Morgunblaðið - 16.09.2011, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2011
Jesús skilgreinir
fylgendur sína m.a.
sem vini og lærisveina
og býður þeim að fara
um heiminn og boða
hjálpræðisverkið sem
hann gaf forðum daga
með dauða sínum á
Golgata. Þannig skil-
greinir Jesús syndugt
mannkyn sem heiðinn
heim. Kristniboðarnir
starfa á þessum heiðna akri, að vilja
Guðs, en þar starfa líka margir
„andlegir dópsalar og hryðjuverka-
menn“, sem láta stjórnast af illu
andavaldi. Baráttan er slungin og
heiðnu öflin nýta sér óspart mann-
lega veikleika eins og ofmetnað og
ágirnd. Ef kristið fólk heldur ekki
vöku sinni getur það veikst svo í
trúnni að andskotinn gerir það að
„burðardýrum“ sínum.
Hver er staða þeirra sem telja sig
kristna en hafna skilgreiningu Bibl-
íunnar á hvað í því felst. Fólk getur
verið skírt og fermt. Það getur ver-
ið menntað í guðfræði en staða þess
í kristninni er samt ekki sterkari en
svo að það leikur sér að því að taka
„karmalögmálið“, „þróunarkenn-
inguna“, og guð múslíma, Allah, inn
í sinn prívat kristindóm, svo lítið
eitt sé nefnt. Úr þessu trúarsulli
gerir þetta „kristna“ fólk svo trúar-
velling sem það étur sjálft með
góðri lyst og reynir með ýmsu móti
að plata þeirri ólyfjan í aðra. Þetta
umburðarlynda, kristna sér-
trúarfólk er blint á merkingu og til-
gang hjálpræðisverksins í Jesú
Kristi. Fólk í þessari stöðu vill verja
trúarheiminn sem það hefur gert
sér með öllum ráðum. Ég þekki
þetta af eigin raun og var sjálfur í
þess sporum. Hin kristna sýn ESB
stendur einmitt í sporum „burð-
ardýrsins“. Þessi óraunsæu sjón-
armið á kristindóminn eru stór-
hættuleg og öll á áhrifasvæði
Satans. Ef villuráfandi snúa sér
ekki af einlægu hjarta til Jesú
Krists, iðrast villu sinnar, og end-
urnýja samband sitt við hann, í
sannleika Orðsins, þá er því fólki ei-
líf glötun búin.
Guð kristinna manna, Jesús
Kristur, er lifandi persóna og þráir
að frelsa alla dauðlega menn. Að
játa Jesú sem frelsara sinn er vilja
ákvörðun sem hver og einn verður
að taka fyrir sig af heilum hug og
auðmjúku hjarta. Það gerir fólk á
hvaða aldri sem er og hvar sem er
þegar Guð kallar til fylgdar. Skírnin
er svo sjálfstætt trúarskref.
Lítið barn sem skírt er til krist-
innar trúar og borið er fram af trú
foreldranna, vex og Jesús vill heyra
játninguna af vörum þess sem nú er
fullorðinn. Ferming er trúarskref
og fermingarfræðslan forsenda þess
að unglingurinn öðlist skilning á
sinni trú og staðfesti barnaskírnina.
En Jesús Kristur myndar tengsl og
kysi ef til vill stundum að hafa meiri
tíma með unglingnum við undirbún-
ing en dagsettur fermingardagur
ákveður. Á fermingardaginn segja
börnin JÁ við Jesú og meina það,
en við forgangsröðun verkefna á
yngri árum getur trúarlífið orðið út-
undan og þá er hættan
sú að viðkomandi hafni
Guði eða geri sér sína
eigin guðsmynd. Sterk
barnatrú getur varð-
veist sé hún ræktuð og
að henni hlúð. Ferm-
ingin á ekki að vera
„lokapróf“ heldur „inn-
tökupróf“ kristins lífs-
máta þar sem Biblían
er áttavitinn. Hver og
einn er ábyrgur fyrir
sínum trúarvexti og
þeir sem ganga í trúnni
með snuðið og pelann fram á elli ár
geta í barnaskap sínum opnað fyrir
óæskilegum áhrifum frá öðrum
trúarbrögðum, sem leiðir til hjá-
guðadýrkunar. Fólk sem slær slöku
við bænir, lestur Biblíunnar og
ræktar ekki kristið trúarsamfélag
býður hættunni heim. Huggun er að
í hvaða trúarlegri stöðu sem menn
eru, er Jesús jafnan nálægur, að
frelsa þá sem til hans leita í iðrun
og bæn. Hjálpræðið í Jesú Kristi er
einstætt fyrir kristna trú, Jesús
gætir sjálfur dyranna og girðir lóð-
ina. Jesús segir:
„Ég er dyrnar, Sá sem kemur inn
um mig, mun frelsast, og hann mun
ganga inn og út og finna haga“ (Jh
10:9).
