Morgunblaðið - 16.09.2011, Qupperneq 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2011
Sýning á ljómyndaverkum eftir
bandaríska myndlistarmanninn
Philip Van Keuren verður opnuð í
sal Íslenskrar grafíkur á laugardag
kl. 15.00 og verður listamaðurinn
viðstaddur opnunina.
Philip Van Keuren hefur unnið
sem myndlistarmaður frá árinu
1971, haldið fjölmargar einkasýn-
ingar og tekið þátt í fjölda samsýn-
inga bæði í Bandaríkjunum og á al-
þjóðavettvangi. Hann hefur unnið til
fjölda verðlauna og styrkja. Nýlega
voru verk hans á pappír sem hann
hefur unnið við sl. fjörutíu ár sýnd í
samtímasafninu í Dallas í Texas og
bók hans, Four Ways to Say Fare-
well er í eigu Borgarbókasafnsins í
New York.
Ljósmyndirnar í Night Cometh
eru hugsaðar sem einar og sér eða
sem hluti af stórri heild en verkefn-
inu lýkur ekki fyrr en með dauða
listamannsins. Titill sýningarinnar,
Night Cometh, er úr Biblíunni og er
letraður á kirkjuklukku þar sem Van
Keuren ólst upp, en textinn minnir
hann á dauðleika mannsins.
Heild Philip Van Keuren
Það kem-
ur nótt á
laugardag
Ljómyndaverk eft-
ir Philip Van Keuren
Á sunnudaginn
leggja þeir sam-
an í púkk ten-
órsaxófónleik-
ararnir Ólafur
Jónsson og Stef-
án S. Stefánsson
á Café Rosen-
berg á Klapp-
arstíg 25. Þeir fé-
lagar hafa leikið
saman lengi,
lengst af með
Stórsveit Reykja-
víkur. Á dag-
skránni er swing
ættað frá Sonny
Stitt, Sonny Roll-
ins, Dave
O’Higgins, Eric
Alexander og
fleiri saxófón-
jöfrum. Meðleik-
arar þeirra Ólafs
og Stefáns eru píanóleikarinn Agn-
ar Már Magnússon, bassaleikarinn
Þorgrímur Jónsson og trommuleik-
arinn Einar Scheving. Tónleikarnir
hefjast kl. 21.00.
Tenórarnir
tveir á
Rosenberg
Stefán S.
Stefánsson
Ólafur
Jónsson
Signý Gunnarsdóttir
signyg@mbl.is
Gustaovo Dudamel er að öllum lík-
indum sá maður sem hefur vakið
mestan áhuga ungs fólks á klassískri
tónlist um allan heim síðastliðin ár.
Hann hefur útlit poppstjörnu og
hreyfingar hans samræmast því.
Hrokkið hár hans sveiflast í takt við
tónlistina og ástríða hans fyrir starfi
sínu er áhorfendum innblástur.
Dudamel er á leið til Íslands og mun
halda tónleika í Hörpu 18. sept-
ember ásamt Sinfóníuhljómsveit
Gautaborgar. Hversu skært stjarna
hans skín kom vel í ljós þegar um-
boðsmaður hans athugaði símalín-
una tvisvar áður en Morgunblaðið
fékk viðtal við hann og blaðamanni
var tilkynnt að viðtalið skyldi verða
stutt og laggott þar sem herra
Dudamel væri afar upptekinn. Í sím-
ann kom aftur á móti rólyndislegur
og ljúflyndur maður sem virtist geta
gefið Morgunblaðinu allan sinn tíma.
Efst í huga Íslendinga er oftast að
fá sýn þeirra sem hingað koma á
land og þjóð og því ekki úr vegi að
falast eftir áhuga Dudamel á Íslandi.
„Mér líst afskaplega vel á að koma
til Íslands og er mjög spenntur yfir
því. Það er mikill heiður fyrir okkur
að fá að spila í Hörpu og að fá að
deila tónlistinni okkar, sem við erum
svo stolt af, með Íslendingum.“ Efn-
isskrá tónleikanna hér á landi er af-
ar forvitnileg og fengum við Duda-
mel til að segja okkur örlítið frá
henni. „Við erum með mjög fallega
dagskrá með nýju sænsku verki sem
að við munum frumflytja á morgun
(14. sept.) í Gautaborg. Dagskráin
okkar samanstendur af klassískri,
rómantískri og nútímalegri tónlist.
Það er að sjálfsögðu sænsk sál í tón-
listinni sem við spilum en auðvitað
örlítil rómönsk sál líka, frá mér kom-
in. Ég hef líka alveg afskaplega
gaman af klarinettleikaranum Mart-
in Fröst. Hann er stórkostlegur tón-
listarmaður og bara einstakur lista-
maður á allan hátt.“
Þrjár fjölskyldur í þremur
hljómsveitum
Þar sem Dudamel er stjórnandi í
þremur stórum hljómsveitum, Sin-
fóníuhljómsveit Gautaborgar, Fíl-
harmóníunni í Los Angeles og Sim-
ón Bolívar Sinfóníunni er ekki úr
vegi að spyrja hvort hann eigi sér
ekki eftirlætishljómsveit. „Nei, ég á
enga eftirlætishljómsveit, fyrir mér
eru þetta fjölskyldur mínar þrjár.
