Morgunblaðið - 16.09.2011, Qupperneq 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2011
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Enskur springer spaniel –
Ættbók frá HRFÍ
Hvolpar til sölu undan frábærum
foreldrum. Ræktunarlínur frá einum
fremsta ræktanda Svíþjóðar.
Bólusettir, örmerktir og afhendast
í lok sept. Sími 695 1714,
eddajanette@hotmail.com.
Geymslur
Upphitað mjög gott húsnæði
Tökum í geymslu í vetur fellihýsi,
hjólhýsi, pallhýsi og tjaldvagna.
Erum á Suðurnesjum (Garður).
Sími 867 1282.
Ferðavagnageymsla Borgarfirði
Geymum tjaldvagna, fellihýsi,
hjólhýsi, báta og fleira í upphituðu
rými. Gott verð.S: 612-6130
E-mail solbakki.311@gmail.com.
Gónhóll Eyrarbakka
Geymslur og gisting
Geymdu gullin þín í Gónhól.
Uppl., geymsla, s. 771-1936.
Uppl., gisting, s. 771-1940.
Pantanir og skráning
mttp://www.gonholl.is
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
Fjarstýrðar innanhússþyrlur í
úrvali
Erum með mikið úrval af fjarstýrðum
inni- og útiþyrlum, flugvélum, bátum
og fl. Kíktu á síðuna Tactical.is og
skoðaðu úrvalið. Netlagerinn slf.
Sími 517 8878.
Verslun
Fallegu silfurskeiðarnar
eru smíðaðar í smiðjunni okkar ásamt
borðsilfrinu íslenska. Skeiðarnar
kosta 17.500,- og við getum áletrað
ef vill með stuttum fyrirvara.
ERNA, s. 552 0775, www.erna.is
Óska eftir
Kaupi gamla mynt og seðla
Kaupi gömul mynt- og seðlasöfn. Met
og geri tilboð á staðnum. Áralöng
reynsla. Kaupi einnig minnispeninga
og orður. Gull- og silfurpeninga.
Sigurður, s. 821 5991.
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
Bókhald og reikningsskil
Ársreikningar, bókhald, laun,
ráðgjöf og stofnun félaga.
Reynsla, þekking, traust.
Viðskiptaþjónustan,
Dalvegi 16d, Kópavogi.
vth.is / arni@vth.is / s. 517 0100.
Við bjóðum alla bókhalds-
þjónustu.
Traust og gagnkvæmur trúnaður.
www/fsbokhald.is.
Fyrirtæki og samningar ehf,
Suðurlandsbarut 46,
108 Reykjavík. S. 5526688
Bílar
Mazda Rx-8, ek. aðeins 54 þ. km
Mjög vel með farinn, nýskoðaður án
athugasemda, ssk., pedalaskipting í
stýri, 18" felgur, heilsársdekk, xenon-
ljós, hraðastillir, leður, hiti í sætum,
glertopplúga, loftkæling, smurbók,
þjónustubók. Verð 2.490 þús. Skoða
skipti á ódýrari. Uppl. jon@talnet.is,
777-4164.
Bílalíf • Kletthálsi 2 • www.bilalif.is
bílasala
...í bílum erum við sterkir!
☎ 562 1717
Skráðu bílinn
þinn frítt hjá
bilalif.is
Bílaþjónusta
! "
#
! !!
!
Fjórhjól
Can Am RENEGADE 800
GÖTUSKRÁÐ 08/07.
Ek. ca. 6000 þús. km. Sérsmíðuð
grind að aftan - hiti í handföngum og
bensíngjöf - upphækkað stýri –GPS
festing. Verð 1790 þús.
Uppl. í s. 822 3600.
Húsviðhald
Laga ryðbletti á þökum.
Hreinsa þakrennur og tek
að mér ýmis smærri verk.
Upplýsingar í síma 847 8704
eða manninn@hotmail.com.
Stigateppi
Strönd ehf., Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík. S. 533 5800,
www.strond.is
MÓÐUHREINSUN GLERJA
Er komin móða eða raki á milli
glerja? Móðuhreinsun ÓÞ.
Sími 897-9809.
Þjónusta
✝ Elvar ÞórValdimarsson
fæddist á Ísafirði
17. mars 1941.
