Morgunblaðið - 16.09.2011, Page 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2011
✝ Anna BjörgBjörnsdóttir
fæddist á Dalvík
16. júní 1938. Hún
lést á Sjúkrahúsinu
á Akureyri 30.
ágúst 2011.
Foreldrar henn-
ar voru svarf-
dælsku hjónin
Björn Zophonías
Arngrímsson for-
maður, f. í Tjarn-
argarðshorni 7. maí 1900, d. 28.
janúar 1950, og Sigrún Júl-
íusdóttir húsmóðir, f. á Dalvík
25. júlí 1911, d. 22. desember
1979. Systkini Önnu Bjargar
eru Hörður Björnsson, f. 30.
október 1927 á Dalvík, tvíbur-
arnir Hrönn Arnheiður, f. á
Dalvík 18. september 1931, og
Alda Hildigunnur, er dó 3.
ágúst 1935, og tvíburarnir
Garðar og Gylfi, f. á Dalvík 23.
júní 1936.
Á gamlársdag 1964 giftist
Anna Björg Hjalta Þorsteins-
syni málarameistara og áttu
þau fjögur börn: 1)
Sigrúnu, f. 26. des-
ember 1956. Sam-
býlismaður hennar
er Sævar Sigmars-
son og eiga þau
þrjú börn, a) Söru
Hrönn, f. 4. janúar
1977. Hún á dótt-
urina Sigrúnu
Önnu, f. 3. ágúst
2006 með Agli Þór
Valgeirssyni. Önn-
ur börn Sigrúnar og Sævars
eru b) Gunnhildur Anna, f. 23.
september 1983 og c) Sævar
Örn, f. 30. desember 1990. 2)
Jón, f. 24. janúar 1959. Eig-
inkona hans er Lovísa Björk
Kristjánsdóttir og eiga þau
þrjár dætur, a) Önnu Rut, f. 28.
desember 1980, sem á með
Kristjáni Þóri Kristjánssyni
dótturina Lovísu Marý, f. 14.
febrúar 2001, b) Höllu Dögg, f.
26. febrúar 1985, sem á með
sambýlismanni sínum, Kára
Valtýssyni, dótturina Hönnu
Björk, f. 23. júlí 2010. Þriðja
dóttirin er c) Kristín Arna, f.
22. júní 1990. 3) Hrönn, f. 7. júlí
1960. Hún á með Brynjari Að-
alsteinssyni, a) Telmu Ýrr, f.
26. ágúst 1980. Telma á þrjú
börn, Anítu Hrund Brynj-
arsdóttur, f. 13. september
2001, og með sambýlismanni
sínum Elmari Þór Björnssyni á
hún Aðalstein Mána, f. 13. des-
ember 2003 og Önnu Björgu, f.
6. júlí 2006. Með fyrrverandi
eiginmanni sínum, Eini Erni
Einissyni, á Hrönn tvö börn,
þær a) Tinnu Ýr, f. 26. maí
1989, og b) Tönju Ýr, f. 7. júní
1992.
4) Þorsteinn, f. 1. maí 1963.
Eiginkona hans er Hrafnhildur
Björnsdóttir og eiga þau tvo
syni, a) Hjalta, f. 21. mars 1991,
og b) Hörð, f. 11. júní 1993. Auk
þess á Þorsteinn eina dóttur, c)
Ingibjörgu, f. 20. júlí 1988, með
Guðrúnu Gauksdóttur.
Seinni maður Önnu Bjargar
var Gísli Jónsson mennta-
skólakennari. Þau gengu í
hjónaband 12. apríl 1984. Gísli
fæddist á Hofi í Svarfaðardal
14. september 1925 og andaðist
26. nóvember 2001.
Anna Björg verður jarð-
sungin frá Akureyrarkirkju í
dag, 16. september 2011, og
hefst athöfnin kl. 13.30.
Anna Björg er farin. Hún
kvaddi á fallegum síðsumarsdegi.
Það átti ekki að koma á óvart en
gerði það samt.
Við Anna Björg kynntumst ár-
ið 1990 þegar ég, þá tiltölulega ný-
flutt til Akureyrar, gekk til liðs við
félagsskap þar sem hún var fyrir.