Ekki einungis tónlistarlega séð held-
ur líka vegna mannlegra tengsla. Í
raun og veru er ég mjög stoltur af
því að vera hluti af öllum þessum
hljómsveitum og þær eru auðvitað
allar tengdar. Simón Bolívar er
sprottin upp úr El Sistema og nú
hefur El Sistema verið komið á fót
bæði í Los Angeles og Gautaborg,
þar sem ég hef starfað. El Sistema
gefur hljómsveitunum svo mikla
dýpt, félagsleg ábyrgð verður ekki
eingöngu tónlistartengd heldur eru
þátttakendur að deila lífsgildum,
fegurð og næmi. Tengslin milli þess-
ara hljómsveita eru því sérstök.“
Þegar Dudamel er inntur eftir því
hvort hann langi aldrei til að setjast
meðal hljómsveitarinnar og spila á
fiðluna aftur hlær hann en svarar,
„Ég get spilað á fiðlu en það hljómar
ekki vel hjá mér. Ég spilaði reglu-
lega þar til fyrir sjö árum en núna
spila ég bara á hljómsveitirnar mín-
ar.“
En skyldi þessi stórstjarna eiga
sér eftirlætisminningu tengda tón-
listinni? „Ég get ekki gert upp á
milli þeirra, þær eru svo margar.
Upp í hugann kemur fyrsta skiptið
sem ég fór á tónleika, fyrsta skiptið
sem ég spilaði með sinfóníuhljóm-
sveit, fyrsta skiptið sem ég stjórnaði
hljómsveit, þegar ég var útnefndur
tónlistarstjóri í Venesúela eða þegar
ég spilaði fyrst með Fílharmóníunni
í Los Angeles. Ég á alveg hreint fullt
af minningum. En sú sem er sér-
stökust og líklegast mér kærust er
þegar ég spilaði fyrst með sinfón-
íuhljómsveit. Þegar ég sat í miðri
hljómsveitarþvögunni og spilaði á
fiðluna var þetta fyrir mig eins og að
synda í hafsjó af ástríðu og draum-
um. Maður lítur óneitanlega reglu-
lega til upphafsins og hugsar; þetta
er ástæðan fyrir því að ég er að
þessu. Á þessum tíma létu mörg
börn sig dreyma um að geta gert
svona stóra hluti sem mér var kleift
að gera.“
Spilar á hljómsveitirnar
Gustavo Dudamel og Sinfóníuhljómsveit Gautaborgar spila í Hörpu á sunnu-
dag Klassísk, rómantísk og nútímaleg tónlist á tónleikadagskránni
Ljósmynd/Anna Hult
Spenntur Gustavo Dudamel líst afskaplega vel á að koma til Íslands.
Elvar segir að þeir
félagar hafi verið
orðnir þreyttir á því að
bíða eftir því að eitthvað
myndi gerast 40
»
Þrátt fyrir að vera rétt þrítugur
er honum lýst sem skærustu
stjörnu klassískrar tónlistar í
heiminum í dag. Gustavo Duda-
mel er fæddur og uppalinn í
Venesúela, var 10 ára þegar
hann hóf fiðlunám. Fljótt byrj-
aði hann að nema tónsmíðar og
aðeins fjórtán ára byrjaði hann
að læra tónlistarstjórn. Það er
ógerlegt að telja upp alla sigra
hans á tónlistarsviðinu en til að
stikla á afar stóru er hægt að
nefna að árið 1999 tók hann við
Simón Bolívar sinfóníunni í
Venesúela, 2006 bættist síðan
Sinfóníuhljómsveit Gautaborg-
ar við og 2009 Fílharmónían í
Los Angeles.
Gustavo
Dudamel
HLJÓMSVEITARSTJÓRINN
Eftir að hafa horft upp á samlanda
sína berjast við fátækt og skort á
menntun fékk píanóleikarinn, hag-
fræðingurinn og stjórnmálamað-
urinn José Antonio Abreu þá hug-
mynd að beita klassískri tónlist sem
félagslegu hjálpartæki. Þetta var
árið 1975 og setti Abreu á lagg-
irnar El Sistema (Kerfið) sem
byggðist á þeirri hugmyndafræði
að gefa börnum úr fátækrahverfum
færi á fríu tónlistarnámi, byggja
tónlistarnámið á samspili fremur en
einkakennslu og ná þannig fram
aga, metnaði, samkennd og virð-
ingu hjá börnunum. Það er
skemmst frá því að segja að það
sem byrjaði sem lítil og samfélags-
lega falleg hugmynd hefur blómstr-
að í öll þessi ár og breiðst út til
fjölda annarra landa. Fyrir utan
hversu mikið gott þetta hefur gert
fyrir börnin, sem í dag eru mörg
hver fullorðin og enn að spila, hef-
ur þetta vakið áhuga almennings á
klassískri tónlist svo um munar. Á
vegum El Sistema eru 125 ungliða-
hljómsveitir, 31 atvinnuhljóm-
sveitir og 250.000 börn sem eru í
reglubundnu tónlistarnámi. 90% af
nemendunum koma úr heimi fá-
tæktar og vegna aðstæðna sinna
geyma þau hljóðfærin í skólunum
svo þeim verði ekki stolið af heim-
ilum þeirra. Simón Bolívar sinfóní-
an samanstendur af afburða-
nemendum El Sistema sem hefur
farið sigurför um heiminn. Hvar
sem hljómsveitin spilar undir stjórn
Gustavo Dudamel er henni fagnað
sem popphljómsveit og Dudamel er
klárlega poppstjarnan.
El Sistema – Kerfið
Ljósmynd/Alfonso Ocando
Sigurför Gustavo Dudamel og Símon Bólivar hljómsveitin.