Hann lést á heimili
sínu, Hörðukór 2 í
Kópavogi, 29.
ágúst 2011. For-
eldrar hans voru
Valdimar Valdi-
marsson, f. 11.
ágúst 1905, d. 11.
júlí 1988 og Sigríð-
ur Ísaksdóttir, f. 25. október
1901, d. 24. nóvember 1949.
Systkini Elvars eru Íslaug Að-
alsteinsdóttir, f. 25. mars 1926,
Kristína Jakobína Valdimars-
dóttir, f. 10. september 1932, d.
13. júlí 1935, Erla Valdimars-
dóttir, f. 8. júní 1934, d. 29.
september 2008, Kristján Ísak
Valdimarsson, f. 3. maí 1936,
drengur Valdimarsson, f. 16.
júní 1942, d. 7. september 1942.
Elvar gekk að eiga Eddu
Ragnhildi Erlendsdóttur, f. 25.
febrúar 1950, þau skildu. Þau
eignuðust tvö börn, þau eru 1)
Ásdís, f. 25. maí 1969, hún á
einn son, Tómas Bjarka
Tryggvason Hübner, f. 18. febr-
úar 1993. 2) Erlendur Þór, f. 5.
og var háseti á varðskipinu
Óðni og var einn þeirra sem
komu með skipið nýsmíðað
heim til Íslands frá Danmörku
þann 27. janúar 1960. Hann
lauk „farmannaprófi“ frá Stýri-
mannaskólanum í Reykjavík 5.
maí 1966 og fékk þann sama
dag „Hið meira stýrimanna-
skírteini á verslunarskipi“. Í
júní sama ár réð hann sig þriðja
stýrimann á farþegaskipið Esj-
una sem var í eigu Skipaútgerð-
ar ríkisins. Um 1969 flyst hann
til Skagastrandar og stundar
sjósókn um skeið á fiskiskipum.
Á árunum 1970 til 1971 lætur
hann smíða fyrir sig 21,49
brúttólesta eikarbát hjá Guð-
mundi Lárussyni mági sínum
sem þá átti og rak Skipa-
smíðastöð Guðmundar Lár-
ussonar. Fékk báturinn nafnið
Ásdís HU 10 og gerði Elvar bát-
inn út sjálfur í eitt ár eða þar til
hún fékk á sig brot og hvolfdi út
af Þorlákshöfn 3. desember
1971. Fjögurra manna áhöfn
komst í gúmmíbjörgunarbát og
var bjargað um borð í Jón Ví-
dalín. Eftir þetta hóf hann aftur
störf fyrir Ríkisskip. Haustið
1976 réð hann sig til Eimskipa-
félags Íslands og hafði hann
siglt flestum skipum hjá félag-
inu þegar hann hætti störfum
1997.
Útför Elvars fór fram frá
Fossvogskirkju 6. september
2011.
júní 1971, hann á
þrjú börn, þau
Eddu Margréti, f.
22. júní 1993, Arn-
ór, f. 13. júlí 1997
og Elísu Ýrr, f. 26.
júlí 1998. Unnusta
Erlendar er Jóna
Fanney Svav-
arsdóttir, f. 1. sept-
ember 1974, dóttir
hennar er Magnea
Rut Gunnarsdóttir,
f. 22. maí 1999.
Elvar fæddist á Ísafirði og
ólst þar upp til 8 ára aldurs en
þá lést móðir hans og eftir veik-
indi föður síns fer hann í vist á
Skarð við Akureyri til móð-
ursystur sinnar Guðlaugar
Jensínu Guðmann og eig-
inmanns hennar Jóns Guðmann
Gíslasonar. Hann lauk ung-
lingaprófi bóknámsdeildar
Gagnfræðaskóla Akureyrar 15.
maí 1956 og Gagnfræðaprófi
Verknámsdeildar Gagnfræða-
skóla Akureyrar 31. maí 1958.