„Hver sem ekki er með mér, er á
móti mér,og hver sem safnar ekki
saman með mér, hann sund-
urdreifir“ (Mt 12:30).
„ Ég er vegurinn, sannleikurinn
og lífið. Enginn kemur til föðurins,
nema fyrir mig“ (Jh 14:6).
„Hvern þann sem kannast við
mig fyrir mönnunum, mun ég við
kannast fyrir föður mínum á himn-
um. – En þeim sem afneitar mér
fyrir mönnunum, mun ég afneita
fyrir föður mínum á himnum“ (Mt
10:32-33).
Jesús Kristur lét ekki krossfesta
sig upp á grín. Hann var að gefa
mannkyninu mótefni gegn banvæn-
asta og hættulegast sjúkdómi sem á
manninn herjar „SYNDINNI“.
Þetta „lyf“ greiddi hann fyrir með
blóði sínu og hvar er þetta lyf að
finna, er það selt í apótekum? Nei,
það er á „lyfseðli“ sem við fyllum út
sjálf í játningu og trú, samfara iðr-
andi hjarta og má vera bæntexti
þessum líkur: „Drottinn Jesús, ég
játa þig sem frelsara minn og lausn-
ara og bið þig að gefa mér iðrun í
hjarta svo ég geti í trú tekið við
þeirri gjöf að þú varst krossfestur
vegna synda minna svo að ég megi
lifa með þér á himnum þegar jarð-
vist minni líkur. Dauði þinn á kross-
inum á Golgata er sú fórn sem ég
játa mér til hjálpræðis og trúi í
hjarta mínu að gefi mér nýtt líf“.
Það eru engin grá svæði hjá Jesú.
Hann kærir sig greinilega ekki um
neitt samstarf við Allah eða Búdda.
Hann einn getur boðið upp á veginn
sem liggur til eilífs lífs. Jesús breyt-
ist ekki til hlýðni við menn, en
menn breytast til hlýðni við hann.
Ég bið Íslendingum guðs friðar.
Vík frá mér, Satan
Eftir Ársæl
Þórðarson
Ársæll Þórðarson
» Það eru engin grá
svæði hjá Jesú.
Höfundur er húsasmiður.
Þann 30. ágúst sl.
birtist grein í Morg-
unblaðinu undir nafn-
inu „„Vinir“ Ísraels
mættu hugleiða varn-
aðarorð Noams
Chomskys“ eftir Ara
Tryggvason, meðlim í
Félaginu Ísland-
Palestína.
Vandinn sem
Chomsky telur Ísrael
vera í stafar hins veg-
ar af aðgerðum Arabasambandsins
OIC sem heildar, sem eru nú að
leika þann sama leik og framinn
var gagnvart Serbum að því er
varðar Kósóvó, en það var að gera
Kósóvó að sjálfstæðu ríki í gegn
um samþykktir SÞ. En málum er
nú orðið þar svo háttað að músl-
íma- og kommúnistablokkin ræður
öllu sem þar gerist.
Það sem ekki tókst með hern-
aðaraðgerðum araba og engar lík-
ur eru til að gerist í náinni framtíð
er að arabar hafi hernaðarsigur
gegn Ísrael. Mennt-
unarstigi þeirra er
þannig háttað að þeir
hafa lengst af verið
ófærir um að standa í
hátæknivæddu stríði,
enda íslömsk hug-
myndafræði ekki
þekkt fyrir að byggja
á rökrænum hugs-
unum, sem eru lyk-
ilatriði í nútímahern-
aði.
Vilja fá landið á
silfurfati
Með öðrum orðum, arabar vilja
nú ná því landi aftur sem þeir töp-
uðu í 6 daga stríðinu árið 1967
með aðgerðum SÞ fyrir tilverknað
atkvæðablokka kommúnista og
múslíma þar. Nýtt stríð þora þeir
ekki að leggja í einfaldlega vegna
óttans um að tapa stórum hluta
Líbanons, Sýrlands, Jórdaníu og
Egyptalands. Arabar hafa því látið
sér nægja að láta eldflaugaregn
dynja stöðugt á suðurhluta Ísraels
nótt sem nýtan dag. Áhrifin eru
fremur sálræn en hernaðarleg, þar
sem sífelldar sprengingar halda
vökum fyrir börnum, öldruðum og
konum.