Við unnum saman að ýmsum við-
fangsefnum þar innan dyra, sem
kölluðu á samskipti þess á milli,
en umgengumst ekki að öðru
leyti. Frá fyrstu tíð var hún mér
einstaklega velviljuð og á milli
okkar spannst þráður sem styrkt-
ist með árunum og enn frekar
styrktust vináttuböndin eftir að
hún sagði mér frá þeim sjúkdómi
sem hún greindist með. Það var á
sumardaginn fyrsta fyrir nokkr-
um árum. Við stöllurnar, Önnurn-
ar þrjár, Anna Björg, Anna Blön-
dal og Anna Þóra og Helga og
Jóhanna, sem lengi höfum fylgst
að í þessum félagsskap, brallað
margt saman, unnið að hinum
ýmsu verkefnum, ferðast saman
og átt gleðistundir, ætluðum að
baka vöfflur fyrir gesti og gang-
andi þennan dag eins og svo oft
áður. Í fyrsta skipti ætlaði Anna
Björg ekki að vera með og það
eiginlega án haldbærrar skýring-
ar eða sýnilegrar ástæðu að því er
okkur stöllum hennar fannst. Ég
fór að finna hana í lok dags. Þá
kom skýringin.
Anna Björg hafði fengið það
verkefni að glíma við alvarlegan
sjúkdóm. Við tvær ræddum það
oftlega hvernig hægt væri að tak-
ast á við slíkt verkefni, lásum okk-
ur til, og veltum vöngum yfir við-
brögðum, okkar eigin og annarra.
Viðhorf hennar var alveg skýrt.
Hún hefði átt sín góðu ár, séð
börnin sín vaxa úr grasi og barna-
börnin komast á legg, auðnast að
verða langamma, átt góðan vinnu-
stað, hún hefði margt að þakka.
Það væri því engin ástæða til þess
að kvarta. Hún tók hlutskipti sínu
af æðruleysi og bar sig alltaf vel,
líka þegar veikindin ágerðust.
Kæmi það fyrir að hún kveinkaði
sér, var ljóst að þá var meira en
full ástæða til. Anna Björg hélt
reisn sinni, glæsileika og jákvæðu
lífsviðhorfi allt til hins síðasta. Já-
kvætt lífsviðhorf hennar átt sér
djúpar rætur í trú hennar, sem
hún ræktaði og hafði fyrir sig.
Samverustundir okkar voru
ófáar, einkum hin síðari ár. Þar
var margt skrafað, margs var
minnst, að mörgu spurt og flestu
svarað. Með okkur, í góðu yfirlæti
var ætíð heimiliskötturinn
Dimma, en með tengslum þeirra
Önnu Bjargar var bæði notalegt
og skemmtilegt að fylgjast því
hvorugt mátti af hinu sjá. Anna
Björg var næm á líðan samferða-
manna sinna og vildi velferð fjöl-
skyldu sinnar og vina sem mesta.
Þar var kötturinn Dimma ekki
undanskilinn.
Ég minnist vinkonu minnar
með hlýju og söknuði, hún hafði
góða nærveru, einstaka nærveru.
Með henni var gott að vera. Hvíl í
friði, vinkona mín.
Við Önnurnar tvær, Anna
Blöndal og Anna Þóra, Helga og
Jóhanna, þökkum samfylgdina og
sendum öllum ástvinum Önnu
Bjargar innilegar samúðarkveðj-
ur.
Anna Þóra Baldursdóttir.
Anna Björg
Björnsdóttir
✝ Sveinn Guð-mundsson raf-
magnsverkfræð-
ingur fæddist í
Reykjavík 15. sept-
ember 1929 Hann
lést á Landspít-
alanum 7. sept-
ember 2011.
Foreldrar hans
voru Guðmundur
Sveinsson frá Hvilft
í Önundarfirði,
skipstjóri í Rvk, f. 12. sept. 1886,
d. 8. des. 1952, og kona hans.
Ingibjörg Guðrún Björnsdóttir,
verslunarmaður í Reykjavík, f. 6.
júní 1886 á Syðri-Þverá í Vest-
urhópi, V-Hún., d. 3. ágúst 1973.
Systkini Sveins eru Ása, Jóhann-
es, Þórunn, Harald, Sigríður, f.
1923, býr í Arizona.
Sveinn gekk að eiga þann 13.
okt. 1957, Ingrid Gisela Bauer, f.
21. maí 1938 í Richtenberg Kreis
Königsberg, Þýskalandi. For-
eldrar hennar voru Kurt Bauer
og kona hans Hedwig Badke.
Börn þeirra: 1) Sólveig, f. 8.
febr. 1958, m.h. Thierry Clairiot,
f. 21.1. 1956, synir þeirra eru
Bertrand Snorri, f. 5.8. 1983, Er-
ik Sveinn, f. 16.5. 1985, Matthias
Theodor, f. 12.5. 1991. 2) Guð-
mundur, f. 4. júní 1959, k.h. Ari-
anne Gaehwiller, f. 2.3. 1972,
börn þeirra eru a) Senía, f. 14.4.