Eftir nám í gagnfræðaskólanum
gerðist hann sjómaður og átti
eftir að vinna við það alla sína
starfsævi. Hann starfaði meðal
annars hjá Landhelgisgæslunni
Nú þegar hann Elvar móður-
bróðir er lagður af stað í sinn síð-
asta túr og ljóst að ekki hittum
við hann í þessum heimi oftar,
streyma fram ljúfar minningar
um liðnar samverustundir. Hann
var frændinn sem sigldi á stórum
skipum til útlanda, en útlöndin
voru þá svo mikið lengra í burtu
en nú er. Það var alltaf tilhlökkun
hjá okkur krakkahópnum í
Herðubreið og seinna á Hóla-
brautinni þegar von var á Elvari
og næsta víst að hann kæmi fær-
andi hendi. Það voru sko engar
hversdagsvörur sem hann kom
með, heldur vörur sem ekki feng-
ust í verslunum á þeim tíma.
Hann kom með gos í dós, niður-
soðna ávexti og fleira sem sett
var á efstu hillu í búrinu og tekið
fram þegar mikið stóð til hjá fjöl-
skyldunni.
Elvar missti móður sína ungur
en þá fór hann í fóstur að Skarði á
Akureyri. Uppeldisárin á Akur-
eyri voru Elvari hugleikin. Þær
minningar hans þaðan voru góð-
ar. Það var afar kært milli Elvars
og foreldra okkar, fyrrum dvaldi
hann oft á heimili okkar. Því
mynduðust sterk tengsl og ekki
var sá fjölskylduviðburður að
Elvar tæki ekki þátt í honum.
Hann var skemmtilegur en gat
verið stríðinn á stundum og þótti
sumum nóg um. Alltaf samt vænn
og góður. Við litum meira á hann
sem „stóra bróður“ en frænda,
svo sterk voru tengslin. Hann
hefur líklega verið tækjaóður og
heimili okkar naut góðs af því.
Þegar hann kom úr siglingum
birtist hann ósjaldan með ný-
tískuleg tæki og tól sem áttu að
létta móður okkar vinnuna við
heimilið og eru sum tækin enn í
notkun.
Það var ekki lítil spennan þeg-
ar fréttist að Elvar væri kominn
með kærustu. Þau Edda bjuggu í
nokkur ár á Skagaströnd. Þau
eignuðust tvö börn, Ásdísi og Er-
lend Þór. Elvar keypti fyrsta eik-
arbátinn sem smíðaður var í
skipasmíðastöð föður okkar á
Skagaströnd, Ásdísi HU 10. Í
kjölfarið fluttist Elvar suður með
fjölskylduna þar sem hann gerði
bátinn út. Elvar bjó lengi á Vest-
urgötunni og þar áttum við systk-
inin ævinlega afdrep hjá honum.
Hann var góður heim að sækja og
höfðum við aðsetur þar til lengri
eða skemmri tíma.
Mesta auðlegð Elvars og ham-
ingja voru börnin hans og fjöl-
skyldur þeirra. Það sá hver mað-
ur hversu vænt honum þótti um
börn sín og barnabörnin og
hvergi naut hann sín betur en
með barnabörnunum. Elvar var
duglegur að rækta sambönd við
fólkið sitt og ættmenni. Hann
fræddi okkur hin um fjölskyldu-
tengslin og færði fréttir af hvort
öðru. Elvar var duglegur að taka
þátt í viðburðum í fjölskyldunni.
Hann spjallaði á glaðlegum nót-
um við unga fólkið sem hafði
gaman af. Sérstaklega er okkur
minnisstæð ferð sem við systk-
inin og fjölskyldur okkar fórum
með móður okkar og Elvari til
Ísafjarðar árið 2005 á hundrað
ára afmæli Valdimars afa. Þar lék
Elvar á als oddi og naut þess að
fræða okkur um uppruna þeirra
systkina.
Elvar glímdi við veikindi síð-
ustu árin, hann tókst á við þau af
styrk, æðruleysi og kvartaði aldr-
ei. Honum var alltaf meira um-
hugað um líðan annarra en sína
eigin.
Elsku Ásdís, Erlendur og fjöl-
skyldur, okkar dýpstu samúðar-
kveðjur vegnar fráfalls ykkar
yndislega föður og afa. Blessuð
sé minning hans.
Fyrir hönd barnahóps Erlu og
Guðmundar,
Þórdís Elva Guðmundsdóttir.