En hver er annars þessi Noam
Chomsky fyrir utan að vera mál-
vísindamaður? Er hann vinur Ísr-
aels og líklegur til að gefa þeim
hollráð?
Vinir Noams Chomskys
óvinir Ísraels
Um önnur áhugamál Chomskys
ætla ég að leita í smiðju Melanie
Phillips, rithöfundar bókarinnar
„The World Tuned Upside Down“
sem kom nýlega út. Þar segir um
Chomsky og sálufélaga hans á bls.
182:
„Á meðan fordómar gegn Ísrael
og gyðingum er hnattrænir, þá er
það einnig og sér í lagi einkenni
menntastéttarinnar. Það fer áber-
andi saman við menntun og fé-
lagslega stöðu. Því hærra, sem
menn eru staddir í þeim skala því
illskeyttari og öfgafyllri eru for-
dómarnir. Í Bretlandi, sameinast
þeir í íhaldssömum „Miðstéttar-
Bretum“ og frjálslyndum sófa-,
borgaralegum samfélögum. Í
Bandaríkjunum nær það frá Noam
Chomsky, öfga-vinstri-sinna, í
gegnum fyrrverandi forseta Demó-
krataflokksins, Jimmy Carter, til
John Mearsheimer og Stephen
Walt á hinum „nýja raunsæja“
hægri armi.
Á blaðsíðu 214-215 segir Mrs.
Phillips eftirfarandi um Chomsky:
Sumir vinstrisinnar hafa ekki
látið sér nægja að ganga samhliða
íslamistunum, en hafa gengið bók-
staflega í flokk þeirra. Þannig hef-
ur hinn fyrrverandi öfga-vinstri-
sinnaði borgarstjóri London, Ken
Livingstone, opinberlega faðmað
Sheikh Yusuf al-Qaradawi, hið lög-
lega yfirvald Múslímska bræðra-
lagsins, sem hefur opinberlega
stutt íslamska hryðjuverka-
starfsemi, haft í orði öfgafulla for-
dóma í garð gyðinga og réttlætt
aftöku samkynhneigðra undir ísl-
amskri stjórn og heimilisofbeldi
gegn konum. Í maí 2006, ferðaðist
Noam Chomsky til Beirut og um-
faðmaði Sheikh Hassan Nasrallah,
yfirmann Hezbollah, sem hvað eft-
ir annað hefur hvatt til eyðilegg-
ingar Bandaríkjanna. Árið 1983
myrti Hezbollah 241 bandaríska
sjóliða í Líbanon ásamt með fjölda
Ísraelsmanna og gyðinga – en það
voru atvik sem Chomsky skil-
greindi sem „réttlætanlegar fæl-
ingar gegn árás.““
Ég held að engir vinir Ísraels
muni leita til Chomskys um holl-
ráð. Hans ráð eru óráð, og engum
til gagns nema arabískri heims-
valdastefnu.
Ari vitnar í fimm egypska lög-
reglumenn sem féllu syðst í Ísrael
við innrásaraðgerðir inn í Ísrael.
Þessir „lögreglumenn“ reyndust
vera nýsloppnir úr fangelsi Múb-
araks, Egyptalandsforseta, fyrir
landráðastarfsemi og höfðu stolið
einkennisbúningum lögreglunnar
og laumast inn í Ísrael undir fölsk-
um forsendum. Þaðan létu þeir
skothríð dynja á vegfarendum.
Eftir Skúla
Skúlason » Chomsky er vinur
Nasrallah, forseta
Hezbollah ásamt Sheikh
Yusuf al-Qaradawi, lög-
legu yfirvaldi Mús-
limska bræðralagsins,
báðir svarnir óvinir Ísr-
aels.
Skúli
Skúlason Höfundur er þýðandi og bloggari.
Noam Chomsky vinur Ísraels?
smáauglýsingar
mbl.is
býður áskrifendum á völlinn
A LANDSLIÐ KVENNA
ÍSLAND – NOREGUR
17. september kl. 16:00
Laugardalsvöllur
– meira fyrir áskrifendur
Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift
eða í síma 569 1122
Fyrstu 50 áskrifendur fá 2 miða á leik Íslands og Noregs.
Sækja þarf miðana í afgreiðslu Morgunblaðsins
í Hádegismóum 2. Framvísið moggaklúbbskortinu
við afhendingu.
KORTIÐ GIL
DIR TIL
30.09.2011
– MEIRA F
YRIR ÁSK
RIFENDU
RMOGGAKLÚB
BURINN