1999, b) Andreas, f. 21.1. 2001, c)
Júlía, f. 5.11. 2003. 3) Sigrún, f.
30. ágúst 1960 og m.h. Yoshihiko
Iura, f, 26.5. 1954, börn þeirra
eru a) Sveinbjörn Jun, f. 1.9.
1989, b) Berglind Aya, f. 28.4.
1992, b.h. Sara Izumi f. 6.12.
2008, c) Hafdís Shizuka, f. 23.2.
1994, d) Sóley Saki, f. 21.4. 2000.
3) Sveinn Ingi, f. 11. maí 1964,
k.h. Sigrún Ásta Gunnlaugs-
dóttir, f. 20.4. 1958, börn þeirra
eru Hlynur Orri, f. 19.4. 2004, Ír-
is Lind, f. 14.8. 1997. 4) Rík-
harður, f. 28. des. 1966, k.h. Jóna
Kristjana Halldórsdóttir, f. 2.12.
1966, sonur þeirra er Halldór, f.
8.5. 2007. 5) Benedikt, f. 3. jan.
1976, k.h. Anna White, f. 24.12.
1974, synir þeirra eru Snorri, f.
16.1. 2005, Kári,
17.11. 2006.
Sveinn varð stúd-
ent frá MR 1949.
Fór til München, og
lauk prófi í raf-
eindaverkfræði frá
Technishe Hochsc-
hule 1960. Endur-
menntun hjá The
George Washington
University, Mis-
souri, 1983, gervi-
hnattafjarskipti og ljósleið-
aratækni. Nemandi HÍ í frönsku,
rússnesku og ítölsku. Sveinn
starfaði við Írafossvirkjun og
Áburðarverksmiðjuna í Gufu-
nesi. Sveinn var verkfræðingur
hjá sjóher Bandaríkjanna á
Keflavíkurvelli frá 1964, og yf-
irverkfræðingur frá 1968.
Sveinn hætti störfum um tíma á
Keflavíkurvelli en kom aftur til
fyrri starfa á Keflavíkurvelli allt
til ársins 2000. Sveitarstjóri á
Eyrarbakka 1982, hjá Raf-
magnseftirliti ríkisins (1982 til
1986). Sveinn fékk snemma
brennandi áhuga á radíói sem
hann kallaði vak. Sveinn var
vakhugi og einn af stofnendum
félagsins Íslenskir radíó-
amatörar. Hann fagnaði því að
hafa verið vakhugi í 60 ár og
handhafi leyfisbréfs nr. 24. Var
um tíma formaður í félaginu ÍRA
og heiðursfélagi. Á Keflavík-
urvelli var hann (1978-1979) for-
seti Kiwanisfélagsins Brú. Hann
stofnaði Sjálfvirkni og Hverf-
itóna 1963, flutti inn Quad og
hljómplötur frá DG. Hann var í
hollvinur fyrir stofnun tónleika-
húss. Sveinn hafði mikinn áhuga
á þjóðmálum. Málefni flugvall-
arins í Reykjavík voru honum
hugleikin og skrifaði hann marg-
ar greinar um flugumferð yfir
Reykjavík. Sveinn hafði mikinn
áhuga á málum tengdum stjórn-
arskrá Íslands. Sveinn vann að
framboði aldraðra til Alþingis.
Útför Sveins fer fram frá
Dómkirkjunni í dag, 16. sept-
ember 2011, og hefst athöfnin kl.
13.
Minn kæri faðir, Quo Vadis?
Þú varst margbrotinn, flókinn
og vandaður og hafðir þín prinsip.
Það var stranglega bannað að
keyra yfir á rauðu ljósi eða beygja
inn í innakstursgötu. Þú varst
óþrjótandi viskubrunnur allt fram
á síðasta dag sem hægt var að
sækja í. Þú hafðir til að bera metn-
að sem sem fáum var gefinn. Ég
var svo lánsamur að vera þér sam-
ferða.
Faðir, far þú í friði, ég er þér
þakklátur fyrir allt sem þú hefur
mér um lífið kennt. Ég mun minn-
ast þín og þess sem þú sagðir mér.
Á himnum fá aumir og stórhuga
uppreisn æru. Nú þjónar þú lög-
máli Guðs með huga þínum.
Megi Guð blessa þig og varð-
veita.
Þinn sonur,
Guðmundur Sveinsson.
Félagi okkar, Sveinn Guð-
mundsson, rafeindaverkfræðing-
ur, er fallinn frá. Útför hans verð-
ur gerð frá Dómkirkjunni 16.
september kl. 13.
