir að Gaddafi sé í felum í suðurhluta landsins
Barn fylgist með sýningu franska götulista-
mannsins Adams Chaise (til vinstri á myndinni)
sem bjó til vatns- og sápubólur á torgi í Búda-
pest, höfuðborg Ungverjalands. Hópur manna
safnaðist saman á torginu í gær þegar Chaise lék
listir sínar og bjó til margbreytilegar bólur.
Reuters
Bólur blásnar í Búdapest
Lögreglan í
Lundúnum hand-
tók í gær 31 árs
mann, Kweku
Adoboli, sem
grunaður er um
óheimil viðskipti
sem áætlað er að
hafi kostað sviss-
neska bankann
UBS um tvo
milljarða dollara,
sem svarar 230 milljörðum króna.
Gengi hlutabréfa í UBS lækkaði
um 8% eftir að bankinn tilkynnti að
hann væri að rannsaka óheimil og
áhættusöm viðskipti starfsmanns. Í
bréfi til 65.000 starfsmanna bank-
ans segir að tjónið, sem hlaust af
viðskiptunum, geti leitt til rekstrar-
taps á þriðja fjórðungi ársins.
Að sögn breskra fjölmiðla hefur
Adoboli verið yfirmaður deildar
sem annast viðskipti á skipulegum
verðbréfamarkaði í Evrópu.
UBS er einn stærsti banki í heim-
inum og sá stærsti í Sviss. Sviss-
neska ríkið bjargaði UBS árið 2008
eftir mikið tap bankans vegna
slæmra fjárfestinga.
Tapaði 230
milljörðum
króna
Handtekinn fyrir
óheimil viðskipti
UBS-banki í
Lundúnum.
Nokkrir vopnuðu hópanna, sem
tóku þátt í uppreisninni gegn
Gaddafi, hafa lagst gegn áform-
um Mustafa Abduls Jalils, for-
manns þjóðarráðsins, um að
sameina og færa þá undir stjórn
ráðsins. Foringjar vopnuðu hóp-
anna segja að Jalil sé „þrándur í
götu byltingarinnar“ og sé að
„reyna að skipta landinu“. Þeir
krefjast þess að Jalil falli frá
áformunum og segi af sér, að
því er fram kemur á fréttavef
breska ríkisútvarpsins.
Jalil andæft
ÓEINING Í UPPREISNARLIÐINU