Morgunblaðið - 16.09.2011, Page 37
Svava Björnsdóttir opnar sýningu á
nýjum verkum í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar á Laugarnesi á laugardag
kl. 15.00. Tvítug að aldri hóf Svava
listnám í Listaháskóla Parísarborgar
og stundaði síðan nám við Listahá-
skólann í München. Hún vinnur verk
sín í pappírsmassa, steypir þau úr
hráu pappírsbeðmi. Fyrir vikið eru
sum þeirra fyrirferðarmikil og hafa
einkenni rýmisverka en önnur verk
virka eins og sambland af skúlptúr
og málverki. Aðspurð hvers vegna
pappírinn hafi orðið fyrir valinu segir
hún ekki gott að svara því afdráttar-
laust, en það sé margt við pappír sem
heilli hana, þar á meðal léttleiki og
kæruleysi. „Einhvernveginn hefur
pappírinn orðið mitt efni, einhvern-
veginn höfum við orðið samferða.“
Svava segist yfirleitt vinna sýn-
ingar inn í sýningarrými og þegar af-
ráðið var með sýninguna í vor segist
hún hafa byrjað að velta verkunum
fyrir sér, hvernig þau ættu að vera
og hvernig sýningin myndi falla inn í
rýmið. Hún tekur það fram að það sé
sérstaklega gaman að fá að sýna í
Listasafninu, enda sé rýmið af-
skaplega fallegt.
Yfirskrift sýningarinnar er
Hryggjarstykki. Svava rekur söguna
svo að Birgitta Spur í Listasafni Sig-
urjóns hafi spurt sig í vor hvað sýn-
ingin ætti að heita og það hafi vafist
aðeins fyrir henni að finna nafnið,
enda þyki henni alltaf svolítið erfitt
að nefna sýningar. „Einhvern veginn
kom þetta nafn svo til mín. Það er
náttúrlega nafn á gömlu glötuðu
handriti sem Snorri Sturluson nefnir
og mér hefur alltaf þótt það furðu-
legt að munkarnir sem skrifuðu
handritin skuli hafa nefnt kon-
ungasögur Hryggjarstykki. Það er í
raun jafn absúrd í dag og fyrir
hundruðum ára og gaman að end-
urvekja nafnið, en verkin eru líka
sett saman úr stykkjum og hanga í
snærum og gætu þess vegna eins
verið hryggsúla.“
arnim@mbl.is
Svava Björnsdóttir sýnir ný verk í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
Hryggjarstykki Svövu
í Laugarnesinu
Léttleiki Svava Björnsdóttir sýnir verk sem unnin eru í pappírsmassa.
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2011
Í kvöld kl. 20.00 opnar Katrín Ól-
ína Pétursdóttir sýningu sem hún
nefnir Miklimeir, í Spark Design
Space á Klapparstíg 33. Á sýn-
ingunni er töframaðurinn Mikli-
meir kynntur til leiks og frásögn
af honum útfærð á teppi. Verk-
efnið er unnið í samstarfi við hið
konunglega dúskafyrirtæki Århus
Possementfabrik A/S og teppa-
framleiðandann EGE í Dan-
mörku.
Sýningin stendur til 16. nóv-
ember. Opið verður virka daga
frá 10.00 til 18.00 og laugardaga
frá 12.00 til 16.00.
Töframaðurinn Miklimeir birtist
Teppasaga Frásögnin af töframann-
inum Miklameir útfærð á teppi.
Fólkið i Kjallaranum – 9 Grímutilnefningar
Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F
Íslenski dansflokkurinn
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Fullkominn dagur til drauma
Fös 30/9 kl. 20:00
Fös 7/10 kl. 20:00
Sun 9/10 kl. 20:00
Sun 23/10 kl. 20:00
Sun 30/10 kl. 20:00
Sun 6/11 kl. 20:00
Svanurinn (Tjarnarbíó)
Sun 6/11 kl. 14:00
Sun 13/11 kl. 14:00
Sun 20/11 kl. 14:00
Sun 27/11 kl. 14:00
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus
Tjarnarbíó
5272100 | tjarnarbio@leikhopar.is
Gróska 2011
Fös 16/9 kl. 19:30 Lau 17/9 kl. 14:30
Höfundahátíð Félags leikrita og handritshöfunda
Eftir Lokin
Lau 29/10 kl. 20:00
Fim 3/11 kl. 20:00
Lau 5/11 kl. 20:00
Lau 12/11 kl. 20:00
Fim 17/11 kl. 20:00
Fös 18/11 kl. 20:00
Fös 25/11 kl. 20:00
Lau 26/11 kl. 20:00
Fös 2/12 kl. 20:00
Lau 3/12 kl. 20:00
Svanurinn
Sun 6/11 kl. 14:00
Sun 13/11 kl. 14:00
Sun 20/11 kl. 14:00
Sun 27/11 kl. 14:00
23 sept fös frums.uppselt
24 sept lau kl 20
25 sept sun kl 21
07 okt fös kl 20
08 okt lau kl 20 uppselt
09 okt sun kl 2
Hjónabandssæla
Jazzblússoul Sálgæslan; Einar Scheving, Þórir Baldursson,
Andrea Gylfadóttir og Sigurður Flosason.
Sálgæslan leikur á veitingahúsinu Munnhörpunni í
Hörpu á laugardag, en þá verða haldnir sjöttu tónleik-
arnir í jazztónleikaröð Munnhörpunnar. Á þessum tón-
leikum skipa Sálgæsluna söngkonan Andrea Gylfadótt-
ir, saxófónleikarinn Sigurður Flosason,
Hammond-orgelleikarinn Þórir Baldursson og
trommuleikarinn Einar Scheving. Sérstakur gestur á
tónleikunum verður gítarleikarinn Andrés Þór Gunn-
laugsson. Stefán Hilmarsson Sálgæslufélagi er staddur
erlendis og verður því ekki með á þessum tónleikum.
Sálgæslan sendi nýverið frá sér plötuna Dauði og
djöfull. Tónlist sveitarinnar er á mörkum jazz-, blús- og
soultónlistar. Tónleikarnir hefjast kl. 15.00 og standa
til 17.00. Aðgangur er ókeypis.
Sálgæslan á Munnhörpunni