Sveinn stundaði nám við
Tækniháskólann í München, Tec-
hnische Universität, TUM, og
lauk Dipl.Ing-námi þar 1960.
Á námsárunum var Sveinn
virkur félagi í Félagi Íslendinga í
München og var einn af stofnend-
um TUM Alumni á Íslandi, félagi
hollvina Tækniháskólans í Münc-
hen.
Sveinn var hugmyndaríkur
verkfræðingur og starfrækti eigin
verkfræðistofu í mæli- og stýri-
tækni frá 1960 og eigið innflutn-
ingsfirma, Sjálfvirkni. Þá stofnaði
hann og rak með eiginkonu sinni
verslunina Hverfitóna frá 1963.
Hverfitónar buðu á sínum tíma
upp á nýtt og aukið úrval hljóm-
platna, bæði með klassíska tónlist
og dægurlögum.
Sveinn var heiðursfélagi í Fé-
lagi íslenskra radíóamatöra. Hann
starfaði í áratugi hjá sjóher
Bandaríkjanna á Keflavíkurflug-
velli.
TUM Alumni á Íslandi votta
eiginkonu Sveins, Ingrid Guð-
mundsson, og börnum þeirra
dýpstu samúð.
F.h. TUM Alumni á Íslandi,
Gunnar Torfason.
Sveinn
Guðmundsson
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
VALGEIR ÁSBJARNARSON,
Brekkugötu 38,
Akureyri,
lést mánudaginn 5. september.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 19. september kl. 13.30.
Ásta Axelsdóttir,
Axel Valgeirsson, Hanna Guðrún Magnúsdóttir,
Ásbjörn Árni Valgeirsson, Harpa Hrafnsdóttir,
Kristjana Valgeirsdóttir, Ríkarður G. Hafdal,
Gunnlaug Valgeirsdóttir, Ríkharður Eiríksson,
afa- og langafabörn.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför föður okkar, tengdaföður og
afa,
GUNNARS DAL
skálds og rithöfundar.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Hrafnistu í Hafnarfirði.
Gunnar D. Halldórsson,
Jónas G. Halldórsson,
Guðvarður B. Halldórsson
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, ást og hlýhug við andlát og
útför
UNNAR STEFÁNSDÓTTUR,
Kársnesbraut 99,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir viljum við færa læknum og
hjúkrunarfólki krabbameinsdeildar Landspítalans við Hringbraut,
starfsfólki líknardeildarinnar í Kópavogi og öllum þeim sem
aðstoðuðu Unni í veikindum hennar. Við þökkum þeim sem
sendu okkur samúðarkveðjur og þeim sem heiðruðu minningu
Unnar við útför hennar í Hallgrímskirkju föstudaginn 19. ágúst.
Einnig viljum við þakka prestinum Sigurði Arnarsyni og fyrrver-
andi félögum í Pólýfónkórnum fyrir þeirra framlag í athöfninni.
Hákon Sigurgrímsson,
Finnur Hákonarson, Rósa Birgitta Ísfeld,
Grímur Hákonarson, Halla Björk Kristjánsdóttir,
Harpa Dís Hákonardóttir,
Ísadóra Ísfeld Finnsdóttir.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐFINNA BETSÝ HANNESDÓTTIR,
lést á líknardeild Landspítalans þriðjudaginn
13. september.
Útför hennar mun fara fram frá Fossvogs-
kirkju þriðjudaginn 27. september kl. 13.00.
Jens Sörensen,
Kolbrún Svala Hjaltadóttir, Oddur Sigurðsson,
Kristbjörg Stella Hjaltadóttir, Sigurður Ingi Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÁRNI ÁRNASON
fyrrv. forstjóri,
Sóltúni 10,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðju-
daginn 13. september.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn
20. september kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Parkinsons-samtökin.
Guðrún Pálsdóttir,
Árni Þór Árnason, Guðbjörg Jónsdóttir,
Þórhildur Árnadóttir, Valdimar Olsen,
Guðjón Ingi Árnason, Sigríður Dögg Geirsdóttir
og barnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
RAGNAR BENEDIKTSSON,
Stekkjargötu 7,
Hnífsdal,
andaðist á heimili sínu miðvikudaginn 14. september.
Jarðarför verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Ragnheiður Ragnarsdóttir,
Jón Ólafur Ragnarsson,
Sigurður Hólm Ragnarsson,
Júlíus Sigurbjörn Ragnarsson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
systir og mágkona,
SIGRÍÐUR J. GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
laugardaginn 10. september.
Útförin fer fram frá Bústaðakirku
miðvikudaginn 21. september kl. 13.00.
Börn, tengdabörn og barnabörn.