Ævi manns eru 70 ár og þegar
best lætur 80 ár, segir í heilagri
ritningu. Frávikin eru mörg og
sjúkdómar og annað sem breytir
því. Við eigum það eitt víst að
ganga á Guðs fund að lokum. 41
árgangurinn fyllir 70 árin um
þessar mundir og það hafði Elvar
Þór Valdimarsson gert á þessu
vori. Það eru tímamót og dögum
vorum fækkar. Elvar lést 29.
ágúst síðastliðinn. Góðu lífi er
lokið og gegn maður genginn.
Hann er kominn norður og heim.
Alltaf þegar ungar rætur
upp úr moldu blöðin teygja
flýgur hugur heim og norður,
hnígur regn í gljúpan svörð.
Veistu hvernig vorið kemur,
vefur grasi laut og þúfu
meðan nóttin bláa, bjarta
breiðir slæðu á sofna jörð?
Svo kveður Hjörtur Pálsson
skólabróðir okkar Elvars í barna-
skóla. Þar er eins og hvur maður
sjái sjálfan sig. Ekki man ég Elv-
ar í skóla fyrr en í 14. stofu hjá
Tryggva Þorsteinssyni. Tryggvi
var skátahöfðingi og góður kenn-
ari í bestu merkingu þess orðs.
Hann kom á ró og festu í hugum
ærslafullra nemenda. Ekki segi
ég að hann hafi barið menn til
bókar en hann var strangur
kennari, samanrekinn og göngu-
lagið fjaðurmagnað. Elvar var
góður námsmaður og um áramót
í 6. bekk voru hann og Gústi í
Litla-Garði forframaðir í betri
bekk. Eftir fullnaðarpróf lá leiðin
í Gagnfræðaskólann. Þar vorum
við aftur saman og vináttan söm
og áður. Elvar gegndi trúnaðar-
störfum fyrir skólann og var um-
sjónarmaður í frímínútum. Það
fórst honum vel úr hendi í hví-
vetna og félagarnir nutu engra
forréttinda. – Yfir litlu varstu
trúr, yfir mikið mun ég setja þig,
segir frelsarinn í dæmisögu um
hinn stranga húsbónda. Hann
lauk hinu meira stýrimannaprófi
og sigldi mörgu fleyi heilu í höfn.
Mannbjörg varð, er bátur hans
fórst fyrir suðurströndinni. Hann
missti aldrei mann eins og þar
stendur og gæfa var yfir störfum.
Í 2. bóknáms B unnum við fræki-
legan sigur í sundkeppni skólans
og hömpuðum „Bauknum“ eins
og Akureyringar kalla það.
Nokkrir dugmiklir strákar voru
sendir upp í Hlíðarfjall einn góð-
an vordag og steyptum við gólfið í
bíslaginu. Hraustlega var tekið
til höndum og sumir hrærðu
steypuna og sumir óku hjólbör-
um. Þar var Elvar fremstur í
flokki, vel að burðum, samanrek-
inn, meðalmaður á hæð og glett-
inn til augnanna. Alla jafna var
hann stríðinn og gamansamur, en
nú var alvaran í fyrirrúmi. Verk-
lagið bar vitni um fyrri störf að
Skarði, þar sem hann ólst upp frá
8 ára aldri. Kom allajafna í skóla
beint úr verkum á Skarði og
hvarf til sömu verka að skóla
loknum. Kjörin settu á manninn
mark og það nýttist honum ævina
á enda.
Það var stoltur faðir, afi og
tengdafaðir sem í okkar síðasta
samtali fyrr í sumar sagði mér
frá Erlendi syni sínum og Fann-
eyju Svavarsdóttur sem hafa
dvalið við söngnám og störf á
Ítalíu um árabil, frá Ásdísi dóttur
sinni og afkomendum öllum. Við
útför hans heyrðu viðstaddir
fagran söng þeirra. Ásdís tók á
móti kirkjugestum, falleg og hlý,
virðuleg og stolt föður síns.
Ég sakna vinar í stað og þakka
Elvari Þór Valdimarssyni sam-
fylgd og góða vináttu. Þar fór
góður maður, þar sem hann fór.
Guðjón Jónasson.
Meira: mbl.is/minningar
Elvar Þór
Valdimarsson
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn-
ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður, "Senda inn minningargrein", valinn úr
felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að
hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri
en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein-
göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar